Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 40
’ uflLLyuuoas J V/SA 1 1 wmnnvuwiv 13WF/s. ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Stjórnkerfisnefnd: Tillögur um að ráðu- neytum verði fækkað „Stjórnarflokkarnir hafa nú tii athugunar áfangaskyrslu stjórnkerfisnefndar. Ýmsar mjög athyglisverðar og róttækar hugmyndir um breytingar á lög- unum um Stjórnarráð íslands koma fram hjá nefndinni," Egilsstaðir Músafár — veit á harðan vetur segja þeir öldnu Egilsstöðum, 21. nóvember. ÓVENJUMIKIÐ hefur borið á músagangi hér á Egilsstöðum það sem af er vetri — einkan- Íega í þeim hluta þorpsins sem nefnist Tún. Mýsnar hafa notað hverja glufu til að komast inn í hús búendum til lítils fagnaðar. í nokkrum tilfellum hafa mýsnar komist inn á milli þils og veggjar í húsum og látið þar svo ófriðlega að næturþeli að búendum hefur vart komið dúr á auga og orðið vansvefta. Þeir sem hafa komist í ná- vígi við mýsnar og borið sig- urorð af þeim segja , ð hér séu ekki hreinræktaðar hagamýs á ferð heldur ein- hvers konar kynblendingar. Gömlu mennirnir hér um slóðir segja hins vegar að músagangur þessi viti á harðan vetur. — Olafur sagði Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra, við blm. Mbl. í gærkvöldi. Stjórnkerfis- nefnd skilaði áfangaskýrslu í síðustu viku, en nefndin var skipuð í samræmi við stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarinnar um endurskoðun stjórnkerfisins. „Af fjölmörgum athyglis- verðum tillögum má nefna fækkun ráðuneyta. Nefndin hefur og skilað tillögum um að ríkisendurskoðun. skuli lögð1 undir Alþingi og að Hagstofa íslands verði sjálfstæð stofn- un. Þetta eru aðeins örfáar af mörgum athyglisverðum til- lögum nefndarinnar sem starfa mun áfram, en ekki er hægt að skýra í einstökum at- riðum frá tillögum hennar. Ég hef afhent Geir Hallgrímssyni skýrslu nefndarinnar og stjórnarflokkarnir hafa þær nú til athugunar," sagði Stein- grímur Hermannsson. Grunnur vatnspökkunarverksmiöjunnar á athafnasvæðinu á Sauðárkróki. Grunnurinn er framan við skrifstofuhús- næði ÍJtgerðarfélags Skagfirðinga hf. á myndinni. Morgunbladiö/ Friðþjófur. Vatnspökkunarverksmiðjan á Sauðárkróki: Hafskip og Hagkaup með í fyrirtækinu ÍJTLIT er fyrir að fyrirtækin Hafskip og Hagkaup í Reykjavík gangi inn í vatnspökkunarverksmiðjuna, sem verið er að reisa á Sauðárkróki. Stefnt er að því að verksmiðjuhúsið verði fokhelt fyrir áramótin og að út- flutningur vatns geti hafist næsta haust, að því er Hreinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri á Sauðárkróki, sagði í samtali við blm. Morgunblaðs- ins nýlega. Björgólfur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hafskips, sagði í samtali við blaðamann Mbl., að út- lit væri fyrir þátttöku fyrirtækis- ins. „Við höfum lýst áhuga okkar á aðild að þessu fyrirtæki enda myndum við annast flutninga á vatninu á markað erlendis. Það eru flutningarnir, sem við höfum að sjálfsögðu mestan áhuga á en und- anfarin tvö ár eða svo höfum við tekið þátt í ýmsum útreikningum á þessu dæmi og rætt þetta fram og til baka. Við höfum t.d. komið Hreini í samband við erlenda aðila en að sjálfsögðu hefur undirbún- ingurinn hvílt á hans herðum. Það má segja að okkar þáttur í þessu hafi verið markaðsathugun," sagði Björgólfur. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra: Fráleitt að sleppa heilum tímabilum úr íslandssögu — Tel að taka eigi upp samfellda sögukennslu „l'ETTA er hluti af breytingu sem ákveðin var 1977 og komin er til fram- kvæmda og það er farið að kenna bækur um þetta efni. Þetta er þáttur í víðtækari breytingu sem unnið hefur verið að undanfarinn áratug. Ég tel fráleita þá skoðun að sleppa eigi heilu tímabilunum úr íslandssögu og hætta eigi að fjalla um atburðarásina," sagði Kagnhildur Helgadóttir, menntamála- ráðherra, í samtali við Mbl., er hún Krístmann Guðmundsson látinn