Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
Ljóam. Mbl. KEE
Húsfyllir á tónleikum Kristjáns
Kri.stján Jóhannsson, söngvari, hélt tvenna tónleika í Háskólabíói um
helgina á vegum bókaklúbbsins Veraldar. Húsfvllir var báða dagana og
var Kristján margoft klappaður upp.
Maurizio Barbacini, kom til landsins ásamt Kristjáni og stjórnaði hann
hljómsvcitinni.
Á fimmtudaginn verða haldnir aðrir tónleikar í Háskólabíói og mun
kona Kristjáns, Dorrie’t Kavanna, syngja með honum á þeim tónleik-
um.
Leiðrétting vegna birting-
ar úr greinargerð um vinnslu
stöðvar landbúnaðarins
MORGUNBLAÐIÐ birti sl., fimmtudag, laugardag og sunnudag þrjá kafla
úr greinargerð um vinnslustöðvar sauöfjárafurða eftir Þorvald Búason.
Greinargerðin var ekki samin til birtingar í dagblaði enda fyrst og fremst
talnadæmi. Morgunblaðið valdi því kafla úr greinargerðinni, þar sem nokkur
aðalatriði koma fram, en töluvert vantar á, að heiileg mynd fáist af forsend-
um, röksemdum og niðurstöðum, svo sem við er að búast við slíka styttingu.
Smámistök urðu við birtingu þessara kafla, sem ástæða er til að lagfæra.
1) í fyrsta kaflanum, sem birt- o.fl., sem rakið er í fyrri köflum
ist á fimmtudag, féll niður undir-
fyrirsögn og hluti texta í miðjum
fyrsta dálki á síðu 13. Hér fer á
eftir þessi grein kaflans í heild
sinni ásamt undirfyrirsögninni
(það sem niður féll er með breyttu
letri):
Yfirlit yfir streymi fjármuna
í vinnslustöð sauðfjárafurða
Með hliðsjón af upplýsingum
um afurðalán, niðurgreiðslur,
sjóðagjöld, uppgjör við bændur,
Ráðstefna Lífs og lands um „þjóð í kreppu“:
Efiiahagskreppan
smitar út frá sér
KRKPPA í margvíslegri mynd var
umræðuefni á ráðstefnu samtakanna
Lífs og lands á Hótel Borg sl. laugar-
dag. Flutt voru tuttugu erindi um
kreppu í efnahagslífi, listaliTi, trúar-
lífi, sálarlífi, skólalífi o.s.frv. Á annað
hundrað manns sóttu ráðstefnuna,
sem hófst klukkan tíu um morguninn
og lauk um sexleytið. Fyrst voru öll
erindin flutt, því næst sátu forsætis-
ráðherra, Steingrímur Hermannsson
og fjármálaráðherra, Albert Guð-
mundsson fyrir svörum, en ráðstefn-
unni lauk með pallborðsumræðum
þar sem reynt var að draga saman
helstu niðurstöður erindanna. Öll er-
indin hafa verið gefin út í bók af ísa-
foldarprentsmiðju.
„Ég tel að ráðstefnan hafi heppn-
ast nokkuð vel,“ sagði Kristinn
Ragnarsson arkitekt, en hann er
formaður samtakanna Lífs og
lands. „Þetta er mjög yfirgripsmik-
ið þema sem tekið var fyrir og því
erfitt að fá fulla yfirsýn á efnínu á
ekki lengri tíma. En markmið
okkar með því að velja þetta efni
var að sýna fram á samtvinnun
hinna ýmsu þjóðfélagsvandamála.
Það er vitað að vaxandi atvinnu-
leysi fylgja ýmis önnur félagsleg
vandamál. Glæpir aukast, sjálfs-
morð verða tíðari og áfengisneysla
vex, svo dæmi sé tekið. Efnahags-
kreppan spilar óneitanlega inn í
mörg svið mannlífsins, hún smitar
út frá sér.“
Samtökin Líf og Iand voru stofn-
uð árið 1978 og eru félagar á þriðja
hundrað. Alls hafa samtökin staðið
fyrir tíu ráðstefnum um hin marg-
víslegustu mál, síðast á undan „þjóð
í kreppu" um ísland og friðarum-
ræðurnar. Kristinn sagði að sam-
tökin væru umhverfismálafélag í
víðum skilningi þess orðs, þar sem
reynt væri að skoða málin frá sem
flestum sjónarhornum og „brjóta
þannig skarð í einangrun sérhæfn-
innar,“ eins og hann orðar það.
