Morgunblaðið - 28.08.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983
39
Niven þótti leika best þegar hann
var sem líkastur sjálfum sér. Hér er
hann í hlutverki Fíleas Foggs { Um-
hverfis jörðina á 80 dögum.
seinna sænskri fyrirsætu, Hjördísi
Tersmeden, og ættleiddu þau tvö
börn.
Velgengni
Það var ekki fyrr en á sjötta ára-
tugnum sem Niven kom aftur undir
sig fótunum sem vinsæl kvik-
myndastjarna og hann fór að fá
betri hlutverk. Otto Preminger
valdi hann í aðalhlutverkið f mynd-
inni The Moon is Blue, sem var
gamanmynd og frægust varð fyrir
að lenda í útistöðum við kvik-
myndaeftirlitið í Bandaríkjunum.
Enn festi hann sig f sessi þegar
Niven með Douglas Fairbanks og konu hans, Sylvíu, á upptökustað myndar-
innar The Prisoner of Zenda.
þeir góðir vinir og drykkjufélagar.
I myndinni lék Niven hugrakkan
ungan foringja, sem er drepinn þar
sem hann er að beriast í gegnum
víglínu óvinanna. I Prisoner of
Zenda lék hann á móti Ronald
Colmann, í endurgerð myndarinnar
The Dawn Patrol lék hann aftur á
móti vini sínum Flynn og hann
veitti Sir Laurence Olivier harða
samkeppni sem Edgar Linton i
mynd Williams Wylers, Wuthering
Heights, 1939. Fyrsta myndin sem
Niven lék í sem stjarna í aðalhlut-
verki, var á móti Ginger Rogers í
Barchelor Mother en þar lék hann
Raffles, heiðursmann og þjóf.
Aftur í herinn
Þegar hér var komið sögu var
seinni heimsstyrjöldin skollin á og
Niven ákvað að hverfa frá Holly-
wood og snúa til Bretlands að leika
sitt hlutverk þar. Hann var skráð-
ur í riffilsveit breska hersins og
var hækkaður í tign eftir nokkurn
tíma, úr lautinant i ofursta. Hann
þjónaði f Normandí, Hollandi,
Belgíu og Þýskalandi. Honum var
tvisvar veitt leyfi frá hernum til að
leika í kvikmyndum. Það voru First
of the Few með Leslie Howard, sem
fjallaði um Spitfire-flugvélarnar,
og The Way Ahead, sem Carol Reed
gerði og var áróðursmynd fyrir
breska herinn. Skömmu eftir strfð
lék hann svo í enn einni strfðs-
myndinni, A Matter of Live and
Death. Á meðan á strfðinu stóð
hitti hann f Englandi konu að nafni
Primula Rollo, sem var yfirmaður f
flughernum og tfu dögum eftir að
hann hafði hitt hana voru þau gift.
Þau áttu tvo syni saman, David Jr.
og James Graham.
Erfiðir tímar
Árið 1946 snéri Niven aftur til
Hollywood. Hann hafði alltaf gam-
an af því að segja mönnum frá því
þegar hann sneri aftur í fyrirtækið
hans Göldwyns. Kvikmyndaverið
var alsett borðum sem buðu hann
velkominn aftur og sjálfur Samuel
Goldwyn stóð í hliðinu að taka á
móti honum. „Velkominn heim,
David,“ sagði framleiðandinn glað-
hlakkalegur. „Ég var að lána þig til
Universal." Það var erfitt fyrir
Niven að ná þeirri stöðu í Holly-
wood, sem hann hafði haft fyrir
stríðið. Hann var lánaður f hinar
og þessar myndir og græddi Gold-
wyn vel á því, en Niven lék hvergi
stór hlutverk. Eftirspurnin eftir
breskum leikurum hafði minnkað
til muna. Það voru erfiðir tfmar
fyrir Niven og við þessar raunir
hans á kvikmyndasviðinu, bættist
lát konunnar hans, 25 ára gamall-
ar. Hún hrasaði niður stiga i
dimmum kjallara i samkvæmi á
heimili leikarans, Tyrone Powers.
Niven giftist aftur tveimur árum
hann lék Fíleas Fogg í stórmynd
Mike Todds, Around the World in
80 Days, 1956. Ekkert annað hlut-
verk hentaði honum betur, en
leikhæfileikar Nivens voru meiri
en svo að hann hefði nokkra
ánægju af að festast í þessari
„nivensku rullu“.
Tveimur árum seinna var hann
kominn með óskarsverðlaunin í
hendurnar, sem besti karlleikari f
aðalhlutverki. Það var fyrir mynd-
ina Separate Tables, sem gerð var
eftir samnefndu leikriti Terence
Rattigans. Hann var á hátindi fer-
ils síns. Á eftir fylgdu myndir eins
og Ask Any Girl, gamanmynd, þar
sem hann lék á móti Shirley Mac-
laine, stríðsmyndin The Guns of
Navarone, geysivinsæl mynd, 55
Days at Peking og loks The Pink
Panther, þar sem hann lék íðil-
snjallan gimsteinaþjóf, sem In-
spector Clouseau, eða Peter Sellers,
átti í útistöðum við. Sú mynd var
frumsýnd 1964 og reyndist vera
síðasta myndin þar sem Niven naut
einhverra vinsælda að ráði. Hann
hélt áfram að leika í einni eða
tveimur myndum á ári, en hann
hefur eflaust haft meiri áhrif í röð
sjónvarpsauglýsinga um duftkaffi.
