Morgunblaðið - 30.07.1983, Qupperneq 25
25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
Landsvirkjun:
Lækkar rekstrarhall-
ann um 132 milljónir
„ÉG ER að sjálfsögðu ánægður
með þessa afgreiðslu á hækkunar-
beiðni Landsvirkjunar, sagði Hall-
dór Jónatansson forstjóri fyrirtæk-
isins í samtali við Mbl., en ríkis-
stjórnin ákvað á fundi sínum í gær
að veita Landsvirkjun umbeðna
verðhækkun um 31%.
„Það er greinilegt að ríkis-
stjórnin er samþykk þeirri
stefnu Landsvirkjunar að heilla-
vænlegast sé að líta raunsætt á
fjárhagsvanda fyrirtækisins og
vinna beri markvisst að því að
það verði rekið hallalaust. Þann-
ig gæti Landsvirkjun þegar fram
í sækir skilað greiðsluafgangi til
fjármögnunar nýrra virkjunar-
framkvæmda án þess að lántök-
ur vegna þeirra verði meiri en
góðu hófi gegnir. Slík stefna yrði
til hagsbóta fyrir almenning og
mundi leiða til lægra verðs en
ella þegar litið er til lengri
tíma,“ sagði Halldór. Aðspurður
um hvað þessi 31% hækkun
hefði í för með sér fyrir rekstur
fyrirtækisins sagði Halldór:
Hækkunin þýðir að fyrirsjáan-
legur rekstarahalli Landsvirkj-
unar í ár lækkar úr 300 millj. kr.
í um 168 millj. kr. og þá er miðað
við óbreytt verð til stóriðju, en
öll hækkun á stóriðjuverði síðar
á árinu yrði að sjálfsögðu til að
draga enn meir úr hallanum og
búa í haginn fyrir framtíðina.
En vonandi ber afgreiðsla ríkis-
stjórnarinnar á þessari hækkun-
arbeiðni vitni um stefnubreyt-
ingu þannig að þörfin fyrir er-
lend lán vegna rekstrarhalla
verði ur sögunni og fari minnk-
andi vegna framkvæmda, sagði
Halldór að lokum.
Póstur og sími:
Stofngjald síma hækkar
um rúmlega 500 krónur
„RÍKISSTJÓRNIN hefur sam-
þykkt að veita okkur 18% gjald-
skrárhækkun, en í upphafi fórum
við fram á að hún yrði 25%,“ sagði
Jón Skúlason, póst- og símamála-
stjóri í samtali við Mbl. „í hækk-
unarbeiðni okkar var gengið út frá
ákveðnum forsendum í samræmi
við áætlanir á fjárlögum á sínum
tíma, en það er ekki þar með sagt
að þær eigi við nú. Það fer allt eftir
því hvort árangur náist í barátt-
unni við verðbólgu á þessu ári hve
lengi þessi hækkun mun duga
okkur," sagði Jón.
Aðspurður um þá ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að veita ekki
frekari gjaldskrárhækkanir fyrr
en 1. febr. 1984 svaraði Jón því
til að nægði þessi 18% hækkun
ekki til að sinna þeirri þjónustu
sem Póstur og sími nú veitir,
væri hugsanlegt að grípa þyrfti
til niðurskurðar á framkvæmd-
um fyrirtækisins.
Samkvæmt ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar fékk Póst- og
símamálastofnun heimild til
18% gjaldskrárhækkunar og
gildir ný gjaldskrá fyrir síma-
þjónustu frá 1. ágúst, en fyrir
póstþjónustu frá 1. september
nk. Helstu breytingar á sím-
gjöldum verða sem hér segir:
Stofngjald fyrir síma hækkar úr
2.982 kr. í 3.500 kr. og símnot-
andi greiðir fyrir talfæri og upp-
setningu tækja. Gjald fyrir um-
framskref hækkar úr 1,14 kr. í
1,35 kr. og ársfjórðungsgjald
fyrir heimilissíma hækkar úr
484 kr. í 575 kr. Venjulegt flutn-
ingsgjald milli húsa á sama
gjaldsvæði hækkar úr 1.491 kr. í
1.750 kr. Við þessi gjöld bætist
svo söluskattur.
Hitaveitan:
Verð á vatnstonni
hækkar í 12 krónur
„VIÐ fengum þá hækkun sem farið
var fram á eða 43,9% og 20% af
tengigjöldum," sagði Jóhannes
Zoega hitaveitustjóri í samtali við
Mbl. „Með þessari hækkun fer
verð á vatnstonni í 12 kr. en í
okkar áætlunum var gert ráð fyrir
hækkunum gjaldskrár í tvennu lagi
vegna þess hve lítil hækkun fékkst
fyrri hluta ársins. Því þyrfti tonnið
að hækka upp í 15 kr. í nóvember,
en þá er miðað við verðlagsspá sem
fyrir lá í júlí,“ sagði Jóhannes.
Hann var næst spurður álits á
þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar að leyfa ekki frekari hækkanir
á gjaldskrá fyrr en 1. febrúar á
næsta ári.
JNNLENT
„Mér þykir það miður að ríkis-
stjórnin hafi ákveðið að ekki
verði um frekari hækkun að
ræða næsta hálfa árið, hvað sem
kostnaðarhækkunum hitaveit-
unnar á þessu tímabili líður. Því
hefur engin grundvallarbreyting
á því fyrirkomulagi sem verið
hefur undanfarinn áratug, átt
sér stað, því að ríkisstjórnin en
ekki borgarstjórn ákveður enn
verðlag á þjónustu hitaveitunn-
ar,“ sagði Jóhannes Zoega að lok-
um.
