Morgunblaðið - 11.12.1983, Page 30

Morgunblaðið - 11.12.1983, Page 30
78 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1983 Morgunblaðið/ Krístján Örn Stigarnir á Grensásvegi 11 eru Jóni töluverð þrekraun og tekur það hann nokkurn tíma að komast upp hvern og einn. Fyrir rúmlega sjö árum varð Jón Sigurðsson, þá bóndi í Úthlíð í Bisk- upstungum, fyrir því slysi að heyhlaði hrundi yfir hann er hann var við gegningar, og lam- aðist Jón nær algerlega vegna sköddunar á mænu. Þannig var útlitið heldur dökkt er hann út- skrifaðist af spitala og gat vart hrært legg né lið. Jón lagði þó ekki árar í bát og er honum varð ljóst að hann væri ófær um að stunda búskap framar afréð hann að ganga menntaveginn og hugði á háskólanám þó undirbúning hefði hann nær engan. „Ég bjó félagsbúi í Úthlíð með bróður mínum, en þarna var maður fæddur og uppal- inn. Við höfðum 400 ær og 25 kýr, eitthvað 10 hross og svo hænsni, hunda og ketti svo allt sé talið,“ sagði Jón Sigurðsson í upphafi samtals okkar. — Það má eiginlega segja að ég hafi orðið fórnariamb vélvæð- ingarinnar. Við fórum út í það að vélbinda allt hey til að spara vinnu við gegningarnar. Eitthvað hlýt ég að hafa leyst ógætilega því eitt sinn er ég var að gefa hrundi heystæðan yfir mig í hlöðunni. Ég gerði mér alls ekki ljóst hversu alvarlega ég var slasaður fyrst í stað. Ég lá í Borgarspítal- anum í eitt og hálft ár en þaðan fór ég svo í endurhæfingu á Reykjalund og var þar næstu 6 ár- in. Þar er maður búinn að ganga í gegnum strangan skóla og taka sjálfum sér mikið tak. Þegar ég kom á Reykjalund var ég alveg máttlaus — ég hafði aðeins hálf- Endurhæfíngin verður ekki metin tíl tjár Rætt viö Jón Sigurðs- son sem lamaðist nær algjör- lega vegna vinnuslyss fyrir sjö árum en stundar nú háskólanám tíma setuþol í hjólastól og var of máttlaus til að fletta dagblaði. Er ekki töluvert erfitt að fara í gegnum endurhæfingu sem þessa? — Jú, það er sko erfitt karl minn. Ef til vill hefur það bjargað mér að ég gerði mér alls ekki grein fyrir því hversu alvarlegt þetta var með mig. Ég hélt jafnvel að einhverntíma myndi ég ganga út alheill og gæti farið að stunda búskapinn aftur. Það sem mér þótti hvað verst var að komast ekki út í náttúruna — umhverfi Reykjalundar er fallegt og það var ómögulegt að hugsa til þess að maður gæti ekki komist uppá fjöllin þarna í kring. Satt að segja held ég að læknar hafi alveg verið búnir að afskrifa mig, og talið að endurhæfing myndi ekki skila neinum árangri. Ég fór hins vegar út í endurhæf- inguna með trú á sjálfan mig og fljótlega fóru að koma fram hreyf- ingar sem ekki höfðu verið til staðar áður. Þessar nýju hreyf- ingar komu alltaf fram í sund- lauginni og má segja að hún hafi verið mín heilsulind. Eftir eitt og hálft ár á Reykja- lundi fékk ég vinnu á skiptiborð- inu þar. Þá hafði ég 2—3 klst. setuþol í hjólastólnum — það kostar gífurlegt erfiði að ná upp setuþoli og verður enginn óbarinn biskup hvað það varðar, skal ég segja þér. Mestu framfarir í endurhæfingunni hafa komið síð- ustu tvö árin á Reykjalundi og tók ég þá svo miklum framförum, að ég fór að hugsa mér til hreyfings. Það mætti vel koma fram í við- talinu hversu miklu endurhæfing- SEM KUNNA SITT FAG og hafa úrvals starfsfólk, sem ávallt er tilbúið til þjónustu. Þér er óhætt að leita til þeirra. BIFREIDADEILD SAMBANDSINS VERKSTÆÐI HÖFÐABAKKA 9 SIMI 85539i GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM. Guðbrandur, Guðmundur Helgi og Kristinn Helgi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.