Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER1983 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 29 lltngmiÞIiifttfr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jonsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, síml 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 20 kr. eintakiö. Staðnað peningakerfi Bankar eiga að vera ann- að og meira en af- greiðslustofnanir þar sem far- ið er með viðskiptavini eins og þeim sé greiði gerður með hverri afgreiðslu. Bankar eiga að vera þjónustustofnanir sem stuðla að því að fé viðskipta- vinanna sé ávaxtað á sem bestum kjörum. Hér á landi eru þrír stærstu bankarnir ríkisreknir, þeir lúta pólitískri forsjá. Samkeppni milli banka og sparisjóða birtist helst í kapphlaupi um að fá leyfi yfir- valda til að reisa ný útibú. í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins birtust viðtöl við for- stöðumenn þriggja fyrirtækja, Kaupþings hf” Avöxtunar sf. og Fjárfestingarfélags íslands hf. sem öll hafa tekið að sér að fjárfesta á arðvænlegasta hátt fé viðskiptavina sinna. Þessi fyrirtæki starfa ekki í þágu þeirra sem mesta fjármuni hafa handa á milli heldur allra sem vilja ráðstafa fjár- munum sínum á þann veg að þeir skili sem mestum arði. Fyrirtækin nálgast viðskipta- vini sína með allt öðrum hætti en bankarnir. Þau bjóða þjón- ustu en ekki móttöku á pen- ingum. Áhrifa fyrirtækjanna er þegar farið að gæta í tilboð- um opinberra aðila sem sækj- ast eftir fé almennings eins og sést til dæmis á auglýsingum um nýjustu spariskírteini rík- issjóðs. í greinargerð fjárlaga- frumvarpsins fyrir árið 1984 segir að efling innlends láns- fjármarkaðar sé „eitt erfið- asta viðfangsefni stjórn- valda“. Ríkisstjórnin hefur sett skorður við erlendri skuldasöfnun og þess vegna er meira í húfi en áður að afla lánsfjár innan lands. For- senda þess að það takist að byggja upp innlendan láns- fjármarkað er að menn sjái sér meiri hag í því að ávaxta fé sitt í peningastofnunum en á annan hátt, svo framarlega sem einhverjir eru aflögufær- ir. Og rétt er að hafa hugfast að það eru ekki aðeins ávöxt- unarkjörin sem menn líta til þegar þeir ráðstafa fé sínu. Margir velta því einnig fyrir sér hvernig peningarnir eru notaðir af bönkum og opinber- um aðilum. Dæmi um fjár- magnstilfærslur sem ekki eru til fyrirmyndar hafa verið rakin í greinum Þorvaldar Búasonar hér í blaðinu undan- farið. Hin nýju fyrirtæki er veita almenningi ávöxtunarþjón- ustu benda á þær leiðir sem taldar eru öruggastar hverju sinni. Til þess að geta skilað viðskiptavinum sínum þeim arði sem þeir vænta þarf ráðstöfun fjárins að vera arðbær. Þessi þjónusta er mik- ils virði. Og það segir sína sögu um þróun íslensks pen- ingamarkaðar að hún hefur þróast utan bankakerfisins. Mikið er í húfi að brautryðj- endastarfið beri ávöxt og þess vegna verður að gera þær kröfur til nýju fyrirtækjanna að starfsemi þeirra sé óaðfinn- anleg. Reynslutíma þeirra er enn ekki lokið. Áfengt öl — já eða nei? jóðaratkvæðagreiðslur eru fátíðar hér á landi. Með slíkri atkvæðagreiðslu var þó ákveðið að aflétta áfengisbanni á sínum tíma og