Morgunblaðið - 31.08.1983, Side 48
Þú svalar lestrarþörf dagsins
i Moggans!
Benzín-
lítrinn
hækkar
um 60 aura
VERÐLAGSSTOFNUN samþykkti á
fundi sínum í gær að heimila verð-
hækkun á bensíni og olíu frá og með
deginum í dag. Nemur hækkunin frá
2,3% upp í 7,1%. Frá því um síðustu
áramót hefur verð á bensíni og olíu
hækkað á bilinu 41,9% til 73,2%.
Alls hefur bensín hækkað 6 sinnum
en olía 5 sinnum.
Bensínlítrinn hækkar nú úr
21,90 krónum í 22,50 eða um 2,7%,
gasolíulítrinn úr 8,60 krónum í
8,80 eða um 2,3% og lestin af
svartolíu hækkar úr 7.000 krónum
í 7.500 eða um 7,1 %. Helztu ástæð-
ur þessara hækkana eru hækkun
innkaupsverðs vegna styrkinga
Bandaríkjadollars, ásamt lítils-
háttar hækkun erlendis á bensíni
oggasolíu og nokkurrar hækkunar
svartolíu frá síðustu verðákvörð-
un.
Um áramót var í gildi verð frá
16. nóvember 1982 og kostaði
bensín þá 13,80 krónur lítrinn og
hefur því hækkað um 63%, gasolía
kostaði þá 6,20 krónur lítrinn og
hefur því hækkað um 41,9% og
svartolía kostaði þá 4.330 krónur
lestin og hefur þvf hækkað um
73,2%. Á sama tíma hefur hækkun
Bandaríkjadollars gagnvart ís-
lenzku krónunni verið 74,1% eða
úr 16,101 í 28,03 krónur.
Margeir Pétursson, fyrirliði íslenzku
skáksveitarinnar, fylgist með viður-
eign Jóhanns Hjartarsonar og eins
kínversku skákmannanna í Chicago á
sunnudag.
r
Islendingar
með IV2 vinn-
ing á móti
V-Þjóðverjum
JÓN L. Árnason sigraði V-Þjóðverjann
Bischoff í 8. umferð heimsmeistara-
móLs skákmanna 26 ára og yngri í
('hicago í Bandarfkjunum í gær og hef-
ur íslenzka skáksveitin V/t vinning
gegn '/2 vinning V-Þjóðverja. Elvar
Guðmundsson gerði jafntefli við
Greszik, en skákir Margeirs Péturs-
sonar og Lobrons og Jóhanns Hjart-
arsonar og Lau fóru í bið. Staða ís-
lenzku skákmannanna er heldur lak-
ari, en þó eiga þeir allgóðar jafnteflis-
líkur.
íslenzka skáksveitin tapaði
2 '/2—1 '/2 í 7. umferð fyrir banda-
rísku sveitinni.
Margeir Pétursson gerði jafntefli
við Kudrin, Jón L. Arnason gerði
jafntefli við Federowicz, Jóhann
Hjartarson tapaði fyrir Wilder. Jó-
hann átti í vök að verjast, Wilder
fórnaði manni og náði öflugri sókn,
sem leiddi til þess að Jóhann varð að
gefast upp. Karl Þorsteins og
Whitehead sömdu jafntefli á 4
borði.
Flest benti til þess í gærkvöldi, að
Sovétmenn ynnu stórsigur yfir
Frökkum, 4—0. Þá höfðu Kínverjar
undirtókin í viðureign sinni við
Bandaríkin.
Veist þú umeinhverja
góöa frétt?
H
ringdu þá í 10100
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1983
BMW-bifreiðin gjörónýt við Móakotsá. Hún kastaðist yfir ána, skall með framendann á grjótinu, kastaðist fram yfir sig og hafnaði á toppinum.
Morgunbladió/Julius.
