Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 23 tveimur mótum ó meóan á heim- sókninni stendur. Fyrsta daginn sem dvaliö veröur í Sao Paulo mun hópurinn fara á völlinn og sjá leik meö Flamengo en heimavöllur liösins er sá næststærsti í heimi. Daginn eftir fer hópurinn til Ubatuba sem er baöstrandarbær í um 170 km fjar- lægö frá Sao Paulo. Þar fer fyrra mótið fram, en síöara mótiö fer fram í Rio Claro sem er skammt frá. Tíu til fimmtán lið frá átta þjóö- um taka þátt í mótunum. Þegar síöara mótinu lýkur mun allur hóp- urinn fara til Rio de Janeiro og dvelja þar í þrjá daga og skoöa sig um. Eins og sjá má eiga Vals- drengirnir mikla ævintýraferö fyrir höndum. Öll feröalög og upplhald innan Brasilíu eru Valsmönnum al- veg aö kostnaöarlausu, en eins og skýrt hefur veriö frá fengu Vals- menn boö um aö koma í þessa ferö þegar þeir kepptu á ungl- ingamóti úti í Svíþjóö á síöasta ári. Mbl heimsótti Valsdrengina á æfingu fyrir skömmu, og þar skein mikill áhugi út úr hverju andliti. Þjálfari liösins, Sævar Sigurösson, sagöi aö hann myndi reyna aö láta liöiö æfa úti viö eins lengi og aö- stæöur leyfðu. Og væri mikill hug- ur í liöshópnum aö standa sig vel í keppnisferöinni. Sævar sagöi aö hann væri meö góöan hóp í hönd- unum aiit strákar sem hefðu mikla buröi til þess aö ná langt í knatt- spyrnuíþróttinni ef þeir legöu sig fram. — ÞR. ÞAD ER EKKI á hverjum degi sem íslenskir íþróttahópar ráöast f það stóra verkefni að fara í keppnisferö til S-Amerfku. En í mars á næsta ári fer 22 manna hópur úr 3. flokki Vals til Brasilíu og tekur þar þátt í unglingamóti í knattspyrnu. Valsmenn hafa und- irbúið sig af kappi fyrir ferðina, ekki aðeins með því að æfa held- ur líka með því aö vera duglegir í fjárðflun því að svona ferð kostar mikla peninga, þrátt fyrir mjög hagstæð fargjöld sem fást með góðri aðstoö feröaskrifstofunnar Utsýnar. Valsmenn munu fara utan 24. mars og fljúga þá til Sao Paulo frá Kaupmannahöfn. En gert er ráð fyrir því aö hópurinn komi heim 12 aprfl. Gert er ráð fyrir þv( að Valsmenn taki þátt í • Þriðji flokkur Vals sem fer í keppnisferð til Brasilíu í mars. Efri röð frá vinstri: Bragi Bragaaon, Þóröur Bogason, Björn Bragason, Guð- mundur Sigurðsson, Egill Þorsteinsson, Einar Páll Tómasson, Arni H. Ólafsson, Sveinn Sveinsson, Sævar Sigurösson, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Jón Þór Sigurgeirsson, Magnús Rafnsson, Davíö Garðarsson, Jón Þór Andrésson, Einar Aron Pálsson, Jón Helgason og Andrés Davíösson. Ljósm. Þórarinn Ragnarsson. Jabbar skoraði sitt 30.000 stig KAREEM Abdul-Jabbar, körfu- knattleiksmaöurinn kunni hjá Los Angeles Lakers, skoraði sitt 30.000. stig ( NBA-deildinni um helgina er Lakers sigraöi Port- land 117:110 í Portland. Hann varö þar meö annar leik- maöur sögunnar til aö ná þessum áfanga, hinn er Wilt Chamberlain, sem skoraöi 31.419 stig á þeim 14 árum sem hann lék í NBA. Þetta er 15. áriö sem Jabbar leikur ( deild- inni. Hann skoraöi 11 stig ( fyrsta fjóröungi leiksins (f Bandaríkjunum eru leiknar fjórum sinnum tólf mín- útur) en hann þurfti 13 stig til aö ná 30.000. stiginu. Hann skoraði svo úr tveimur vítaköstum er 5:07 sek- úndur voru eftir af þriöja hluta leiksins og bætti síöan viö sjö stig- um þaö sem eftir var. Eftir aö hann haföi „sett vítaskotin niöur“ var gert hlé á leiknum, og aöalfram- kvæmdastjóri Los Angeles Lakers, Jerry West, sem er sjötti