Morgunblaðið - 28.08.1983, Blaðsíða 48
.^^skriftar-
síminn er 830 33
iOrDJinMaMt*
juglýsinga-
síminn er 2 24 80
SUNNUDAGUR 28. ÁGÍJST 1983
*
Island vann
England
ÍSLENSKA skáksvcitin sigraði
England 2Vi—V/i í 5. umferð á
heimsmeistaramóti skákmanna 26
ára og yngri, sem nú fer fram í Chi-
cago í Bandaríkjunum. Jón L. Árna-
son vann skák sína gegn Hebden,
en skákir Margeirs Péturssonar og
Chandlers, Jóhanns Hjartarsonar og
Flears og Elvars Guðmundssonar og
Hogdsons fóru allar í bið. Allir áttu
íslensku skákmennirnir í vök að
verjast, en þeim fataðist ekki vörnin
og héldu allir jöfnu.
íslenska sveitin er nú í öðru sæti
á eftir stórmeistarasveit Sovét-
manna, sem vann Bandaríkjamenn,
3—1, í 5. umferð. Sovétmenn hafa
hlotið 15 vinninga, ísland 14, síðan
koma Bandaríkin og Kína í 3—4.
sæti með 12Vfc vinning. íslenska
sveitin mætir þeirri kínversku í 6.
umferð.
í fyrradag voru tefldar biðskákir
úr 3. og 4. umferð mótsins. Jón L.
Árnason tapaði sinni skák gegn
Brasilíumanninum Braga og skildu
Islendingar og Brasilíumenn því
jafnir, 2—2. Elvar Guðmundsson
gerði jafntefli við Sovétmanninn
Ehlvest. íslendingar og Sovétmenn
skildu því jafnir, 2—2, og er ís-
lenska skáksveitin eina sveitin sem
náð hefur þeim árangri á mótinu
til þessa.
Bjargað
af þakinu
ÍBÚA herbergis í Brautarholti 20 var
bjargað af þaki hússins eftir að eld-
ur kom upp í herbergi hans laust
eftir klukkan 5 í fyrrinótt. Maðurinn
flúði út á þak hússins þegar honum
tókst ekki að ráða niðurlögum elds-
ins. Hann var fluttur í slysadeild þar
sem hann skarst á höndum þegar
hann barðist við eldinn.
Það var laust eftir klukkan 5 að
tilkynning barst til Slökkviliðsins
í Reykjavík um að eldur væri laus
í Þórscafé. Fjölmennt lið var þeg-
ar sent á vettvang. Eldur reyndist
ekki vera í veitingahúsinu, heldur
í bakhergi á 3. hæð hússins. Tveir
reykkafarar voru þegar sendir inn
með háþrýstislöngu og gekk greið-
lega að ráða niðurlögum eldsins,
sem logaði í stól og fötum.
Skömmu áður hafði slökkvilið-
inu borist tilkynning um að eldur
væri laus á Leifsgötu 10. Þar hafði
gleymst að slökkva á eldavél.
Yfir þúsund
miðar seldir
í forsölunni
á Akranesi
ÚRSLITALEIKUR Bikarkeppni
KSÍ fer fram á Laugardalsvelli í
dag og hefst klukkan 14. Mikill
áhugi er á leiknum á Akranesi og
í Vestmannaeyjum. Þannig höfðu
yfír þúsund aðgöngumiðar á leik-
inn verið seldir á Akranesi á
Tóstudag og mikill viðbúnaður var
í Eyjum.
Skagamenn urðu bikarmeist-
arar í fyrra þegar þeir sigruðu
Keflvíkinga, 2—1. Skagamenn
hafa tvívegis orðið bikarmeist-
arar en alls keppt 10 sinnum til
úrslita. Eyjamenn hafa fimm
sinnum leikið til úrslita og þrí-
vegis farið með bikarinn til
Eyja.
Morgunbladid/ Kristján Einarsson
Fengur veiðimanna er ærið misjafn eins og gengur. Sverrir Scheving Thorsteinsson, formaður Skotveiðifélags íslands, var nýkominn úr veiðiferð á
Vesturlandi er Ijósmyndarinn tók þessa mynd af honum með afrakstur veiðiferðarinnar og þarf hann greinilega ekki að kvarta. Á blaðsíðu 2 er rætt við
Sverri og Erling Ólafsson dýrafræðing um gæsaveiðar og gæsategundir hérlendis.
