Morgunblaðið - 31.08.1983, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983
Árás á spari-
fjáreigendur?
Sími 16767
Garöabær
Ca. 200 fm einbýlishús með ca.
60 fm bílskúr við Sunnuflöt. Fal-
leg ræktuð lóð. Bein sala.
Einbýlishús —
Kópav. vesturbær
Einbýlishús á tveimur hæðum,
80 fm að grunnfleti, með 30 fm
bílskúr viö Melgeröi. Eign í
mjög góðu standi. Fallegur
garður með 20 fm gróöurhúsi.
Verð 3 millj. Bein sala.
Mosfellssv. — Raöhús
Ca. 65 fm aö grunnfleti á tveim-
ur hæðum. Bein sala.
Breiðholt
Ca. 130 fm raöhús á einni hæð
m/bílskúr við Unufell. Bein sala.
Seljahverfi
Raðhús á þremur pöllum við
Dalsel með bílskýli. Bein sala.
Seltjarnarnes
Ca. 130 fm hæö i þríbýlishúsi
m/bílskúr. Eign í mjög góðu
standi. Verö 2,3 millj. Bein sala.
Fálkagata
Ca. 100 fm 4ra herb. íbúö á 1.
hæð í fjölbýlishúsi. Útb. 1250
þús. Bein sala.
Hringbraut
3ja herb. íbúð á efri hæð í fjór-
býlishúsi. Laus í okt. nk. Verö
1350 þús. Bein sala.
Hraunbær
Ca. 90 fm 3ja herb. íbúð á 1.
hæð. Bein sala.
Einar Sigurósson,
Laugavegi 66.
Sími 16767. Kvöld- og helgars.
77182.
28444
2ja herb.
ÞVERBREKKA. 2ja herb. 65 fm
íbúö á 2. hæð í lyftuhúsi. Góð
íbúð. Verð 1020 þús.
GRUNDARSTÍGUR. Einstakl-
ingsibúö á 2. hæð í timburhúsi.
Laus strax. Verð 550 þús.
3ja herb.
LANGAHLÍÐ. 3ja herb. um 80
fm íbúö á 1. hæö auk herb. i
risi. Falleg íbúð. Nýtt gler. Verð
1500 fxls.
BREIÐVANGUR. 3ja herb. ca.
100 fm íbúð á efstu hæð. Bíl-
skúr. Sérþvottahús. Verð 1550
þus.
4ra herb.
MIÐBJERINN. 4ra herb. 115 fm
íbúð á 3. hæö í steinhúsi. Nýtt
eldhús, bað o.fl. Laus. Verð
1800 þus.
BRÆÐRABORGARSTÍGUR.
4ra herb. ca. 130 fm ibúö á 2.
hæð. Falleg íbúð. Verö 1550
þús.
Raöhús
HVASSALEITI. Raöhús á 2
hæðum, samt. um 220 fm að
stærð. Sk. m.a. í 4—5 sv.herb.,
borðstofu, setustofu o.fl. Gott
hús í fallegu umhverfi. gæti
losnað fljótt.
RAUÐÁS. Raöhús á 2 hæöum,
samt. um 195 fm. Selst fokhelt
aö innan, en frágengið að utan.
Til afh. í haust. Verð 1,6 millj.
Einbýiishús
BORG ARHOLT SBR AUT. Ein-
býlishús, hæð og ris, samt. um
200 fm, auk 70 fm iönaðarhús-
næöis. Eldra hús á mjög góðum
stað. Falleg lóð. Eign meðmikla
möguleika. Verö 2,7 millj.
L/EKJARÁS. Einbýlishús á 2
hæðum um 420 fm að stærð.
Séríbúö á neðri hæð. Stórt og
fallegt hús á góðum stað.
HEIÐARÁS. Einbýlishús á 2
hæðum, samt. um 330 fm að
stærð. Selst tllb. að utan meö
gleri, útíhuröum o.fl. Fokhelt að
innan. Vélslípuö gólfplata. til
afh. strax.
Fyrirtæki
MATVÖRUVERSLUN j austur-
bænum. Mikil velta og góö
tæki. Uppl. á skrifstofunnl.
Vantar
2ja herb. ibúö í Miövangi 41,
Hafnarfiröi.
