Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 12
:*i«i*i*S*i*{*{*{*{t{*{*{*{*S*i*{<{*{*{*{*S*í*í*$*{*í.5*í.j,{*{<{*S*S<S*S«S*i*5*í*í*Stí*S*i;*Stítí*$*S«S*$«í
Nýtt jólakort frá Ásgrímssafni
Jólakort Ásgrímssafns 1983 er komið út. Það er prentað eftir vatnslita-
myndinni: Kiðárbotnar í landi Húsafells. Myndin var máluð 1948.
Kortið er í sömu stærð og fyrri listaverkakort safnsins (16 x 22 sm) og
er með íslenskum, dönskum og enskum texta á bakhlið. Grafík hf.
offestprentaði. Listaverkakortið er til sölu í Ásgrímssafni, Bergstaða-
stræti 74, á opnunartíma þess, sunnudögum, þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl. 13.30—16.00 og í Rammagerðinni, Hafnarstræti 19.
Rennibekkir
Stæröir: 400 x 1500 mm.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Armúla 1. — Sími 8 55 33.
Á myndinni er Garðar Hannesson, símstjóri, á hinum nýju trðppum
símstöðvarinnar.
Hveragerði:
Nýjar tröppur á
hús Pósts & síma
PÓSTUR og sími í Hveragerði lét í sumar gera nýjar útitröppur við hús
sitt að Breiðumörk 2. Eru þær upphitaðar og eiga því að haldast auðar
og þurrar allan ársins hring. Á þeim er gott handrið og það sem
sérstaka athygli vekur er steypt renna fyrir hjólastóla.
Ég hitti póstmeistarann,
Garðar Hannesson, og bað hann
að segja frá þessari framkvæmd.
Garðar sagði: „Hér voru tröppur
lagðar flísum sem að vetrinum
vildu verða ákaflega hálar og
hættulegar. Lá oft við slysum af
þeim sökum. Það var því ákveðið
að brjóta þær upp og gera aðrar
betri í staðinn. I nýju tröppurn-
ar var lögð hitalögn og við þær
gert traust handrið, sem er mjög
til bóta, einkum fyrir hið aldr-
aða fólk, sem er margt hér, bæði
Hvergerðingar og vistfólk á
Dvalarheimilinu Ási. Þá var
steypt braut sem ætluð er hjóla-
stólum. Mun þetta vera fyrsta
hús austan fjalls, sem ég veit til,
að gerir breytingar til hagræðis
fyrir hreyfihamlaða. Einnig var
steypt stórt gróðurker.
Þessi breyting varð nokkuð
dýr, kostaði 120—130 þúsund
krónur, en við erum ánægð með
hana og teljum hana auka öryggi
viðskiptavina okkar," sagði
Garðar að lokum.
Margir bæjarbúar hafa fagnað
þessum ágætu framkvæmdum
Pósts og síma.
— Sigrún.
Gestur Hjörleifsson
söngstjórí 75 ára
í GÆR mánudaginn 21. nóvember,
varó Gestur Hjörleifsson söngstjóri á
Dalvík 75 ára. Gestur befur um langa
hríð verið organleikari við kirkjur f
Svarfaðardal og á Dalvík, stundað
söng- og tónlistarkennslu og verið mátt-
arstólpi f hljómlistarlífi byggðarlagsins.
Gestur er fæddur að Knappsstöðum f
Fljótum, sonur hjónanna Hjörleifs Jó-
hannssonar og Rósu Jóhannsdóttur,
einn 14 systkina. Hann nam ungur
organleik um stuttan tíma hjá Páli fs-
ólfssyni og var að dómi Páls mjög efni-
legur organisti.
Frá 1928 hefur Gestur stjórnað
meira og minna kirkjukórum á Dal-
vfk og f Svarfaðardal. Auk þess
stjórnaði hann og æfði karlakóra á
Dalvfk. Um árabil kenndi hann tón-
list við Dalvikurskóla og varð fyrsti
skólastjóri við Tónlistarskólann hér.
Á tímabili þöglu kvikmyndanna lék
Gestur gjarnan á pianó á sýningum.
Þá er enn ótalið framlag hans til
leiklistarmála hér þvf ævinlega var
leitað til Gests ef um sönghlutverk
var að ræða því þá æfði hann við-
komandi og lék gjarnan undir. Gest-
ur stjórnar enn í dag kirkjukór Dal-
víkurkirkju og fæst við pfanókennslu
við tónlistarskólann. Áuk þessara
starfa hefur Gestur gegnt marg-
breytilegum störfum um dagana. Um
árabil var hann fyrsti og eini starfs-
maður Rafmagnsveitna rfkisins og
þá var hann fyrsti mjólkurbílstjóri
hér í sveit.
Gestur er mikill náttúruunnandi
og enn í dag gengur hann á fjöll og
unir sér löngum við veiðiskap af
ýmsu tagi.
Gestur kvæntist árið 1933, Guð-
rúnu A. Kristinsdóttur, Kristins
Jónssonar bónda og járnsmiðs á
Dalvík og seinni konu hans Þóru Jó-
hannesdóttur. Varð þeim 6 barna
auðið.
Fréttaritarar
Umboð í Reykjavík:
Eignamarkaðurinn.
A
A
A
A
A
A
A
Hafnarstræti 20. simi 26933 (Nyja husinu viö Lækjartorg) «. VBVV' ^
W*£»£*£»$*£*CÞ£*£*$*£»£»£*£*£*$*£*£>£*£*£*t»£>£*CÞ£*£>£*£*£*2->£*£*£»£*£*$*£*£*£»5-£*£*£*£*£*$<3*£t£tí*£*£*£f£fíf£fíf3f£f£f£f£f£f3f£f£fíf£f£f£f$f£f£*£t£t£*$ Jón Magnússon hdl. <£*£*£&
Eigna
markaöurinn
Umboð á Austfjörðum:
Konráð Pálmason,
Eskifirði, sími 97-6280.