Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983 37 ekki. Þá sem svo hugsa biö ég aö ryðja burt slíkum þönkum og leggja eyrun við tali manna. Þeir ættu að hlusta á útvarp eða sjón- varp eða viðmælendur sína, reyna að gera sér grein fyrir því hvað fólk segir þegar það talar. Þannig má með glöggu eyra og athygli komast að því hvað verður um orðin þegar þau hrjóta af vörum. Þegar að er gætt er ef til vill ekki svo óskaplegur munur á frönsku og íslensku hvað þetta áhrærir. Furðulítið samband virðist vera milli hins ritaða orðs og þess tal- aða. Er þá ekki eðlilegt að útlend- ingum geti gengið erfiðlega að „ná valdi“ á íslenskunni? í samtalinu, dæminu um nú- tímaframburð, er að vísu nokkuð langt gengið. Þarna er hrúgað saman mörgum smáum brotum og ég er ekki viss um að geta fundið einhvern sem talar nákvæmlega svona. Hitt má vera ljóst að öll þessi fyrirbæri sem á blaði líta út eins og orð á fjarskyldu furðumáli koma fyrir í íslensku nú á dögum. Nú má í sjálfu sér segja að þetta, að íslenskan skuli vera orð- in eins og hér er lýst, sé einfald- lega þáttur eða skref á þróunar- braut málsins. ÖU málþróun sé í þá átt að gera mál einfaldara, auð- veldara í meðförum. Þetta sé því jafneðlilegt og að enginn ber fram n í nafninu Finnbogi nema að vísu þegar menn vanda sig sérstaklega. Á eðlilegu máli heitir hann Fimmbogi (5bogi). Málvöndunar- og málverndar- mönnum er eiginleg nokkur íhaldssemi og því tel ég margt í kaflanum hljóti að teljast öðru lakara, jafnvel verulega slæmt. Hér kemur nefnilega fram það sem ég tel miklu meira um vert að hyggja að en að freista þess að gera þjóðina harðmælta. Hér á ég við mesta vandamál nútímaís- lenskunnar, ónákvæmni og lat- mælgi í allri framsögn. Það að fólk skuli komast upp með að sulla út úr sér orðarunum sem eru svona nokkurn veginn í átt við það sem segja skal, jafnvel svo þvöglu- lega og letilega að vandræði eru að skilja. Ég mæli því alls ekki bót að fólk flytji mál sitt í stökum, af- mörkuðum orðum, en er ekki helsti langt gengið þegar Hvað ætl- arðu að gera á eftir verður Kvattlara geráttir? Nýbreytni og tíska Enda þótt almenn latmælgi (málleti) sé slæm, bjóði heim þeirri hættu að við fjarlægjumst upprunann hraðar og meir en gott má telja, er við fleiri alvarleg vandamál að etja í nútímafram- burði. Þar má fyrst nefna áherslu- rugling, greinileg erlend áhrif þar sem aðaláhersla, sem hingað til hefur verið á fyrsta atkvæði, er flutt á annað, þriðja eða jafnvel eitthvert atkvæði enn aftar í orði. í útvarpinu er talað um kjararýrn- un, Búnaðarbankann, vindurinn á Keflavíkurflugvelli er suðaustan sjö eða norðvestan fjórir og þar er jafnvel sjólítið. Hér eru feitletrað- ir þeir hlutar orðanna sem fá aðal- áherslu og þess vegna er þetta rangt mál, ef höfð er hliðsjón af þeim reglum sem í gildi eru. Sama er að segja um þá tísku í kirkjum að varðveita, upplyfta og þar sem guð er almáttugur. í prestamáli gætir einnig þeirrar áráttu að rugla áherslum í setningum þegar sagt er guð blessi þig eða jafnvel guð geymi þig. Sögnin er þá höfð með sterkri áherslu (stokkið á hana) en gerandi og þolandi nær áherslulausir. Enn eitt einkenni nútímamáls, oft bundið stéttum, er undarleg sönglandi sem sker sig úr eðlilegri framsögn. Má ég enn benda prest- um á einkenni í þeirra fari margra? Þeir temja sér sérstakt lestrarlag sem að vissu leyti er í líkingu við eintóna upplestur skólabarna. Munurinn er þó sá að þeir lækka