*
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSI, um útflutningstekjiir 1982:
Samdráttur nam 26.500
kr. á hvern landsmann
Erlendar skuldir stefna í 60% af þjóðarframleiðslu
„SAMDRÁTTUR í tekjum af út-
fluttum sjávarafurðum og iðnvarn-
ingi á milli áranna 1981 og 1982
nemur 221,3 milljónum dollara eða
6,2 milljörðum íslenskra króna á
gengi í dag. Þessi tekjumissir jafn-
gildir því að hver íbúi landsins hafi
tapað 26.500 krónum, eða hver
fimm manna fjölskylda 132.500
krónum. Það munar um minna,“
sagði Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Þá kom fram hjá
honum að í árslok mætti reikna
með að erlendar skuldir þjóðarinn-
ar næmu um 60% af þjóðarfram-
leiðslu sem er um 13% hærra hlut-
fall en áður hefur verið talað um
opinberlega.
„Til að glöggva okkur á stöðu
atvinnuveganna og þjóðarbúsins á
þessum örlagatímum," sagði
Magnús Gunnarsson, „höfum við
tekið saman útflutningstekjurnar
í dollurum á meðalgengi hvers árs
undanfarin tíu ár. Uppsveiflan er
misjafnlega mikil en stöðug fram
til 1981. Þannig var verðmæti út-
fluttra sjávarafurða 214 milljónir
dollara 1973 en 715,2 milljónir
dollara 1981. í fyrra, 1982, datt út-
flutningsverðmæti sjávarafurða
svo niður um tæpa 200 milljón
dollara eða í 520,5 milljón dollara.
Svipaða sögu er að segja um út-
flutningsverðmæti iðnvarnings,
það nam 64,5 milljónum dollara
1973 en 191,6 milljónum dollara
þegar það var mest 1980. Á árinu
1981 voru útflutningstekjur af
iðnaðarvörum 164,8 milljónir doll-
ara en 138.2 milljónir í fyrra, 1982.
Tekjurnar hafa þannig dregist
saman í heild um 221,2 milljónir
dollara, eins og áður sagði.“
Jón sagði að viðkomandi aðilar
hefðu ekki ákveðið sig í þessu efni
enn sem komið væri en það þyrfti
að skýrast fljótlega. Ekki vildi
„Skuldastaðan út á við er mikið
áhyggjuefni," sagði framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins.
„Horfur eru á að um næstu ára-
mót nemi erlendar skuldir 60% af
þjóðarframleiðslunni. Við stönd-
um frammi fyrir því að af hverri
krónu sem aflað er með útflutn-
ingi renni mun meira en fjórðung-
ur til erlendra lánadrottna í
hann nefna neinar tölur um
vandann en sagði að um mikla
upphæð væri að ræða. Aðspurður
staðfesti Jón að meðal annars
greiðslu á afborgunum og vöxtum,
fjórðungi útflutningskrónunnar er
varið í aðföng þeirra fyrirtækja
sem skapa útflutningstekjurnar.
Þannig er minna en helmingur út-
flutningstekna til skipta innan
lands. Þegar þessar tekjur ganga
einnig saman svo mjög sem raun
ber vitni hlýtur það að bitna
þungt á afkomu hvers og eins."
væri vonast til að Reginn hf., sem
á 5% núverandi hlutafjár félags-
ins, Olíufélagið hf. og Patreks-
hreppur legðu fram hlutafé, en
einnig fleiri aðilar, en Kaupfélag
Vestur-Barðstrendinga, sem á um
90% hlutafjár félagsins, væri
varla í stakk búið til að leggja
fram hlutafé vegna fjárhagserfið-
leika þess sjálfs meðal annars
vegna sláturhússbyggingar sem
það ætti í erfiðleikum með.
Hraðfrystihús Patreksfjarðar:
Rætt við ýmsa aðila
um hlutafjárkaup
„FYRST OG FREMST er verið að ræða um stóraukið hlutafé í fyrirtækið en
einnig hefur verið rætt um lengingu á skammtímalánum hjá ýmsum lána-
stofnunum," sagði Jón Kristinsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Pat-
reksfjarðar hf., í samtali við Mbl. er hann var spurður að því hvað verið væri
að gera til að leysa framtíðarvanda fyrirtækisins, en eins og fram hefur
komið í fréttum hefur fyrirtækið átt í miklum fjárhagserfiðleikum og gat
ekki greitt út laun um tíma í sumar.