4ra herb. í Engihjalia.
NÚSEIGMIR
VEUUSUNOIf ® CI#IH
sími 28444. ok 9IUr
Daníel Árnason,
lögg. fasteignasali.
eftir Magnús
Ásgeirsson
Hugmyndir ríkisstjórnarinnar
um skerðingu lánskjaravísitölu
hafa orðið mörgum sparifjáreig-
endum mikið áhyggju- og undrun-
arefni síðustu vikur. í ljós hefur
komið að jafnvel þessi ríkisstjórn
svífst einskis til að koma hrammi
ríkisvaldsins lengra inn í einkalíf
manna þrátt fyrir fagrar yfirlýs-
ingar í þveröfuga átt. Hvers konar
krukk í allar vísitölur er til hins
verra og veikir traust almennings
á vísitölumælingum.
Út yfir allan þjófabálk tók þó
þegar í ljós kom, að þingmenn
töldu réttlætanlegt að vegna efna-
hagsástandsins mætti skerða
sparifé og að tímabært væri að
innistæðueigendur tækju á sig
einhverjar byrðar eins og launþeg-
ar hafa orðið að gera, eða þannig
hljóðaði frétt um málið fyrir
skömmu. Halda menn að spari-
fjáreigendur séu einhverjir aðrir
en launþegar? Nei, sparifjáreig-
endur eru launþegar, þeir hafa
þegar tekið á móti harkalegri
skerðingu launa sinna fyrr á þessu
ári, en önnur árás á það sem eftir
er af laununum er fráleit, enda
komu lögfróðir menn i veg fyrir
hin illu verk í sl. viku.
Ef skerðing lánskjaravisitölu
hefði orðið að raunveruleika geri
ég ráð fyrir að svipuð eignaupp-
taka hefði farið fram hjá gróða-
pungum atvinnulífsins og að sjálf-
sögðu hefðu þeir af fúsum vilja
látið eignir sínar af hendi í þágu
ríkisins. Tilraunir ríkisstjórnar-
innar minna óneitanlega á stjórn-
unaraðferðir sem frekar má búast
við í austantjaldsríkjum, en ekki
vestrænu lýðræðisríki.
Sparifjáreigendur eru ráðdeild-
arsamt fólk, margt komið yfir
miðjan aldur og er að safna til
ævikvöldsins, þeir hafa í áraraðir
treyst innlánsstofnunum fyrir
fjármagni sínu, peningum sem
þeir hafa aflað. Það hefði verið og
mun ætíð verða svívirðilegt að
ráðast gegn þessum hljóða þjóðfé-
lagshópi, sem trúir og treystir að
29555
Hamraborg. 2ja herb. 60 fm á
3. hæð. Verð 1100 þús.
Kóngsbakki. 2ja herb. 65 fm á
1. hæö. Verð 1050 þús.
Snorrabraut. 2ja herb. 63 fm á
3. hæð. Verð 1000—1050 þús.
Engihjalli. 3ja herb. 80 fm á 1.
hæð. Verð 1300 þús.
Hamraborg. 3ja herb. 104 fm á
4. hæð. Verð 1450 þús.
Sléttahraun. 3ja herb. 90 fm á
1. hæð. Verð 1300 þús.
Tjarnarból. 3ja herb. 85 fm á
jarðhæð. Verö 1300 þús.
Ásbraut. 3ja herb. 90 fm á 2.
hæð. Verð 1250 þús.
Laufvangur. 3ja herb. 100 fm á
4. hæð. þvottur og búr inn af
eldhúsi. Bílskúr. Verð 1500 þús.
Krummahólar. 4ra herb. 100
fm á 1. hæð. Verð 1350 þús.
Miðtún. 5 herb. 110 fm á 1.
hæð. Verö 1900 þús.
Faxatún. 130 fm einbýli. bíl-
skúr. Verð 2,9 millj.
Holtsbúð. 160 fm raöhús. Bíl-
skúr. Verð 2,4 millj.
Vegna mikillar eftirspurnar
síðustu daga, vantar okkur all-
ar stærðir og gerðir eígna ó
söluskrá. Skoöum og verð-
metum samdægurs.
Eignanaust
Skipholti 5.
Sími 29555 og 29558.
