Morgunblaðið - 13.08.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1983
9
fiQsssDsö œcID
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 204. þáttur
Veikar eru þær sagnir kall-
aðar sem eru fleirkvæðar í
þátíð. Þær greinast í fjóra
flokka. I hinum fyrsta eru þær
sem enda á -a í nútíð og -aði í
þátíð. Dæmi eru kaila, flokka,
svara. Þessi þykir umsjónar-
manni flötust og tilkomu-
minnst sagnbeyging í málinu.
í öðrum flokki er það ein-
kenni skýrast, að nútíð eintölu
er endingarlaus, nafnháttur-
inn endar á -ja, og þetta j í
endingunni hefur valdið hljóð-
varpi. Þess hljóðvarps gætir
þá ekki í þátíð, þar sem ekkert
var j-ið. Þetta er skemmtileg
sagnbeyging, dæmi: gleðja,
flytja, æja (áði, áð). Sumar
ágætar sagnir eftir þessum
flokki eru nú harla sjaldgæfar
orðnar eða jafnvel tröllum
gefnar, svo sem þysja. Hún lifir
að vísu í þátíð: Alls konar
óþjóðalýður þusti á vettvang,
getum við sagt. En bysja =
streyma og þyrja = böðlast
áfram með látum, eru horfnar.
Mér skilst að þurs sé sá sem
þyr, og í gömlum kveðskap
busti blóð á eggjar vopnanna.
Aðrar sagnir eftir þessum
flokki hafa ýmsar hverjar af-
bakast og gengist við marg-
nefnda áhrifsbreytingu.
Skemmtileg er sögnin að dýja
(dúði, dúð). Jörðin dýr undir
fótum var sagt, sbr. nafnorðið
dý, og í Þrymskviðu dúði jötun-
inn skegg sitt, það er hristi
það. En nú heyri ég fólk segja
að eitthvað dúar, og hefur
sögnin þá flæmst yfir í flatn-
eskjuna í fyrsta flokki. Enn er
spenja = lokka, teygja og beyg-
ist eins og þenja: spenja,
spandi, spanið, nútíð ég spen.
Það er eitt með öðru giftu-
samlegt á ferli Jóns helga Ög-
mundarsonar, að hann fékk
spanið hingað út til íslands
Sæmund Sigfússon sem var
svo niðursokkinn í fræði sín í
Frakklandi, að hann hafði
gleymt nafni sínu og uppruna.
Nú hefur þessi fallega sögn,
spenja, flast út í ómyndina
spana, spanaði, spanað, og
enginn spenur annan til eins
eða neins framar. En
Jörð spenr Engla skerðir
Alfgeirs und sik halfa,
kvað Egill Skalla-Grímsson.
í þriðja flokki veikra sagna
endar nútíðin á i, og hljóð-
varps gætir í kennimyndunum.
Dæmi eru dæma, sbr. dómur,
hnýta, sbr. hnútur og eyða sbr.
auður. Fleiri teljast að vísu til
þessa flokks en þær sem falla
að öllu undir lýsinguna hér að
framan.
Þá er að lokum fjórði flokk-
ur (fáar sagnir), og þar endar
nútíðin einnig á i, en hljóð-
varps verður ekki vart í kenni-
myndum né nútíð, því að það i,
sem nútíðin endar á, var orðið
til úr e og olli því ekki hljóð-
varpi. Dæmi af fjórða flokki
eru duga, horfa, brosa og hafa,
þó með þeim fyrirvara, að
bæði duga og hafa breyst í máli
margra núorðið, og kem ég þá
að því sem frá var horfið í síð-
asta þætti: orðum Skúla Magn-
ússonar um beygingu sagnar-
innar að hafa. Hún var sem
sagt eftir fjórða flokki veikra
sagna og kennimyndir sam-
kvæmt því hafa, hafði, haft, og
nútíð á að enda á i. Af horfa er
nútíðin ég horfi, eins í
framsöguhætti og viðteng-
ingarhætti. Þá ætti nútíðin af
hafa að vera ég hafi, eins í báð-
um háttum. En þetta hefur
ekki farið svo. Fyrir áhrif frá
sögnum eins og krefja (2. fl.)
