Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 45 Minningarorð: Valdemar Baldvins- son, stórkaupmaður okkur nú með okkar fíngerðustu tjáningartækjum. Á meðan Össi er að læra að fóta sig á hinu nýja tilverusviði sínu og sætta sig við aðskilnaðinn frá öll- um þeim sem honum þótti vænt um, munum við tjá okkur gagn- vart honum með því að senda hon- um styrkjandi og jákvæðar hugs- anir. Það skulum við hafa í huga sem eigum eftir að sakna Össa, að dauði úr hinum efnislega heimi er fæðing inn í hinn andlega heim. Kata Guðbjörg og Jónína „Vinur þinn er þér allt. Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorin. Hann er brauð þitt og arineldur. Þú kemur til hans svangur og í leit að friði.“ (Kahlil Gibran.) Þessar ljóðlínur úr Spámannin- um leita sterkt á hugann við and- lát góðs vinar, sem erfitt er að sjá á bak. Ég kynntist Össa, eins og hann var oftast kallaður, á Hótel Sögu fyrir um það bil fimm árum, þar sem við vorum bæði við fram- reiðslunám og síðan starfandi sem þjónar. Össi var alltaf glaður og hress. Hann var hjálpfús og vildi hvers manns vanda leysa. Af þessu leiddi að hann átti alls stað- ar vini og kunningja og undi hann sér best í þeirra hópi. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að kynn- ast honum og eignast vináttu hans. Ég flyt móður hans, stjúpföður og systkinum hans mínar dýpstu samúðarkveðjur, og bið honum blessunar á eilífðar brautum. Sigga Kveðja frá samstarfsfólki Hótel Sögu. I dag kveðjum við ungan vin okkar og samstarfsmann, Kristjón Örn, en hann lést 12. þ.m. eftir stutta sjúkdómslegu, langt um aldur fram eða tæplega 24 ára. Vorið 1978 hóf Örn nám í fram- reiðsluiðn á Hótel Sögu og lauk hann því árið 1981 með góðum vitnisburði. Á námsferli sínum var hann góður og ósérhlífinn nemandi. Að loknu námi hóf hann störf í Súlnasal og Grilli hótelsins. Örn var lipur og þægilegur fram- reiðslumaður gagnvart gestum sínum og samstarfsfólki. Um haustið 1982 hóf hann störf í Veitingahúsinu Torfan og starf- aði þar til 1. nóvember 1983 er hann hóf störf aftur á sínum fyrri vinnustað. Var hann velkominn af sínum gömlu vinnufélögum, mun- andi það að þar var góður drengur og félagi. Á þessum stutta tíma í starfinu var hann bjartsýnn á framtíðina. En skyndilega dró ský fyrir sólu og dvölin varð styttri en nokkurn óraði fyrir, maðurinn með ljáinn var kominn. Við þökkum Erni samfylgdina, minningin um góðan dreng mun geymast og varðveitast í hugum okkar. Við vottum móður, stjúpföður og aðstandendum okkar einlæg- ustu samúð. Starfsfólk Hótel Sögu. Að morgni laugardagsins 12. nóvember sl. lést vinur okkar og vinnufélagi Kristjón Örn. Það er ekki laust við það að manni finnist lífið vera tilgangs- laust og tómlegt, þegar svona ung- ur og hraustur drengur í blóma lífsins skuli vera tekinn frá okkur. Það er með söknuði að við kveðj- um hann, sem horfinn er okkur að eilífu, og aðeins minningin ein er eftir um, en hún mun í hugum okkar allra lifa áfram um langan tíma. Foreldrum og fjölskyldu hans vottum við okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning hans. Far þú í friði friður guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Fæddur 14. september 1921 Dáinn 1. nóvember 1983 Með trega kveð ég vin minn og félaga Valdemar Baldvinsson. Þó var það ljós í myrkrinu að fá að sjá hann og tala við hann áður en ég kvaddi þennan heim. Kynni okkar hófust fyrir 33 ár- um, eftir að ég fluttist til Akur- eyrar og hóf störf þar. Þá starfaði Valdemar sem deildarstjóri í Skó- deild KEA og fór orð af honum fyrir lipurð við afgreiðslu og þekk- ingu á þeim vörum sem hann var að