Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 + Eiginmaöur minn og faöir okkar, AUÐBERGUR INORIÐASON fré Á»i, Hraunbæ 152, andaöist aö kvötdi sunnudags 20. nóvember. Jaröarförin auglýst siöar. Margrét Jónsdóttir og dætur. t Elskulegur faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, KRISTMANN GUÐMUNDSSON, ríthöfundur, lést aöfaranótt 20. nóvember. Randi Sellevold, Warren Sellevold, Vildís Kristmannsdóttir, Árni Edvinsson, Hrefna Krístmannsdóttir, Helgi Björnsson, Ninja Kristmannsdóttir Fine, Philip Fine, Ingilín Kristmannsdóttir, Kaðlín Kristmannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín. er látin. + UNNUR MAGNÚSDÓTTIR, Gunnar Guöjónsson. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, VALDIMAR SIGURDSSON, Hringbraut 52, Hafnarfiröi, veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfíröi þriöjudaginn 22. nóvember kl. 1.30. Blóm og kransar vlnsamlega afbeöin, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Ásdis Þóröardóttir, Þóröur Valdimarsson, Svanhildur ísleifsdóttir, Sigríöur Valdimarsdóttir, Gunnar Gíslason, Ragna Valdimarsdóttir, Edvald K. Edvalds og barnabörn. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, TÓMAS GUÐMUNDSSON, skéld, Egilsgötu 24, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Bertha María Guömundsson, Guömundur Tómasson, Tómas Tómasson, Helga Jónsdóttir, Jón Bertel Tómasson. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, ALFREO GUNNAR SÆMUNDSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 23. nóv- ember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Blindravinafélag Islands, Ingólfsstræi 16. Þóra Stefénsdóttir og börn. + Útför eiginmanns míns og föður, ÞÓRHALLS KARLSSONAR, flugstjóra, Rauöahjalla 11, fer fram frá Kópavogskirkju í dag 22. nóv. kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Slysavarna- félag íslands. Aöalheióur Ingvadóttir, Þórhildur Þórhallsdóttir, Elías Þórhallsson, Hrafnhildur Þórhallsdóttir. Minning: Kristjón Orn Kristjónsson Fæddur 8. desember 1959. Diinn 12. nóvember 1983. Nú er góður vinur horfinn, össi er dáinn. Sviplegt fráfall hans vekur upp minningar og okkur verður hugsað til áranna 1975—1978, hér í Ár- bæjarhverfi, en margs er að minn- ast frá þeim tíma. Þá kynntumst við Össa og tókst með okkur góð vinátta. Við hittumst nær daglega. Eftir skóla settumst við einhvers staðar niður og spjölluðum um heima og geima. össi var 3 árum eldri en við. Hann var okkur sem bróðir, og það var okkur ómetan- legt á þessum mótunarárum að hafa mann sem hann til að ráðg- ast við, því þá voru vandamálin mörg og stór en ekkert var honum óviðkomandi. Eftir að Össi flutti ofan af Geithálsi og skólagöngu okkar lauk hér i hverfinu urðu samskipti okkar minni. En alltaf þegar við hittumst var eins og við hefum síðast talað saman í gær. Við vottum aðstandendum okkar innilegustu samúð. Fari okkar elskulegi vinur í friði. Anna, Ella, Herdís og Sigrún. Dáinn horfínn. — Harmafregn. Hvílik orð mig dynur yfir. En ég veit að látinn lifir það er huggun harmi gegn. (J. Hallgrímsson) í dag kveðjum við hinstu kveðju vin okkar Kristjón örn. Það var eins og kaldur gustur léki um okkur þegar fréttin um hið svip- lega fráfall Össa barst okkur að morgni 12. þessa mánaðar. Við slík þáttaskil verður maður svo óendanlega lítill. Minningarnar leita á. össi var aðeins 23 ára gamall. „Dáinn", þetta er ekki sanngjarnt. Það er erfitt að trúa þvi að hann sé farinn frá okkur. Fráfall hans skilur eftir sig stórt skarð fyrir þá sem þekktu hann. Maður stendur sem þrumu lostinn yfir þessum at- burði, en fyllist jafnframt þakk- læti fyrir að hafa borið þá gæfu til að kynnast honum og þeim per- sónuleika er hann hafði að geyma. Honum kynntumst við best þegar við dvöldumst saman í 3 vikur í sumarfríi síðastliðið sumar. Á slíkri stund sem þessari streyma minningarnar fram og eitt eiga þær sameiginlegt, að ylja manni um hjartarætur. Það eru ekki nema nokkrir dag- ar síðan við sátum nokkur saman eina kvöldstund og spjölluðum, hver hefði trúað því þá að það væri í síðasta sinn sem össi væri með okkur. Maður á besta aldri sem átti svo miklu ólokið, og átti allt lífið fram undan, að þvi er virtist. Góður drengur er fallinn í valinn og er hans sárt saknað. Þvílík sorg, já, sorgin er sárari en nokkur orð geta lýst. Kæru að- standendur. Guð gefi ykkur öllum styrk og huggun. Þið hafið misst mikið en þið eigið líka mikið eftir, þvf minningarnar um góðan dreng getur enginn frá ykkur tekið. ,Flýt þér vinur, í fegri heim, krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa Guðs um geim.