Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
27
Enska
C knatt-
spyrnan
Galvin meiddur
TONY Galvín, írski landsliðsmað-
urinn hjá Tottenham, lák ekki
med lidinu á laugardaginn. Hann
á viö meiðsli að stríða í öðrum
leggnum. Hann verður því ekki
með í Evrópuleiknum gegn Bay-
ern MUnchen á morgun. Alan
Brazil gœti hins vegar oröiö með
annað kvöld, a.m.k. í sextán
manna hópnum, en hann hefur
lítiö sem ekkert leikið undanfarið
sem kunnugt er.
Jennings áfram
með landsliðinu
PAT JENNINGS, sem á 102 lands-
leiki að baki fyrir Norður-frland,
hafði ákveöið aö h»tta að leika
með landsliðinu eftir hinn frá-
b»ra leik sinn ( Hamborg gegn
Vestur-Þjóðverjum í síöustu viku.
„Ég hafði alltaf haft ( huga að
hætta meðan ég væri enn á
toppnum," sagöi Jennings.
En í búningsherberginu eftir
leikinn og í flugvélinni á leiðinni
heim lögöu meöspilarar hans í liö-
inu hart aö honum aö gefa kost á
sér áfram í liöiö, þannig aö Pat
hætti viö aö hætta, enda blandast
engum hugur um aö hann er enn
einn besti markvöröurinn á Bret-
landi. Jennings veröur 39 ára í
júní.
Morley úr landi?
TVÖ félög hafa nú áhuga á Tony
Morley, enska landsliösútherjan-
um hjá Aston Villa, sem félagið
hefur ákveðiö að selja, en hann
hefur lítið komist í liðið aö undan-
förnu. Þessi lið sem hafa áhuga á
honum eru PSV Eindhoven ( Hol-
landi og AEK Aþena ( Grikklandi.
Tottenham og Manchester United:
Cloct ■ im f Ihn
dldvl Ulfl ppf IUÍ1 Id
Fréttir frá
Bob Hennessy
í Englandi
Bryan Robson: Fiorentina er tiibúiö að greiða stórfá fyrir hann.
Bryan Robson
og Whiteside
EITT ensku blaðanna skýrði frá
þvi um helgina, og haföi fyrir
því heimildir frá Róm, aö ítölsk
lið hefðu mikinn áhuga á aö fá
Manchester United leikmenn-
ina Bryan Robson og Norman
Whiteside til liös viö sig.
Þaö er Fiorentina sem vill fá
Robson og AC Milano hefur
áhuga á Whiteside. Verö þaö
sem Fiorentina er reiöubúiö til aö
greiöa fyrir Robson er hreint
ótrúlegt: fjórar milljónir punda,
sem eru um 168 milljónir ís-
lenskra króna. Bryan Robson var
keyptur til Man. Utd. frá WBA
fyrir 1750 þús. pund og er dýrasti
leikmaöurinn í ensku knattspyrn-
unni. italska liöiö er sem sagt tii-
búiö til aö greiöa rúmlega helm-
ingi meira fyrir hann. Robson er
27 ára, fyrirliöi MU og enska
— vekja ahuga
ítalskra liöa
V
Norman Whiteside
landsliösins, og einn fárra enskra
leikmanna á. heimsmælikvarða,
aö mati italanna. Argentínumaö-
urinn Daniel Bertoni leikur meö
liöinu en hefur átt í útistööum viö
forráöamenn þess, þannig aö
hann gæti veriö á leið frá felag-
inu.
„Þaö hefur ekki verið haft
samband viö mig vegna þessa
máls, og ég veit ekki hvort
Manchester United vildi selja
mig,“ sagöi Bryan Robson um
þetta mál.
Gianni Rivera, forseti AC Mil-
ano og fyrrum ítalskur landsliös-
maöur, var á ferö i Manchester i
siöustu viku. Ekki er vitað hvort
hann haföi samband viö White-
side. Whiteside lék ekki meö Un-
ited um helgina, var settur út i
staö Garth Crooks. SH.
JESPER Olsen, danski landsliðs-
maðurinn ungi hjá Ajax, fer aö
öllum líkindum frá félaginu áður
en langt um líöur. Eins og við höf-
um sagt hefur hann áhuga á að
spila í Englandi, og lengi vel leít
út fyrir aö hann færi til Manchest-
er United. Þessa stundina eru lík-
urnar þó mestar á því að Totten-
ham verði fyrir valinu hjá honum.
„Viö höfum gert honum mjög
gott tilboö," sagöi Keith Burkin-
shaw, stjóri Tottenham, á sunnu-
daginn, en þá flaug hann til Amst-
erdam til aö spjalla við Olsen. Ron
Atkinson flaug einnig til Amster-
dam á sunnudaginn til aö ræöa viö
Danann, en hann tók það skýrt
fram áöur en hann fór aö United
heföi ekki gert honum neitt tilboö
ennþá. Tottenham er því skrefi á
undan þessa stundina.
Olsen hefur lengi haft áhuga á
aö leika meö United en eftir aö
hafa rætt viö Allan Simonsen, sem
lék í fimm mánuöi meö Charlton
(sem er frá London) vill hann held-
ur búa í London en Manchester.
