Morgunblaðið - 28.08.1983, Blaðsíða 1
80 SIÐUR
Gullskipið nálgast sjónmál
Gullskipsmenn á Skeiðarársandi reikna með að komast niður á flak Het
Wapen van Amsterdam um eða eftir helgina, en myndina tók Ragnar
Axelsson, Ijósmyndari Morgunblaðsins, núna fyrir helgina þegar búið var
að dæla nær 7 metra þykku lagi af sandi innan úr stálþilinu, en 10—11
metrar eru niður á þilfar skipsins. Eins og sjá má á myndinni, er rifið
umflotið sjó og vatni en innan í stálþilinu siglir dælupramminn á vatni
sem gullskipsmenn verða að dæla inn í þilið úr Skeiðará, því dælurnar
þurfa vatn til þess að geta dælt sandinum. Dælingin gengur mun betur en
áætlað var og sjást skilin vel á þilinu.
Sjá bls. 2.
Meðaldrægu eldflaugarnar:
Bandaríkjamenn fagna
tillögum Yuri Andropovs
Hondúras:
Óttast
byltingu
hersins
Mexíkóborg, 27. ágúst. AP.
ERLENDIR sendimenn í
Hondúras hafa látið í Ij'ós
ugg um, að herinn í landinu
muni taka völdin í sínar
hendur ef stjórnarflokkurinn
bindur ekki enda á miklar
deilur, sem nú geisa innan
hans. Skæruliðar í E1 Salva-
dor sprengdu í gær upp há-
spennustaura og önnur
mannvirki og ollu með því
rafmagnsleysi í vesturhluta
landsins.
Sendiráðsmenn í Tegucigalpa,
höfuðborg Hondúras, segja, að ef
ekki verða settar niður deilur
innan stjórnarflokksins í landinu
megi víst heita, að herinn taki
völdin í landinu og bindi þar með
enda á tveggja ára borgaralega
stjórn. Sl. fimmtudag sagði af
sér embætti einn ráðherranna,
Jose Azcona Hoyo, og olli því
ósætti milli hans og annars ráð-
herra, Carlos Flores Facusse, en
báðir hafa þeir hug á að verða
forsetaefni stjórnarflokksins í
kosningunum 1986.
Bandaríski sjóherinn er nú
með heræfingar undan ströndum
Nicaragua, jafnt í Kyrrahafi sem
því Karabíska, og fyrir dyrum
standa sameiginlegar heræf-
ingar bandarískra og hondúr-
askra hermanna í frumskógum
Hondúras.
Tvær og hálf milljón manna í
átta héruðum E1 Salvador voru
án rafmagns í gær vegna
skemmdarverka skæruliða í
landinu og lagðist víða niður
vinna af þeim sökum. Talsmaður
bandaríska sendiráðsins í San
Salvador sagði í gær, að verið
væri að kanna hvort satt væri, að
fé, sem Bandaríkjamenn hefðu
ætlað flóttamönnum í landinu,
hefði lent í höndum hersins.
Washiniiton, 27. ágúsL AP.
BANDARÍSKA utanrfkisráðuneytið
hefur fagnað tilboði Yuri Andropovs,
forseta Sovétríkjanna, um að „eyði-
leggja" meðaldrægar eldflaugar og
segir það „jákvætt merki", ef tilboðið
verður staðfest í formlegum viðræðum
um takmörkun á vígbúnaði. „Við
hlökkum til að kanna ásamt Sovét-
mönnum möguleikana á þvf að ná
árangri á þessu sviði, þegar viðræður
byrja að nýju í Genf 6. september
nk.,“ sagði talsmaður ráðuneytisins.
Af hálfu ráðuneytisins var jafn-
framt látin í ljós sú von, að tilboðið
fæli í sér þann vilja af hálfu Sov-
étmanna að leysa þau mál, sem ver-
ið hafa Atlantshafsbandalaginu
hvað mest áhyggjuefni og urðu til
þess, að sú ákvörðun var tekin 1979
að koma fyrir nýjum bandarískum
meðaldrægum eldflaugum í Evrópu.
Reagan Bandaríkjaforseti sagði á
föstudagskvöld, að hann hefði ekki
haft tækifæri til þess að kynna sér
tillögur Andropovs gaumgæfilega,
en það væri markmið stjórnar sinn-
ar að fá Rússa til þess að fækka
meðaldrægum eldflaugum sínum og
haldið yrði fast við það markmið.
Tékknesk sund-
kona flýr sæluna
Kómaborg, 27. á)(Ú8t. AP.
