Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
23
Þróttarar efstir
HK SIGRADI Fram í 1. deild karla
í blaki um helgina, 3—2, í nokkuð
fjörugum leik. í kvennaflokki lóku
ÍS og UBK tvo leiki í síöuatu viku
og skiptu þau meö sér stigunum
úr þeim viðureignum. Þróttur
sigraði ÍS 3—0 í karlaflokki og
uppgjöri Kópavogsliöanna í 2.
deildinni lauk með 3—0 sigri
HK-b.
Leikur HK og Fram var nokkuö
fjörugur og ágætlega leikinn. Fram
vann fyrstu hrinuna 15—8, en HK
svaraöi meö 15—10. Þriöja hrinan
var eldfjörug og var jafnt á öllum
tölum upp í 13—13, en þá tókst
Fram aö fá tvö stig í röð og vinna
15—13. Næstu tvær hrinur vann
HK síöan 15—9 og 15—6, en þá
virtist allt baráttuþrek úr leik-
mönnum Fram. Bæöi liöin léku vel
og þaö sem var aöaliö hjá þeim í
þessum leik var hávörnin en hún
var mjög góö hjá þeim. Bestur í liöi
Fram var Ólafur Traustason og
einnig átti Haukur ágætan dag í
sókninni og Sveinn í vörninni. Hjá
HK voru Hreinn og Haraldur Geir
bestir og voru þeir sérstaklega
óárennilegir þegar þeir voru báöir
fram viö net í hávörninni.
Leikur Þróttar og (S stóö ekki
lengi yfir, því Þróttarar áttu ekki í
teljandi erfiöleikum meö liö ÍS sem
hefur ekki náö sér á strik í vetur.
15—8, 15—10 og 16—14 uröu
lokatölurnar, en í síöustu hrinunni
komust stúdentar í 12—4 og
14— 7, en Þrótti tókst aö vinna
upp þennan mun og sigra.
Stúdínur og Breiöablik léku tvo
leiki í vikunni og skiptu þau meö
sér stigum í þessum leikjum. iS
vann fyrri leikinn, 3—2, en í þeim
seinni sigraöi UBK, 3—2. i báöum
þessum leikjum komst hiö unga liö
UBK í 2—0, en ÍS tókst aö vinna
þaö forskot upp í fyrri leiknum, en
í þeim seinni tókst Breiöabliki aö
knýja fram sigur. Úrslit í seinni
leiknum uröu 15—10, 15—9,
12—15, 13—15 og 15—7.
i 2. deild karla léku Kópavogs-
liöin HK-b og UBK og lauk þeirri
viöureign meö öruggum sigri HK
15— 8, 15—7 og 15—9 og var þaö
mest fyrir frábæran leik Páls
Ólafssonar, en hann er þjálfari hjá
liðinu og er nú aö ná sér í sitt fyrra
form og mun þá væntanlega leika
meö A-liöinu eftir áramótin.
— sus
Heimsmeistarakeppni félagsliða:
Renato skoraði
tvö gegn HSV
- enn einu sinni vann Suður-Ameríkuliðið
„ÉG VIL ekki vera að afsaka tap-
ið, en verð þó að segja að leik-
menn mínir voru mjög þreyttir
eftir flugið hingað og fæstir
þeirra gátu nokkuð sofið á
laugardagsnóttina," sagöi Ernst
Úrslit frá
upphafi
Úrslit í heimsmeistarakeppni
félagsliða frá upphafi
hafa veriA sem hér segir:
1960 Real Madrid —
Penarol Montevideo 0—0, 5—1
1961 Penarol Montevideo —
Benfica 0—1, 5—0, 2—1
1962 FC Santos —
Benfica 3—2,5—2
1963 FC Santos
— AC Mílano 2—4, 4—2, 1—0
1964 Internazionale Milano —
Ind. Buenos Aires 0—1, 2—0,1—0
1965 Internazionale Milano —
Ind. Buenos Aires 3—0, 0—0
1966 Penarol Montevideo —
Real Madrid 2—0, 2—0
1967 Racing Buenos Aires —
Glasgow Celtic 0—1, 2—1, 1—0
1968 Estudiantes de la Plata —
Manchester United 1—0, 1—1
1969 AC Milano —
Estud. de la Plata 3—0,1—2
1970 Feyenoord Rotterdam —
Estud. de la Plata 2—2, 1—0
1971 Nacional Montevideo —
Panathinaikoa Athens 1—1, 2—1
1972 Ajax Amsterdam —
Ind. Buenos Aires 1—1, 3—0
1973 Juventus Turin —
Ind. Buenos Aires (í Róm) 0—1
1974 Atletico Madrid —
Ind. Buenos Aires 0—1, 2—0
1975 Ekki leikið
1976 Bayern MOnchen —
Cruz. Belo Horisonte 2—0, 0—0
1977 Boca Juniors —
Bor. Mönch.gladb. 2—2, 3—0
1978 Ekki leikiö
1979 Malmö FF —
Olimpía Paraguay 0—1, 1—2
1980 Nacional Montevideo —
Nott. Forest ({ Tókýó) 1—0
1981 Liverpool —
Fl. Rio De Janeiro (í Tókýó) 0—3
1982 Penarol —
Aston Villa (í Tókýó) 1—0
1983 Gremio —
HSV (í Tókýó) 2—1
Happell, þjálfari Evrópumeistara
Hamburger SV, eftir að liöið hafði
mætt Gremio frá Brasilíu í Tókýó
á sunnudag í leik liöanna um titil-
inn heimsmeistari félagsliöa.
Suður-Ameríkumeistararnir unnu
2:1 eftir framlengingu.