“ (J. Hallgrímsson) Drottinn gef þú dánum ró, hin- um líkn sem lifa. Blessuð sé minn- ing hans. Dedda og Stína í dag verður til moldar borinn Kristjón Örn Kristjónsson. Með trega kveð ég æskuvin minn sem var svona skyndilega hrifinn á braut frá okkur. Kallið var komið og hann aðeins 23 ára gamall, fæddur 8. desember 1959. Össi, eins og hann var kallaður, kenndi sér einskis meins fyrr en aðeins fyrir tveimur vikum er + Útför eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur og afa, RAGNARS PÉTURSSONAR, Greniteig 24, Keflavlk, fer fram frá Keflavíkurkirkju miövikudaginn 22. nóvember kl. 2 e.h. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á björgunarsveitir og Slysa- varnafélag Islands. Jóna Ingimundardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Móöir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR ODDSDÓTTIR, verður jarösungin fra Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. nóvember kl. 15.00. Þeir sem vildu mlnnast hennar vinsamlega láti Kristniboösfélag kvenna eöa aörar liknarstofnanir njóta þess. Lea Kristjénsdóttir, Jónatan Guömundsson, Hjörvar Kristjénsson, Vilhelm Heiöar Lúövíksson, Kristín Pélsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför KJARTANS ERLENDSSONAR, vélstjóra. Sérstakar þakkir til björgunar- og leitarmanna. Erlendur Jóhannsson, Jóhann Erlendsson, Höskuldur Erlendsson, Ásta Kröyer og brasörabörn. hann veiktist skyndilega og nokkrum dögum seinna var hann allur. Ég minnist Össa sem sérstak- lega glaðværs og ljúfs drengs. Við ólumst upp í sama húsi og vorum góðir leikfélagar. Það var mikið og gott samband á milli fjölskyldna okkar og hefur haldist æ síðan. Við Össi höfðum ekki mikið sam- band síðustu árin en fréttum allt- af hvort af öðru í gegnum mæður okkar. En þessi fáu skipti sem við hittumst síðustu árin, fannst mér alltaf jafn auðvelt að ræða við hann um líðandi stund og liðna tíð. Já, það var eins og við hefðum hist í gær. Össi lærði til þjóns og starfaði á Hótel Sögu. Össi er farinn frá okkur og það er erfitt að sætta sig við það. Hans er sárt saknað. Það er þó huggun harmi fullvissan um endurfundi að leiðarlokum. Sólveig mín, Hreinn og Ásta, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sigríður Ástvaldsdóttir. Hví fölnar jurtin fríða og fellir blóm svo skjótt? Hví sveipar barnið blíða svo brátt hin dimma nótt? Hví verður von og yndi svo varpað niðu’r i gröf? Hví berst svo burt í skyndi hin bezta lífsins gjöf? Svo spyrjum vér, en vonum þó vísdóm Drottins á og hugsum sæl hjá honum vor hjartkær börnin smá. Þótt hrelling herði’ að brjósti, vér huggumst við þá trú, í beztu föðurfóstri þau falin séu nú. Það friði’ og firri harmi þá foreldra sem hér sér barma’ á grafar barmi, er barnið dáið er; og fyrirheit vors Herra þeim hjartans græði sár, það heit, að hann mun þerra á himnum öll vor tár. Já, sefist sorg og tregi, þér saknendur við gröf, því týnd er yður eigi hin yndislega gjöf: Hún hvarf frá synd og heimi til himins — fagnið því, — svo hana Guð þar geymi og gefi fegri’ á ný. Björn Halldórsson frá Laufási. Okkur langar til að skrifa litla minningu um góðan vin, Kristjón Örn eða Össa eins og hann var alltaf kallaður. Við kynntumst Össa fyrir rúmum sjö árum og ávallt síðan hefur hann svo sann- arlega reynst góður vinur og skemmtilegur félagi. Við komum til með að sakna Össa mikið, geta ekki hringt til hans eða skotist í heimsókn. En fyrir okkur er Össi ekki end- anlega dáinn, heldur er hann nú á sviði þar sem hann býr ekki yfir efnislegum líkama og getur því ekki lengur haft bein samskipti við okkur. Þar sem eitthvað verður aldrei að engu og ekkert verður aldrei að einhverju vitum við að össi er ein- ungis farinn yfir á annað tilveru- svið. Þar sem það tilverusvið sem Össi er á núna er ekki byggt upp af sama þunga efni og líkamlegu skynfæri okkar og tjáningartæki eru, er okkur einungis kleift að tjá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.