TÉKKNESK dýfingastúlka, Alena Ni-
ederlova, hefur neitaö aö snúa aftur
heim til Tékkóslóvakíu frá 16. sund-
meistaramóti Evrópu, sem fram fór í
Róm en nú er nýlokið. Fór hún meö
öörum félögum sínum úr tékkneska
sundliðinu á flugvöllinn í Róm er þeir
héldu heim til Prag. Á flugvellinum
sagðist hún vera ákveðin í að snúa
ekki aftur heim og kvaddi félaga sína.
ítalska lögreglan yfirheyrði Alenu
á föstudagskvöld, en ekki var vitað,
hvort hún hugðist sækja um dvalar-
Ieyfi á ítaliu eða fara til annars vest-
ræns lands.
Rússar hófu á árinu 1977 að koma
sér upp nýjum færanlegum eld-
flaugum af gerðinni SS-20. Þær eru
búnar þremur kjarnorkusprengjum
hver og draga 2400 km. Þetta varð
tilefni þeirra gagnráðstafana af
hálfu NATO að koma fyrir 572 nýj-
um meðaldægum kjarnorkueld-
flaugum í Vestur-Evrópu síðar á
þessu ári, ef ekkert samkomulag
næst við Rússa um takmörkun á
I þessum vopnum í Evrópu.
Ástleitnin varð
honum að falli
Bonn, 27. ágúttl. AP.
EINN þingmanna græningja, um-
hverfisverndarsinna og mikilla and-
stæðinga Atlantshafsbandalagsins,
sagði af sér þingmennsku í gær og
viðurkenndi um leið að hafa gerst
óþolandi ágengur við þær konur,
sem voru honum til aðstoðar við
þingstörfin.
Klaus Hecker, sem er einn 27
þingmanna græningja, sagði I yf-
irlýsingu, sem hann gaf út í kjör-
dæmi sínu, Hessen, að hann segði
af sér til að koma í veg fyrir frek-
ari umræður um þetta mál. Heck-
er var einnig formaður rann-
sókna- og tækninefndar þingsins,
einu nefndarinnar, sem græningj-
ar höfðu formennsku fyrir.
Klaus Hecker er 53 ára gamall,
kvæntur og þriggja barna faðir.
Samstarfskonur hans í þinginu
hafa kvartað sáran undan ágengni
hans og samþingsmenn hans úr
flokki græningja lögðu að honum
að hætta vegna hneykslisins, sem
framferði hans vakti.
Þetta mál kemur í kjölfar ann-
ars, sem valdið hefur miklum deil-
um innan flokks græningja. Það
var þegar einn þingmanna flokks-
ins jós mannsblóði yfir bandarísk-
an hershöfðingja í Wiesbaden 3.
ágúst sl. til að sýna þannig í verki
ást sína á friði og andstöðuna við
Atlantshafsbandalagið. Vegna
þessa hafa nokkrir mikilsmetnir
menn sagt skilið við flokkinn og
margir græningja óttast, að þessi
atburður eigi eftir að verða þeim
dýr í fylkiskosningunum, sem nú
standa fyrir dyrum.
Áfengissýkin
gengur í arf
— segja danskir og bandarískir vísindamenn
Los Angeies. 27. ágúst. ap. 19—21 árs og átti 31 þeirra áfeng-
RANNSÓKNIR bandarískra og issjúkling fyrir föður.
danskra vísindamanna þykja benda „Áfengið hafði önnur áhrif á
til, að rétt kunni aö vera sú kenning, heila þeirra, sem áttu áfengissjúkl-
að áfengissýki sé að nokkru arfgeng. ing fyrir föður, en á heila hinna,
Vísindamennirnir skýra frá sem áttu föður lausan við áfengis-
niðurstöðum rannsóknanna í ág- sýkina," sagði einn visindamann-
ústhefti tímaritsins „Archives of anna, Jan Volavka. „Það virðist
General Psychiatry“ og segja þar, sem þeir hafi i sér arftekna til-
að afkomendur áfengissjúklinga hneigingu til að verða áfengis-
séu sérstaklega viðkvæmir fyrir sjúklingar."
áhrifum áfengisins vegna arftek- Rannsóknirnar fóru þannig
inna breytinga f heila og í mið- fram, að mönnunum var gefinn
taugakerfi. I ljós kom, að börn ákveðinn skammtur af áfengi og
mikilla drykkjumanna eru „líf- kom þá fram, að þótt áfengismagn-
fræðilega mörkuð" I miðtaugakerfi ið mældist það sama I blóði allra
og eiga því fremur á hættu að var heilalínuritið ólíkt eftir því
verða sjálf áfenginu að bráð síðar hvort þeir áttu áfengissjúkan föð-
meir. Ur eða ekki. Enginn þessara ungu
Rannsóknirnar fóru fram á 48 manna var áfengissjúklingur sjálf-
dönskum karlmönnum á aldrinum ur.