Morgunblaðið - 13.08.1983, Síða 9

Morgunblaðið - 13.08.1983, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1983 9 fiQsssDsö œcID Umsjónarmaður Gísli Jónsson 204. þáttur Veikar eru þær sagnir kall- aðar sem eru fleirkvæðar í þátíð. Þær greinast í fjóra flokka. I hinum fyrsta eru þær sem enda á -a í nútíð og -aði í þátíð. Dæmi eru kaila, flokka, svara. Þessi þykir umsjónar- manni flötust og tilkomu- minnst sagnbeyging í málinu. í öðrum flokki er það ein- kenni skýrast, að nútíð eintölu er endingarlaus, nafnháttur- inn endar á -ja, og þetta j í endingunni hefur valdið hljóð- varpi. Þess hljóðvarps gætir þá ekki í þátíð, þar sem ekkert var j-ið. Þetta er skemmtileg sagnbeyging, dæmi: gleðja, flytja, æja (áði, áð). Sumar ágætar sagnir eftir þessum flokki eru nú harla sjaldgæfar orðnar eða jafnvel tröllum gefnar, svo sem þysja. Hún lifir að vísu í þátíð: Alls konar óþjóðalýður þusti á vettvang, getum við sagt. En bysja = streyma og þyrja = böðlast áfram með látum, eru horfnar. Mér skilst að þurs sé sá sem þyr, og í gömlum kveðskap busti blóð á eggjar vopnanna. Aðrar sagnir eftir þessum flokki hafa ýmsar hverjar af- bakast og gengist við marg- nefnda áhrifsbreytingu. Skemmtileg er sögnin að dýja (dúði, dúð). Jörðin dýr undir fótum var sagt, sbr. nafnorðið dý, og í Þrymskviðu dúði jötun- inn skegg sitt, það er hristi það. En nú heyri ég fólk segja að eitthvað dúar, og hefur sögnin þá flæmst yfir í flatn- eskjuna í fyrsta flokki. Enn er spenja = lokka, teygja og beyg- ist eins og þenja: spenja, spandi, spanið, nútíð ég spen. Það er eitt með öðru giftu- samlegt á ferli Jóns helga Ög- mundarsonar, að hann fékk spanið hingað út til íslands Sæmund Sigfússon sem var svo niðursokkinn í fræði sín í Frakklandi, að hann hafði gleymt nafni sínu og uppruna. Nú hefur þessi fallega sögn, spenja, flast út í ómyndina spana, spanaði, spanað, og enginn spenur annan til eins eða neins framar. En Jörð spenr Engla skerðir Alfgeirs und sik halfa, kvað Egill Skalla-Grímsson. í þriðja flokki veikra sagna endar nútíðin á i, og hljóð- varps gætir í kennimyndunum. Dæmi eru dæma, sbr. dómur, hnýta, sbr. hnútur og eyða sbr. auður. Fleiri teljast að vísu til þessa flokks en þær sem falla að öllu undir lýsinguna hér að framan. Þá er að lokum fjórði flokk- ur (fáar sagnir), og þar endar nútíðin einnig á i, en hljóð- varps verður ekki vart í kenni- myndum né nútíð, því að það i, sem nútíðin endar á, var orðið til úr e og olli því ekki hljóð- varpi. Dæmi af fjórða flokki eru duga, horfa, brosa og hafa, þó með þeim fyrirvara, að bæði duga og hafa breyst í máli margra núorðið, og kem ég þá að því sem frá var horfið í síð- asta þætti: orðum Skúla Magn- ússonar um beygingu sagnar- innar að hafa. Hún var sem sagt eftir fjórða flokki veikra sagna og kennimyndir sam- kvæmt