nú er ekki tekin ákvörðun um það hvort opna eigi útsölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) í einstökum byggðarlögum nema það sé fyrst borið undir atkvæði íbú- anna. Niðurstaðan í skoðanakönn- un Hagvangs hf. sem Morgun- blaðið birti á sunnudaginn þar sem fram kemur að 63,5% spurðra vilja leyfa sölu áfengs öls í verslunum ÁTVR hefur á ný vakið umræður um þetta mál sem um áratuga skeið hef- ur verið eitthvert helsta vand- ræðabarn þingmanna og eins- konar feimnismál í þingsölum. En hvers vegna þarf að leggja þennan kross á þingmenn? í samræmi við hefðir í áfengis- ákvörðunum hér á landi á auð- vitað að bera það undir þjóð- aratkvæðagreiðslu hvort hér megi selja áfengt öl. Um það ætti að geta náðst samstaða á alþingi að vísa því til annarra hvort íslendingar eigi að fá leyfi til að drekka annað áfengt öl keypt hér á landi én það sem selt er í Fríhöfninni. Símamynd/AP. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, við grafhýsi Luis de Camoes, þjóðskálds Portúgala. Forseti íslands í opinbem heimsókn í Portúgal: Símamynd/AP. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og forseti Portúgals, Antoni Ramalho Eanes, ræddust við í Belem-höll í gær. Lagði blómsveig á grafhýsi Luis de Camols, þjóðskálds Portúgala frá 15. öld Liasabon 21.nóvember. Frá Hirti Gislasyni, blaðamanm Morgunblateins. Opinber heimsókn forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, til Portú- gals, hófts í dag kl. 13.00 þegar forsetinn ásamt loruneyti sínu lenti á flugvellinum hér í Lissabon. Er það í fyrsta skipti sem íslenskur forseti fer í heimsókn til Portúgals. Eanes, forseti Portúgals, Mario Soares, forsæt- isráðherra, forseti þingsins og fleiri háttsettir menn tóku á móti forsetan- um og föruneyti hennar. Mikil viðhöfn var við komuna og könnuðu þjóðhöfðingjarnir fyrst fjölmennan lífvörð og var síðan tuttugu fallbyssuskotum hleypt af til heiðurs íslensku gestunum. Þá má geta þess að þegar flugvél British Airways, sem Vigdís og föruneyti hennar komu með, kom inn yfir portú- gölsku landamærin slógust fjór- ar portúgalskar herflugvélar í förina og fylgdu vélinni til Lissa- bon. Eftir komuna á flugvöllinn óku þjóðhöfðingjarnir og föruneyti þeirra í fylgd fjölmenns lífvarðar til Quelaz-hallar þar sem ís- lensku gestirnir búa. Síðdegis lagði forsetinn, Vigdís Finnboga- dóttir, blómsveig á grafhýsi portúgalska skáldsins Luis de Camois sem er eitt þekktasta þjóðskáld Portúgals og var uppi á 15. öld. Hann orti meðal annars um landafundi Portúgala. Þar á eftir ræddust forsetarnir við í Belem-höll, skiptust á gjöfum og orðum. Vigdís sæmdi Eanes stór- krossi hinnar íslensku fálkaorðu með keðju en Eanes veitti Vigdísi Símamynd/AP. