Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.11.1983, Blaðsíða 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 • David O’Leary hefur hér skallað frá í leiknum gegn Everton á Higbury á laugardag. Andy Gray, sem lék sinn annan leik meö Everton, lyftir honum uppl Gray skoraðí fyrsta mark sitt fyrir Everton. ' Morgunblaöiö/Símamynd AP. Efstu liðin unnu öll á laugardag: haföi tapaö 1:4 fyrir Manchester United á Old Trafford. Frank Stapleton var í miklum ham í leikn- um og skoraði þrennu. „Það var stórkostlegt aö skora þrjú mörk, en þaö var ekki eins mikilvægt og aö liöiö skyldi hafa unniö,“ sagöi Stapleton á eftir, hlédrægur aö vanda. Ron Atkinson var aö von- um ánægöur meö liö sitt, og þó sérlega meö Stapleton. „Hann hef- ur veriö meö boltann í allan dag þannig aö hann getur þess vegna fariö meö hann heiml" sagöi hann eftir leikinn er Frank var afhentur knötturinn sem leikið var meö. Frank skoraði tvö marka sinna í fyrri hálfleiknum og voru bæöi mjög falleg. Hann lagöi síöan upp þriöja mark United sem Bryan Robson skoraði á 72. mín. Staple- ton skoraöi svo sitt þriöja mark sjö mín. fyrir leikslok, en Nigel Call- aghan minnkaöi muninn er tvær mínútur voru eftir. Þess má geta aö Garth Crooks lék sinn fyrsta leik meö United en þótti ekki sína neitt sérstakt. Hann lék í staö Norman Whiteside. Áhorfendur: 43.111. „Stórskemmtilegt" „Þetta er sennilega besti leikur okkar til þessa á keppnistímabil- inu. Stórskemmtilegt. Áhorfendur hafa fariö ánægöir heim í dag," sagöi John Lyall, framkvæmda- stjóri West Ham, eftir aö liöiö haföi sigraö Sunderland á útivelli. Liö West Ham lék vel, og þaö geröi heimaiiöiö einnig. Dave Swindel- hurst skoraði eina mark leiksins á 82. mín. Eftir langt innkast þrum- aöi hann boltanum í markiö af stuttu færi. Áhorfendur: 19.921. Tvö víti í súginn og sex mörk Leikur Luton og Tottenham var stórskemmtilegur. Áhorfendur fengu aö sjá sex mörk og sókn- arknattspyrnan var í hávegum höfð eins og venjan er hjá þessum liöum. Glenn Hoddle skaut í stöng úr vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum og í þeim síöari varði Ray Clemence í Tottenham-markinu víti frá Brian Stein. Þrátt fyrir þetta vantaöi ekki mörkin. 18 ára nýliði hjá Totten- ham, Richard Cook, skoraöi fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik. Eftir aö Clemence haföi variö víta- spyrnu Stein í síöari hálfleiknum geröi Steve Archibald annaö mark Spurs (58. mín.) en Stein minnkaöi muninn á 63. mín. Archibald, sem hefur veriö óstöövandi síöustu vik- urnar, geröi annaö mark sitt og þriöja mark Tottenham og var þaö þrettánda mark hans á timabilinu. Paul Walsh skoraöi annaö mark Luton, og er þrjár mínútur voru eft- ir lagöi Archibald upp fjóröa mark Tottenham fyrir Alistair Dick, ann- fyrir leikslok, en brenndi af. Wolv- es hefur nú leikiö 19 leiki í röö án sigurs. Áhorfendur: 11.419. McDonagh hetjan á The Dell Justin Fashanu skoraöi fyrra mark Notts County gegn South- ampton meö þrumuskoti á 17. mín. en eftir þaö sótti Southamp- ton nær látlaust. Jim McDonagh, sem lék hér á Laugardalsvellinum í haust í marki fra, varöi mjög vel í marki County, og í fyrri hálfleikn- um varöi hann m.a. vítaspyrnu frá Kevin Moran. En þratt fyrir mikla pressu tókst Southampton ekki aö skora, og þaö var svo Trevor Christie sem skoraöi annað mark County meö skalla einni mín. fyrir leikslok. Þetta var fyrsti sigur Notts County í 12 leikjum. Áhorf- endur voru 15.009. Graham Rix átti mjög góöan leik meö Arsenal gegn Everton og lagöi hann upp bæöi mörk liösins í fyrri hálfleik. Alan Sunderland skoraöi þaö fyrra á 30. mín. og Stewart Robson geröi annaö markiö fimm mín, síöar. Andy Gray skoraöi sitt fyrsta mark fyrir Ever- ton úr vítaspyrnu þremur mín. fyrir leikhló, og þó aö vörn Arsenal væri ekki meö öruggara móti í seinni hálfleik tókst Everton ekki aö jafna. Áhorfendur: 24.330. Greg Downs skoraöi fyrsta mark sitt á keppnistímabilinu er Norwich vann WBA. Þrumuskot hans af 25 metra færi söng í netinu á 53. mín. Mark Barham gerði seinna markiö tíu mín. síöar. Áhorfendur: 13.368. Meiösli hjá Villa Skallamörk frá Peter Withe og Paul Rideout höföu komiö Aston Villa tveimur mörkum yfir gegn Leicester eftir 33 mínútur. Steve Lynex minnkaöi muninn úr víti á 