Ekki er á dagskrá önnur ráðstefna
fyrir jól.
greinargerðarinnar má draga
saman yfirlit yfir hreyfingar fjár-
muna á föstu verðlagi. Þetta er
gert í töflu XIV miðað við þá
reglu, að gert sé upp við bændur í
þremur greiðslum; 80% í nóvemb-
er, 20% í apríl og verðbætur grei-
ddar í nóvember ári seinna. Þetta
er regla 1. í töflu XV er hins vegar
gert ráð fyrir uppgjöri við bændur
samkvæmt þeirri reglu, að færð sé
inneign á viðskiptareikning, sem
þeir síðan taka út jafnt og þétt á
tólf mánuðum (svo og verðbætur í
nóvember að ári), regla 2.
í töflunum kemur það eitt nýtt
fram, sem ekki hefur mátt lesa úr
fyrri töflum, að feikn rúm lausa-
fjárstaða verður til á vinnslustöð og
þá sýnu meira ef fylgt er reglu 2 um
greiðslur til bænda. Sé fylgt reglu I
er lausafé meira en 1.100.000 (fyrir
1000 kg Dl) að meðaltali yfir árið.
Sé fylgt reglu 2 er lausafé um
2.000.000 kr. að meðaltali yfír árið.
Þetta er mjög athyglisverð niður-
staða. Flestir atvinnuvegir eru í fjár-
svelti, en vinnslustöðvar sauðfjáraf-
urða virðast hafa gnægtir lausafjár.
Á baksíðu Morgunblaðsins
þennan sama dag var drepið á þau
atriði, sem hér um ræðir og niður
féllu. Það er megin niðurstaða
greinargerðarinnar, að lausafé
Kvikmynd
um Kekkonen
ÞRIÐJUDAGINN 22. nóvember kl.
20.30 verður sýnd í Norræna húsinu
kvikmynd um Urho Kekkonen, sem
gerð var f tilefni af 75 ára afmæli
Kekkonens.
Það var Finland Reklam TV, sem
stóð að gerð myndarinnar. Hún er
tekin í lit, 45 mín. og með ensku tali.
Heiti myndarinnar er „Urho Kekk-
onen — the inspiring statesman".
Kvikmyndasýningin verður í sam-
vinnu við finnska sendiráðið. Að-
gangur er ókeypis.
vinnslustöðva sauðfjárafurða hafi
miðað við landið allt árið 1980—81
numið nær 1 milljarði króna
(verðlag í nóvember 1983) sé regla
2 raunhæf, en u.þ.b. 540 milljónum
króna að meðaltali sé miðað við
reglu 1.
2) 1 þriðja kaflanum, sem
Morgunblaðið birti sl. sunnudag,
urðu víxl á setningum. í öðrum
dálki efst á síðu 38 stendur: Tekj-
ur af niðurgreiðslum hafa því orð-
ið 159.142 kr. minni en áætlað í
sept. 1980. Á móti koma niður-
greiðslur á vaxta- og geymslu-
gjaldi, sem fyrst og fremst stafar
af ákvörðun stjórnvalda á þeim
tima um hlutfallslega minnkandi
niðurgreiðslur. í þeim köflum, sem
birtust ...
Hér átti hins vegar að standa:
Tekjur af niðurgreióslum hafa því
verið 159.142 kr. minni en áætlað í
sept. 1980, sem fyrst og fremst staf-
ar af ákvörðun stjórnvalda á þeim
tíma um hlutfallslega lækkandi nið-
urgrciðslur. Á móti koma niður-
greiðslur á vaxta- og geymslugjaldi. í
þeim köfíum, sem birtust hér í
g*r...______
Siglufjörður:
Styttist í
6000 tonnin
Sigluflrði, 21. nóvember.
ATVINNULÍFIÐ á Siglufirði hefur
tekið kipp í dag og í gær. Landað
hefur verið nær 4000 tonnum af
loðnu og 1600—1700 tonn eru á leið
í land. Eldborgin var að koma inn
með 600—700 tonn og Víkingur er
að sigla inn í höfnina með góðan
afla. Súlan landaði 400 tonnum fyrr
í dag.
Skuttogarinn Stálvík kom inn
með 105 tonn af góðum þorski.
Aflinn fékkst á Strandagrunni,
sama svæði og nú hefur verið lok-
að. Ekki skilja allir vel hvernig
stóð á þeirri lokun þegar tekið er
tillit til hversu góður fiskurinn
var.
Bræðslan hjá SR gengur vel
enda nóg hráefni.
— Matthías.
Heimsmeistararnir í dansi, David Sycamore og Denis Weavers.