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt- ir, og Antoni Ramalho Eanes, forseti Portúgals, við móttökuathöfnina á Lissabon-flugvelli (gær. stórkrossorðuna Infamto de Henrique. Ýmsum í fylgdarliði forsetanna voru einnig veittar orður. Vigdís færði forseta Portúgals að gjöf Dýraríki ís- lands eftir Benedikt Gröndal og portúgölsku forsetafrúnni færði hún víravirkisarmband úr silfri sem Jóhannes Leifsson gullsmið- ur smíðaði. Eanes gaf Vigdísi silfurkertastjaka. Á svipuðum tíma ræddi Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra við utanríkis- ráðherra Portúgals, Jaime Gama. í fylgdarliði Vigdísar eru Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra og kona hans, Erna Finnsdóttir, forsetaritari, Halldór Reynisson, og Ingvi Ingvason, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu. Tómas Tómasson, sendiherra ís- lands í Portúgal með aðsetur í París, slóst í hópinn hér í Lissa- bon. I kvöld bauð forseti Portúgals, Eanes, íslensku gestunum og ýmsum háttsettum embættis- mönnum til kvöldverðar í Ajuda-höllinni. Á morgun, þriðjudag, tekur Vigdís Finn- bogadóttir á móti Mario Soares, forsætisráðherra Portúgals, í Quelaz-höll og síðar á móti er- lendum sendiherrum. Um hádeg- isbilið heldur hún til Sao Jufiao Ca Barra-virkis, þar sem forset- arnir snæða saman hádegisverð. Síðdegis heimsækja íslensku gestirnir þjóðþingið, ráðhús Lissabon-borgar og borgarstjóra Lissabon. Um kvöldið þiggur for- setinn og fylgdarlið hennar heimboð Leif Dundas. Heim- sókninni líkur á fimmtudag. „Ekki farið fram á físk- veiðiheimild við ísland“ — sagði Geir Hallgrímsson um viðræður sínar við utanríkisráðherra Portúgals Lissabon 21. nóvember. Frá Hirti (•íslasyni blaðamanni Morgunblaðsins „lltanríkisráöherra Portúgals fór ekki fram á það í viðræðum okkar að Portúgalir fengju fiskveiðiheimildir við ísland, enda var ég búin að gera honum grein fyrir ástandi þorsk- stofnsins. Ég sagðist þó vonast til að við gætum haldið áfram að selja Portúgölum saltfi.sk þrátt fyrir sam- dráttinn á þorskstofninum," sagði Geir Hallgrímsson untanríkisráð- herra er hann var inntur eftir viðræð- um hans við utanríkisráðherra Portú- gals, Jaime Gama. „Við ræddum enfremur þjóðfé- lagsástand landanna beggja og samband þeirra sem aðallega hefur falist í saltfiskkaupum Portúgala frá íslandi. Það kom fram hjá Jaime Gama aukinn áhugi Portú- gala á innflutningi til Islands til viðskiptajöfnunar og greindi ég honum frá ýmsum ráðstöfunum sem gerðar hafa verið heima til að greiða fyrir þessum viðskiptum. Landssamband íslenskra útgerð- armanna og sölusamband íslenskra fiskframleiðanda hafa unnið að því að þau veiðarfæri sem ekki eru fáanleg heima verði keypt hér í Portúgal og viðskiptaráðneytið hefur lagt áherslu á að hafa á boðstólum upplýsingar um vörur sem héðan eru fáanlegar. Við ræddum saman í rúman klukkutíma um almenn þjóðmál, en fjölluðum síðan um viðhorf land- anna beggja í alþjóða stjórnmálum og afstöðu Portúgals til NATO. Það kom fram hjá portúgalska utanrík- isráðherranum að Portúgalir eru fylgjandi hinu tvíþætta samkomu- BÚIST er við að menntamálaráð- herra, Ragnhildur Helgadóttir, leggi fram frumvarp um verðlaunasjóð í minningu Jóns Sigurðssonar á næstu vikum, samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins. Málið hefur að undanförnu ver- lagi frá 1979 sem felur í sér upp- setningu kjarnaflauga í Evrópu og jafnframt því að reyna að knýja Sovétmenn að samningaborðinu með fækkun kjarnaflauga í huga. Portúgalski utanríkisráðherrann er