Morgunblaðið - 28.08.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983
19
Reynimelur
Falleg 6 herb. efri haeö og ris í
3býli, ásamt bílskúr. Á hæð: 2
samliggjandi stofur, svefnherb.,
eldhús og baö. i risi sem nýbúiö
er að lyfta: 3 herb. og baðherb.
Allt nýtt í risi. Svalir á hæö og í
risi. Góö eign. Verö 2,3 millj.
Hlíðar
120 fm 4ra herb. efri hæö í
4býli. Bílskúrsréttur. Skipti
möguleg á minni ibúö í sama
hverfi. Verð 1,8 millj.
Smáíbúðahverfi
Höfum gott 6 herb. ca. 160 fm
einbýli auk bílskúrs. Á hæö 2
stofur, eldhús, gesta w.c. og
þvottahús. í risi 4 herb. og baö.
Eingöngu í skiptum fyrir minni
séreign í sama hverfi.
Asparfell
140 fm 6 herb. íbúö á tveim
hæöum. Vandaðar innréttingar.
Sér þvottahús. 2 svalir. Góöur
bílskúr.
Grjótaþorp
Gamalt járnklætt timburhús,
kjallari, hæö og ris, á góöum
staö. Góö lóð. Þarfnast stand-
setningar en býöur upp á mikla
möguleika.
Hafnarfjörður
Góö 4ra herb. íbúð á jaröhæö í
þribýli við Reykjavíkurveg. Sór
inngangur. Verö 1,3 millj.
Sólvallagata
100 fm mjög snyrtileg 4ra herb.
íbúö á 1. hæö í 4býli. Nýtt
baöherb. Verksmiöjugler, nýtt
þak, ný raflögn. Sérhiti. Gengiö
af svölum út í garö. Verö 1,7
millj.
Njálsgata
Rúmgóö 4ra herb. íbúö á 3.
hæö. Sérhiti. Verð 1,2 millj.
Fellsmúli
Rúmgóö 4ra herb. íbúö á jarö-
hæö. Sérinngangur. Sérhiti.
Verð 1,5 millj.
Baldursgata
3ja herb. íbúö á góöum staö. 2
saml. stofur og svefnherb. Verö
1,2 millj.
Ugluhólar
Nýleg 2ja herb. íbúö á 3. hæö
(efstu). Vandaöar innréttingar.
Verð 1,2 millj.
Kleppsvegur
Sérlega rúmgóö 2ja—3ja herb.
íbúö á jaröhæö. Nýl. innrétt-
ingar. Gengiö úr stofu út á lóö.
Urðarstígur
2ja herb. íbúö á jaröhæð ca. 40
fm. Sérinngangur. Verö 650
þús.
Njarðargata
2ja herb. ca. 45 fm kjallaraíbúö.
Getur losnaö fljótlega. Verö 620
þús.
LAUFÁS
SÍÐUMÚLA 17
Magnús Axelsson
starfsgreinum!
Gridan dagirm!
Uppeldis-
málaþing
KÍ og HIK
MYNDIN var tekin á uppeldismála-
þingi Kennarasambands íslands og
Hins íslenska kennarafélags sem
fram fer nú um helgina í Borgartúni
6 í Reykjavík. Þingið hefur yfir-
skriftina „Grunnskóli/framhalds-
skóli: Samræmd heild eða sundur-
leitir heimar?“
Á þinginu flytja Gerður G.
Óskarsdóttir og dr. ólafur Proppé
aðalfyrirlestrana en einnig eru
þar flutt erindi um ýmis málefni.
Þá verður námsgagnakynning frá
báðum skólastigum (grunnskólum
og framhaldsskólum). Þetta er í
fyrsta sinn sem KÍ og HÍK halda
sameiginlega uppeldismálaþing.
Lýst eftir
skellinöðr-
unni R-1307
HEFIJR NOKKUR séð skellinöðru
með einkennisstafina R-1307? Hún
er hvít að lit, Honda MT 50.
Skellinaðran hvarf frá húsdyr-
unum hjá okkur aðfaranótt 10. ág-
úst síðastliðinn. Þeir sem kunna
að hafa orðið skellinöðrunnar var-
ir eru vinsamlega beðnir að láta
Jóhönnu Haraldsdóttur, Vestur-
bergi 163, í síma 75460, eða lög-
regluna í Reykjavík vita.
Leiðrétting
í fréttatilkynningu rikisstjórn-
arinnar um breytingu á lánskjara-
vísitölunni, sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær, féll niður í töflu
dálkur, sem sýnir áætlun um þær
vísitölur, sem gilda munu næstu
mánuði samkvæmt breyttum
grundvelli, miðað við spár um
verðlagsþróun. Þær eru á þessa
leið:
Stig
Ágúst__________727
September __ 786 eða 8,1%
Október ____ 805 eða 2,4%
Nóvember .... 827 eða 2,7%
Desember ____ 837 eða 1,2%
Nýja strengjasveitin
með tvenna tónleika
NÝJA strengjasveitin, um 20
manna hópur sem hefur leikið sam-
an kammermúsík og fleira undan-
farin tvö ár, heldur tónleika nk.
mánudags- og þriðjudagskvöld.
