Morgunblaðið - 11.12.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1983
57
segja það fyrir að þessar rann-
sóknir hans myndu nýtast á þenn-
an hátt. Það má því að vissu leyti
segja að grundvallarrannsóknir
geri hagnýtar rannsóknir mögu-
legar, að hagnýtar rannsóknir
byggist á grundvallarrannsókn-
um.
Grundvallarrannsóknir hafa
því, þegar allt kemur til alls, mik-
ið hagnýtt gildi. En þær hafa líka
annað gildi. Þær eru í rauninni ein
af stoðum menningarinnar, rétt
eins og listir, enda eru skilin á
milli lista og vísinda ekki alltaf
mjög glögg. Það er öllum mönnum
og þjóðfélögum eðlislægt að afla
sér þekkingar þekkingarinnar
vegna, að svala forvitni sinni með
leit og könnun."
— Er mikið um það að menn
stundi grundvallarrannsóknir hér
á landi?
„Það er ekki mikið, en þó eitt-
hvað. Sérstaklega í sambandi við
jarðvísindi og hafrannsóknir. En
fólksfæðin hér hefur valdið því að
flestir þeir sem stunda einhvers
konar rannsóknir eru að vasast í
allt of mörgum óskyldum hlutum.
Sem er mjög slæmt, því að til þess
að ná árangri á þessu sviði verða
menn eiginlega að hafa óendan-
lega mikið næði. Þessi verkefni
eru í eðli sínu langtímaverkefni,
sem menn verða að geta gefið sig
að óskiptir, árið út og árið inn.
Annað sem stendur rannsókn-
um hérlendis fyrir þrifum er hve
fáir eru í hverri grein. Það er eins
og það sé nauðsynlegt að hafa ein-
hvern hóp manna með sömu
áhugamál sem hægt er að ræða
við og vinna með. Það er kannski
helst í jarðvísindum sem slíkur
hópur er fyrir hendi.
Annars er það svo með grund-
vallarrannsóknir, að þær eiga yf-
irleitt alls staðar undir högg að
sækja þar sem þær eru stundaðar.
Þegar sú spurning kemur upp að
veija á milli rannsóknaverkefna,
verður það sterk freisting að gefa
hagnýtu verkefnunum forgang.
Það er sérstaklega mikil hætta á
þcssu á tímum eins og núna, þegar
farið er að þrengja að. Þá fer fólk
að líta á grundvallarrannsóknir
eins og hvern annan óþarfa. Og
sennilega er það rétt, að þegar til
mjög skamms tíma er litið, þá eru
grundvallarrannsóknir munaður.
En þegar til lengdar lætur eru
þær nauðsynlegar, bæði fyrir hag-
nýtar rannsóknir og sem hluti af
almennu menningarlífi þjóðar.“
— En þó að rétt sé að grund-
vallarrannsóknir séu nauðsynleg-
ar fyrir framgang hagnýtra rann-
sókna, þá virðist ekki leiða af því
að hver einasta þjóð þurfi að gera
út hóp fræðilegra vísindamanna
til að sinna slíkum rannsóknum.
Við vitum að ýmsar þjóðir eru
leiðandi í vísindum, Bandaríkja-
menn, Japanir, Rússar og fleiri, og
aðrar þjóðir nærast á þeim að
þessu leyti. Er nokkur þörf á því
að þjóð eins og íslendingar taki
virkan þátt í slíkum rannsóknum?
Erum við ekki of fá og févana til
að standa undir slíku? Verðum við
ekki að láta það duga að sækja
nýja þekkingu til útlanda?
„Vissulega sækjum við megin-
partinn af allri nýrri vísindalegri
þekkingu til annarra landa. En ef
við ætlum að hagnýta okkur þessa
þekkingu verðum við að kunna skil
á henni og geta aðlagað hana
okkar sérstæðu aðstæðum. Og það
getum við ekki nema við stundum
sjálfir svipaðar rannsóknir og tök-
um virkan þátt í þessari starfsemi
— annars vissum við hreinlega
ekki hvað við ættum að sækja til
útlendinganna. Þekking býr nefni-
lega ekki eingöngu i bókum og
skýrslum, heldur fyrst og fremst í
fólkinu sjálfu."
GPA.
„Lengi
getur gott batnað“
8. Sjálfvirk bakspólun.
9. Rakaskynjari.
10. Atta stööva minni.
11. Kvartz-stýröir mótorar.
12. Digital-teljari þannig aö
auðvelt er að skrá hvar
ákveöið efni er á mynd-
bandlnu.
13. Framhlaöiö, tekur minna
pláss.
14. Léttrofar sem eru sam-
hæföir.
15. Stærö:
Breidd 43,5 sm
Hæö 13,0 sm.
Dýpt 36,0 sm.
Góð greiösluKjör
Nýja Nordmende myndtækið hefur nú verið gert tiu sinnum
betra og var þó valið af stærri myndbandaleigum vegna
gæða og góðrar þjónustu.
STUTT
LÝSING:
1. Þráölaus fjarstýring gerir
öll hlaup óþörf, framtíðar-
þægindi.
2. Skyndi-upptaka ef mikiö
liggur á.
3. 14 daga upptökuminni
gefur mikla möguleika á
upptöku fram í tímann.
4. Læsanleg myndleit á ní-
földum hraöa fram og til
baka.
5. Góö kyrrmynd ef skoða þarf
nánar.
6. Rammi á eftir ramma-
kyrrmynd þannig aö hver
hreyfieining á eftir annarri
er möguleg, og þetta er aö
sjálfsögöu gert meö fjar-
stýringunni.
7. Sjálfvirk fínstilling á mót-
takara.
SKIPHOLTI 19
REYKJAVÍK — SÍMI 29800.
NORDMENDE