nútíð ég kref, hefur nútíð
framsöguháttar breyst í hef og
í samræmi við krefur verður þá
þriðja persóna hefur. Hliðstæð
breyting verður ekki í
viðtengingarhætti, og þrátt
fyrir áður greinda áhrifsbreyt-
ingu skrifa sumir og segja enn
ég hefi og hann hefir. Eins og
Skúli Magnússon sagði var
þetta tal algengt fram undir
okkar tíma, enda sögulega
rétt. Strangt tekið ætti reynd-
ar nútíðin í fyrstu persónu ein-
tölu framsöguhætti að vera ég
hafi og í þriðju persónu hann
hafir. En flækjum þetta ekki
meira og flokkum það undir
smekksatriði eins og Skúli.
Áður hef ég minnst á hvim-
leiðan rugling sagnanna að
hafa og hefja (sem er sterk) og
ætla ekki að stagast á því í bili.
Um sögnina að duga er það
að segja, að mörgum hefur
þótt sér sæma að beygja hana
eftir fyrsta flokki, fremur en
fjórða, og kemur þá út beyg-
ingin duga, dugaði, dugað, og í
nútíð ég duga og það dugar, í
staðinn fyrir hið uppruna-
legra: ég dugi, hann dugir, sbr.
ég brosi, horfi; hann brosir,
horfir. Lýkur þá um sinn þulu
um veikar sagnir.
Mjög margir hafa beðið mig
að andæfa orðmyndinni
RÚVAK. Þetta mun eiga að
vera skammstöfun fyrir
Ríkisútvarpið (á) Akureyri. Ég
skal gera þetta með glöðu geði.
Mér þykir þessi skammstöfun
ekki góð, og engum ætti að
vera ofætlun að segja eða
skrifa: Útvarp Akureyri. Eink-
um langar mig til þess að biðja
blöðin að breyta þessu í dag-
skrárkynningu og þá þuli í út-
varpinu.
í orðmyndinni RÚVAK eru
stafir tíndir til hér og þar úr
orðunum Ríkisútvarpið Akur-
eyri. En góður siður hefur það
þótt að skammstafa svo, að
fyrsti stafur sé tekinn úr
hverju orði heitisins, ef það er
samsett. Þannig verða til rétt-
ar skammstafanir eins og
K.R.O.N. (KRON) úr Kaupfé-
lag Reykjavíkur og nágrennis
eða K.E.A. (KEA) úr Kaupfé-
lag Eyfirðinga Akureyri. Rétt
skammstöfun af Ríkisútvarpið
Akureyri væri þá R.A. (RA),
því að ríkisútvarpið er auðvit-
að eitt orð. Þetta þykir að
sjálfsögðu ekki nógu skýrt eða
auðkennilegt, og myndi vart
bæta úr skák, ef menn endi-
lega vilja skammstafa, að taka
tvo fyrstu stafina framan af
hvoru orðinu, sbr. Umbi, því
þá kæmi út Ríak. Niðurstaða
er þá sú, að vera ekkert að
burðast með að skammstafa
þetta, heldur segja og skrifa:
Útvarp Akureyri, rétt eins og
Útvarp Reykjavík. Skamm-
stöfun fyrir hið síðarnefnda
gæti allt eins verið VARPEY
eins og RÚVAK fyrir hitt.
Ennþá má heyra hina furðu-
legu beygingu lýsingarorðsins
var, sem nú er að verða eins í
öllum kynjum í munni sumra
manna, verða að viðrini.
Þjóðkunnur maður sagði í
útvarpsþætti á dögunum: „Við
verðum var við“, o.s.frv. Ekki:
„Við verðum vör við, svo sem
vera ætti. Sami maður hafði
stundum afarvondar og út-
lenskulegar áherslur, sagði t.d.
á tímaMÓTum og félagsAð-
stöðu. Ljóst er að hefja verður
markvissa framburðarkennslu
í öllum skólum landsins til
þess að varðveita réttar
áherslur, réttan hreim og rétta
hrynjandi máls okkar.
Fossvogur — Til sölu
Sérhæðir í
byggingu
Neöri hæö ca. 125 fm. 2 svefnherb., stofa, hol og
bílskúr sem er innangengt í. íbúöin selst fullfrágengin.
