Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 31

Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983 31 Tryggvi Gunnarsson Akureyri - Minning Fæddur 16. október 1917 Dáinn 17. júlí 1983 Þriðjudaginn 2. ágúst verður jarðsettur frá Akureyrarkirkju Tryggvi Gunnarsson, eiginmaður Lóu móðursystur minnar. Svo langt sem ég man aftur í bernsku mína, eru sumardvalirnar hjá Tryggva og Lóu á Krónustöð- um sem árviss fagur punktur í minningu minni, þar sem staða Tryggva er ekki einungis að vera eiginmaður móðursystur minnar, heldur frekar elskulegur frændi og fóstri, byggð á þeim tryggðar- böndum sem tengja saman tilveru barnsins og hins ábyrga velvilja fullorðins manns. Sem borgarbarn, fávíst um hina gjörólíku tilveru sveitalífsins, minnist ég Tryggva sem hins sí- vakandi góðviljaða og umburðar- lynda leiðbeinanda sem ávallt var til taks til að leysa úr þeim vanda- málum sem í því nýstárlega um- hverfi birtust. Úr því leysti hann af alúð og ómeðvitaðri rósemi, þannig sem af myndaðist sam- band sem skapaði gælunafn mitt á honum, sem var „pabbi minn á meðan" sem ég notaði fram eftir barnsaldri og oft sfðan rifjaði upp. Eftir að Tryggvi og Lóa fluttust til Akureyrar fluttust sumarheim- sóknir mínar einnig þangað, og naut ég þar áfram sömu umönn- unar og góðvilja sem áður hafði verið. Aðnjótandi sömu hlýju og gestrisni sem ég hafði áður þekkt. Eftir að ég eignaðist fjölskyldu hafa heimsóknirnar til Akureyrar, sem sakir fjarlægðar hafa verið allt of fáar, verið tilhlökkunarefni allrar fjölskyldunnar í heild, og hún notið þar hvlldar og vináttu sem nú af heilum hug er þökkuð. Tryggvi fæddist á Helgastöðum í Eyjafirði hinn 16. dag október- mánaðar 1917, sonur Albínu Kristjánsdóttur og Gunnars Sig- fússonar sem síðar bjuggu á Hrís- um og þannig ólst Tryggvi upp f fegurð og kyrrð þessa héraðs, sem vafalaust hefur mótað hugarfar hans og viðhorf hans á lffsleiðinni og má segja að Eyjafirðinum hafi hann helgað starfskrafta sína. Þann 18. desember 1941 kvæntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Ólöfu Ragnheiði Helgadóttur, fósturdóttur hjónanna Guðbjarg- ar Friðriksdóttur og Magnúsar Hólm á Krónustöðum hinum meg- in Eyjafjarðarár, og hóf hann þar búskap á móti tengdaforeldrum sínum, þar til hann mestmegnis vegna heilsubrests fluttist til Ak- ureyrar árið 1967 og hóf störf hjá efnaverksmiðjunni Sjöfn, þar sem hann starfaði óslitið þar til fýrir rúmum 2 árum að hann varð að hætta sakir hratt þverrandi heilsu. Tryggvi var maður elju- samur alla sína tíð og féll lítt verk úr hendi. Auk sinna föstu starfa stundaði hann þá aukavinnu sem til féll og sást oft lítt fyrir hvort hún félli við heilsu hans eður ei. Þannig að þá er kraftar höfðu nær horfið kunni hann illa iðjuleysi og fékkst þá aðallega við bókband heima hjá sér, og vann einnig þau störf af þeirri vandvirkni og trúmennsku sem honum var töm. Enda þótt gestsauganu og hin- »4» • Í SfatgtmMiifrife Metsölublad á hverjum degi! Framdrlfslokur - Aflstýrl - Utað gler - Rúllubeltl • upphltuö afturrúða - Þurrka og vatnssprauta á afturrúðu - o.m.fl. Verð frá kr. 514.000 (Gengi 31.5. ’83) m HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240 um aðvífandi kunni að þykja feg- urð heimahaga Tryggva heitins mikil, þá er sömuleiðis innbyggj- endunum þar lífsbaráttan oft jafn hörð, svo varð og þeim Tryggva og Lóu, þrátt fyrir gott land verður alltaf vinnutími bóndans ómældur og hvíldardagarnir af skornum skammti og bæði urðu að vinna eftir þeim lögmálum. Barnahópurinn varð stór, alls tíu börn, af þeim eru átta á lífi: Gunnar Hóím, bílasali; Júlíana Helga, húsfreyja og verslunar- maður; Magnús Þór, bílstjóri; Jak- ob Sigfús, verkstjóri á Bjargi; Ragnar Aðalsteinn, verkstjóri í Sana; María Ingunn, húsmóðir; Guðbjörg Ragnheiður, tækni- teiknari og Helgi Hólm, prent- nemi. Látin eru Guðbjörn Albert og stúlkubarn er dó í frum- bernsku. Tryggvi átti til að bera hógværa glaðværð og ríka kímni- gáfu. Hann var músíkalskur og söngmaður góður og vel hagmælt- ur, en flíkaði því lítt. Hann var maður mikillar stillingar og kom það sér vel fyrir fjölskylduna þá er snöggir og harðir stormbyljir dundu yfir, þá sérstaklega við hið snögga og óvænta lát sonar hans, Guðbjarnar, fyrir 7 árum. Einnig varð hann að horfa á eftir 4 barnabörnum sínum á vit eilífðar- innar og finnst mér viðhorf Tryggva til eilífðarmálanna koma vel fram í eftirfarandi Ijóðlinum þá er hann kvaddi i hinsta sinn dótturson sinn, Tryggva, er lést eftir langvarandi veikindi: „Glaður og reifur gekkst þú á enda götuna þína Hljómur í hverju spori lifandi minning um liðnar stundir Ég læt mig dreyma um endurfund.” Og nú eru endurfundirnir við hina horfnu upprunnir. Lát Tryggva aðfaranótt 26. júlí kom ekki á óvart. Við höfum fylgst með honum heyja langt, erfitt og hægfara dauðastríð sem hann hef- ur háð með stillingu. Ég kveð Tryggva með þakklæti fyrir sam- • fellda góðvild og gestrisni og vin- áttu við mig og fjölskyldu mína og óska honum guðs blessunar og góðrar heimkomu. Ég færi Lóu, börnum hennar, tengda- og barna- börnum innilegustu samúð mína, eiginmanns míns og dætra og óskum við þeim blessunar og styrktar hins almáttuga. Helga Kristín Jónsdóttir 8 daga ævintýr afer ðir 14.—21. ágúst með ARNARFL UGI Flogið verður til ZURICH með ARNARFLUGI. Flutningur til ogfrá KLOTTENFLUG VELLI við Zurich. Gisting á 3ja stjömu hóteli með bálfu fœði. Gönguferðir með leiðsögumanni. Aðgangur að sundlaug. Frjáls aðgangur að ALPINE-FJALLAKLÖFUNUM. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. Sviss er þess virði FERÐASKRIFSTOFA LAUGAVEGI 66 SÍMI 28633

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.