Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ1983
33
angurvært í hljóðnemann“.
uppleiö
ar tali
„Góðar,“ segja dúkkulísurnar,
„a.m.k. hafa strákarnir tekið
okkur vel, en sumar stelpur hafa
e.t.v. verið hálf skrýtnar út í
okkur."
„Þær eru nú bara afbrýðisam-
ar,“ skýtur rótari hljómsveitar-
innar, Karl Guðni Grlingsson,
inní.
„Hins vegar höfum við á vissan
hátt notið þess að vera stelpur,"
halda dúkkulísurnar áfram,
„okkur hefur áreiðanlega verið
veitt meiri athygli þess vegna."
Hvað er það sem gerir hljómsveit
vinsæla?
„Fyrst og fremst tónlistin, tón-
listarvalið og flutningurinn,"
svara dúkkulísurnar að bragði,
„og persónustyrkur flytjendanna.
T.d. hefur sterkur persónuleiki
Egils Ólafssonar, Bubba Morthens
og Ragnhildar Gísladóttur áreið-
anlega átt stóran þátt í vinsæld-
um þeirra og frama.“
En hvað um ytri búnað, föt, máln-
ingu og þess háttar. Hefur það ekki
áhrif?
„Það getur haft það, vissulega,
en við leggjum ekki kapp á
skrautlegan klæðnað, sérstakt
málfar eða stríðsmálningu.
Kannski erum við heldur ekki
nógu miklar auglýsingamanneskj-
ur enn sem komið er.“
Er hörð samkeppni í hljómsveita-
bransanum?
„Gífurlega, sérstaklega fyrir
hljómsveitir úti á landi, en þó hef-
ur það verið að breytast síðustu
ár. T.d. varð hljómsveit úr Reykja-
vík að hætta við dansleik hér fyrir
austan núna um daginn vegna fá-
mennis, meðan Aþena lék fyrir
troðfullu húsi. Þetta hefði ekki
gerst fyrir nokkrum árum.“
Hver er ástæðan?
„Ætli hljómsveitirnar úti á
landi séu bara ekki að batna,
verða samkeppnishæfari. Það er
vonandi. Þær eru líka að öðlast
meiri reynslu í bransanum. En á
þessu sviði er það reynslan sem
gildir, kunnáttan og þrotlaus
vinna."
Hver er uppáhaldshljómsveitin
ykkar?
„Engin sérstök öðrum fremur,
þær eru margar mjög góðar."
„Nú hafa kvennahljómsveitir ver-
ið stofnaðar víða um land á tiltölu-
lega stuttum tíma. Hver er ástæða
þess, haldið þið?
„Það er ugglaust áhrif frá frægð
og frama Grýlanna og vinsældum
þeirra, ekki nokkur vafi.“
Hvað kostar svo svona hljómsveit-
arútgerð?
„Okkar græjur kosta líklega
rúmlega 100 þúsund krónur, en
sjálfsagt er auðvelt að tvöfalda þá
upphæð ef peningar eru á annað
borð fyrir hendi."
Stefnið þið að plötuútgáfu?
„Ætli við reynum nú ekki að
ljúka stúdentsprófi fyrst," segja
dúkkulísurnar brosandi og líta
kankvísar hver á aðra.
— Ólafur
Læknastöðin Glæsibæ
Hef opnaö læknastofu í læknastööinni Gæsibæ, Álf-
heimum 74. Tímapantanir mánud,—föstud. frá kl.
9—17, í síma 86311.
Friðrik Páll Jónsson læknir,
Sérgrein:
Háls-, nef- og eyrnasjúkdómar.
Ég þakka kvennadeild Slysavamafélagsins á Akureyri
og öllum öðrum sem gerðu mér ógleymanlegan 90 ára
afmœlisdaginn. Guð þakkarfyrir mig.
SESSEUA ELDJÁRN
SHELL- þjónusta
umalltland!
Starfsfólk Skeljungs óskar öllum landsmönnum góðrar og
ánægjulegrar verslunarmannahelgar.
Við minnum á að Shell-stöðvarnar verða til þjónustu alla
helgina um allt land.
Auk bensíns og olíu höfum við á boðstólum fjölbreytt
úrval af ferða- og bifreiðavörum
og ýmislegt fleira.
Lítið inn á næstu Shell-stöð.
Góða ferð.
Skeljungur h.f.
Fjölmargt fleira en bensín!
OOTT TÖLK