því hafa, hafði, haft, og nútíð á að enda á i. Af horfa er nútíðin ég horfi, eins í framsöguhætti og viðteng- ingarhætti. Þá ætti nútíðin af hafa að vera ég hafi, eins í báð- um háttum. En þetta hefur ekki farið svo. Fyrir áhrif frá sögnum eins og krefja (2. fl.) nútíð ég kref, hefur nútíð framsöguháttar breyst í hef og í samræmi við krefur verður þá þriðja persóna hefur. Hliðstæð breyting verður ekki í viðtengingarhætti, og þrátt fyrir áður greinda áhrifsbreyt- ingu skrifa sumir og segja enn ég hefi og hann hefir. Eins og Skúli Magnússon sagði var þetta tal algengt fram undir okkar tíma, enda sögulega rétt. Strangt tekið ætti reynd- ar nútíðin í fyrstu persónu ein- tölu framsöguhætti að vera ég hafi og í þriðju persónu hann hafir. En flækjum þetta ekki meira og flokkum það undir smekksatriði eins og Skúli. Áður hef ég minnst á hvim- leiðan rugling sagnanna að hafa og hefja (sem er sterk) og ætla ekki að stagast á því í bili. Um sögnina að duga er það að segja, að mörgum hefur þótt sér sæma að beygja hana eftir fyrsta flokki, fremur en fjórða, og kemur þá út beyg- ingin duga, dugaði, dugað, og í nútíð ég duga og það dugar, í staðinn fyrir hið uppruna- legra: ég dugi, hann dugir, sbr. ég brosi, horfi; hann brosir, horfir. Lýkur þá um sinn þulu um veikar sagnir. Mjög margir hafa beðið mig að andæfa orðmyndinni RÚVAK. Þetta mun eiga að vera skammstöfun fyrir Ríkisútvarpið (á) Akureyri. Ég skal gera þetta með glöðu geði. Mér þykir þessi skammstöfun ekki góð, og engum ætti að vera ofætlun að segja eða skrifa: Útvarp Akureyri. Eink- um langar mig til þess að biðja blöðin að breyta þessu í dag- skrárkynningu og þá þuli í út- varpinu. í orðmyndinni RÚVAK eru stafir tíndir til hér og þar úr orðunum Ríkisútvarpið Akur- eyri. En góður siður hefur það þótt að skammstafa svo, að fyrsti stafur sé tekinn úr hverju orði heitisins, ef það er samsett. Þannig verða til rétt- ar skammstafanir eins og K.R.O.N. (KRON) úr Kaupfé- lag Reykjavíkur og nágrennis eða K.E.A. (KEA) úr Kaupfé- lag Eyfirðinga Akureyri. Rétt skammstöfun af Ríkisútvarpið Akureyri væri þá R.A. (RA), því að ríkisútvarpið er auðvit- að eitt orð. Þetta þykir að sjálfsögðu ekki nógu skýrt eða auðkennilegt, og myndi vart bæta úr skák, ef menn endi- lega vilja skammstafa, að taka tvo fyrstu stafina framan af hvoru orðinu, sbr. Umbi, því þá kæmi út Ríak. Niðurstaða er þá sú, að vera ekkert að burðast með að skammstafa þetta, heldur segja og skrifa: Útvarp Akureyri, rétt eins og Útvarp Reykjavík. Skamm- stöfun fyrir hið síðarnefnda gæti allt eins verið VARPEY eins og RÚVAK fyrir hitt. Ennþá má heyra hina furðu- legu beygingu lýsingarorðsins var, sem nú er að verða eins í öllum kynjum í munni sumra manna, verða að viðrini. Þjóðkunnur maður sagði í útvarpsþætti á dögunum: „Við verðum var