Getur veriö til afh. í nóv. í haust.
Neöri hæö ca. 150 fm og bílskúr sem er innangengt í
úr íbúö. íbúöin er 4 svefnherb., stofa og hol. Hún selst
fullfrágengin og getur verið tilbúin til afhendingar á
næsta vori.
Báöar hæðirnar eru sérhannaöar fyrir
fatlað fólk.
Teikningar og uppl. á byggingarstaö viö Álfaland og
Áland kl. 2—4 e.h. í dag.
Kaupendaþjónustan, sími 30541.
Örn ísebarn, sími 31104.
msí
ii
rOUNDS
y«stfign«sal», Hverftegötu 49.
VERDMETUM SAMDÆGURS
Opiö í dag
13—16
Velkomið að hafa
samband viö okkur.
Öll söluskráin í blað-
inu á morgun
SÖLUSKRÁIN Á SUNNUDÖGUM
'S=azm
Opið 1—3 í dag
Vantar
200—250 fm einbýlishus ffyrir fjársterk-
an aöila, helst vestan Snorrabrautar.
Vantar
Höfum mjög fjársterkan kaupanda aö
3ja herb. ibúö i vesturbæ, Hliöum eöa
miöbæ á 1. eöa 2. hæö. öruggar
greiöslur.
Viö Hraunbæ
2ja herb. góö íbúö á 1. hæö. Verð 1.100
Viö Njaröargötu
2ja—3ja herb. stórglæsileg ibúð á 1.
hæö. Ný eldhúsinnr. o.fl. Verð 1.150
þús.
Viö Kársnesbraut
2ja—3ja herb. góö íbúö á 2. hæö í fjór-
bylishúsi Svalir. Fallegt útsýni. Verð
1.250 þús.
Viö Reynimel
3ja herb. góö ibúö á 4. hæö. Suöursval-
ir.
Viö Engihjalla
3ja herb. 85 fm íbúö á 1. hæö. Akveðin
sala Verð 1.300 þúe.
Viö Álfhólsveg
Hér er um aö ræöa 3ja herb. ibúó auk
25 fm einstaklingsibúöar á jaröhæö,
sem seljast saman Verð 1.600 þús.
Sérhœö viö Löngu-
brekku m/bílskúr
3ja herb. neöri sérhæö í tvibýlíshúsi.
Nýstandsett baöherb. Góður bilskúr.
Verksm.gler. Verð 1.550 þús.
Viö Leirubakka
3ja herb. góö ibúö á 3. hæö. Suöursval-
ir Verð 1.350 þús.
Viö Rofabæ
4ra herb. 110 fm íbúö á 2. hæö. Laus
fljótlega. Verð 1.500—1.550 þús.
í Vesturbænum Kóp.
4ra herb. góö neöri hæö, 117 fm í tví-
býti. Mikiö geymslurými. Verð 1,7—1,8
millj. Ákveöin sala
Viö Bræöraborgarstíg
5 herb. 130 fm íbúö töluvert endurnyj-
uö. Verð 1.450—1.550 þús.
Viö Hraunbæ
4ra—5 herb. 110 fm mjög vönduö
endaibúö á 2. hæö. Sér þvottahús innaf
eldhúsi. Suöursvalir. Merkt bilastæöi
Verð 1.550 þús.
Penthouse
viö Krummahóla
160 fm skemmtileg penthouseibúö á 6.
og 7. hæö. Stæöi i bilageymslu. Á 6.
hæö eru svalir i noröur en á 7. hæö
stórar suöu.svalir Stórkostlegt útsýni.
Verö 2,4—2,5 millj.
Endaraðhús
viö Torfufell
140 fm gott endaraöhús m. bilskúr.
Verö 2,3 millj. Mjög snyrtileg eign
í Austurbænum Kóp.
220 fm gott endaraöhús á góöum staö
(Hjöllunum). Bilskúr. Verö 2,9—3,0
millj. Skipti á minni eign koma til greina.
Raðhús við Selbraut
180 fm fallegt raöhús á tveimur hæöum
viö Selbraut. Bílskúr. Vandaöar innrétt-
ingar. Teikn. á skrifstofunni.