selja. Það lá svo fyrir honum, eftir að hann hætti störfum hjá KEA, að standa að og reka alls- konar fyrirtæki og að lokum að reka sitt eigið fyrirtæki, Heild- verslun Valdemars Baldvinssonar sf., sem hann gerði með svo mikl- um dugnaði og myndarbrag að eft- irtekt vakti. Valdemar var starfsamur og fylgdi fast eftir þeim verkefnum sem hann vann að. Það var oft gaman, þegar maður hitti hann þar sem hann var að velta fyrir sér hugmynd sem hann vildi koma í framkvæmd. Þá komu útskýr- ingar og hugmyndir hratt og hug- urinn tók flugið og maður hreifst ósjálfrátt með, svo allt í einu sett- ist hann brosandi niður og sagði: „Hvernig líst þér á þetta vinur?“ Valdemar var mikill trúmaður og fannst að trúin ætti að vera kjölfesta hvers manns, öðruvísi gætu menn ekki ræktað með sér kærleika og frið manna á milli. Hann var ákveðið þeirrar skoðun- ar, að við fæddumst ekki hér á jörð bara til að deyja. En á jarð- vistardögum okkar þyrftum við að ná eins miklum andlegum þroska og við gætum áður en við kveddum þessa jarðnesku vistarveru og svo héldi lífið áfram á öðrum sviðum, þar sem enn væri von um frekari þroska og kærleika. Valdemar fæddist 14. september 1921 í Hrísey. Þar ólst hann upp með foreldrum sínum, Baldvini Bergssyni og Elínu Valdemars- dóttur, sem bæði voru af atorku- sömum og traustum stofnum eyfirskra byggða. Má að gamni geta þess, af því að Valdemar hafði mikinn áhuga á allskonar ræktun og þar á meðal skógrækt, að forfaðir hans, Þorlákur í Skriðu í Hörgárdal, var frumkvöðull að allskonar ræktun og þar á meðal trjárækt og fyrir forustuhlutverk sitt var hann sæmdur Danne- brogsorðu og var það mikil viður- kenning á þeim tíma. Valdemar átti sér draum um fagran lítinn lund, sem hann hefði ræktað sjálfur, sér og fjölskyldu sinni til yndisauka. Hann hófst handa af sínum alkunna krafti og gróðursetti tré og runna í hund- raða eða þúsunda tali og þegar vinir og vandamenn komu í heim- sókn varð að sýna þeim árangur- inn: „Það er fallegur árssproti á þessari, þessi ætlar að verða laufmikil og þessi runni verður fallegur en þessi er með einhvern kyrking." Það var eins og hann væri að gæla við barn. Það leyndu sér ekki erfðaeiginleikarnir í ræktuninni þó þessir eiginleikar væru búnir að ganga í gegn um nokkrar kynslóðir. Valdemar kvæntist eftirlifandi konu sinni, Kristjönu Hólmgeirs- dóttur Þorsteinssonar frá Hrafna- gili, þann 12. maí 1945. Valdemar sagði eitt sinn við mig: „Það er mikil gæfa að eiga góðan og traustan lífsförunaut og ég get aldrei fullþakkað forsjóninni fyrir að gefa mér Kristjönu." Enda mat hann hana mikils sem eiginkonu, móður og félaga. Kristjana bjó manni sínum og börnum hlýtt og fagurt heimili, en þó held ég að Valdemar hafi metið mest þá um- hyggju, ást og kærleika sem hún veitti honum til hinstu stundar. Valdemar og Kristjana áttu fjögur börn, þau eru: Valgerður Élín íþróttakennari, gift Baldri Guðvinssyni viðskiptafræðingi. Þórhildur Steinunn verslunar- maður, gift Þorsteini Þorsteins- syni skipasmið. Hólmgeir kaup- maður, kvæntur Birnu Björns- dóttur snyrtifræðingi, og Baldvin nemandi í viðskiptafræði kvæntur Evu Laufeyju Rögnvaldsdóttur bankastarfsmanni. Áður en hann kvæntist eignaðist hann Sigrúnu, gifta Ingólfi Ingólfssyni slökkvi- liðsmanni. Valdemar var mjög starfssamur maður eins og áður er sagt, hvort sem var við rekstur fyrirtækja eða við störf að félagsmálum. Hann gekk ungur í Oddfellow-regluna og starfaði þar af svo miklum eld- móði og félagsþroska að hann var fyrirmynd þeirra sem á eftir komu. Oddfellow-reglan var hon- um afar kær og hann gladdist yfir hverri stund, sem hann