Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 5 Endurtryggingafélag Samvinnutrygginga lagt niður: Höfiiðstóllinn neikvæður — óvíst um endanlega útkomu - segir Hallgrímur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Endurtryggingafélag Samvinnu- trygginga, sem annast hefur endur- tryggingar á erlendum markadi, hef- ur verið lagt niður. Leyfum félagsins hefur verið skilað og renna allir tryggingasamningar félagsins út um áramótin. Ákvörðun um þetta var tekin í lok febrúar sl., að sögn Hall- gríms Sigurðssonar, framkvæmda- stjóra Samvinnutrygginga og Endur- tryggingafélagsins. „Sem stendur er höfuðstóll fé- lagsins neikvæður en það þarf ekki að vera endanleg niðurstaða enda eru vátryggingafélög gerð upp á allt annan hátt en önnur félög,“ sagði Hallgrímur í samtali við blm. Morgunblaðsins. „Vá- tryggingafélög verða að vera tryggð með meiri eignum en önnur félög því inni í myndinni eru áætl- anir um tjónagreiðslur, sem ekk- ert er vitað hvort eiga eftir að koma til útborgunar. Þetta gæti allt eins tekið 10—15 ár. Þegar samningarnir renna út um ára- mótin á eftir að gera upp og þá mun smám saman koma í ljós hvað verður raunverulegt af áætl- uðum tjónum." Hallgrímur sagði að nú þrengdi mjög að endurtryggingamarkaðin- um í heiminum. Stór félög hafa tapað verulega miklu. Hvað Endurtryggingafélag Samvinnu- trygginga varðaði þá hefði félagið orðið fyrir tveimur áföllum, þar sem skipt hefði verið við óheiðar- lega aðila og væri annað málið í sakamálarannsókn, hitt væri skemmra á veg komið en á vegum félagsins væri unnið að rannsókn þess í London. „Þegar þetta kom á daginn var ákveðið að hætta starf- semi Endurtryggingafélagsins og leggja það niður,“ sagði Hallgrím- ur. Hann sagði að enn væri óvíst hvort tap yrði á félaginu þegar upp væri staðið — það gæti orðið „lítið eða ekkert, en ég tel ekki ástæðu til að flagga því á þessari stundu um hve háa fjárhæð höfuð- stóll félagsins er neikvæður. Það er alls ekki svo, að félagið hafi verið komið í greiðsluþrot. Það hefur borgað allar kröfur sjálft og á eftir að fá inn mikla peninga á næsta ári. Samvinnu- tryggingar hafa ekkert þurft að leggja fram í þessu sambandi enn- þá og það gæti vel farið svo, að félagið muni greiða allar sínar kröfur sjálft. Um það verður ekki vitað fyrr en eftir fimm eða sex ár,“ sagði Hallgrímur Sigurðsson. Kolbeinn Pálsson Flugleidir: Kolbeinn Pálsson ráðinn sölustjóri KOLBEINN Pálsson hefur verið ráó- inn sölustjóri Flugleiða á íslandi í stað Karls Sigurhjartarsonar, sem tók við stöðu framkvæmdastjóra hjá Ferðaskrifstofunni Úrval. Meðal verkefna sölustjóra Flug- leiða er dagleg umsjón með sölu- starfsemi millilandaflugs, skipu- lagning leiguflugs og hópferða jafn- framt því að vera tengiliður við um- boðsmenn og ferðaskrifstofur. Kolbeinn Pálsson er 37 ára gam- all og hefur starfað hjá Flugleiðum í liðlega sjö ár, þar af undanfarin þrjú ár í markaðsdeild. Þorsteinn Pálsson ræðir stjórnmálin: I kvöld í Garðabæ - ann- að kvöld á Hótel Esju Sjálfstæðisfélögin víða um land keppast nú við að efna til funda með Þorsteini Pálssyni, nýkjöm- um formanni Sjálfstæðisflokksins. Fyrsti almenni fundur formanns- ins á höfuðborgarsvæðinu verður í Garðabæ í kvöld og annað kvöld talar hann á fundi hjá Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Á fundunum ræðir formaðurinn um stjórnmálavið- horfið að loknum landsfundi sjál fstæðismanna. Sjálfstæðisfélag Garðabæjar og Bessastaðahrepps boðar til fundar með Þorsteini Pálssyni kl. 20.30 í kvöld, þriðjudags- kvöld, í Félagsmiðstöðinni Garðaskóla v. Vífilsstaðaveg. Fundurinn er öllum opinn. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, boðar félagsmenn sína til kvöld- verðarfundar með formanni Sjálfstæðisflokksins, annað kvöld, miðvikudagskvöld, klukk- an 19 að Hótel Esju. Þorsteinn Pálsson Ljóð á Lúthersári - ný Ijóðabók eftir Ingi- mar Erlend Sigurðsson ÚT ER komin hjá Víkurútgáfunni Ijóðabókin „Ljóð á Lúthersári" eft- ir Ingimar Erlend Sigurðsson. Bók- in er 80 blaðsíður og í henni 64 Ijóð. Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup fylgir bókinni úr hlaði. Ljóð á Lúthersári eru þannig kynnt á bókarkápu: í tilefni af því að liðin eru 500 ár frá fæðingu trúarhetjunnar Marteins Lúthers gefur Víkur- útgáfan út nýja ljóðabók eftir Ingimar Erlend Sigurðsson, Ljóð á Lúthersári. Ljóðabók hans Helgimyndir í nálarauga, sem út kom í fyrra, vakti verðskuidaða athygli ljóðaunnenda, trúaðra sem miður trúaðra. Ljóð á Lúthersári inníheldur 64 trúarljóð tengd með beinum eða persónulegum hætti þessari eld- sál kristninnar, Marteini Lúther. I ljóðunum gengur lesandi með skáldinu á trúarvegi vörðuðum sögulegum atvikum og sýnum úr lífi og sál Lúthers, en á milli varðanna, leiðarsteina, vakna á trúargöngunni sárfættar eða sigggrónar, tímabundnar eða við- varandi lífskenndir varðandi til- ganginn, brennandi tjáning nútímaskálds um trú og líf. Þegar tilkenndin er næmust verður gangan — eldgangan, jafnt á glóðum Marteins Lúthers sem persónulegum trúarglóðum. Dr. Sigurbjörn Einarsson, bisk- up, fylgir Ljóðum á Lúthersári úr hlaði. Hljómflutningstækín þín veróa aklrei betrí en hátalavamir sem þú tengjrvið þau! Það er næstum því sama hvað tækin þín heita - Akai, Marantz, Pioneer, Fischer, Philips, Sony, Sanyo eða Plupp - tóngæðin byggjast mest megnis upp á hátölurunum. Auðvitað skiptirtalsverðu máli hversu góð tækin eru, en þó er miklu mikilvægara hvaða hátalara þú notar. Þess vegna ber öllum „stærri spámönnum” saman um að verð hátalara megi nema allt að 70% af heildarverði samstæðunnar. Þar af leiðandi hljóta flestir að kynna sér Bose, því Bose hátalarar eru viðurkenndir jafnt af áhugamönnum sem atvinnumönnum. Komdu og kíktu á okkur - og Bose OTRÚLEG VERÐLÆK KUN á Bose 501, Bose 601 og Bose 901 hátölurum. Opið á laugardögum í Sætúni 8. ÓSA eimilistæki hf Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.