Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 31.08.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983 45 VUT7P\ Ingvar Agnarsson skrifar: „Velvakandi. f flestum stjörnufræðibókum, erlendum, sem út hafa komið á síðari árum, er talað um hin svörtu göt eða svarthol, en kenn- ingar um þau hafa mjög verið á dagskrá. Eg tek sem dæmi eina stutta setningu úr stjörnufræðibókinni „Discovering Astronomy", eftir Jacqueline & Simon Mitton, útg. 1980, en þar stendur m.a. um kvasarana, hinar ofurlýsandi, fjarlægu vetrarbrautir: „Kvasar-leyndardómurinn liggur í því að finna uppsprettu orkunnar. Sennilega er um að ræða óhemjustórt „svarthol" í miðju kvasarsins. Efni sem fell- ur inn í þetta hol leysir úr læð- ingi þann kraft, sem við verðum varir við. Aðeins með þessu móti gæti orðið um næga orkufram- leiðslu að ræða. Stjarnspreng- ingar og kjarnasamruni gætu engan veginn haldið við þeirri orku sem kvasarar senda frá sér.“ Þessar fullyrðingar eru ekkert einsdæmi í stjarnfræði- ritum. millistig hvað birtu snertir, á milli kvasara og venjulegra vetrarbrauta. Hvernig má ímynda sér að slík ofurbirta stafi frá „svörtum götum“, sem enga geislun eiga að geta gefið frá sér? Svartholasýki stjörnufræðinga Einkennilegt virðist mér, hversu stjarneðlisfræðingar eru uppfullir af hugmyndum um svartholin. Varla kemur út sú bók um stjörnufræði, að hún helgi sig ekki fyrst og fremst kenningunni um svarthol á öll- um stigum: Einstakar stjörnur verða svarthol, miðkjarnar vetr- arbrauta verða svarthol, kvasar- ar sem heild verða svarthol. Stjörnufræðingar eru komnir með einskonar svartholasýki, sem virðist ágerast með hverju árinu sem líður. Ekki er svo, að þeir hafi neitt raunhæft fyrir sér í þessum hug- arórum sínum. Enda eiga svarthol, samkvæmt kenningum þeirra, að vera allt að því ófinn- anleg og ómælanleg öllum tækj- um, því aðdráttarkraftur þeirra á að vera svo mikill að enginn geisli neinnar bylgjulengdar geti sloppið frá þeim út í geiminn. Það virðist því skjóta nokkuð skökku við þegar stjörnufræð- ingar telja kvasara til svarthola, því kvasarar senda einmitt frá sér meiri geislaorku en öll önnur þekkt fyrirbæri geimsins. Svarthola-kenningin virðist vera ein allsherjarniðurrifs- kenning, gagnstæð þeim heims- þróunar- og heimssköpunar- kenningum, sem áður höfðu þó náð að koma fram. Hér mun vera um að ræða ein- hverja þá umfangmestu hel- stefnukenningu, sem skotið hef- ur upp kollinum á okkar jörð, og mun vera andstæðust þeim raunveruleika, sem ætla mætti að ríkjandi sé í heimi stjarn- anna.“ Réttur íbúa miðbæjarins ekki virtur KGS hringdi: „Mikið er ég sammála öilu því sem Stella skrifar í Vel- vakanda í síðustu viku um umgengni og hávaða að næt- urlagi í miðbænum. Hjá mér er ástandið ekki betra, þó ég hafi ekki enn sem komið er þurft að hreinsa af tröppun- um hjá mér eftir fólk sem þar hefur gert þarfir sínar. En oftar en einu sinni hefur það komið fyrir að öskutunnum sem standa í portinu hjá mér, hefur verið velt um koll og ruslið jafnvel fokið í næstu garða. Þá er hreint makalaust hvað fólk getur haft mikinn hávaða á götum úti þegar langt er liðið fram á nótt og flestir vilja fá að sofa, enda virðist litlu skipta hvort fólk þarf að mæta til vinnu daginn eftir eður ei. Flokkar ungl- inga ganga hér um bæinn með hrópum og óhljóðum og virða að engu rétt íbúa miðbæjar- ins til kyrrðar á nóttunni. Flestir þessir krakkar búa ekki hér í miðbænum og satt best að segja fannst mér hálf furðulegt þegar ég bjó um tíma hjá dóttur minni í Breiðholtinu, þar sem margir unglingar búa, að þar ríkti friður og ró alla nóttina. Ekki nema von ef unglingar þar og úr öðrum hverfum eru allir niður í miðbæ og gera íbúum þar lífið leitt. Vísan á vel við „Húsið“ J.J. skrifar. Velvakandi. Þegar ég sá kvikmyndina „Húsið“ á síðastliðnu vori, kom í huga minn vísa sem ég lærði í bernsku vestur á fjörð- um. Eigi vissi ég um höfund hennar. Vel finnst mér við eiga að hugsa til Egils Eðvarðssonar og félaga hans með þessari vísu, þegar þeir fara ókunnar slóðir með hina stórbrotnu mynd sína. Yndi og lán þér Kgill minn ávallt fylgi í heimi. Ilúsid b«eði og hópinn þinn llerrann sjálfur geymi. Vona ég að sem flestir taki undir þá hugsun sem í vísunni felst — þeim félögum til handa — þótt upphaflega sé hún öðrum ætluð. HEILRÆÐI Það er of seint að hejast handa, þegar slys hefur orðið, er heilræði, sem felst í gömlum og góðum íslenskum málshætti, sem við öll þekkjum og kunnum. Það er einmitt þessi sann- leikur, sem er grundvöllurinn fyrir öllum slysavörnum. Festum okkur þessi heilræði vel í minni og höfum þær stað- reyndir hugfastar frá morgni til kvölds. GÆTUM TUNGUNNAR Hvorugkynsorðið prósent merkir: hundraðasti hluti; áhersla er að sjálfsögðu á fyrra atkvæði: þrjú pró- sent. Kvenkynsorðið prósenta merkir: fjöldi hundraðs- hluta. (T.d. þrjú prósent eru ekki há prósenta, þegar um fólksfjölgun er að ræða.) Kjarakaup Ijósritunarvélar Öflug Nasua 1220 Ijósritunarvél meö sjálfvirkum frumritamælara til sölu. 30 Ijósrit á mínútu, einnig eldri og lítið notuö vél, 8 Ijósrit á mínútu. Upplýsingar í síma 26234. HRÍSGRJÓNIN FRÁ RIVIANA BROSTU! MYNDASÖGURNAR Vikuskammtur af skellihlátri Wterkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiöill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.