gat unnið að málum hennar. Þess vegna kveðja Oddfellow-bræður þennan mikla foringja sinn með virðingu og þökk. Valdemar hafði mikinn áhuga á þjóðmálum og velti þeim mikið fyrir sér, ræddi þau við vini og félaga og stundum hitnaði honum í hamsi þegar honum fannst logn- mollan og værðin vera að draga kjark úr hverjum þeim sem hafði þor til sóknar og athafna. Valdemar var mikill hugsjóna- maður um öll framfaramál í bæj- arfélagi sínu og gladdist yfir hverju framtaki er miðaði fram á veginn. Hann var frumkvöðull að stofnun nokkurra fyrirtækja á Akureyri, svo sem Norðlenskrar Tryggingar hf. og Tollvörugeymsl- unnar hf. svo og Heildverslunar Valdemars Baldvinssonar sf. Hann veitti umboði Olíuverslunar íslands forstöðu um nokkurt skeið og framkvæmdastjóri SANA hf. var hann í nokkur ár óg sýndi þá fram á að heilbrigð samkeppni í verslun er til hagsbóta fyrir neyt- endur. Flutti hann þá inn ýmsar fóðurvörutegundir, sem hann seldi bændum á mun hagstæðara verði en áður hafði verið gert. Eins var það með hjólbarða sem henn seldi í miklu magni á mjög hagstæðu verði. Svona viðskipti áttu við Valdemar og hann gladdist yfir að geta boðið viðskipavinum sínum slík gæðakjör. Margar minningar frá fyrri samverustundum sækja að er maður sest niður og hugsar um þennan kæra vin. Við hjónin eig- um ótal kærar minningar frá heimsóknum í Byggðaveg 105 og síðar í Ásveg 27, þar sem tekið var á móti okkur og börnum okkar af svo mikilli hlýju og gleði af þeim hjónum, Kristjönu og Valdemar, svo að maður varðveitir þessar minningar eins og gullperlur. Ör- lögin höguðu því svo að við hjónin höfum orðið að vera fjarri heimili okkar á Akureyri um þriggja ára skeið, en komið heim um hátíðir. Eitt mesta tilhlökkunarefnið var að heimsækja Kristjönu og Valde- mar að Ásvegi 27 eða í sumarhúsið í lundinum góða. Ég minnist heimsóknar síðsumars í sumarhús þeirra. Kvöldið var eins og það getur best orðið í Eyjafirði, lognið svo mikið að fjöllin spegluðust í ánni, sólin settist, fuglarnir þögn- uðu, kyrrðin var algjör. Þetta kvöld og þessa nótt nutum við gestrisni þeirra hjóna, margt var spjallað um áhugamál okkar og margar minningar raktar, tíminn leið of fljótt. Og það voru þakklát hjón með lífið og tilveruna sem kvöddust er morgunn reis. Að lokum viljum við hjónin biðja Kristjönu og börnunum Guðs blessunar. „Hafðu þökk fyrir allt og allt.“ „Flýt þér, vinur, í fegri heim, krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa Guðs um geim.“ (J. Hallgrímsson.) Jón M. Jónsson t Innilegar þakkir fyrir auösýndan hlýhug og samúö viö andlát og útför ÞÓRDAR GUÐMUNDSSONAR fró Gerðum. Inga R6»a Þóröardóttir, Guömundur Steingrimsson, Berglind Ró» Guömundsdóttir, Sunna Björk Guömundsdóttir, Þóröur Ingi Guömundsson. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Lokað í dag vegna útfarar ÁSU M. AÐALMUNDARDÓTTUR, Þórsgötu 25, verður Málflutnings- og fasteignastofan (Fasteignaval), Garöastræti 45, lokuð í dag þriöju- daginn 22. nóv. Jón Arason og Margrét Jónsdóttir. Lokað í dag frá kl. 13.00 til 16.00 vegna jaröarfarar VALDIMARS SIGURÐSSONAR. Skipasmíöastööin Dröfn hf. Lokað Fyrirtæki mitt veröur lokaö í dag eftir hádegi vegna jarðarfarar ÞÓRHALLS KARLSSONAR, flugstjóra. Eóvarö R. Guðbjörnsson, löggiltur rafverktaki. Lokað í dag frá kl. 13 til 15.30 vegna jarðarfarar KRIST- JÓNS ARNAR KRISTJÓNSSONAR, framreiöslu- manns. Stefánsblóm, Barónsstíg. Kveðjukaffi- Hlýleg salarkynni fyrir erfisdrykkju og ættarmót. Uppiýsingar og pantanir í síma 11633. L Ki/oóinni. Café Roaanbarg. Vinnufélagar í Súlnasal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.