við“, o.s.frv. Ekki: „Við verðum vör við, svo sem vera ætti. Sami maður hafði stundum afarvondar og út- lenskulegar áherslur, sagði t.d. á tímaMÓTum og félagsAð- stöðu. Ljóst er að hefja verður markvissa framburðarkennslu í öllum skólum landsins til þess að varðveita réttar áherslur, réttan hreim og rétta hrynjandi máls okkar. Fossvogur — Til sölu Sérhæðir í byggingu Neöri hæö ca. 125 fm. 2 svefnherb., stofa, hol og bílskúr sem er innangengt í. íbúöin selst fullfrágengin. Getur veriö til afh. í nóv. í haust. Neöri hæö ca. 150 fm og bílskúr sem er innangengt í úr íbúö. íbúöin er 4 svefnherb., stofa og hol. Hún selst fullfrágengin og getur verið tilbúin til afhendingar á næsta vori. Báöar hæðirnar eru sérhannaöar fyrir fatlað fólk. Teikningar og uppl. á byggingarstaö viö Álfaland og Áland kl. 2—4 e.h. í dag. Kaupendaþjónustan, sími 30541. Örn ísebarn, sími 31104. msí ii rOUNDS y«stfign«sal», Hverftegötu 49. VERDMETUM SAMDÆGURS Opiö í dag 13—16 Velkomið að hafa samband viö okkur. Öll söluskráin í blað- inu á morgun SÖLUSKRÁIN Á SUNNUDÖGUM 'S=azm Opið 1—3 í dag Vantar 200—250 fm einbýlishus ffyrir fjársterk- an aöila, helst vestan Snorrabrautar. Vantar Höfum mjög fjársterkan kaupanda aö 3ja herb. ibúö i vesturbæ, Hliöum eöa miöbæ á 1. eöa 2. hæö. öruggar greiöslur. Viö Hraunbæ 2ja herb. góö íbúö á 1. hæö. Verð 1.100 Viö Njaröargötu 2ja—3ja herb. stórglæsileg ibúð á 1. hæö. Ný eldhúsinnr. o.fl. Verð 1.150 þús. Viö Kársnesbraut 2ja—3ja herb. góö íbúö á 2. hæö í fjór- bylishúsi Svalir. Fallegt útsýni. Verð 1.250 þús. Viö Reynimel 3ja herb. góö ibúö á 4. hæö. Suöursval- ir. Viö Engihjalla 3ja herb. 85 fm íbúö á 1. hæö. Akveðin sala Verð 1.300 þúe. Viö Álfhólsveg Hér er um aö ræöa 3ja herb. ibúó auk 25 fm einstaklingsibúöar á jaröhæö, sem seljast saman Verð 1.600 þús. Sérhœö viö Löngu- brekku m/bílskúr 3ja herb. neöri sérhæö í tvibýlíshúsi. Nýstandsett baöherb. Góður bilskúr. Verksm.gler. Verð 1.550 þús. Viö Leirubakka 3ja herb. góö ibúö á 3. hæö. Suöursval- ir Verð 1.350 þús. Viö Rofabæ 4ra herb. 110 fm íbúö á 2. hæö. Laus fljótlega. Verð 1.500—1.550 þús. í Vesturbænum Kóp. 4ra herb. góö neöri hæö, 117 fm í tví- býti. Mikiö geymslurými. Verð 1,7—1,8 millj. Ákveöin sala Viö Bræöraborgarstíg 5 herb. 130 fm íbúö töluvert endurnyj- uö. Verð 1.450—1.550 þús. Viö Hraunbæ 4ra—5 herb. 110 fm mjög vönduö endaibúö á 2. hæö. Sér þvottahús innaf eldhúsi. Suöursvalir. Merkt bilastæöi Verð 1.550 þús. Penthouse viö Krummahóla 160 fm skemmtileg penthouseibúö á 6. og 7. hæö. Stæöi i bilageymslu. Á 6. hæö eru svalir i noröur en á 7. hæö stórar suöu.svalir Stórkostlegt útsýni. Verö 2,4—2,5 millj. Endaraðhús viö Torfufell 140 fm gott endaraöhús m. bilskúr. Verö 2,3 millj. Mjög snyrtileg eign í Austurbænum Kóp. 220 fm gott endaraöhús á góöum staö (Hjöllunum). Bilskúr. Verö 