í Suöurhlíöum
Fokhelt endaraöhús ásamt tengibygg-
ingu, en þar er gert ráö fyrir góöri 3ja
herb. íbúö. Teikn. á skrifstofunni.
Viö Brekkutanga Mosf.
312 fm gott raóhús m. bílskúr. Húsiö er
ibúóarhæft en ekki fullbúiö.
Söluturn
Höfum til sölumeóferóar söluturn á
mjög góöum staó Upplýsingar á
skrifstofunni
Fjöldi annarra eigna á
söluskrá.
25 EiGnAmiDLunin
VÍT ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
SlMI 27711
Söluatjóri Sverrir Kristinseon
Þorleifur Guómundeeon sölumaóur
Unnsteinn Beck hrl. sfmi 12320
Þórólfur Halldórsson lögfr.
Kvöldsími sölumanns 30483.
Hafnarfjörður
Til sölu m.a.:
Kelduhvammur
3ja herb. rúmgóð risibúð. Sér-
lega gott útsýni. Verð 1 mill).
Sléttahraun
3ja herb. falleg 80 fm endaíbúð
á 2. hæð. Bílskúrsréttur.
Strandgata
2ja herb. ósamþ. ibúö á efri
haBÖ i steinhúsi. Þarfnast
standsetningar. Verð 450—500
þús.
Breiövangur
3ja—4ra herb. falleg íbúö á 4.
hæö. Bílskúr. Suöursvalir. Verð
1550 þús.
Hjallabraut
3ja—4ra herb. vönduö íbúð á 1.
hæð. Suöursvalir. Verð 1400
þús.
Breiðvangur
4ra—5 herb. íbúö á 2. hæö,
125 fm. Bílskúr. Suöursvalir.
Verö 1750 þús.
Granaskjól Rvk.
Glæsileg efri hæö, 145 fm í tví-
býlishúsi. Allt sér. Bílskúr.
Tjarnarbraut
6 herb. gott steinhús á fallegri
hornlóö ásamt bílskúr m/ kjall-
ara
Álftanes
6 herb. vandaö einnar hæöar
steinhús. Stór bílskúr.
Barmahlíö Rvk.
6 herb. aöalhæö. 170 fm ásamt
bílskúr. Ný eldhúsinnrétting.
Nýleg teppi. Þvottahús inn af
eldhúsi. Suöursvalir.
Suöurbraut
3ja herb. íbúö á 3. hæö. Nýtt
gler. Fallegt útsýni. Bílskúr tylg-
ir. Verö 1250 þús.
Nönnustígur
Einbýlishús, járnvariö tlmbur-
hús, alls um 100 fm, hæö og rls.
Falleg, ræktuö lóö. Rólegur
staöur.
Mávahraun
200 fm einnar hæöar einbýlis-
hús meö bílskúr og ræktaörl
lóö.
Álfaskeiö
4ra herb. íbúö á efstu hæð,
endaíbúö. Bílskúr.
Vitastígur
5 herb. einbýlishús, steinhus,
hæö og kjallari, alls 120 fm, á
fallegrl hornlóö.
Vogar Vatnsleysuströnd
130 fm nýtt einbýlishús á einni
hæö, aö mestu fullbuiö, á góö-
um staó. Skipti möguleg á elgn
á höfuöborgarsvæöinu.
Opið kl. 1—4
í dag
FASTEIGNASALA
Árna Gunnlaugssonar
Austurgötu 10 — S: 50764
VALGEIR KRISTINSSON, HOL.
Sjá einnig
fasteigna-
augl. á bls.
10.
29555 — 29558
Holtsbúð — Raðhús
Vorum aö fá til sölumeöferðar 160 fm raöhús á
tveimur hæöum. Húsið skiptist þannig: á fyrstu hæö
eru 2 svefnherbergi, þvottaherb., gesta w.c., uþphitaö-
ur bílskúr og geymsla. A efri hæö eru 2 svefnherb.,
stofa og eldhús. Allt tréverk er mjög vandað svo og
eignin öll. Verö 2,6—2,7 millj.
Eignanaust sk,Phoit, 5.
Þorvaldur Lúðvíksson Sími 29555 og 29558.