^ÞorvaldurLúðvíksson.
gagnkvæmur drengskapur við inn-
lánsstofnanir sé ófrávíkjanleg
gullin regla. Sparifjáreigendur
hafa ekki enn bundist samtökum,
þeir hafa ekki enn efnt til grát-
funda og hrópað á hjálp, þeir hafa
ekki verið spurðir álits um upp-
hæð leigugjalds af innistæðum
sínum, þar ráða stjórnvöld og eiga
að taka mið af framboði og eftir-
spurn. Neikvæðir raunvextir hafa
um margra ára skeið sett mark
sitt á íslenzkt efnahagslíf og
margir hafi grætt á, m.a. hús-
byggjendur með óverðtryggð lán.
Hinir neikvæðu raunvextir hafa
verið þyrnir í augum sparifjáreig-
enda og þess vegna hafa innistæð-
ur á verðtryggðum reikningum
farið hlutfallslega vaxandi, það
þarf engan speking til að sjá það.
Ástæðulaust er að fólk gefi þjón-
ustu sína hvort sem er í formi
vinnu eða fjármagns, en það er
einmitt það sem núverandi ríkis-
stjórn ætlaðist til, með 3—4%
skerðingu lánskjaravísitölu.
Nýr útreiknings-
grundvöllur:
Ástæður hinna vanhugsuðu
stjórnarathafna sem nærri höfðu
orðið að raunveruleika er nýr og
ferskari útreikningsgrundvöllur
lánskjaravísitölu. Þetta er fagnað-
arefni, enda ættu allar mælingar á
vísitölum ávallt að vera í stöðugri
endurskoðun, breyttir lifnaðar-
hættir krefjast þess og þar með
þjóðin sjálf. Hún verður þá einnig
að vera móttækileg fyrir breyting-
um sem í kjölfarið fylgja svo
fremi sem ákvarðanir er þetta
varða séu teknar á ábyrgan og
drengilegan hátt.
Verðtryggdir reikningar:
Undirrituðum þykir einkenni-
legt hve verðtryggðir reikningar
hafa í raun verið lítið kynntir al-
menningi og möguleikar sem fást
með þeim. Til að mynda ef ein-
staklingur á þrjá þriggja mánaða
reikninga sem hver um sig er
opinn tíu daga í senn fjórum
sinnum á ári þá er í raun komið
verðtryggt fé til ráðstöfunar í
hverjum mánuði ársins.
Ekki þarf sú upphæð sem mán-
aðarleg fer inn á slíka reikninga
að vera há, e.t.v. 500.- eða 1.000.-
kr., en hún getur skipt sköpum
fyrir eigandann síðar. Ennfremur
hefur undirritaður undrast hvers
vegna ekki hefur verið reynt að
koma á 30 daga verðtryggðum
reikningum, sem næðu mælingum
lánskjaravísitölu tvo mánuði í röð.
Svo til eina kynningin sem farið
hefur fram hefur verið í höndum
verðbréfamarkaða og lífeyris-
sjóða, þökk sé þeim, en ekki komið
úr bankakerfinu.
Ráðdeildarsemi:
Fyrir skömmu héldu íbúðakaup-
endur og -byggjendur grátfund
mikinn í Sigtúni, sem vissulega
var tímabær. Þykir þar sannast að
stórir grátfundir séu yfirleitt það
eina vopn sem almenningur á
gagnvart stjórnvöldum, því það er
ekki í fyrsta skipti nú sem svo
virðist sem grátfundur geri gagn
og er það vel. Margvíslegar fjár-
hagsáhyggjur vegna stórfjárfest-
inga fjölskyldna hafa því miður
oft valdið mikilli óhamingju í allt
of mörgum fjölskyldum, sem jafn-
vel enda með skilnaði. Tímabært
er því að taka fjármál þessa þjóð-
félagshóps föstum tökum. í allri
umræðu um fjármál einstaklinga
mega menn ekki eingöngu setja
fram kröfur, þeir verða einnig að
gera kröfur til sjálfs sín. Stjórn-
völd mega heldur ekki kyngja
„Ef skerðing lánskjara-
vísitölu hefði orðið að
raunveruleika geri ég ráð
fyrir að svipuð eignaupp-
taka hefði farið fram hjá
gróðapungum atvinnulífs-
ins og að sjálfsögðu hefðu
þeir af fúsum vilja látið
eignir sínar af hendi í
þágu ríkisins. Tilraunir
ríkisstjórnarinnar minna
óneitanlega á stjórnunar-
aðferðir sem frekar má
búast við í austantjalds-
ríkjum, en ekki vestrænu
lýðræðisríki.“
kröfunum hráum. Menn skulu
minnast þess, að ráðdeildarsemi
hefur ávallt borgað sig og þrátt
fyrir gífurlega verðbólgu hefur
þar engin breyting orðið á. Sl.