2,9—3,0 millj. Skipti á minni eign koma til greina. Raðhús við Selbraut 180 fm fallegt raöhús á tveimur hæöum viö Selbraut. Bílskúr. Vandaöar innrétt- ingar. Teikn. á skrifstofunni. í Suöurhlíöum Fokhelt endaraöhús ásamt tengibygg- ingu, en þar er gert ráö fyrir góöri 3ja herb. íbúö. Teikn. á skrifstofunni. Viö Brekkutanga Mosf. 312 fm gott raóhús m. bílskúr. Húsiö er ibúóarhæft en ekki fullbúiö. Söluturn Höfum til sölumeóferóar söluturn á mjög góöum staó Upplýsingar á skrifstofunni Fjöldi annarra eigna á söluskrá. 25 EiGnAmiDLunin VÍT ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SlMI 27711 Söluatjóri Sverrir Kristinseon Þorleifur Guómundeeon sölumaóur Unnsteinn Beck hrl. sfmi 12320 Þórólfur Halldórsson lögfr. Kvöldsími sölumanns 30483. Hafnarfjörður Til sölu m.a.: Kelduhvammur 3ja herb. rúmgóð risibúð. Sér- lega gott útsýni. Verð 1 mill). Sléttahraun 3ja herb. falleg 80 fm endaíbúð á 2. hæð. Bílskúrsréttur. Strandgata 2ja herb. ósamþ. ibúö á efri haBÖ i steinhúsi. Þarfnast standsetningar. Verð 450—500 þús. Breiövangur 3ja—4ra herb. falleg íbúö á 4. hæö. Bílskúr. Suöursvalir. Verð 1550 þús. Hjallabraut 3ja—4ra herb. vönduö íbúð á 1. hæð. Suöursvalir. Verð 1400 þús. Breiðvangur 4ra—5 herb. íbúö á 2. hæö, 125 fm. Bílskúr. Suöursvalir. Verö 1750 þús. Granaskjól Rvk. Glæsileg efri hæö, 145 fm í tví- býlishúsi. Allt sér. Bílskúr. Tjarnarbraut 6 herb. gott steinhús á fallegri hornlóö ásamt bílskúr m/ kjall- ara Álftanes 6 herb. vandaö einnar hæöar steinhús. Stór bílskúr. Barmahlíö Rvk. 6 herb. aöalhæö. 170 fm ásamt bílskúr. Ný eldhúsinnrétting. Nýleg teppi. Þvottahús inn af eldhúsi. Suöursvalir. Suöurbraut 3ja herb. íbúö á 3. hæö. Nýtt gler. Fallegt útsýni. Bílskúr tylg- ir. Verö 1250 þús. Nönnustígur Einbýlishús, járnvariö tlmbur- hús, alls um 100 fm, hæö og rls. Falleg, ræktuö lóö. Rólegur staöur. Mávahraun 200 fm einnar hæöar einbýlis- hús meö bílskúr og ræktaörl lóö. Álfaskeiö 4ra herb. íbúö á efstu hæð, endaíbúö. Bílskúr. Vitastígur 5 herb. einbýlishús, steinhus, hæö og kjallari, alls 120 fm, á fallegrl hornlóö. Vogar Vatnsleysuströnd 130 fm nýtt einbýlishús á einni hæö, aö mestu fullbuiö, á góö- um staó. Skipti möguleg á elgn á höfuöborgarsvæöinu. Opið kl. 1—4 í dag FASTEIGNASALA Árna Gunnlaugssonar Austurgötu 10 — S: 50764 VALGEIR KRISTINSSON, HOL. Sjá einnig fasteigna- augl. á bls. 10. 29555 — 29558 Holtsbúð — Raðhús Vorum aö fá til sölumeöferðar 160 fm raöhús á tveimur hæöum. Húsið skiptist þannig: á fyrstu hæö eru 2 svefnherbergi, þvottaherb., gesta w.c., uþphitaö- ur bílskúr og geymsla. A efri hæö eru 2 svefnherb., stofa og eldhús. Allt tréverk er mjög vandað svo og eignin öll. Verö 2,6—2,7 millj. Eignanaust sk,Phoit, 5. Þorvaldur Lúðvíksson Sími 29555 og 29558.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.