Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 1
88 SIÐUR MEÐ AUGLYSINGABLAÐI FRÁ ERNIOG ÖRLYGI
STOFNAÐ 1913
286. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
RíkisfjölmiÖlarnir
úthúða Lech Walesa
Lech Walcsa lygnir hér aftur augum þegar hann hlýöir á beina útsendingu
frá afhendingu friöarverölauna Nóbels í Osló, þar sem kona hans veitti þeim
viötöku. Útscndingin var á pólsku og hlustaði Walesa á hana ásamt öörum í
kirkju heilagrar Brigidu í Gdansk. Símamynd AP.
Varsjá, 12. desember. AP.
LECH Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu, fagnaði í dag Danutu
konu sinni og elsta syni þeirra
þegar þau komu heim frá Ósló
með friðarverðlaun Nóbels.
Ríkisfjölmiðlarnir pólsku réö-
ust mjög harkalega að Lech
Walesa í dag.
Pólska lögreglan var við öllu
búin þegar Danuta og sonur
hennar komu til Varsjár og var
flugvallarins stranglega gætt
af sérþjálfuðum sveitum
óeirðalögreglumanna. Þegar
Walesa hafði fagnað konu sinni
og syni héldu þau strax af stað
til Czestochowa í Suður-Póll-
andi en Walesa ætlar að gefa
mesta helgidómi Pólverja Nób-
elsverðlaunapeninginn, Hinni
svörtu madonnu í klaustrinu í
Jasna Gora. Verðlaunaféð, sem
er um fimm og hálf milljón ísl.
kr., ætlar hann hins vegar að
láta renna til kaþólsku kirkj-
unnar og aðstoðar hennar við
sjálfseignarbændur í Póllandi.
Stjórnvöld í Póllandi réðust í
dag mjög harkalega á Walesa
fyrir að hafa hvatt ríkisstjórnir
á Vesturlöndum og einkum
Bandaríkjastjórn til að láta af
refsiaðgerðum gegn Pólverjum.
Sögðu pólsku stjórnarmálgögn-
in, að Walesa væri að reyna að
bjarga „misheppnuðum" að-
gerðum Bandaríkjastjórnar.
Dollarinn stígur enn
London, 12. desember. AP.
SPRENGINGARNAR í Kuwait í
morgun ollu í dag gengishækkun á
dollarnum gagnvart vestur-evr-
ópskum gjaldmiðlum og hefur
gengi hans vart verið hærra í ann-
an tíma. Vestur-þýski seðlabank-
inn seldi í dag 140 milljónir doll-
ara til aö styrkja gengi marksins.
Þegar fréttist um spreng-
ingarnar í Kuwait hækkaði
gengi Bandaríkjadollars eins og
jafnan þegar einhvers óróleika
gætir í alþjóðamálum. Peninga-
eigendur telja þá dollarann ör-
uggustu fjárfestinguna, öfugt
við það, sem áður var þegar gull-
ið var álitið tryggast. Dollarinn
hefur verið að hækka að undan-
förnu og stafar það ekki síst af
því, að vextir eru taldir munu
verða stöðugir í Bandaríkjunum
næsta misserið a.m.k.
„Heilagt stríö“ að baki
hryðjuverkum í Kuwait
Sömu samtökin og myrtu á fjórða hundrað bandarískra og franskra gæsluliða í Beirút
Kuwait, 12. desember. AP.
VÖRUBIFREIÐ, sem hlaöin var
sprengiefni, var í morgun ekið í
gegnum lokaö garöhliö viö banda-
ríska sendiráöiö í Kuwaitborg og
sprengd í loft upp á sendiráöslóö-
inni. Fimm aörar bifreiöir sprungu
skömmu síöar annars staðar í borg-
inni. Þegar síðast fréttist voru fimm
menn látnir og 64 höföu slasast.
Kasparov vann
í 30 leikjum
London, 12. deMember. AP.
GARY Kasparov vann í kvöld ní-
undu skákina í einvíginu við Viktor
Korchnoi og hefur nú tveggja vinn-
inga forskot. Viröist nú fátt geta
koraið í veg fyrir sigur hans.