44. mín. og þrátt fyrir aö Leicester sæktl mjög í seinni hálfleiknum tókst lióinu ekki aó skora. Gary Lineker fór illa meö nokkur mjög góð færi, en þaö var svo Steve McMahon sem skoraöi þriöja mark Villa á 70. mín. Gary Willi- ams, bakvöröur Villa, varð aö fara af velli vegna meiösla, og Allan Ev- ans meiddist einnig á ökkla. Hann lék þó meö síöustu mínúturnar, haltrandi. Áhorfendur: 19.024. Enn sigrar QPR á teppinu Glæsimark Mick Harford, sem lék nú meö Birmingham aftur eftir aö hafa slasast á dögunum, kom liöinu yfir QPR í London. Þrumu- skot hans af 25 m færi hafnaöi í markinu á 46. mín. Simon Stainrod jafnaöi 12 mín. síöar og Terry Fenwick, fyrirliöi Rangers, skoraöi sigurmarkiö meó skalla eftir hornspyrnu á 75. mín. Enn einn „Aldrei séð annað eins“ — sagði Joe Fagan um varnarleik Stoke á Anfield. „Franktastic“ Stapleton skoraði þrívegis í sigrinum á Watford Frí Bob Henne.iy, (réttsmanni Morgunblaé.in. í Englandi. „ÉG HEF aldrei séö neitt þessu líkt á þeim tuttugu órum sem hef staöiö í þessu,“ sagöi Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liverpool, á laugardaginn eftir leikinn við Stoke. Hann átti við leikaöferö Stoke-liðsins, en níu leikmenn liösins voru í eigin vítateig mest allan tímann staöráönir í aö verj- ast kröftuglega og ná jafntefli. Þaö tókst þó ekki. lan Rush skor- aði eina mark leiksins og tryggöi Liverpool sigur. í Manchester sigraöi Uníted Watford örugglega og skoraði Frank Stapleton sitt annaö „hattrick“ á ferlinum, en þaö er i fyrsta skípti sem hann gerir þrjú mörk í leik fyrir United. Ef viö snúum okkur aftur aö leiknum á Anfield þá voru yfirburö- ir Liverpool vitanlega miklir úti á vellinum vegna þess aö leikmenn Stoke hættu sér varla út fyrir víta- teiginn! Peter Fox, markvörður Stoke, átti stjörnuleik, og hélt liöi sínu á floti meö frábærri mark- vörslu. Einu sinni varö hann þó aö sækja knöttinn í netiö á 67. mín. er lan Rush skoraöi með fallegum skalla eftir fyrirgjöf Phil Neal. Rush skutlaði sér fram og skallaöi í net- iö. Veriö bara heimal Áhorfendur á Anfield voru 26.529. Þess má geta aö Richie Barker, framkvæmdastjóri Wolv- es, ráölagöi áhangendum Stoke fyrir ieikinn aö vera ekkert að hafa fyrir því aö fara til Llverpool og horfa á leikinn. Þeir gætu alveg eins veriö heima hjá sér, vegna þess aö þeir myndu ekki sjá neitt skemmtilegt hjá liði sínu. Staðráð- inn í aö ná markalausu jafntelfi, Barker. Eins og áöur sagöi var Joe Fagan, stjóri Liverpooi, mjög óhress eftir leikinn. „Það þarf tvö liö til aö hægt sé aö spila leik. Þaö er varla hægt aö segja aö svo hafi veriö í dag,“ sagöi hann. Ekki „fantastic“ „Franktastic“ „Stapleton hefur veriö besti miöherjinn í ensku knattspyrnunni síöustu fimm árin og hann sýndi okkur þaö svo sannarlega í dag. Hann er leikmaður í heimsklassa," sagöi Graham Taylor, stjóri Wat- ford, eftir aö hiö unga liö hans an 18 ára nýliöa í liöinu. Dick þessi er eldfljótur og skemmtilegur lelk- maöur. Þetta var fyrsta tap Luton á heimavelli í vetur. Áhorfendur voru 17.275. Eftir aö Terry Butcher haföi skoraö fyrir Ipswich á City Ground í Nottingham á 58. mín. skoraöi Forest tvívegis á jafæmörgum mín- útum. Gary Birtles jafnaöi á 70. mín. og síöan fékk liðið víti er Pet- er Davenport var brugöiö i teign- um. Colin Walsh tók spyrnuna. Skot hans fór i stöng, en Kenny Swain fylgdi á eftir og skoraöi. Áhorfendur: 14.979 Wolves haföi tapaö fjórum leikj- um í röö en náöi nú jafntefli gegn Coventry. Ekki skoraöi líöið þó. Steve Mardenborough fékk besta I marktækifæri liöslns fimmtán mín. sigur QPR á gervigrasinu í höfn. Áhorfendur: 10.824. Fjöldi á Hillsborough Sheffield Wednesday vann Newcastle 4:2 í aöalleik 2. deildar. Frábær leikur á Hillsborough, þar sem áhorfendur voru hvorki fleiri né færri en 41.134. Imre Varadi, sem Wednesday keypti frá New- castle fyrir keppnistímabiliö skor- aöi tvö mörk gegn sínum gömlu félögum, Cunningham geröi eitt og Gary Bannister eitt. Liverpool- leikmennirnir fyrrverandi, Terry McDermott og Kevin Keegan, skoruöu fyrir Newcastie. Mark Keegan var úr víti. Sheffield hefur nú leikið 18 sigurleiki í röó, 15 í deildinni og 3 í Mjólkurbikarnum. Liöiö er eina liöiö í deildarkeppn- inni án taps í vetur. SH.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.