10—20 ár hefur afkoma þjóðarinn-
ar ekki almennt krafist ráðdeildar
svo mikil hefur velmegunin verið,
en auðvitað má finna þar undan-
tekingar á. Þetta hefur þó snúist
við á sl. 2—3 árum, að einhverju
leyti.
Þeir einu sem kunna að hafa
þurft að sýna ráðdeild eru ein-
staklingar sem nú í dag hafa
10—12 þúsund krónur í mánaðar-
laun og hafa haft hlutfallslega
jafn mikið gegnum árin miðað við
aðra þjóðfélagshópa. Þetta fólk
fitnar ekki af launum sínum og
kjör þessa hóps er áhyggjuefni.
Að öðru leyti verður ekki annað
séð, en þjóðin sé býsna vel haldin,
hagtölur sanna það. Utanlands-
ferðir, aukin áfengisneyzla, full
veitingahús helgi eftir helgi, fullir
stórmarkaðir á fimmtudögum og
föstudögum sýna það og sanna að
afkoma þjóðarinnar er líklega
ekki eins slæm og af er látið, en
mikið vill alltaf meira.
Lóðaúthlutun:
f framhaldi af umræðu um
ráðadeild er ekki úr vegi að víkja
Magnús Ásgeirsson
að yfirlýsingum sem féllu af vör-
um ýmissa aðila vegna lóðaúthlut-
unar í Reykjavík og Kópavogi þar
sem fram kom að kostnaður hefði
aukist svo gífurlga í sumar, gatna-
gerðargjöld hefðu þegar upp væri
staðið orðið mönnum ofviða og að
auki væru skilmálarnir svo þröng-
ir! í báðum fyrrgreindum sveitar-
félögum var lóðum skilað. f flest-
um tilfellum eru þessar yfirlýs-
ingar marklaus fyrirsláttur.
Ástæðan er sú að áætlaðar tölur
um gatnagerðargjöld lágu fyrir
snemma í maí miðaðar við vísitölu
1. apríl, sem allir gátu gefið sér að
myndi hækka. Ennfremur lágu
fyrir greiðsluskilmálar. Undirrit-
uðum þykir kynlegt hversu fólk
virðist skyndilega hafa orðið fjár-
vana, ákvörðun um byggingu ein-
býlis- og raðhúsa sem helzt voru í
boði í umræddum sveitarfélögum
verður vart tekin á einni nóttu þar
sem heilbrigð skynsemi ræður
ríkjum. Slík ákvörðun hlýtur að
eiga áralangan aðdraganda og
krefjast ráðdeildar viðkomandi í
eins langan tíma. Allar fullyrð-
ingar um skyndilegan mikinn
kostnað bera einungis vitni um að
fólk hefur ekki hugsað dæmið til
enda og að skort hefur ráðdeild.
Lokaorð:
Lögmálið að ráðdeild borgi sig
hefur ekkert breyzt og mun ekki
breytast, hvort sem í hlut eiga rík-
ir eða fátækir. Einmitt þess vegna
er fráleitt að ríkisvaldið gangi
fram fyrir skjöldu og brjóti niður
það traust sem sparifjáreigendur
sýna innlánsstofnunum með
geymslu peninga sinna þar. Fram-
hjá þessum staðreyndum verður
ekki horft og þjóðfélagsstaða
skiptir engu máli.
Magnús Ásgeirsson er riðskipta-
fræðingur að mennt og starfar í
fjármaáladeild Sambands ísl. sam-
rinnufélaga.
Blaðburðarfólk
óskast!
■^fjt
AllQtnrhær Eskihlíð frá 14—35
AUSIUroær Eskihlíð frá 5-15 staka-
talan