Morgunblaðið - 11.12.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1983
83
festi rætur innan eigin landa-
merkja. Það var ekki fyrr en
1951 sem kaþólskir fengu með
samþykki konungs að byggja sér
klaustur. Sérstakan kaþólskan
biskup yfir sig fengu Svíar ekki
fyrr en 1951. Á Islandi komu
nunnur af reglu Heilags Jósefs
sér upp klaustri rétt eftir alda-
mótin og biskup fengum vér fs-
lendingar í Landakot árið 1929.
Að þessu leyti stöndum vér því
miklu framar Svíum.
Annað sem maður rekur aug-
un í þegar maður kemur inn í
dómkirkjuna í Lundi er stór
hvelfdur kertastjaki með mörg-
um stæðum fyrir smákerti sem
hægt er að kaupa í framkirkj-
unni. Fólk kaupir sér þar kerti
og tendrar en hagnaðurinn renn-
ur til góðs málefnis.
Sá er ljósið tendrar hugsar
sitt, því þetta er þögul athöfn
sem ekki er skipulögð í helgi-
siðabókum kirkjunnar. En aug-
ljóslega minnir þetta á sið kaþ-
ólskra sem kveikja á kertum sín-
um með velferð dauðra ættingja
og vina í huga. Vera má að hinar
orðlausu og einstaklingsbundnu
trúarathafnir eigi sér dýpri ræt-
ur í almenningi en skipulögð trú-
arbrögð. Hver kannast ekki við
þá stemmningu sem lifandi
kertaljós veitir og þá einkum í
skammdeginu. Ljósi fylgir hátíð
og oft þögul íhugun um hluti
sem eru utan og ofan við verald-
arvafstur líðandi stundar.
Ljósið tengir ef til vill þá sem
lifa við látna vini og vandamenn.
Á jólum er hver krókur og kimi
kirkjugarða hér í Svíþjóð upp-
lýstur vegna þess að fólk keppist
við að setja upp ljós á leiði
vandamanna sinna. Sænskur
trúarlífsfélagsfræðingur hefur
sett fram þá kenningu að ljósið
sé hin nýja trú Svía sem oft fá
þá einkunn að vera trúlausastir
allra Evrópuþjóða.
Sá sem kæmi til Svíþjóðar og
dveldi aðeins fyrsta mánuð
kirkjuársins þ.e.a.s. í desember
mundi ekki sannfærast um það.
Á fyrsta sunnudag í aðventu hef-
ur orðið vinsælt að fara í kirkju
og jólin eru haldin hátíðleg í
kirkjunum meira og minna allan
mánuðinn. Vinsælasta messan
er þó sjálf jólamessan kl. 8 á
jóladagsmorgun (þess vegna
kölluð Julottan).
Skólar í
Keflavík
fá nýtt nafn
GRUNNSKÓLA Keflavíkur við
Sunnubraut hefur nýlega verið gefið
nafnið Holtaskóli og skólinn við Sól-
vallagötu mun í framtíðinni heita
Myllubakkaskóli.
Skólanefnd gerði tillögur um
þessar nafngiftir í fyrrasumar og
nú hefur Ragnhildur Helgadóttir
staðfest þær.
Sterxmog
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
2fl*rgxmX>Iíifcií>
I» [i|;
V / 11. LlIj —\ k | 'húsgögn J1 Ármúla 44, sími 32035 4^5
KRISTJÁn
f kSw SIGGEIRSSOn HF.
^ J LAUGAVEGl 13. REYKJAVIK. SIMI 25870
Opiö á fimmtudögum til kl. 21, á
föstudögum til kl. 19 og til hádegis
á laugardögum.
„Þú reistir tnig upp”, frábær hljómplata með Anne og
Garðari, ásamt Magnúsi Kjartanssyni og úrvali
sænskra tónlistarmanna.
Hljóðritunin var gerð í einu fremsta hljóðveri
Norðurlanda.
Á plötunni eru þrettán lög, þar af fjögur, sem eiga
einkar vel við um jólin!
rílADELTlA
FORIAG