Árið 1971 kom út sjálfsævisaga
hans, The Moon’s a Balloon, og með
henni var hann kominn f röð met-
söluhöfunda. Hann var fæddur
sögumaður og bókin var samansafn
skemmtilegra frásagna úr lífi hans
í hernum og í Hollywood og í henni
var aragrúi frægra nafna sem allt-
af er gaman að lesa um. Vinsældir
bókarinnar urðu til þess að hann
gerði aðra endurminningabók, sem
fjallaði aðallega um frægar perón-
ur í Hollywood og kallaði hann
bókina, Bring on the Empty Hors-
es. Tíu árum eftir að fyrri endur-
minningabókin kom út, gaf Niven
út aðra skáldsögu sína, Go Slowly,
Come Back Quickly.
Eftirsóttur í rabbþætti
En Niven fékkst við meira en
kvikmyndaleik og skriftir. Snemma
á sjötta áratugnum setti hann á fót
fyrirtæki ásamt Charles Boyer og
Dick Powell, Four Star Television,
til að gera myndir fyrir sjónvarp.
Það framleiddi meira en 2000
myndir og hjálpaði mörgum Holly-
woodstjörnum til að koma undir
sig fótunum í iðnaðinum. Niven
gerði sína eigin sjónvarpsþætti og
varð síðar eftirsóttur í rabbþáttum
í sjónvarpinu þar sem frásagnar-
hæfileikar hans nutu sín frábær-
lega.
Lífsgladur Niven
Hann skorti aldrei sögur til að
segja fólki. Hann þreyttist til
dæmis seint á því að segja frá því
þegar hann var einu sinni að vinna
við kvikmynd og borðaði þá alltaf í
búningsherberginu sínu fremur en
í matsal kvikmyndafólksins. Einn
daginn ruglaði kokkurinn hans
hitabrúsum Nivens og sonar hans,
þannig að þegar Niven ætlaði að fá
sér drykk, komst hann að því að í
brúsanum hans var tómatsafi en
ekki þetta venjulega innihald
nefnilega „Bloody Mary“. „Sonur
minn, David yngri, var kátasti
drengurinn í skólanum þann dag-
inn,“ sagði Niven og fór að hlæja.
Lífið var ein stór skemmtun fyrir
Niven og hann hegðaði sér alltaf
eins og hann ætti heiminn, still
hans var óaðfinnanlegur, smekkur
hans einstakur og hann var alltaf,
alltaf fyndinn.
Samantekt — ai
John Houston leikstýrir Niven og Deborah Kerr í Casino Royale, 1%7.
Kennsluhúsnæói
óskast
Félagasamtök óska að kaupa ca. 300 fm húsnæði sem
næst miðbænum. Húsnæðið þarf aö henta sem
kennsluhúsnæði og verður að liggja vel við strætis-
vagnasamgöngum.
Tilboð og upplýsingar sendist augld. Mbl. fyrir 2. sept.
merkt: „D — 8821“.
/. i t
AVOXTUNSf^jy
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Ávöxtun s f. annast kaup og sölu verðbréfa,
fjárvörslu, fjármálaráðgjöf og ávöxtunarþjónustu.
Ekki var Róm byggð
á einum dq|i.
*
Islendingar! —
Rétt ávöxtun sparifjár
er besta kjarabótin í dag!
Verötryggð spariskírteini ríkissjóðs
Gengi 29.08.83
Ár FL Sg./100 kr. Ár Fl. Sg./100 kr. Gengi
1970 2 15.161 1977 2 1.536 Overðtryggð
1971 1 13.861 1978 1 1.221 Veðskuldabréf
1972 1 13.286 1978 2 981 Ár 20% 47%
1972 2 10.450 1979 1 849 1 63,0 77,2
1973 1 8.053 1979 2 633 2 52,6 70,3
1973 2 8.128 1980 1 541 3 45,4 65,3
1974 1 5.125 1980 2 408 A 40 1 61,4
1975 1 4.038 1981 1 351 c HU, 1 oe n CQ A
1975 2 2.966 1981 2 265 D doy Dö,4
1976 1 2.602 1982 1 248
1976 2 2.152 1982 2 185
1977 1 1.801 1983 1 144
Kaupendur
óskast
að góðum
verðtryggðum
veðskuldabréfum.
Höfum
kaupendur
að óverðtryggðum
veðskuldabréfum.
ÖIl kaup og sala verðbréfa miðast við daglegan
gengisútreikning.
*
Avöxtun ávaxtar fé þitt betur
AVOXTUNSf^/
LAUGAVEGUR 97 - 101 REYKJAVÍK
OPIÐ FRÁ10-17 - SÍMI 28815
MetsöhiUadá hverjum degi!