„Kastaðist frá bitanum er
hann gekk í gegnum bílinn"
Mildi að ekki varð stórslys
er bifreið valt við Móakotsá
LITLU munaði að alvarlegt slys
yrði, þegar BMW-bifreið valt við
Móakotsá, skammt frá Kára-
stöðum í Þingvallasveit aðfara-
nótt þriðjudagsins. Ökumaður
missti stjórn á bifreið sinni
skömmu áður en hann kom að
Móakotsá með þeim afleiðingum
að bifreiðin lenti á brúarhand-
riði, kastaðist fram af allháum
vegarkantinum, yfír ána og hafn-
aði á toppinum. Stór biti úr
brúarstöplinum gekk upp og í
gegn um bílinn og er mikil mildi
að bitinn skuli ekki hafa lent á
fólkinu.
„Allt gerðist þetta ákaflega
snöggt; ég man það eitt að bif-
reiðin rann til í lausamölinni
og allt var á tjá og tundri og
bíllinn á toppinum þegar ég
rankaði við mér,“ sagði Ragn-
ar Breiðfjörð Gestsson, frá
Grindavík, eigandi bifreiðar-
innar í samtali við Mbl. en
hann sat í aftursætinu þegar
slysið varð. Systir hans ók bif-
reiðinni.
„Við mér blasti gríðarstór
biti, sem hafði gengið í gegn
Kagnar Breiðfjörð Gestsson
Mynd Mbl. Kr. Ben.
um bílinn. Mikil mildi er að
hann hafnaði ekki á systur
minni, því hann gekk upp þar
sem hún hafði setið og virðist
sem hún hafi kastast frá bit-
anum þegar hann gekk í gegn
um bílinn. Enginn vafi leikur á
því, að öryggisbelti forðaði
þeim frá alvarlegum meiðsl-
um, en svefnpoki var í aftur-
sætinu hjá mér og skorðaði
mig fastan. Við vorum flutt í
sjúkrahús en meiðslin reynd-
ust sem betur fer ekki alvar-
leg. Ég fékk að fara heim, en
þær liggja á sjúkrahúsi. Ekki
alvarlega slasaðar sem betur
fer — hlutu aðeins skrámur,“
sagði Ragnar Breiðfjörð
Gestsson.
Hugmyndir landbúnaðarráðherra vegna búvöruverðs 1. okt.:
Vill endurgreiöa til bænda
toila af vélum og varahlutum
MEÐAL þeirra hugmynda, sem landbúnaðarráðherra Jón Helgason
hefur samkvæmt heimildum Mbl. lagt fram í þeim tilgangi að ná niður
landbúnaðarvöruverðshækkunum 1. október n.k., er að bændur fái
endurgreidda tolla og jafnvel einnig söluskatt af landbúnaðarvélum og
varahlutum. Til frádráttar við verðákvörðun komi 15 milljón króna
styrkur, sem veittur var bændum í sumar vegna vorharöinda, einnig
hefur niðurgreiðsla á áburði verið til umfjöllunar.
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra vildi ekki tjá sig um hug-
myndir sínar hvað þetta varðar, er
blm. Mbl. ræddi við hann í gær.
Hann sagði þær allar á athugun-
arstigi. Aðspurður um markmið
þeirra sagði hann: „Það er verið að
reyna að koma verðlagsgrundvell-
inum sem næst launahækkuninni
1. október, það er sem næst 4%. 1
því skyni er ég að athuga hvort
hægt er að hafa einhver áhrif á
stærstu liðina: kjarnfóður, áburð
og vélakostnað."
Landbúnaðarráðherra mun
hafa gert grein fyrir hugmyndum
sínum á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun. Varðandi endur-
greiðslur tolla og söluskatts af
landbúnaðarvélum mun vera
reiknað með að bændur fái endur-
greiðslur frá 1. september eða 1.
október n.k. Niðurfelling eða
lækkun tolla og söluskatts af vél-
um og varahlutum til landbúnaðar
hefur einnig verið rædd, en sú að-
ferð talin þeim annmörkum háð,
að dráttarvélar og fleiri tæki sem
notuð eru í landbúnaði eru einnig
nýtt í fleiri atvinnugreinum.
Þá mun landbúnaðarráðherra
hafa reifað hugmyndir um að fá
auknar niðurgreiðslur á gömlum
kjötbirgðum til að örva söluna, en
sú niðurgreiðsla mun ekki hafa
áhrif á búvöruverð 1. október.