Tónleikarnir á mánudagskvöldið
verða í kirkjunni í Ytri-Njarðík, en
á þriðjudagskvöldið í Bústaðakirkju
í Reykjavík. Báðir tónleikarnir hefj-
ast klukkan hálf níu.
Stjórnandi Nýju strengjasveit-
arinnar er Josef Vlach, Tékki,
sem kominn er hingað til lands
sérstaklega til að stjórna
hljómsveitinni. Hann kom einnig
fyrir tveimur árum, þegar Nýja
strengjasveitin var enn ný og að
stíga sín fyrstu spor. Vlach er
þekktur tónlistarmaður.
Á seinni árum hefur hann ein-
beitt sér að stjórnun og kennslu
og stjórnar m.a. Suk-hljómsveit-
inni og tékknesku kammersveit-
inni í Prag. En hann er einnig
fær fiðluleikari, og lék á sínum
yngri árum með frægum kvart-
ett, sem bar nafn hans. Blaða-
maður og ljósmyndari Mbl. litu
inn á æfingu hjá Nýju strengja-
sveitinni fyrr í vikunni, en sveitin
hefur æft daglega undanfarið í
matsal Kvennaskólans.
„Þetta er geysilega vandvirkur
hljómsveitarstjóri," hvíslaði einn
fiðlarinn að blaðamanni. „Við æf-
um sex tíma á dag í tíu tíma sam-
fleytt. Til samanburðar get ég
nefnt að fyrir tónleika hjá Sin-
fóníuhljómsveit íslands eru
venjulega ekki nema fjórar æf-
ingar, samtals tólf klukkustund-
ir.“
„Já, ég vil fara nákvæmlega í
hlutina," sagði Vlach, „það má
endalaust betrumbæta. En þegar
maður er að vinna með svona
áhugasömu fólki finnur maður
ekki fyrir þreytu. Þetta eru stór-
kostlegir krakkar, sem vita hvað
þeir vilja. Þeir spila af hugsjón,
en ekki eingöngu í þeim tilgangi
að vinna fyrir daglegu brauði,
eins og svo margir tónlistarmenn
erlendis gera. Þessir krakkar
vilja ná árangri í tónlistinni og
eru tilbúnir til að leggja á sig þá
vinnu sem þarf.
Enda hefur þeim farið mikið
Stjórnandinn Josef Vlach grípur í
fiðluna.
fram síðan ég vann með þeim
fyrir tveimur árum. Þau hafa
haldið hópinn, flutt tónleika og
stjórnað sér að mestu leyti sjálf.
Virkilega góðir músíkantar."
Þau verk sem Nýja strengja-
sveitin flytur á tónleikunum
tveimur eru eftirfarandi: King
Arthur svíta eftir Purcell, Di-
vertimento eftir Mozart, svíta
eftir Janacek og Variations on a
theme of Frank Bridge eftir
Britten.
Fyrirtæki óskast
LALKAS
FASTEIGNASALA
SÍDUMÚLA 17
82744
Höfum fjársterkan kaupanda að verzlunarfyrirtæki,
(heildsala, smásala).
Æskileg mánaðarvelta 1,5—2,0 millj. Uppl. á skrif-
l stofunni.
MAGNUS AXELSSON
Smss
Skrifstofu- eða iðnaðar-
húsnæði við Bolholt
350 ferm hæð við Bolholt, sem hentar fyrir hvers
konar skrifstofur, læknastofur, léttan iðnað eða ann-
að þess háttar. Góöur möguleiki á hvers konar skipu-
lagi.
Hagkvæmir greiösluskilmálar.
Opið 1—3 í dag.
„ 25 EicnflmiÐLunm
■Í'iTJKTKf ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
SIMI 27711
Sölustjóri Sverrir Kristlnsson
Þorleitur Guðmundsson sölumaður
Unnsteinn Back hrl., tfmi 12320
Þórólfur Halldórsson lögfr.
Kvöldsími sölumanns 30483.
ltE^5HD
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Séríbúð — vinnurými
Til sölu 3ja herb. íbúö á 2. hæð ásamt einu herb. í risi
í tvíbýlishúsi við Laufásveg. Sérhiti, sérinngangur.
íbúöinni fylgir 27 fm vinnurými með sér snyrtingu,
hita og rafmagni.
Helgi Ólafsson,
löggiltur fasteignasali.
Kvöldsimi 21155.
28444 28444
OpiÖ frá 1-3
Bújörð á Snæfellsnesi
Höfum til sölu bújörö á noröanverðu Snæfeilsnesi (ca. 13 km
frá Stykkishólmi). Nýlt íbúóarhús og nýleg fjárhús fyrir 320 fjár,
ásamt hlööu. Tún ca. 23 ha. í dag og góðir ræktunarmöguleik-
ar. Áhöfn og tæki gela fyigt.
Uppl. á skrifstofu okkar.
HÚSEIGNIR
&SKIP
VElTUSUNOtt
SfMI 28444
Húseignír og *kip,
Veltusundi 1, sími 28444.
Daníel Árnaaon, lögg. fasteígnasali.