• Jesper Olsen
Þaö skemmdi heldur ekki fyrir aö
hann sá leik Luton og Tottenham
beint í sjónvarpinu í Danmörku um
helgina, frábæran leik, og hreifst
hann mjög af Spurs-liöinu. „Liöiö
leikur mjög skemmtilega knatt-
spyrnu og ég hef trú á því aö ég
gæti leikiö vel viö hliöina á Glenn
Hoddle. Hann er frábær leikmaö-
ur,“ sagöi Olsen um helgina, en
sagöist jafnframt gera sér grein
fyrir því aö svo gæti fariö aö
KEVIN Keegan hafði 80.000 pund
( laun hjá Newcastle á síöasta
keppnistlmabili, en það eru um
þrjár milljónir og þrjú hundruð
þúsund íslenskar krónur. Þetta
var gert heyrinkunnugt um helg-
ina.
Keegan haföi helmingi hærri
laun en næsti leikmaöur hjá félag-
Hoddle yfirgæfi félagiö eftir þetta
tímabil.
Olsen, eöa „flóin“ eins og
áhangendur Ajax kalla hann,
vegna þess hve snöggur og lipur
hann er, mun kosta 600.000 pund
og hefur Tottenham boöiö honum
sjálfum 250.000 pund viö undir-
skrift. Forráöamenn Ajax segjast
vitanlega vilja halda í Olsen, en
þeir geti einfaldlega ekki boöiö
eins vel og Tottenham. SH. I
inu en þess má geta aö í þessari
tölu eru ekki þær tekjur sem hann
fær vegna auglýsingastarfsemi
sem hann vinnur fyrir bruggfyrir-
tæki í borginni. Hann hefur veriö
meö þann samning siöan hann
kom til félagsins og auk þess hefur
hann góöar auglýsingatekjur ann-
ars staöar frá.
Mjög góð laun
Watford kaupir
ungan framherja
Watford keypti fyrir helgina
tvítugan framherja frá Partick
Thistle í Skotlandi, Maurice
Jonston að nafni. Hann lék með
liöinu á Old Trafford á laugardag-
inn. Hann skoraði 35 mörk í 54
leikjum fyrir Partick. Watford
borgaði 200.000 pund fyrir hann.
Bobby Robson:
Leitar
aðstoðar
BOBBY Robson, landsliösein-
valdur Englands, íhugar nú að
biöja Sir Alf Ramsey, fyrrum
landsliösþjálfara Englands, og
þann sem gerði þá að heims-
meisturum 1966, um að aöstoöa
sig við uppbyggingu liösins fyrir
heimsmeistarakeppnina í Mexíkó
1986.
Þeir búa báöir í Ipswich og mun
Robson ræöa viö Sir Alf einhvern
næsta daga um máliö. „Sjöundi
desember er mér efst í huga þessa
stundina en þá er dregiö í heims-
meistarakeppnina. Þaö mun skipta
okkur miklu máli gegn hvaöa þjóö-
um viö lendum. Ég mun aö sjálf-
sögöu stjórna enska landsliðinu
eftir mínum hugmyndum þó Sir Alf
yröi meö mér, en ég hef alltaf sagt
aö ráðleggingar eru vel þegnar."
Robson sagöi að enginn gæti
gefiö sér betri upplýsingar um
Mexíkó en Sir Alf. Hann var meö
enska landsliöiö þar í HM 1970 og
þekkir þvt hvernig best er aö starfa
þar varöandi öryggisgæslu, matar-
æöi leikmanna, æfingaaöstööu,
svo eitthvaö sé nefnt. En eitt verö-
ur aö takast svo Sir Alf komi aö
notum: „Viö veröum aö tryggja
okkur sæti í úrslitakeppninni í
Mexíkó," sagöi Robson.
Graham Rix:
Langar til
að leika
erlendis
„EF ÉG fengi tilboð frá góðu er-
lendu liði býst ég viö að ég myndi
taka því. Ég yrði a.m.k. að hugsa
mig mjög vel um áöur en ég neit-
aöi því tilboöi,“ sagði Graham
Rix, fyrirliöi Arsenal, í samtali viö
eitt ensku blaðanna á sunnudag-
inn.
„Ég er ekki viss um aö ég vildi
skrifa undir nýjan samning viö Ar-
senal ef mér yrði boöinn hann,“
sagöi Rix, en samningur hans viö
Lundúnaiiöiö rennur út í vor. „Mér
líöur hræöilega í hvert sinn sem
Bobby Robson tilkynnir lands-
liöshóp sinn og ég er ekki í honum.
Ég veit ekki hvers vegna hann vel-
ur mig ekki, vegna þess aö mér
finnst ég ekki leika illa. Ég vildi aö
ég vissi af hverju ég er ekki í hópn-
um. Ég lék meö landsliöinu í
heimsmeistarakeppninni á Spáni í
fyrra, en nú er ég ekki i hópnum,"
sagöi Rix, sem telur líkur sínar á
því aö komst í landsliðið aftur
meiri ef hann leiki meö sigursælu
liöi erlendis.
• Kevin Keegan