Morgunblaðið - 31.08.1983, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 31.08.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 5 82 fluttir í „loftbrú“ í GÆRKVÖLDI lauk tveggja daga loftnutningum milli Reykjavíkur og Kulusuk-flugvallar vid Angmagsalik austurströnd Grsnlands. Það var Grænlandsflug Helga Jónssonar flugmanns, sem annað- ist þessa flutninga, fyrir félag í Bretlandi, British Schools Explor- ing Society. Helgi sótti til Græn- lands 82 skólanema, og allan við- legubúnað. Nemarnir dvöldu í tjaldbúðum á Grænlandi nú síðari hluta sumars. Flugvél frá Flugfél. Norðurlands tók þátt í þessum flutningum. Fóru flugvélarnar alls 11 ferðir á milli. Voru flugmenn- irnir eins heppnir með veður og hugsast gat. Hinir bresku nem- endur voru ánægðir með Græn- landsvistina. Veðrið hafði hag- stætt. Þeir halda áfram heim flugleiðis á föstudaginn. Óháði söfnuðurinn: Séra Emil Björnsson hættir SÉRA Emil Björnsson, sem verið hefur prestur Oháða safnaðarins frá stofnun hans, hefur látið í Ijósi við safnaðarstjórn að hann muni fljót- lega sskja um lausn frá starfi, eigi síðar en um nsstu áramót. Samkvæmt lögum safnaðarins fer ekki fram almenn prestskosn- ing, heldur ræður safnaðarstjórn og safnaðarráð nýjan prest. I frétt frá Óháða söfnuðinum segir að starfið verði auglýst innan skamms. Laxar merktir í Ölfusá veiddust í Borgarfirði ÞAÐ ER alls ekki óþekkt fyrirbsri að lax sem merktur er í einni á finn- ist síðar í annarri á, að sögn Þórs Guðjónssonar, veiðimálastjóra, en frá því var sagt í Morgunblaðinu um miðja síðustu viku, að lax sem merktur hefði verið í Blöndu hefði skömmu síðar veiðst í Laxá á Ásum. Merkingar á laxi og silungi fóru fram í Ölfusárósi á árunum 1960- 72 á vegum Veiðimálastofnunar í samvinnu við Árnesinga. Alls voru merktir 1.070 laxar. 327 merki endurheimtust, þar af sex í öðrum ám en ölfusá. 5 laxar veiddust í Borgarfirði og 1 í Þjórsá, sem er um 1,8%. Sagði Þór að alltaf mætti gera ráð fyrir að eithvað af laxi flæktist svona á milli. Þá sagði Þór að af löxum sem keyptir hefðu verið í Kollafirði og slepppt í Kálfá, sem rynni í Þjórsá, hefðu nokkrir skilað sér aftur í Kollafjörð. Það væri vitað erlendis frá, þar sem meira hefði verið merkt af laxi en hér á landi, að svona lagað gæti gerst, í sam- bandi við þann eiginleika laxsins að leita aftur á heimaslóðirnar. FLUGLEIDIR Gott fólkhjá traustu félagi Nú bjóða Flugleiðir farþegum, sem ferðast innanlands sérstök safnviðskipti. Safnviðskipti Flugleiða eru fyrir alla farþega, sem telja sig ná ákveðnum ferðafjölda á 3 mánuðum eða skemmri tíma. Þeir sem þannig safna 100 ferðastigum eiga möguleika á ókeypis farseðli, sem gildir fram og til baka á einhverri flugleið Flugleiða innanlands. Safnkort Flugleiðir gefa út sérstakt safnkort fyrir þá, sem vilja safna ferðastigum. Á framhlið kortsins er skráð nafn farþega, heimilisfang og nafnnúmer. Á bakhlið kortsins eru reitir, þar sem flugferðir viðkomandi farþega eru skráðar, - dagsetning, flug- og farseðilsnúmer, stigafjöldi og kvittun afgreiðslumanns. Framvísa ber persónuskilríkjum við hverja skráningu á kortið. Uppgjör Ef handhafi safnkorts telur sig hafa náð 100 ferðastigum innan 3ja mánaða frá fyrsta skráða flugdegi afhendir hann kort sitt á afgreiðslu Flugleiða. Hafi hann unnið sér inn tilskilinn stigafjölda fær hann afhentan farseðil á flugleið innanlands að eigin vali. Farseðlinum má hann síðan ráðstafa að eigin vild. Aðeins skráðar ferðir eru gildar í uppgjöri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.