KRISTMANN Guðmundsson, rithöfundur, lézt í Landakotsspítala sunnudag- inn 20. nóv. sl. Hann var á sínum tíma einn víðþekktasti rithöfundur landsins og í fremstu röð íslenzkra skáldsagnahöfunda. Hann hefur undanfarin ár, eða frá 1977, búið á dvalarheimili aldraðra sjómanna í Hafnarfiröi, Hrafn- istu, en veiktist skyndilcga fyrir helgi og var þá fluttur í Landakotsspítala, þar sem hann lézt. Banamein hans var heilablóðfall. Kristmann Guðmundsson var 83 ára að aldri, fæddur 23. október 1901 á Þverfelli í Lundar- reykjadal, Borgarfjarðarsýslu. Hann ólst upp á Snæfellsnesi, stundaði nám við Samvinnuskól- ann, en fluttist 1924 til Noregs og lagði stund á nám þar og víðar erlendis. Hann dvaldist í Noregi, Kaupmannahöfn og Vínarborg til 1939, þegar hann hvarf aftur heim til íslands. Fyrst framan af átti hann heima í Reykjavík og Hvera- gerði, þar sem hann ræktaði fræg- an biómagarð, en fluttist svo aftur til Reykjavíkur. Fyrsta bók Kristmanns var ljóð, Rökkursöngvar 1922, en skáldsag- an Brúðarkjóllinn, sem hann samdi á norsku, kom út 1927, síðan Ármann og Vildís 1928, Morgunn lífsins 1929 og síðan rak hver skáldsagan aðra, smásagnahefti, ljóð og endurminningar í fjórum bindum 1959—1962. Bækur sínar skrifaði Kristmann fyrst á norsku og varð um tíma einn þekktasti höfundur þar í landi, en frægð hans barst víða um lönd, enda voru bækur hans þýdd- ar á fjölmörg tungumál. Krist- mann og aðrir hafa þýtt bækur hans á íslenzku og síðustu bækur sínar hefur hann frumskrifað á móðurmálinu. Kristmann Guð- mundsson hefur óefað verið í hópi víðlesnustu íslenzkra rithöfunda. Kristmann Guðmundsson var í bókmenntaráði Almenna bóka- félagsins um nokkurt skeið og fé- Iagið gaf út ritsafn hans í átta bindum 1978. Kristmann Guðmundsson var bókmenntagagnrýnandi við Morg- unblaðið og skrifaði fjölmargar greinar í blaðið, bæði um menn- ingarmál, bókmenntir og þjóðfé- lagsmál. Blaðið þakkar honum gott samstarf um margra áratuga skeið, og um leið og það minnist þessa íslenzka rithöfundar látins, sendir það börnum hans og ástvin- um öllum innilegar samúðarkveðjur. ★ IJtför Kristmanns Guðmunds- sonar fer fram frá Hafnarfjarðar- kirkju klukkan 10.30 á föstudag- inn. var innt álits á þeirri ráóstöfun að fella niður langan tíma f íslandssögu og takmarka námsefni við aðeins 120 ár. Ragnhildur sagði að breytingar á sögukennslu og hluta samfélags- fræði hefðu verið gerðar samkvæmt námsskrá sem út var gefin árið 1977. „Ég er þeirrar skoðunar að sú breyting sem þarna hefur verið gerð sé ekki til góðs og það er mín per- sónulega skoðun að það eigi að taka upp samfellda sögukennslu. Ég tel að það sé nauðsynlegt og óttast það að þessi aðferð leiði til þess að al- menn þekking verði ekki næg — þekking á staðreyndum. Ég tel að þekking á staðreyndum sé mikil- vægust í miðlun fræðslunnar, því hvernig á að miðla þekkingu ef hún er ekki byggð á staðreyndum?" sagði Ragnhildur. Ragnhildur sagði að í þessu máli væri óhjákvæmilegt að gera faglega úttekt og unnið væri að slíkri úttekt og sagðist hún vonast til þess að hún yrði fljótlega tilbúin. Ljóst væri að nauðsynlegt væri að breyta stefn- unni, en spurningin væri hvernig ætti að gera það. „Ég tel að það sé gengið of langt í breytingunni, ef það er gert á kostnað þekkingarinn- ar,“ sagði Ragnhildur. „Ég tel mjög jákvætt að Morgun- blaðið skuli hafa fjallað allrækilega um þetta efni, því ég tel einmitt þessi efni vera þess eðlis að það sé nauðsynlegt að fram fari nokkuð al- menn umræða í þjóðfélaginu um þau, því þetta er hlutur sem snertir ekki aðeins kennarana, ráðherrana og þá nemendur sem vinna með þetta efni, heldur hefur þetta efni almenna þýðingu og eðlilegt að fólk hafi á því skoðun. En það sem mér finnst athyglisverðast í þessu öllu er að fólki skuli ekki hafa verið kunn- ugt um þetta fyrr en núna,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.