sósíalisti og kvað hann afstöðu portúgalskra sósíalista til varnar- samstarfsins líkjast meira afstöðu franskra og ítalskra sósíalista en þýskra og breskra," sagði Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra. ið til umræðu í ríkisstjórninni og sagði Ragnhildur i samtali við Mbl. að enn væri ekki til lykta leitt í hvaða formi málið yrði. Hún bjóst hinsvegar við að það gerðist fljótlega og frumvarp yrði lagt fram innan nokkurra vikna. Verðlaunasjóður Jóns Sigurðssonar: Frumvarp innan nokkurra vikna Þörungaskipið Karlsey: FFSÍ mótmælir fækkun sigl- ingafróðra manna um borð ÞÖRUNGAVINNSLAN hf. fór fram á það við samgönguráðuneytið í marsmán- uði í fyrra, að ráðuneytið veitti heimild til þess að sigla þaraöflunarskipinu Karlsey, í dagsferðum sínum á Breiðafirði, með einum siglingafróðum manni um borð í stað tveggja. Samgönguráðuneytið varð við þessari beiðni, eftir að hafa borið hana undir Siglingamálastofnun og var fallist á að skipunu yrði siglt með einum siglingafróðum manni og tveimur vélstjórum, auk háseta. Síðan gerðist það í októbermán- uði sl. að Farmanna- og fiski- mannasamband íslands krafðist þess í bréfi til samgönguráðuneytis- ins að þessi heimild verði ógild. Ing- ólfur Stefánsson, framkvæmda- stjóri FFSÍ, sagði í samtali við Mbl. aö það næði ekki nokkurri átt að hafa aðeins einn siglingafróðan mann um borð. Breiðafjörður væri erfitt hafsvæði að sigla um, þar þyrfti sérstaka aðgæslu, og því væri það mikið öryggismál að hafa skip- ið rétt mannað. „Það er í rauninni furðulegt að Siglingamálastofnun skuli leggja blessun yfir slíkar aðgerðir," sagði Ingólfur. „Stofnun sem hefur það hlutverk að gæta öryggis sjómanna, framar öllu öðru. Þá er það ein- kennilegt að þetta mál skuli ekki hafa verið borið undir okkur. Á veg- um Farmanna- og fiskimannasam- bandsins og samgönguráðuneytis- ins starfar sérstök mönnunarnefnd, sem einmitt tekur afstöðu til slíkra mála. En það var ekki til okkar leit- að. Þá höfum við staðið í því undan- farið að semja um kaup og kjör þessara manna um borð og þetta mál gerir okkur erfitt um vik í þeim efnum. Svo virðist sem forráða- menn Þörungavinnslunnar séu að reyna að spara sér að greiða stýri- mannalaun og taka háseta í stað- inn. Furðulegt sjónarmið, því ekki munar miklu á þessum launum." Korchnoi var afslappaður, en Kasparov virtist spenntur Korchnoi vann fyrstu skákina á svart Þeir Korchnoi Lh. og Kasparov við skákborðið í London f gær. simamynd/AP. London, 21. nóvember, frá Eric Hchiller, frétta- ritara MorgunblaÁ.sin.s á einvígjunum í London. í DAG hófst langþráð einvígi þeirra Viktors Korchnoi, landflótta Sovét- manns, og Gary Kasparovs, nýjustu stjörnunnar í skákheiminuni. Það kom mjög á óvart hér í Lond- on að Korchnoi, sem er 52ja ára gamall, sigraði hinn tvítuga Kasp- arov í 52 leikjum. Korchnoi varðist sem svartur í drottningarindverskri vörn og leyfði Kasparov að nota Petrosjan-afbrigðið sem ungi mað- urinn hefur sérstakt dálæti á. Kasp- arov nýtti sér tækifærið en síðan valdi Korchnoi sjaldgæfan leik til að koma skákinni af troðnum slóð- um. Það tókst, Kasparov lenti í hræðilegu