Morgunblaðið - 11.12.1983, Síða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1983
Erum fluttir
í þjónustu-
og verslanamiðstöðína
í nyja miðbænum
við Eíðistorg.
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖLL WÓNUSTA
Eiðistorgi 17, Seltjarnarnesi. sími 29966
fttmgniitiMftttfe
Askriftarshninn er 83033
Hafnarfjörður:
Afmælishátíð
í Fríkirkjunni
Afmælishátíöahöld verða í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag, sunnu-
dag, vegna sjötíu ára afmælis kirkj-
unnar. Hefjast þau á barnasam-
komu í kirkjunni kl. 10.30.
Hátíðarguðsþjónusta verður kl.
14.00. Þá lesa aldnir Hafnfirð-
ingar, sem verið hafa í söfnuðin-
um frá upphafi, ritningarorð og
bæn, eru það þau Jensína Egils-
dóttir, Helga Thordarsen, Lárus
Guðmundsson og Sigurður Krist-
jánsson. Kór kirkjunnar syngur
undir stjórn Jóhanns Baldvins-
sonar organleikara en einnig leik-
ur hópur ungra hljóðfæraleikara
við messuna. Sr. Jón Helgi Þór-
arinsson safnaðarprestur prédikar
og annast altarisþjónustu ásamt
sr. Bernharði Guðmundssyni. Þá
mun Sigurgeir Guðmundsson, sem
einna kunnugastur er sögu kirkj-
unnar, rekja helstu þætti hennar.
Að messu lokinni verður kaffi-
drykkja í Félagsheimili iðnaðar-
manna við Linnetsstíg.
Aðventukvöld hefst síðan í
kirkjunni kl. 20.30. Formaður
safnaðarstjórnar flytur þar ávarp
og Hörður Áskelsson, sem eitt
sinn var organleikari safnaðarins,
mun segja frá jólaundirbúningi og
jólasiðum og kenna jólasöngva.
Pétur Jónasson leikur á gítar, Est-
er Kláusdóttir les jólafrásögn og
tveir kórar syngja. Kór Flensborg-
arskóla undir stjórn Hrafnhildar
Blomsterberg og Fríkirkjukórinn
sem Jóhann Baldvinsson stjórnar.
Auk þess verður mikill almennur
söngur. Aðventukvöldinu lýkur
með helgileik sem fermingarbörn
vorsins flytja.
(0r fréílatilkynninKu.)
Þurrkublöð
og armar
fyrir flesta bíla. Rúöu-
sprautudælur. Þurrku-
mótorar, 12—24 v, fyrir
jeppa og tæki.
Wterkurog
k./ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
JHargttnfcla&iíí