Morgunblaðið - 28.08.1983, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983
Úr fangelsi í Kúbu. elsismúranna.
leiðingar þessa urðu þær að við
vorum barðir rækilega. í fangels-
unum er þetta atvik þekkt undir
nafninu „Svarti september".
Fyrir tveimur og hálfu ári voru
milli 24 og 30 þúsund Sovétborgar-
ar á Kúbu. Kúbanski herinn hefur
ekki aðgang að stöðvum þeirra,
sem eru raunar ríki í ríkinu. Þess-
ir Sovétmenn hafa alger umráð
yfir búnaði sínum og vopnum og
öllum flutningum. Ef til byltingar
kæmi, mundu þeir verða siðasta
vígi hinna drottinhollu.
Viku fyrir brottför mína frá
Kúbu var ég fluttur í aðalstöðvar
ríkislögreglunnar, þar sem dr. Al-
varez Cambra beið mín, en hann
bar ábyrgð á endurhæfingu minni
og var auk þess höfundur yfirlýs-
ingar sem birtist í tímaritinu „Int-
erviú" en þar var frá því skýrt að
ég hefði verið rannsakaður af fær-
ustu sérfræðingum Kúbu og að
þeirra sjúkdómsgreining staðfesti
að ég þjáðist af „taugaiömun
vegna vaneldis".
Nú var farið með mig í þjálfun-
armiðstöð. Dr. Alvarez Cambra
útskýrði fyrir mér að ég mundi á
stuttum tíma öðlast fullkomið
jafnvægisskyn, vegna þess að ég
væri á opnu svæði, því að um
enduraðlögun litla heilans væri að
ræða. Nú hófst ströng endurhæf-
ing sem stóð í viku. Ég var látinn
ganga upp og niður stiga, æfa mig
í leikfimisal, fara út á íþróttavöll í
steikjandi sólarhita o.s.frv.
Klukkustund fyrir brottför mina
til flugvallarins gekk ég um völl-
inn undir eftirliti yfirmanna úr
ríkislögreglunni. Þeir gátu nú sýnt
mig öllum heiminum. Tveimur
tímum síðar tók ég vélina til Par-
ísar. Hin mikla auglýsing sem
Kúbustjórn vænti sér stóð raunar
ekki nema nokkrar klukkustundir,
eða þar til ég hafði skýrt frá því,
að ég notaði ekki hjólastól ein-
faldlega af því að þeir hefðu látið
mig í viðeigandi endurhæfingu.
Kúbanska þjóðin er byrjuð að
átta sig. Þúsundir verkamanna
hafa tekið höndum saman og
myndað óháð verkalýðsfélög. Ný-
verið voru 5 verkalýðsleiðtogar
dæmdir til dauða, en vegna við-
bragða almenningsálitsins í heim-
inum tókst okkur að bjarga þeim.
Þegar þetta er ritað er kúgun og
fjöldahandtökur á Kúbu í al-
gleymingi. Tugir verkamanna
hafa verið fangelsaðir og 11 bænd-
ur eiga á hættu að vera dæmdir til
dauða fyrir að hafa heldur viljað
brenna uppskeru sína en að selja
stjórninni hana á smánarverði.
Enn í dag er nokkrum hundruð-
um samlanda minna haldið í fang-
elsi vegna þess að þeir neita að
gangast undir „pólitíska endur-
hæfingu". í mörg ár hafa þessir
menn lifað hálfnaktir án þess að
fá heimsóknir, bréf eða læknis-
hjálp. Þeir fá ekki einu sinni að
sjá til sólar, í klefum þar sem dyr
og gluggar eru algerlega byrgðir.
Heilsu þeirra er alvarlega ógnað;
einkum á þetta við um Juan Gonz-
ales, Orlando Garcia Plasencia,
Eugenio Silva og skáldin Ernesto
Diaz Rodriguez, Roberto Martin
Perez og Jorge Walls Arango.
Ýmsar mannréttindastofnanir og
menntamenn víða um heim hafa
fordæmt þetta ástand.
Hefndarráðstafanir hafa verið
hafðar í frammi gegn fjölda kúb-
anskra menntamanna, sem hafa
þegar setið árum saman í fangelsi
eða fangabúðum. Þannig var
skáldinu Andres Vargas Gomez
fyrrum starfsmanni í utanríkis-
þjónustunni — sonarsyni Maximo
Gomez hershöfðingja og sjálf-
stæðishetju Kúbu — sleppt alvar-
lega veikum úr haldi í lok maí í ár.
Hann hefur síðan verið undir
stöðugu eftirliti og sætt hótunum,
loks tilkynnti stjórnin að hann
gæti aldrei yfirgefið landið. Skáld-
ið Angel Cuadra, sósíalistarnir
Ricardo Bofill þjóðfélagsfræðing-
ur, Enrique Hernandez stærð-
fræðingur, Adolfo Rivero þjóðfé-
lagsfræðingur og fjöldi annarra
eru í sömu aðstöðu. Stjórn
Kastrós sem hrjáð er af alvarlegri
efnahagskreppu beitir ríkislög-
reglunni óspart gegn almenningi.
Árum saman hefur Kúbustjórn
tekist að fela raunverulegt kúgun-
areðli sitt, pyndað og grafið fórn-
arlömb sín með leynd eða þaggað
niður í þeim.
Nú þegar næstum aldarfjórð-
ungur er liðinn frá valdatöku
kommúnista á Kúbu getur enginn
vísað til vanþroska stjórnkerfisins
til að afsaka slíka glæpi. Engin
heimspeki, ekkert stefnumark get-
ur réttlætt það að Kastróstjórnin
sleppi við að svara til saka þegar
hún drepur og myrðir.
Bolholt
Allt á fullu 5. sept.l
Lokaðir og framhalds.fi. ath.l
4 vikna haustnámskeiö
Opnum eftirtalda flokka:
4.30 m.m. ( 9.15 þ—f)
5.30 m.m. (10.15 þ—f)
6.30 m.m. hádegistími 12.05
7.30 m.m.
8.30 m.a. ( 1.30 þ—f)
Þær sem ætla aö vera í framantöld-
um flokkum á vetrarnámskeiöi en
koma ekki á haustnámskeiðið láti
okkur vita strax svo viö getum tekið
frá plássin, annars ganga þær fyrir
sem taka tímana núna á haustnám-
skeiöin.
Nú hættum vid aö slóra
og störtum Bolholti meö
„ Sæluvikustemmningu“
Kennarar: Bára og Anna
(yfirkennari í jassb.)
Gjald meö 10 tíma Ijósum 1.200 kr.
Innritun í síma 36645.
..........
s
Suðurver
Allt á fullu í Suðurveri!
Nú er það 4ra vikna haustnám-
skeið 5. sept.
★ Áfram meö kúrana, tímar 4 sinn-
um í viku.
★ Nýir og spennandi matarkúrar
★ Opnum alla flokka
★ Morgun-, dag- og kvöldtíma
★ Tímar tvisvar og 4 sinnum í viku
★ „Lausir tímar“ fyrir vaktavinnu-
fólk
★ Sturtur — sauna — Ijós
(innifaliö)
Ath.: afsláttarkort
í sólbekkina í Bolholti
Það er frábær stemmning
í Suðurveri núna
Sjáumst léttar og/ eða kátar
Kennarar: Bára, Sigríöur og Margrét
Innritun í síma 83730
Líkamsrækt JSB Suðurveri — Bolholti 6.