Hamburger kom ekki til Tókýó
fyrr en á föstudagskvöld eftir níu
klukkutíma flug. Gremio kom á
miövikudaginn — liöiö var reyndar
fjörutíu tíma á leiöinni — og haföi
góöan tíma til að undirbúa sig fyrir
leikinn.
Ftenato, útherji Gremio og bras-
ilíska landsliðsins, skoraöi fyrsta
mark leiksins á 37. mín. eftir aö
hafa einleikið í gegnum vörn Evr-
ópumeistaranna. Varnarmaöurinn
Michael Shroder jafnaöi þegar
fimm mín. voru eftir. Hann skoraöi
af stuttu færi eftir sendingu Wolf-
ram Wuttke.
Sigurmarkiö geröu Renato,
hans annaö mark t leiknum, á 93.
mínútu: þriöju mínútu framleng-
ingarinnar. „Ég mun aldrei gleyma
þessum tveimur mörkum sem ég
geröi í dag,“ sagöi hann eftir leik-
inn. „Ég mun örugglega vinna fleiri
titla og skora fleiri mörk, en þetta
eru mín fyrstu mörk í stórleik sem
þessum.“ Renato var kjörinn besti
maöur leiksins og hlaut hann Toy-
ota-bifreiö í verölaun, en Toyota-
fyrirtækiö stendur fyrir þessari
keppni. Hann sagöi aö leikmenn
Gremio haföi veriö búnir aö
ákveöa þaö aö ef einhver úr liöinu
fengi bifreiöina, yröi hún seld og
fénu skipt á miili þeirra.
Morgunblaöiö/Skapti
Felix Magath og félagar urðu að
sætta sig viö tap í Tokyo.
Stuttgart í efsta sæti
eftir fyrri umferðina
Fyrri umferöinni í vestur-þýsku
„Bundesligunni" í knattspyrnu
lauk um helgina. Þegar leikmenn
liðanna halda í jólafrí hefur liö
Stuttgart forystu í deildinni og
hefur hlotiö 25 stig, einu stigi
meira en Bayern MUnchen. Ekk-
ert liö hefur betra markahlutfall
en Stuttgart, sem hefur skoraö 36
mörk og fengið aöeins á sig 15.
Þaö er líka athyglisvert að liðið
hefur aöeins tapað tveimur leikj-
um af 17. Útlitið er því mjög bjart
fyrir Stuttgart því aö á undan-
förnum 20 árum hefur það liö
sem veriö hefur í forystu eftir
fyrri umferðina náð að sigra í
deildinni og hreppa hinn eftir-
sótta meistaratitil.
Bayern Munchen náöi aðeins jafn-
tefli, 1 — 1, á útivelli gegn B-Úrd-
ingen og er í ööru sæti meö 24
stig. Það var Karl Heinz Rummen- •
igge sem skoraöi mark Bayern á
82. mínútu leiksins og jafnaöi leik-
inn. Peter Loontiens skoraöi mark
heimaliösins á 11. minutu viö mik-
inn fögnuö þeirra 21 þúsund áhorf-
enda sem fylgdust með leiknum.
Werder Bremen vann stórsigur,
4—0, á Eintracht Braunsweig á
heimavelli sínum. Og var þaö 30.
heimaleikur liösins í röö án þess
aö tapa. Uwe Reinders skoraöi á
21. min. Okudera á 36. og Norbert
Meier á 36. og 38. minútu. Werder
lék mjög vel og heföi veröskuldað
stærri sigur. Eitthvaö er Fortuna
Dusseldorf farið aö lækka flugiö
því aö liöiö náöi ekki aö sigra
Bochum á heimavelli sinum um
helgina. Leiknum lauk meö jafn-
tefli, 1 — 1. Dusseldorf er nú í sjötta
sæti í deildinni meö 21 stig. En
eins og sjá má á töflunni hér aö
neöan er staöa eftu liöa mjög jöfn
og baráttan um fimm efstu sætin
veröur án efa mjög spennandi. Því
aö mjög litiö skilur á milli.
Staðan
VFB Stuttgart
Bayern MUnchen
Bor. M.gladb.
Werder Bremen
Hamburger SV
Fort. DUsield.
BayerLeverkusen
1 FC Kðln
Bayer Uerdingen
Arm. Bielefeld
Mannheim
1 FC K.lautern
VtL Bochum
E. Braunschweig
Bor. Dortmund
Kick. Otfenbach
Eintr. Frankfurt
1 FC NUrnberg
17 10 5 2 36:15 25
17 10 4 3 30:15 24
17 9 5 3 26:21 23
17 9 4 4 34:17 22
17 9 4 4 30:19 22
17 8 5 4 39.22 20
17 8 4 5 31:22 20
17 7 3 7 33:25 17
17 6 5 6 31:33 17
16 6 4 6 22:25 16
16 5 5 6 2127 15
17 6 3 6 34:36 15
17 5 4 8 30:38 14
17 6 1 10 28:40 13
17 4 4 9 21:35 12
17 4 2 11 24:53 10
17 1 7 9 18:36 9
17 4 1 12 23:42 9
Úrslit leikja
í V-Þýskalandi
Úrslit leikja í V-Þýskalandi:
Werder Bremen — Eintracht Braunschweig
1 FC Kaiserslautern — Eintracht Frankfurt
Borussia Dortmund — FC NUrnberg
Bayern Uerdíngen — Bayern MUnchen
Armenia Bielefeld — Bor. Mönchengladbach
Fortuna DUsseldorf — VFL Bochum
SV Waldhof Mannheim — Kickers Offenbach
4—0 (3—0)
1—0 (1—0)
3—1 (0—0)
1—1 (1—0)
2—2 (1—0)
1—1 (0—0)
2—0 (1—0)