tímahraki og eftir 24 leiki átti hann aðeins fimm mínútur eftir til að ljúka fjörutíu leikjum. Síðan Kasparov kom hingað til London ásamt fylgdarliði sínu hefur mér virst hann vera spenntari en oft áður. Með honum eru Clara Kasparova, móðir hans, stórmeist- arinn Timoshenko og alþjóðlegu meistararnir Alexander Nikitin og Evgeny Vladimirov. Þessi tauga- óstyrkur Kasparovs var án efa að hluta ástæðan fyrir því að hann tefldi jafn hægt og raun bar vitni. Honum mistókst síðan gjörsamlega að skapa þær flækjur og sóknar- möguleika sem venjuléga einkenna taflmennsku hans. Á hinn bóginn var Korchnoi mun afslappaðri en hann hefur verið í mörg ár. Hann leit vel út þegar hann settist við taflborðið í dag og virtist fullur sjálfstrausts. A.m.k. tókst honum að leika fyrstu sextán leikjunum á minna en fimm mínút- um, á meðan andstæðingur hans hafði eytt tveimur klukkustundum. Þarna uppskar hann árangur góðs undirbúnings síns. Með Korchnoi í London eru stórmeistararnir Michael Stean, Skák Margeir Pétursson Hernaðaráætlun Viktors Korchnoi í einvígi hans við Gary Kasparov tókst frábærlega vel í fyrstu skákinni. Eftir vafasama og fifldjarfa taflmennsku Sovétmannsins tvítuga í byrjuninni fékk Korchnoi stöðuyfirburði. Hann stefndi síðan markvisst að uppskiptum sem bættu sífellt stöðu hans auk þess sem Kasparov átti erfitt um vik í vörn- inni vegna tímaskorts. Korchnoi vann því öruggan sigur í hróksendatafli eft- sem reyndar er búsettur hér í borg- inni, og Hollendingurinn John Van der Wiel, alþióðlegi meistarinn Lev Gutman frá fsrael og síðast en ekki síst einkaritari hans, frú Petra Lee- uwerik. Næstu skák sína tefla þeir Korchnoi og Kasparov á miðviku- daginn, en á morgun munu þeir Ribli og Smyslov hefja einvígi sitt. Smyslov kemur til með að hafa hvítt í fyrstu skákinni. ir laglega fléttu í 34. leik sem vann peð og síðan skákina. Mjög sannfærandi sigur hjá áskorandanum fyrrverandi, en Kasparov tefldi miklum mun lakar en búast hefði mátt við eftir glæsi- lega sigra hans upp á síðkastiö. Hvass sóknarstíll hans fékk ekki að njóta sín og í erfiðu endataflinu komst hann aldrei í takt við stöð- una. Kasparov á þó örugglega eftir að sýna sínar betri hliðar. Nú verður hann að taka á öllu sem hann á til og fyrsta skákin lofar því góðu um skemmtilegt og spennandi einvígi. 1. einvígisskákin: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Viktor Korchnoi Drottningarindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — b6, 4. Rc3 — Bb7, 5. a3 — d5, 6. cxd5 — Rxd5 Byrjanaval Korchnois kemur verulega á óvart, því hann stýrir skákinni beint út í uppáhaldsaf- brigði Kasparovs. Ungi stórmeistar- inn frá Bakú hefur unnið marga stórglæsilega sigra þegar hann hef- ur fengið kost á að tefla það, nú síðast gegn Portisch á stórmótinu í Niksic i haust. Fram að þessu hefur hann aldrei tapað skák eftir 6. — Rxd5. 7. e3 — g6 Mun algengara er 7. — Be7, en auðvitað hlaut Korchnoi að luma á óvæntri áætlun fyrst hann hætti sér út í þetta afbrigði. 