Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 41 Eigendur Boltamannsins og verslunarstjóri Sigurður Þorsteinsson, Asgeir Ingvason og Halldór Ingvason. Boltamaðurinn í nýtt húsnæði Boltamaðurinn sf. flutti nýlega í nýtt húsnæði að Laugavegi 27, en verslunin Boltamaðurinn hefur starfað í rúmlega 7 ár og var fyrra húsnæði hennar orðið of þröngt. Stækkar verslunarplássið tífalt með þessum flutningi. Athugasemdir vegna texta í sjónvarpi Þegar Berglind Stefánsdóttir kom fram í fréttatíma sjónvarps- ins miðvikudaginn 9. nóvember 1983 ásamt Sigurði Skúlasyni leik- ara var tal Sigurðar ekki textað en texti fylgdi táknmáli Berglindar. Þannig var það, að þeir sem eru heyrnskertir eða heyrnarlausir skildu bara það sem Berglind sagði, en þeir sem heyrðu skildu allt sem sagt var þarna. Gerir sjónvarpið ráð fyrir að allir heyri á íslandi eða voru ekki peningar til að texta tal Sigurðar og frétta- mannsins? En þó hafði sjónvarpið ráð á að texta tal Berglindar. Sjónvarpið er mjög öflugur fjöl- miðill, um það eru allir sammála. Heyrnarlausir hafa gaman af og gætu haft ótrúlega mikið gagn af sjónvarpinu væri allt sjón- varpsefni með texta. Erlendar bíómyndir eru alltaf með texta og það er fínt, en sjald- an fræðslumyndir og aldrei inn- lent efni. Við minnumst örfárra fræðslumynda sem á var texti t.d. „Tölvurnar" og „Furður veraldar". Ætli íslendingum flestum þætti ekki súrt í broti væru fræðslu- myndir, bíómyndir, o.fl. með þýsku eða frönsku tali? Oft finnst okkur sem við séum útlendingar í okkar eigin landi, einkum þegar verið er að sýna myndir sem ekki eru með texta. Við heyrum ekki og verðum því að geta okkur til um hvað um er að vera. Við gætum lært ótrúlega mikið af sjónvarpinu bæði í sam- bandi við orðaforða og almennan málskilning, en til þess að svo megi verða, þurfum við texta á skjáinn. Við viljum líka benda á að eng- inn texti er með enskukennslu- þáttunum. Þetta olli okkur mikl- um vonbrigðum. Benda má á að með kennslumyndinni dönsku, „Hildi", sem var sýnd í fyrra var texti þegar myndin var endursýnd (á miðvikudögum). Kannski finnst mörgum að nóg sé nú gert fyrir svo fámennan hóp. Það er úrdráttur úr fréttum og fréttaágrip á táknmáli. Við erum auðvitað mjög þakklát fyrir það og gleðjumst í hvert sinn sem við horfum á táknmálsfréttirnar. En þetta er okkur ekki nóg. Við þurf- um endilega að fá texta á allt inn- lent efni og erlenda fræðsluþætti. Við bíðum í ofvæni eftir svari frá sjónvarpinu. Með kærri kveðju. F.h. heyrnarskertra og heyrnarlausra, Kristinn Jón Bjarnason, S. Margrét Siguröardóttir. Þýsk bókasýning ÞÝSK bókasýning var opnuð að Kjarvalsstöðum 11. nóvember síð- astliðinn og stendur hún til 30. nóv- ember. Eru þar til sýnis 1.600 bæk- ur og tímarit sem sýnishorn af ný- legri framleiðslu 150 þýskra bóka- forlaga. Samhliða þessari sýningu er sýnt safn 250 titla á bæjarbóka- safninu á Akureyri. Sýningin nær yfir umfangs- mikið svið þýskrar bókaútgáfu. Á sýningunni er að finna bækur um Sambandslýðveldið Þýskaland, svo og þýskar þýðingar íslenskra höfunda, verk sigildra höfunda og nútímabókmenntir, nýútkom- in rit á sviði tækni, vísinda og lista, auk tungumálanámsbóka. Hinn 24. nóvember, kl. 20.30 les Reiner Kunze úr verkum sin- um, en rithöfundur þessi flutti burt frá Alþýðulýðveldinu Þýskalandi. Frá 11. til 13. nóvember verða haldnir tónleikar Grube-tvíleik- aranna (píanó/ fiðla). Tónleik- arnir hefjast í hvert sinn kl. 20.30 í sýningarsölum Kjar- valsstaða. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! BETRA VERÐ Kr.595,- Stæröir: 36—44. Litur: Millibrúnt. Sími 21678. Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum! ,-r& w GOLFPARKET GERIR HFTMTT.rD GLÆSILEGT Fyrirliggjandi gæðaparket frá Junkers og Tarkett í öllum algengum gerðum HÚSASMIÐJAN HF. Súðarvogi 3-5, 104 Reykjavík, sími 84599

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.