Morgunblaðið - 30.07.1983, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
39
fólk í (29
fréttum k. Á.
+ Tennisleikarinn John McEnroe,
sem bar sigur úr býtum á Wimble-
don-leikunum, hefur nú komist aö
raun um, aö spaöinn hans er ekki
jafn eftirsóttur og hann sjálfur hélt.
Spaðinn var boöinn upp í London
nú fyrir nokkru og var taliö víst, aö
fyrir hann fengjust a.m.k. 120.000
kr. ísl. Áttu peningarnir aö renna
til góðgerðarstarfsemi. Þegar til
kom, voru aöeins boönar í spaö-
ann 30.000 kr. og var hann þá
dreginn til baka.
+ Farah Diba ásamt Reza heitnum Pahlevi, keisara af íran.
Farah Diba á ekki
fyrir skuldum
Farah Diba, hin 44 ára gamla
ekkja fyrrverandi Persakeisara,
sem nú býr í Bandaríkjunum,
stendur nú uppi slypp og snauð aö
eigin sögn og á ekki lengur fyrir
skuldunum.
„Reikningarnir hellast yfir mig
og ég hef ekki lengur efni á aö
mennta börnin mín, hvaö þá aö
taka þátt í samkvæmislífinu,"
sagöi Farah Diba í viðtali viö
bandarískt tímarit nú fyrir nokkru.
Þrjú yngstu börnin eru nú á
heimavistarskóla í Englandi en
elsti sonurinn Reza, sem eftir
dauöa fööur síns lýsti sjálfan sig
keisara af iran, býr í Marokkó.
„Ég skildi ailt mitt eftir þegar
ógnarstjórnin hans Khomeinis
komst til valda enda óraöi okkur
ekki fyrir atburöarásinni. Sagan
mun hins vegar sýkna mann minn
og hefur raunar þegar gert þaö.
Sjáiö bara hryllinginn og blóöbaö-
iö, sem nú ríkir í íran,“ sagöi Farah
Diba.
+ Söngkonan Diana Ross nýtur sín
hvergi betur en frammi fyrir stórum
áhorfendahópi. Þessi mynd var tek-
in af henni í Central Park í New
York, þegar hún dró til sín 300.000
manns á tónleikum, sem stóöu í tvo
daga. Fyrri daginn varð raunar aö
hætta viö allt eftir 45 mínútur, en þá
geröi þvílíkt úrhelli aö fólkið átti fót-
um sínum fjör aö launa. Seinni dag-
inn var hins vegar eins og best verö-
ur á kosiö, sólskin og blíða og
steikjandi hiti.
COSPER
„Ösku-
karlinn"
sló í gegn í
Hollywood
+ H.B. Halicki, sem fyrir átta árum
geröi garðinn frægan í myndinni
„Horfinn á 60 mínútum“, barðist
ekki fyrir frama sínum á fjölum
leikhúsanna á Broadway. Hann er
„öskukarl“ aö atvinnu, rekur bíla-
kirkjugarö og sér um aö veita bíl-
flökunum náöarhöggiö, klessa þá
saman og koma þeim í bræðslu-
pottinn. Halicki er því ekkert upþ-
næmur fyrir beygluðum brettum
eöa brotnum stuöurum enda sló
myndin í gegn og hefur til þessa
dags sópaö til sín 98 milljónum
dollara.
Halicki fékk að sjálfsögöu stórfé
í sinn hlut og peningunum hefur
hann variö til aö færa út kvíarnar í
starfsgrein sinni, að brjóta gamla
bíla, og auk þess hefur hann fjár-
fest í öörum fyrirtækjum.
Halicki hefur nú leikiö í nýrri
mynd, sem heitir „The Junkman"
eöa „Öskukarlinn“, og leikur þar í
raun bara sjálfan sig. Myndin fjall-
ar um óvægna samkeppni og
moröóöa menn, sem láta einskis
ófreistaö til aö ryöja keppinautun-
um úr vegi. Halicki lagöi sjálfur til
1350 gamla bíla úr kirkjugarðinum
sínum, lakkaöi þá og lagaöi aöeins
til, en síöan var þeim öllum gjör-
breytt í myndinni.
Auglýsing frá Æskulýðsráði ríkisins:
Stuðningur við nýjungar og tilraunir í
æskulýðsstarfi
Æskulýösráö ríkisins auglýsir hér meö eftir umsókn-
um um stuðning viö einstök verkefni á sviöi æsku-
lýösmála samkv. heimild í 9. gr. III. kafla laga um
æskulýösmál. Aö þessu sinni er styrkveitingin ein-
ungis miöuö viö nýjungar og tilraunir í æskulýðs-
starfi. Landssamtökum æskulýösféiaga hafa veriö
send umsóknareyðublöö vegna þessara styrkveit-
inga, en eyöublöð er einnig hægt aö fá hjá Æskulýðs-
ráöi ríkisins, Hverfisgötu 6.
Umsóknir þurfa aö hafa borist Æskulýösráöi fyrir 1.
seþtember 1983.
Æskulýðsráö ríkisins.
ÁVÖXTUNStW
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Ávöxtun sf. annast kauþ og sölu veröbréfa, fjár-
vörslu, fjármálaráðgjöf og ávöxtunarþjónustu.
Brosið
í umferðinni
ISLENDINGAR
Græddur er geymdur eyrir
ef ávaxtaö er rétt!
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs
Gengi 02.08. 83
Ár Fl. Sg./ Ár Fl. Sg./
100 kr. 100 kr.
1970 2 15.389 1977 2 1.481
1971 1 13.260 1978 1 1.179
1972 1 12.723 1978 2 947
1972 2 10.026 1979 1 821
1973 1 7.749 1979 2 612
1973 2 7.829 1980 1 523
1974 1 4.945 1980 2 396
1975 1 3.945 1981 1 335
1975 2 2.907 1981 2 254
1976 1 2.551 1982 1 236
1976 2 2.075 1982 2 177
1977 1 1.737
Kaupendur
óskast
að góðum
verðtryggðum
veðskuldabréfum.
Höfum
kaupendur
að óverðtryggðum
veðskuldabréfum.
Öll kaup og sala verðbréfa miðast við daglegan
gengisútreikning. Hringið og kynnið ykkur kjörin.
*
Avöxtun ávaxtar fé þitt betur
/ f #
AVOXTUNSf^
LAUGAVEGUR 97 - 101 REYKJAVÍK
OPIÐ FRÁ10-17 - SÍMI 28815