Morgunblaðið - 28.08.1983, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983
Lech Walesa og fjölskylda hans öll
hafa verið mikið í sviðsljósinu síðustu
ár, heimilisföðurins getið í fréttum
alltaf öðru hvoru, ekki síst vegna
heimsóknar páfa.
Lech Walesa missti ungur föður
sinn og móðir hans flutti til Banda-
ríkjanna eftir síðari heimsstyrjöldina,
þar sem hún ætlaði að reyna að koma
undir sig fótunum og senda svo eftir
börnum sínum. En margt fer öðruvísi
en ætlað er, móðirin lést í umferðar-
slysi og Lech Walesa ólst því upp hjá
ættingjum í Póllandi. Hann lærði raf-
iðn og hóf störf hjá Lenin-skipasmíða-
stöðinni í Gdansk.
Þegar Lech Walesa var 25 ára gam-
all gekk hann í hjónaband með ungri
stúlku, Danuta, sem þá var aðeins 19
ára gömul.
Þá tóku við barneignir, þeim hjón-
um fæddust sex börn með stuttu milli-
bili og það sjöunda, telpa, fæddist á
meðan Walesa var í stofufangelsi í
febrúarmánuði 1982.
Það hefur verið hljóðara um eiginkon-
una, Danuta Walesa, en það hefur mikið
hvílt á hennar herðum við umönnun
barnanna. Á meðan hún gekk með
sjöunda barnið, og óvíst var um örlög
manns hennar, var haft eftir henni í
viðtali, að hún hafi ekki getað stutt
mann sinn nægilega í verkalýðsbarátt-
unni, enda hafi hún orðið að hugsa um
bömin, hefðu þau bæði verið hneppt í
fangelsi hefði verið úr vöndu að ráða.
Hún hafi aðeins getað séð til þess að vel
færi um hann heima og veitt honum
andlega uppörvun og hvatningu.
Síðar sagðist hún hafa verið hrædd-
ust um, að hann yrði sendur til Sov-
étríkjanna eins og Álexander Dubcek og
aðrir leiðtogar í Tékkóslóvakíu. En það
fór allt betur en á horfðist, eins og
kunnugt er, Walesa fékk að fara frjáls
ferða sinna og hóf störf á ný.
Ungu hjónin hefðu getað farið troðn-
ar slóðir, gengið í Kommúnistaflokk
landsins, sótt um stærri íbúð, átt kost á
að mennta börn sín o.s.frv. En þau kusu
að hafa annan hátt á, þau þráðu frelsi
til handa samlöndum sínum og tóku
áhættuna, sem því fylgir að setja sig
upp á móti stjórnvöldum landsins.
Þau hafa nú fengið stærra húsnæði en
þau höfðu, eru flutt úr tveggja her-
bergja íbúðinni í fimm herbergja. En
erfiðleikarnir eru ekki að baki, börnin
eru mörg, sem sjá þarf farborða, og
staða heimilisföður sjálfsagt ekki alveg
örugg ef hann heldur uppteknum hætti.
Sama er að sjálfsögðu að segja um
aðra meðlimi í Samstöðu, allt það fólk
setur sig í hættu með þátttökunni.
Þegar Lech Walesa missti vinnuna við
skipasmíðastöðina og á meðan hann var
í fangelsi, hjálpuðust vinir og samherj-
ar að við að sjá Danuta og börnunum
farborða og þegar litla dóttirin var
skírð og Walesa fékk ekki að vera
viðstaddur, flykktust borgarbúar út á
göturnar til að sýna þeim hjónum sam-
hug, eins og menn muna.
Danuta Walesa sagði í fyrrnefndu
viðtali að þau hjón, ásamt öðrum Pól-
verjum, tryðu á frelsið, þau vildu leggja
sitt í sölurnar til að börnin í Póllandi
fengju að kynnast því í reynd, þeirra
væri framtíðin og engar fórnir væru of
stórar til að ná því markmiði.
B.I. Þýtt og endursagt.
Walesaog
fiölskylda í Pófiandí
Brídge
Arnór Ragnarsson
Sumarbridge
aö Ijúka
Þættinum hefir borist eftir-
farandi pistill frá ólafi Lárus-
syni keppnisstjóra i sumar-
bridge:
Spilað var í 5 riðlum í sumar-
bridge sl. fimmtudag, eða um 60
pör. Úrslit urðu þessi:
A-riðill:
Vigdís Guðjónsdóttir
— Inga Bernburg 244
Þórir Leifsson
— Steingrímur Þórisson 244
Baldur Árnason
— Sveinn Sigurgeirsson 237
Þórarinn Árnason
— Ragnar Björnsson 237
B-riAilI:
Erna Hrólfsdóttir
— Jón Ámundason 188
Baldur Ásgeirsson
— Magnús Halldórsson 187
Ása Jóhannsdóttir
— Sigríður Pálsdóttir 185
Hörður Blöndal
— Sigurður Sverrisson 181
C-riðill:
Rafn Kristjánsson
— Þorsteinn Kristjánsson 125
Högni Torfason
— Steingrímur Jónasson 123
Óskar Karlsson
— Tómas Tómasson 115
D-riðill:
Sigríður S. Kristjánsdóttir
— Bragi Hauksson 204
Hulda Hjálmarsdóttir
— Þórarinn Andrewsson 187
Aðalsteinn Jörgensen
— Georg Sverrisson 174
Kristján Blöndal
— Valgarð Blöndal 167
E-riðill:
Hjálmar Pálsson
— Andrés Þórarinsson 126
Hjálmtýr Baldursson
— Ragnar Hermannsson 121
Hermann Lárusson
— Lárus Hermannsson 114
Meðalskor í A var 210, í B og D
156 og 108 í C og E.
Og efstu menn eftir 13 kvöld í
sumarbridge eru:
Hrólfur Hjaltason 20,5
Jónas P. Erlingsson 18,5
Gylfi Baldursson 17
Esther Jakobsdóttir 17
Sigurður B. Þorsteinssonqbl6
Guðmundur Pétursson 16
Sigfús Þórðarson 14
Vigdís Guðjónsdóttir 13,5
Samtals hafa 178 spilarar
fengið vinningsstig á 13 spila-
kvöldum i sumarbridge. Meðal-
talsþátttaka á kvöldi er yfir 60
pör, sem er mjög góð aðsókn.
Sumarbridge lýkur fimmtudag-
inn 8. september nk., með verð-
launaafhendingu sigurvegara
sumarsins. Það þýðir að stiga-
keppni lýkur næsta fimmtudag,
skv. venju.
Búast má við að félögin hefji
vetrarstarfsemi sína uppúr
miðjum september.
Og þá er ekkert annað en að
minna á næsta fimmtudag i
Domus og allir að sjálfsögðu
velkomnir. Spilamennska hefst i
síðasta lagi kl. 19.30.
Guðmundur Páll á verðlaunapalli f Wiesbaden. Guðmundur hlaut verðlaun fyrir bestu
varnarspilamennskuna í mótinu. Við hlið hans stendur Kirsten Möller, eiginkona eins
þekktasta spilara Dana, Steen Möller, en hún skrifaði um spilið í mótsbiaðið. Þau fengu um
600 mörk sem þau skiptu bróðurlega á milli sín.
Myndir Arnór.
ítalir urðu í öðru sæti á Evrópumótinu og fengu þeir þar með farseðil á Heimsmeistaramótið
í Stokkhólmi í haust. Þekktustu spilarar ítala eru Belladonna í Ijósum fotum fyrir miðri
mynd og Garozzo annar frá haegri.
nioiiti fiiilaK
in93 icj cnu ogoinJol Is islsi nnsri