Morgunblaðið - 29.09.1983, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1983
Félag íslenzkra iðnrekenda:
Aukin iðnaðarframleiðsla
undirstaða batnandi lífskjara
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun frá Félagi ís-
lenzkra iðnrekenda:
Það er óumdeilt að næg atvinna
og batnandi lífskjör verða ekki
tryggð nema með því að auka iðn-
aðarframleiðslu, bæði fyrir
heimamarkað og til útflutnings.
Að öðrum kosti verður áfram halli
á utanríkisviðskiptum og aukning
á erlendri skuldasöfnun.
Það er því mikið í húfi, að á
næstunni verði iðnaðinum sköpuð
þau skilyrði, að hann geti gegnt
Fermingartímar
í Fríkirkjunni
FYRSTI fermingartími í Fríkirkj-
unni í Reykjavík verður laguardag-
inn 1. október kl. 14.00 í kirkjunni
við Fríkirkjuveg. Fræðslan er ætluð
börnum, sem fermast í vor. Ferm-
ingarbörn Fríkirkjusafnaðarins eru
beðin að koma til skráningar og við-
tals við safnaðarprest. Börnin hafi
með sér fermingarkverið „Líf með
Jesú“, Nýja testamentið, stílabók og
penna.
Fimm fermingartímar verða
fram að áramótum; þrjár klukku-
stundir hver með hléum. Næsti
tími verðu 22. október, þá 12. nóv-
ember, 3. desember og 10. desem-
ber. Þá verða þeir tengdir guðs-
þjónustunni sunnudeginum eftir.
Góðir gestir munu vitja barnanna
í tímunum, sem fara fram í kirkj-
unni, sem áður segir, en auk þess,
hið bóklega, að Fríkirkjuvegi 9.
Þjóðminjasafnið verður heimsótt
og í vor verður farið í ferðalag.
Ég vona, að sem flest ferming-
arbarna Fríkirkjunnar sjái sér
fært að koma laugardaginn 1.
október næstkomandi kl. 14.00.
Gunnar Björnsson,
fríkirkjuprestur.
Heba hekdur
viðheilsunni
Nýtt námskeið aö hefjast.
Dag- og kvöldtímar tvisvar eða
íjórum sinnum í viku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leiklimi - Scaina - Ljós - Megrun
Sól-bekkir- Nudd - Hvíld - Kaíii -
Jane Fonda leikfimi
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Heba
Auðbrekku 53. Kópavogi
Bladburóarfólk
óskast!
Vesturbær Austurbær
Brávallagata
Flókagata 1—51
Flókagata 1—51
vaxtarhlutverki sínu. Á undan-
förnum mánuðum hefur sam-
keppnisstaða iðnaðarins gagnvart
erlendum keppinautum batnað, en
hún var mjög erfið undangengin
tvö ár.
Viðunandi samkeppnisstaða
með tilliti til gengis- og kostnað-
arþróunar er nauðsynleg forsenda
þess aS iðnaður vaxi á næstu ár-
um. Það eitt nægir hins vegar
ekki. Það, sem skipta mun sköpum
á næstu misserum, er að stjórn-
endum og starfsmönnum iðnfyr-
irtækja gefist ráðrúm til að ein-
beita sér að því að auka verð-
mætasköpun í fyrirtækjunum.
Það verður fyrst og fremst gert
með bættri þekkingu og tækni og
aukinni fjárfestingu í rannsókn-
um og vöruþróun og með víðtækri
markaðsstarfsemi. Slík viðleitni
er eina raunhæfa undirstaða vax-
andi framleiðslu á næstu árum.
Einungis með þeim hætti verður
smám saman unnt að bæta lífs-
kjör í landinu. Það er hins vegar
óhugsandi að slfkt gerist í þeirri
óðaverðbólgu og því efnahagsöng-
þveiti, sem hér hefur ríkt.
Stjórn FÍI vill taka undir álykt-
un framkvæmdastjórnar Vinnu-
veitendasambands Islands þess
efnis, að verkalýðshreyfingin
komi til viðræðna um leiðir til að
efla íslenskt atvinnulíf, þannig að
raunveruleg skilyrði skapist til
bættra lífskjara.