Kristján Thorlacius formaður BSRB um gjaldskrárhækkanir:
Ljósmynd Leifur Magnússon.
Þrátt fyrir langvarandi rigningartíð sunnanlands hafa þó komið einstaka
sólskinsstundir, eins og meðfylgjandi mynd af Kristjáni og Pálu ber með sér,
en myndin var tekin í Borgarfirði sl. laugardag.
Skatturinn á ferða-
mannagjaldeyri
felldur niður í gær
Afgreiðsla með einni skráningu hófst
þegar í gær í gjaldeyrisdeildunum
HANDHAFAR forsetavalds, þeir
Jón Helgason, forseti sameinaðs Al-
þingis, núverandi dómsmálaráð-
herra, Þór Vilhjálmsson forseti
Hæstaréttar og Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra, undir-
rituðu bráðabirgðalög í gærmorgun
sem fjármálaráðherra gaf út, þess
efnis að niður var felldur 10% skatt-
ur á gjaldeyri til ferðamanna. Gjald-
eyrir var afgreiddur í gjaldeyris-
deildum bankanna eftir hádegi í gær
samkvæmt nýju lögunum.
í fréttatilkynningu frá við-
skiptaráðuneytinu, sem barst Mbl.
í gær vegna bráðabirgðalaganna
segir, að viðskiptaráðherra,
Matthías Á. Mathiesen, hefði farið
þess á leit við fjármálaráðherra að
unnið yrði að því að fella niður
skatt þennan þar sem hann sam-
rýmdist ekki stofnskrá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins og hefði því
sjóðurinn veitt tímabundna und-
anþágu fyrir ákvæðinu um bann
við fjölgengi.
Þá segir einnig: „Með því að
fella nú niður ferðaskattinn geta
íslendingar lýst yfir að þeir fylgi í
einu og öllu reglum gjaldeyris-
sjóðsins um frjáls gjaldeyrisvið-
skipti. Tillaga viðskiptaráðherra
um afnám skattsins byggist þó
ekki síður á þeirri skoðun hans, að
skatturinn væri óréttlátur og
álagning hans oft ósanngjörn."
Ljósm. Mbl. RAX.
Albert Guðmundsson fjármálaráóherra og Jón Helgason dómsmálaráðherra
undirrita bráðabirgðalögin í gærmorgun, en dómsmálaráðherra undirritar
sem forseti sameinaðs Alþingis, en því embætti gengdi hann á síðsta lög-
gjafarþingi.
„Stór áfangi
í ferðamálum“
Vísvitandi verið að safna
efniviði í verðbólgusprengju
„ÞESSAR 17—43% verðhækkanir
sem rfkisstjórnin samþykkti á
fimmtudaginn sanna það auðvitað
að efnahagsúrræði ríkisstjórnar-
innar eru eingöngu í því fólgin að
lækka kaupmátt launa. Allar aðrar
hækkanir eru samþykktar og
koma harkalega við almenning,"
sagði Kristján Thorlacius, formað-
ur Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, er Mbl. spurði hann álits á
hækkunum á gjaldskrám orku-
veitufyrirtækja og Pósts og síma.
Kristján sagði ennfremur:
„Það er engu líkara en að stjórn-
völd séu vísvitandi að safna efni-
við í enn eina verðbólgusprengju.
Með efnahagsráðstöfunum
þeim, sem gerðar voru um leið og
núverandi ríkisstjórn var mynd-
uð var lýst yfir stríði við launa-
fólk í landinu. Það veltur á miklu
fyrir launamenn að víðtæk sam-
staða náist í röðum þeirra um
viðbrögð við árásunum á lífs-
kjörin.
BSRB og aðildarfélög þess
hafa sagt upp samningum frá 1.
október nk. Við munum hafa
samband við okkar félagsmenn á
fundum fyrir þann tíma. Þar
verður mótuð afstaða samtak-
anna og viðbrögð."
— segir Ingólfur Guðbrandsson um niður-
fellingu skatts á ferðamannagjaldeyri
„ÞETTA er stór áfangi í íslenskum ferðamálum vegna þess að afnám
skattsins felur í sér opinbera viðurkenningu á því, að ferðalög eru ekki
munaður heldur jafn nauðsynleg og önnur neysla fólks,“ sagði Ingólfur
Guðbrandsson, forstjóri ferðskrifstofunnar Útsýn, í viðtali við Mbl. vegna
niðurfellingar sérstaks álags á ferðamannagjaldeyri.
„Auk þess gerir þetta fólki mun
auðveldara að ferðast, þar eð
ferðakostnaður lækkar samsvar-
andi að fárgjöldum undanskildum,
sem .seld hafa verið á normal-
gengi, Ferðalög fara sívaxandi um
allan heim, enda þyleir fátt eftir-
sóknarverðara til aukinnar lífs-
nautnar og betra mannlífs. Á það
ekki síst við um eyþjóð eins og
íslendingar sem býr við nöturlegt
loftslag eins og sannast í sumar.
Gjaldeyrisskatturinn var frels-
isskerðandi, ranglátur og fól í sér
mismunun og spillingu. Afnám
hans var tímabært og það mun
gleðja marga og örva ferðalög. Við
þurfum svona stjórnmálamenn
sem þora að taka af skarið,“ sagði
Ingólfur Guðbrandsson að lokum.