8. Bb5+ — c6, 9. Bd3 — Bg7, 10. e4 — Rxc3, 11. bxc3 Nú er komin upp staða sem minn- ir mjög á uppskiptaafbrigðið í Grúnfeldsvörn. Hvítur hefur fallegt peðamiðborð, en svartur reynir að sýna fram á að það sé veikt. Með næsta leik sínum ræðst Korchnoi beint á miðborðið án þess að gefa sér tíma til að hróka. 11. — c5, 12. Bg5l? — I)g6 13. e5?! Upphafið á áætlun sem stenst ekki frá stöðulegu sjónarmiði. Hvít- ur eyðileggur miðborð sitt og gefur eftir mikilvæga reiti, svo sem d5, án þess að fá nægilega mikið í staðinn. 13. — Dd7, 14. dxc5?! — 0-0! Korchnoi fórnaði peði til að koma mönnum sínum hraðar í leikinn. I framhaldinu vega veilur hvíts á a3, c3 og e5 fyllilega upp á móti peðs-j missinum. 15. cxb6 — axb6, 16. 0-0 — Dc7, 17. Bb5!? Kasparov reynir að grugga vatn- ið, en meginmarkmiðið með leikn- um er að hindra 17. — Rd7. Nú bjuggust flestir við 17. — Rc6 en þá er framhaldið 18. Bf6! óljóst. T.d. 18. — Rxe5?, 19. Rxe5 - Bxf6, 20. Rd7! — Df4, 21. Dg4! og hvítur stendur til vinnings. Hér hafði Kasparov notað tæpar 2 klst. en Korchnoi aðeins 4 mínútur. 17. — Bxe5!, 18. Bh6 - Bg7, 19. Bxg7 — Kxg7, 20. Dd4+ — Kg8, 21. Rg5 - h6 Flækjur eru ær og kýr Kasparovs og Korchnoi gefur honum því ekkert færi á kóngssókn, en leitar stöðugt eftir uppskiptum. 22. Re4 — Bxe4, 23. Bxe4 — Ra6! Lakara var 23. — Rd7?, 24. Bxd7 — Dxd7, 25. De3 og staðan leysist fljótlega upp í jafntefli. 24. De3 — Dc5, 25. Dxc5 — Rxc5, 26. Hfbl — Hfd8 Svartur stendur greinilega betur í þessu endatafli. Hvítur hefur slæma peðastöðu og riddarinn á c5 er stór- veldi. í 24. leik kom því sterklega til greina að leika 24. Bxa6. Ofan á lak- ari stöðu bættist að Kasparov átti hér aðeins fáar mínútur eftir, en Korchnoi hins vegar meira en klukkustund. 27. Bfl? Upphafið á ráðleysislegri tafl- mennsku sem útskýrist af tíma- skortinum. 27. Kfl var miklu eðli- legri leikur og ef 27. — Hd2 þá 28. Be2 — Hb8, 29. a4 með hótuninni 30. a5. 27. — Hd6, 28. Hb4 — Kf8, 29. a4 — HaS! Svartur fellur ekki í gildruna 29. — Ke7?, 30. a5! — Hxa5,31. Hxa5 — bxa5, 32. Hb5 og hvítur er hólpinn. 30. g3 — Ke7, 31. Kg2 - f5, 32. Bb5 — Hd2 Nú átti Kasparov aðeins 1 mínútu og 36 sekúndur eftir á síðustu átta leikina. 33. Hd4 Yfirsjón, en 33. Bc6 — Rd3 var einnig afar slæmt. T.d. 34. Hd4 — Hxf2+, 35. Kgl - Hd2, 36. Bb5 - Re5! og vinnur, eða 34. Hxb6 — Rxf2, 35. Kgl — e5, o.s.frv. 33. — Hxd4, 34. cxd4 • b c d • fgh 34. — Rxa4!, 35. Hxa4 35. Bxa4 — b5 var alveg vonlaust því þá kemst svarti hrókurinn á bak við frípeðið. 35. — Hxb5, 36. Ha7+ — Kd6, 37. Hh7 — h5, 38. Hg7 — Hd5 Slíkar stöður teflir Korchnoi allra manna bezt. Hann gefur andstæð- ingi sínum engin færi. 39. Hxg6 — b5, 40. Kf3 — b4 Hér hefði skákin átt að fara í bið, en sýnilega hafa báðir teflendur tal- ið úrslitin ráðin og því kosið að leiða hana til lykta strax. 41. Ke3 — b3, 42. Kd2 43. Kd3 má einnig svara með 43. — Hxd4+! 42. — Hxd4+, 43. Kc3 — b2, 44. Kxb2 — Hd2+, 45. Kc3 — Hxf2, 46. h4 — f4!, 47. Hg5 — Hf3+, 48. Kd4 - Hxg.3, 49. Hxh5 - He3 Með tvö samstæð frípeð í hróks- endatafli er eftirleikurinn auðveld- ur. 50. Hh6 — Ke7, 51. h5 — e5, 52. Kd5 — f3 og hvítur gafst upp. Staðan: Kasparov 0 Korchnoi 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.