Heimsmeistarar í dansi
skemmtu á Broadway
HEIMSMEISTARARNIR í dansi, David Sycamore og Denis Weavers,
skemmtu dansáhugafólki í Broadway um helgina, á föstudags- og sunnu-
dagskvöld og á milli tvö og fjögur á laugardag. Þau komu hingað í boði
Danskennarasambands íslands, sem fagnar tuttugu ára afmæli sínu um
þessar mundir. Auk heimsmeistaranna dönsuðu nemendur úr skólum
innan DSI.
Heiðar Ástvaldsson danskenn-
ari sagði að hátíðin hefði tekist
mjög vel. „Sérstaklega vöktu þau
Sycamore og Weavers hrifningu,
enda eru þau ekki heimsmeistarar
fyrir ekki neitt. Þau hafa unnið
heimsmeistaratitilinn í svokölluð-
um tíu-dansa dansi síðastliðin tvö
ár og hyggjast verja hann nú í
Múnchen á næstunni. Tíu-dansa
dans samanstendur af fimm „ball
room“-dönsum, sem við nefnum
svo vegna skorts á íslensku heiti,
og fimm Suður-Amerískum döns-
um. „Ball room“-dansarnir eru:
Vínarvals, enskur vals, quick-
stepp, tangó og foxtrott. Þeir
suður-amerísku eru, rúmba, sam-
ba, jive, paso-doble og cha-cha-
cha. Þau dönsuðu tvisvar á hverri
sýningu, ýmist „ball room“ eða
Suður-Ameríska dansa."
Tískublaðið Líf fær nýtt nafn:
Nýtt líf skal það heita
„A ÞRIÐJA þúsund manns hafa
haft samhand við okkur og komið
með tillögur að nýju nafni. Það læt-
ur nærri að tillögurnar séu í kring-
um sex þúsund, langflestar einhvers
konar samsetningur með orðinu
„lír*. Margir stungu upp á heitinum
„Nýtt IÍF‘, sem var reyndar fyrsta
hugsun Bryndísar Schram ritstjóra,
þegar hún frétti af úrskurði Hæsta-
réttar. Eftir vandlega íhugun var
ákveðið að velja það nafn,“ sagði
Magnús llreggviðsson stórnarfor-
maður Frjáls framtaks hf„ en sem
kunnugt er kvað Hæstiréttur nýlega
upp dóm í máli sem Time Incorpor-
ated höfðaði gegn Frjálsu framtaki
vegna notkunar fyrirtækisins á
nafninu „LíF‘ á einu tímarita fyrir-
tækisins, en Time Incorporated gef-
ur út blaðið Live. Meirihlhluti
Hæstaréttar, þrír dómendur af
fimm, töldu að Frjálsu framtaki
bæri að hætta að nota oðið „LíF‘ á
því nafni hérlendis og var forsenda
dómsins m.a. sú, að talin var hætta
á því að fslendingar rugluðust á
nöfnunum „LÍF‘ og „Live“.
„Við þökkum af heilum hug
þeim fjölmörgu sem lögðu málinu
lið, fyrir áhuga þeirra og tillög-
ur,“ sagði Magnús. „Þar sem jóla-
blaðið var komið á lokastig í
vinnslu þurfti að hafa skjót við-
brögð að finna blaðinu nýtt nafn.
Við ákváðum að leita til almenn-
Morgunbladid/Frjðþjófur.
Magnús Hreggviðsson stjórnarformaður Frjáls framtaks hf. og Bryndís
Schram ritstjóri Lífs og nú Nýs lífs.
ings eftir tillögum. Undirtektir
fólks voru frábærar, tillögum
rigndi yfir okkur, jafnframt því
sem fólk lýsti furðu sinni á niður-
stöðu Hæstaréttar."
Þau Magnús og Bryndís sögðu
að um 80% tillagnanna hefðu ver-
ið með orðinu „Iíf“, svo sem
Mannlíf, Þjóðlíf, Heilbrigt líf,
Ykkar líf o.s.frv. Einn stakk upp á
skammstöfuninni L.Í.F., fyrir Lifi
frjálst framtak. Þá var nafnið
„Víf“ mikið nefnt. Um þessar
mundir er verið að sýna kvik-
myndina Nýtt líf, sem er fram-
leidd af samnefndu fyrirtæki.
Sagði Magnús að forráðamenn
þess fyrirtækis hefðu ekki í
hyggju að gera athugasemd við
notkun Frjáls framtaks á nafninu
„Nýtt líf“.
Nýtt líf kemur út á næstu dög-
um og verður gefið út framvegis
sex sinnum á ári eins og Líf var.