Staðan er nú þannig, að Kasp-
arov hefur fimm og hálfan vinning
en Korchnoi þrjá og hálfan og
þarf Kasparov aðeins að fá einn
vinning enn til að bera sigur úr
býtum. Skákin í dag stóð aðeins í
fjóra tíma og gafst Korchnoi upp
eftir að Kasparov hafði leikið sín-
um 30. leik. Þykir Korchnoi hafa
sýnt slaka taflmennsku í síðustu
skákunum og komið jafnvel á
óvart með undarlegum leikjum.
Sjá nánar á miöopnu.
Hringt var á erlendar frétta-
stofur í Kuwaitborg í dag og sagt,
að samtökin „Heilagt stríð" bæru
ábyrgð á sprengingunum. Það eru
sömu samtökin og kváðust hafa
staðið að baki sprengingunum í
Beirut þegar nærri 300 franskir og
bandarískir hermenn létu lífið.
Auk bandaríska sendiráðsins urðu
sprengingar í dag við franska
sendiráðið, við raforkuver, við
stjórnturninn á flugvellinum í
Kuwait, við verksmiðju í borginni
og við aðsetur bandarísks sendi-
ráðsfólks nokkuð fyrir norðan
borgina.
Að sögn vitna sprakk vörubif-
reiðin, sem stefnt var gegn banda-
ríska sendiráðinu, strax eftir að
hún var komin í gegnum hliðið og
áður en hún náði að húsinu sjálfu.
í hinum tilfellunum hafði sprengj-
unum verið komið fyrir í kyrr-
stæðum bílum. Tveir menn voru í
bílnum, sem sprakk við banda-
ríska sendiráðið, og lést annar
samstundis en hinn þeyttist út úr
bilnum og er nú á sjúkrahúsi
þungt haldinn.
Yfirvöld í Kuwait brugðust
mjög skjótt við eftir spreng-
ingarnar og hafa „óopinberlega"
bannað fólki frá ýmsum öðrum
Arabaríkjum að yfirgefa landið.
Vegatálmum hefur verið komið
upp víða og er mikið eftirlit í
borginni.
George P. Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sem nú
er staddur í Lissabon, höfuðborg
Portúgals, sagði í dag um spreng-
ingarnar, að þær væru staðfesting
á „ískyggilegri aukningu" hryðju-
verka víða um lönd og kenndi
hann um ónefndum ríkisstjórnum.
Ríkisstjórnir víða í Arabaheimin-
um hafa fordæmt sprengingarnar
mjög ákaflega.
„Ótímabær
játning“
('bester, Englandi, 12. desember. AP.
MAÐUR nokkur í Chester í
Englandi, sem í vor er leiö játaöi
að hafa myrt konu sína fyrir 20
árum, hefur dregiö játninguna til
baka. Gerði hann það þegar í Ijós
kom, að sönnunargagnið var
ekki tveggja áratuga gamalt eins
og raenn höföu haldið heldur
1500 ára.
f maí í vor þegar verið var að
vinna að byggingarfram-
kvæmdum rétt við sumarhús
manns að nafni Peter Reyn-
Bardt kom hauskúpa upp með
greftinum. Verkamönnunum
datt í hug að sýna húseigandan-
um kúpuna og varð honum þá
svo mikið um, að hann játaði
umsvifalaust að hafa fyrir tutt-
ugu árum myrt konu sína,
brytjað líkið og brennt og grafið
leifarnar á umræddum stað.
„Það er svo langt um liðið og
mér datt ekki í hug, að upp um
mig kæmist," sagði Reyn-Bardt.
Að sjálfsögðu var höfðað mál
á hendur Reyn-Bardt og haus-
kúpan, aðalsönnunargagnið í
málinu, rannsökuð nánar af þar
til bærum sérfræðingum. Kom
þá í ljós, að hauskúpan var 1500
ára gömul, líklega frá árinu 410
þegar rómverskt herlið hafði
aðsetur á þessum slóðum. Þegar
Reyn-Bardt komst að þessu var
hann ekki seinn á sér að taka
játninguna aftur. Málið gegn
honum er hins vegar rekið
áfram og bíða nú margir
spenntir eftir niðurstöðunni.
Lögreglumenn eru hér aö kanna skemmdirnar á lóö bandaríska sendiráðsins í Kuwait eftir aö vörubifreið hlaðin
sprengiefni haföi sprungiö þar í loft upp. Fimm aðrar sprengjur sprungu í borginni skömmu síöar og munu a.m.k.
fimm manns hafa farist og yfir sextíu slasast. Símamynd ap