Morgunblaðið - 30.07.1983, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
35
Slappað af í reyksalnum og eitthvað er við að vera á barnum.
Frímann Jónsson varð sjötugur
um borð.
Starfsfólkið um borð er sérstaklega
lipurt og líflegt. Þetta er Þóra.
farþega.
hæfi. Veröld skipsins er skemmti-
leg þegar ferðin gengur vel, börnin
léku sér saman, fullorðna fólkið
spjallaði saman, gufubað, sund,
hressing, matur, hvíld, verzlun,
dans, kaffisopinn, gönguferðir um
hæðir skipsins og fleira og fleira,
en fyrr en varði var skipið í höfn.
Brezk þægilegheit
Við stöldruðum við í Newcastle,
dæmigerðum brezkum bæ, snyrti-
legum og hlýlegum eins og Bretum
er tamt að skapa í kringum sig.
Þar er sitthvað við að vera, góð
hótel, góðir matstaðir eins og
Calcutta, indverskur matstaður,
Jade Garden, kínverskur matstað-
ur og Mario’s, ítalskur staður.
Ekki má gleyma verzlunarmið-
stöðinni Eldon-torgi þar sem 300
verzlanir eru undir einu þaki. Það
var skemmtilegt að fylgjast með
konunum gera út á þau mið. Skoð-
unarferðir eru skipulagðar á þessu
svæði en það er einnig auðvelt
fyrir hvern sem er að leggja sjálf-
ur land undir fót, til dæmis með
því að taka hina nýmóðins neðan-
jarðarlest til Whitney Bay, ganga
um hinn vinalega strandbæ, fara á
ströndina eða í tívolí staðarins.
Ferðin í neðanjarðarlest tekur um
15 mínútur.
Þeir, sem staldra við í New-
castle á meðan Edda siglir til
Bremerhavnen, hafa nákvæmlega
tvo sólarhringa til umráða og þeir
nýtast vel ef rétt er á haldið, aðrir
möguleikar eru m.a. að dvelja
lengur, taka bílinn með eða sigla
hringferðina alla. Gallinn er sá að
fólk er orðið afvant skipum, en
auðvitað er þetta ferðamöguleiki
sem sjálfstæður liður i margþættu
ferðalagi. Það fer vaxandi að fólk
ferðist sjálfstætt, en nýti vel þá
möguleika sem upp á er að bjóða
hjá hinum ýmsu ferðaskrifstofum.
Farþegaskip er fyrst og fremst
samgöngutæki, en það er auðvitað
misjafnt hvað hvert skip hefur
upp á að bjóða. Edda skilaði
ánægðum farþegum frá borði, þeir
höfðu á orði að þeir vildu fara aft-
ur í haust. Það staðfestir góða ferð
og þegar allir leggjast á eitt er
þetta ferðamáti sem fslendingar
eiga að leggja rækt við vegna þess
að íslenzkt farþegaskip er fram-
tíðarmál. Starfsfólkið um borð í
Eddu er einstaklega lipurt og
þægilegt, ungt fólk, brosmilt og
jákvætt og það skiptir miklu máli
fyrir hvern ferðalang að eiga slíkt
viðmót víst.
Grein: ÁRNI JOHNSEN
Teikningar: ÁRNI ELFAR
Fréttir úr
heimspressunni
Berlinske Tidende
SUNNY
Eyðir minna en CITROEN 2
CV og samt sneggri og hrað-
skreiðari en BMW.
Hinn þekkti bílamaður Finn Knudstup á Berlinske Tidende varð
mjög hrifinn af NISSA SUNNY. Hann skrifaði:
„Sunny getur við fyrstu sýn litið út fyrir að vera
hefðbundinn bíll en hin háþróaða tœkni og ná-
kvœmni í framleiðslu kemur manni sannarlega á
óvart. Þú kemst lengra á hverjum bensínlítra á
Sunny en á Citroen 2 CV. Engu að stður er Nissan
Sunny sneggri og hraðskreiðari en BMW 315. Og
ekki er Sunny dýr. í stuttu máli þrjú atriði sem eiga
eftir að gera Sunny að stórvinsælum bíl - bíl sem
veitir manni meiri og meiri ánœgju við hvern
kílómetra. “
Citroen 2 CV (Citroen braggi) kostar ea. kr. 250.000. Samkvæmt
upplýsingum umboðsins er hann ekki fluttur inn. Hann er of dýr
midað við aðra bíla í sama verðflokki.
BMW 315 kostar kr. 365.500. Hann er 2ja dyra.
NISSAN SUNNY 1500 5 gíra 4ra dyra, framhjóladrifinn með
allskvns aukabúnaði s.s. útvarpi, klukku, snúningshraðamæli,
skott og bensínloki sem hægt er að opna úr ökumannssæti o.m.fl.
kostar aðeins kr. 269.000.
Munið bílasýningar okkarum helgar kl. 2-5.
Tökum allar gerðir eldri bifreiða
upp í nýjar
LANG-LANG MEST
FYRIR PENINGANA
E3 NIS5AIVI
INGVAR HELGASON s,m, 335,0
SÝNINGARSALURINN /RAUÐAGERÐI