stiga- hæsti leikmaöur í sögu NBA, færöi Jabbar keppnisboltann aö gjöf. Jabbar hélt honum hátt á loft (þ.e.a.s. boltanum ekki West) meö annarri hendi meöan 12.666 áhorf- endur hylltu hann vel og lengi. m ím • Áhuginn or mikill hjá þessum ungu mönnum og þoir æfa af miklu kappi til þoss að standast nú brasilísku strákunum snúning þogar á knattspyrnuvöllinn er komið. Ljósm. Þórarinn Ragnarsson. Völsungur sigraði ÍS — Skautafélagið kemur á óvart • Kareem Abdul Jabbar til hægri roynir að stöðva hinn frábæra Mos- es Malono (nr. 2). AÐEINS einn leikur var (1. deild karla á fslandsmótinu í blaki um heigina, en Fram vann Víking 3—2 í spennandi leik. Kvennalíð Völsungs fékk ÍS í heimsókn og sýndu þær á ótvíræðan hátt hverjar það eru sem eru meö besta liöið (ár, öruggur 3—0 sig- ur Völsungs. f 2. deild karla lék KA við Skautafélagið á Akureyri, en þar eru aöeins menn eldri en fertugir. Þrátt fyrir 3—0 sigur KA þá áttu „öldungarnir" góðan leik og stóðu vel (sér yngri mönnum. Leikur neöstu liöanna ( 1. deild, Fram og Víkings, fór fram á sunnu- daginn og þurfti aukahrinu til aö knýja fram úrslit. Liöin skiptust á um aö vinna hrlnurnar, Fram á fyrstu síöan Víkingur en úrslit í hrinunum uröu þau aö fyrsta end- aöi 15—9, sú næsta 15—8 fyrir Víking síöan 15—11 Fram í vil en Víkingar unnu síöan fjóröu hrinuna 15—10. Oddahrinan var spenn- andi og var jafnt á flestum tölum uppí 8—8 en þá tókst Fram aö síga frammúr og sigra 15—12. Hjá Fram átti Kristján Már ágætis kafla, svo og þjálfari þeirra, Sveinn Hreinsson, en mest kom á óvart góö frammistaöa Þorvalds Sigurössonar en hann kom inná í þrlöju hrinu og stóö hann sig meö mikilli prýöi, baröist eins og Ijón og var einstaklega góöur í lágvörn. Hjá Víkingum var Arngrímur best- ur og Siguröur Guömundsson átti einnig ágætan dag. I 1. deild kvenna var einn leikur fyrr i vikunni en þá áttust viö UBK og Víkingur og lauk þeirri viöur- eign meö 3—0 sigri Breiöabliks 15—8, 15—8, og 15—12. Víkingar léku síðan um helgina við Þrótt og ekki biés byrlega fyrir hiö unga liö Víkings í upphafi því Þróttur sigr- aði í fyrstu tveimur hrinunum 15—4 og 15—3. Víkingar gáfust þó ekki upp og unnu næstu tvær hrinur 15—11 og 15—13 og virt- ust Þróttarar þá vera aö reyna nýtt leikkerfi en í síöustu hrlnunni gripu þeir til gamla kerfisins og sigruöu þá 15—9. Stúdinur brugöu sér norður ( land um helgina og léku fyrst viö Völsung og síöan viö KA. Fyrri leikurinn var algjör einstefna hjá Völsungi enda léku iS-dömur eins og byrjendur í íþróttinni og sem dæmi má nefna aö um 40% upp- gjafa þeirra fór í súginn. Öruggur sigur Völsungs 15—2, 15—4, og 15—6 og hafa þær ekki enn tapaö hrinu á mótinu í vetur. Síöari leik- urinn sem var viö KA vannst auð- veldlega 15—8, 15—8, og 16—14. í 2. deild karla voru tveir leikir um helgina og báöir í noröur riölin- um. Reynivík — sameiginlegt liö frá Reyni Árskógsströnd og Dalvík — sigraöi KA-b 15—2, 15—5, og 15— 0, og er gaman til þess aö vita aö ný liö í mótum standi sig svona vel. A-liö KA mátti hafa sig allt viö til aö sigra „öldungana" í Skauta- félaginu 15—9, 16—14, og 16— 14 uröu lokatölur leiksins. — sus. Ungmennafélagið Austri — Eskifirði óskar aö ráöa knattspyrnuþjálfara fyrir næsta sumar. Alla flokka. Umsóknarfrestur til 10. des. nk. Upplýsingar gefur Benedikt í síma 97-6463, vinnusími 97-6124. Valsmenn á leið til Brasilíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.