Stjóm Söngsveitarinnar ásamt stjórnanda, sínum Guðmundi Emilssyni (efst
til vinstri). Ljósmynd Mbl./KÖE
Söngsveitin Fflharmónía
kynnir vetrarstarfið
Vetrarstarf Söngsveitarinnar Ffl-
harmónía er nú að hefjast og voru
aöalverkefni vetrarins kynnt á
blaðamannafundi fyrir skömmu.
Á fyrstu tónleikum Söngsveit-
arinnar 19. janúar verður Óratórí-
an DIES IRAE (Dagur reiði) eftir
pólska samtímatónskáldið K.
Penderecki uppistöðuverkið. Það
er samið 1967 að beiðni alþjóðlegr-
ar nefndar er undirbjó minningar-
athöfn um fórnarlömb nasista í
Auswich-fangabúðunum, og var
frumflutt sama ár. Verkið er fyrir
stóra hljómsveit, kór og einsöngv-
ara. Á sðmu tónleikum verður
VILTU LOSNA VIÐ
ÁHYGGJUR OG
Kynningarfundur á Dale Carnegie-námskeiðinu í kvöld
kl. 20.30 aö Síðumúla 35. Allir velkomnir.
Upplýsingar í síma 82411.
82411
( Q . Einkaleyfi á Islandi
DALE^CARNEGIE STJÓRNUNARSKÓLINN
namskeiðin Konráö Adolphsson
Nýkomið
úrval af dömuhúf-
um og hálfpelsum.
Feldskerinn
Skólavörðustig 18,
simi 10840.
flutt REQUIEM eftir Jón Leifs og
verk eftir Schumann.
Á tónleikum 1. mars verður
flutt óperan LUCIA di LAMM-
EMOOR, eitt þekktasta verk ít-
alska tónskáldsins Donizetti. Var
hún samin árið 1835 og frumflutt í
Napólí sama ár. Texti óperunnar
er saminn af Salvadore Cammer-
ano, og byggist hann á harmsögu
eftir Sir Walter Scott.
KÓRFANTASÍA í C-moll Op.
80, eftir Ludwig van Beethoven,
verður flutt á tónleikum í Há-
skólabíói 17. maí. Verkið var sam-
ið 1808 og frumflutt í Vínarborg
sama ár. I því koma fram auk
kórsins sex einsöngvarar og
hljómsveit.
Jafnframt þessum verkum mun
Söngsveitin Fílharmónía æfa ís-
lensk verk, og meðal annars koma
fram á jólahátíð Islensku
hljómsveitarinnar og stjórna þar
fjöldasöng. Söngsveitin var stofn-
uð 1959 og starfaði fram til ársins
1974 undir stjórn dr. Róberts A.
Ottóssonar og alla tíð í náinnl
samvinnu við Sinfóníuhljómsveit
íslands, enda Söngsveitin stofnuð
með það fyrir augum að flytja
stærri kórverk fyrir blandaðan
kór og sinfóníuhljómsveit. Frá ’74
til ’82 voru margir ágætir tónlist-
armenn söngstjórar Söngsveitar-
innar, en þeirra lengst Marteinn
H. Friðriksson dómorganisti. Frá
’82 hefur Guðmundur Emilsson
verið stjórnandi. Núverandi stjórn
Söngsveitarinnar er þannig skip-
uð: Dórothea Einarsdóttir (for-
maður), Gunnar Böðvarsson
(varaformaður), Anna María Þór-
isdóttir, Jóhanna ögmundsdóttir,
Sigríður Ása Ólafsdóttir. I Söng-
sveitinni eru milli sjötíu og níutiu
söngvarar, og fer fjöldinn eftir
verkum. Nýir félagar eru ávallt
velkomnir, og er ekki nauðsynlegt
að geta lesið nótur, aðeins ef söng-
rödd er frambærileg og viðkom-
andi lagviss.
Spónaplötur — Krossviður — Harðviður
Fyrirliggjandi:
Finnskar 1. fl. spónaplötur, 10—22 mm.
Sléttur krossviöur, 4—18 mm.
Plasthúðaðar spónaplötur (Silkopal og Wiruplast).
Harðviður (am. eik, abachi, beyki, ramin).
Oregon Pine, 21/2x5“ og 3x6“.
Límtrébitar.
Spónn (askur, beyki, eik og fura).
PÁLL Þ0RGEIRSS0N &C0,
Ármúla 27. — Símar 34000 og 86100.