röddina við lesmerki eða málhlé heldur minna en skóla- börnin, um fjórðungstón eða svo. Garðyrkjufræðingur útvarpsins hækkar röddina hins vegar ævin- lega sem þessu nemur við setn- ingalok. Plötusnúðar og ýmsir dagskrár- gerðarmenn í útvarpi sem sjá um dægurflugnaþætti hafa tekið upp sérstakan söng í kynningum sín- um. Þetta er útlent hljómfall, lært af erlendum þulum og snúðum. Röddin hefst og hnígur eins og öldurót. Hver málsgrein, jafnvel setning, hefst með skærum rómi sem dýpkar hratt og gutlar á smá- öidum út að leshléi. Þetta er svo endurtekið æ ofan í æ, eins og blessað fólkið sé að syngja, en kunni bara eitt lag. Þetta minnir vissulega á Flugleiðaframburðinn, sem trúlega er gleggst að sýna á mynd: hljómfallið, er framandi. Nær endalaust má tína fram dæmi um villur og ónákvæmni í máli fólks, ekki síst þess sem hef- ur að starfi að tala, lesa og til- kynna. Miðvikudagur heitir oftast miðkudagur eða mikudagur. Á dassgrá útvarps eru enn lög unga fólsins. Það fer varla framhjá neinum þegar Agnisingar hljóta nídjo níu stig gegn þrádío tvem stigum Kebblínga (restina lekur svo Þróttur). Bæði forseti vor og biskup kalla okkur ævinlega íss- í, þess vegna heyrist Þissgaland, flittu óér, biddettir mér, Irr-land (og ef til vill Iss-land). Og fyrir skemmstu heyrði ég prest fara með orðið kjarr-leikur. Að lokum Ég vænti þess að lesendur mín- ir, ef einhverjir hafa enst til að lesa greinina alla, hafi tekið eftir þeim skoðunum mínum að: 1) Samræmdur framburður skv. kenningum dr. Björns Guðfinns- sonar er tæplega æskilegur og trú- lega óframkvæmanlegur draumur. er ekki kennt að lesa eða tala, en það er sök menntakerfisins sjálfs, ekki kennaranna. 4) Alvarlegasti vandinn í íslensku nútímamáli er það virðingarleysi fyrir málinu sem birtist í alls kyns ónákvæmni og málleti. 5) Þetta síðastnefnda ætti að verða viðfangsefni fræðimanna og ég efast ekki um að þeir geta lagt á ráð til úrbóta. Ég læt að lokum í ljósi þá von að íslenskum menntamálayfirvöldum beri gæfa til að veita fé til þeirra nútímamálsrannsókna sem þeir Höskuldur Þráinsson og Kristján Árnason hafa með höndum. Ég vona líka að þeir láti ekki við það sitja að athuga einstök hljóð eða einangruð smáatriði, heldur rann- saki málið, bæði orðin og setn- ingarnar og framburð í samhengi. Megi starf þeirra leiða til niður- stöðu sem hafa má til fyrirmynd- ar og hliðsjónar við að gera ís- lensku þjóðina talandi og læsa hið fyrsta. Sverrir Páll Eriendsson lauk BA- prófí í íslensku og sagnfræði trá Háskóla íslands haustið 1974 og hefur síðan rerið íslenskukennari rið Menntaskólann á Akureyri. FLUÓ- LEÍd 112- tíl Lynn far wus \>ÍCr BCKcí) 06- TIL A imr FÖR AVlKUfi. AR . VlN C-AhO SAMLEÖA I $ uw &0Ð FFR?) Á svipaðan hátt tilkynna flug- freyjur svo flughæð, tíma og væntanlega lendingu. Ef til vill er þetta tilraun til að lífga málið en þetta er engin íslenska, því miður. Orðin eru íslensk en röddin, lendinga. Sumir útvarpsþulir tala um Grúsjef, Gortsnoj og Géblavík. Börnin segja Herðu, kondo leiktu vimmig“. I verslunum er sagt Varða ekkvað flerra“. Sumir frétta- menn eru hættir að geta sagt stutt 2) Þeim sem fjalla um íslenskt mál, einkum framburð, hættir til að festa sig um of í smáatriðum og skrifa greinar sínar á máli óað- gengilegu venjulegu fólki. 3) Nemendum í íslenskum skólum Eftir sjö áia undirbúning ftamleidslunnar áVolvo360, eru mistökin í ruslafötu okkar en ekki í bílskúmum þínum! Kaupendur látnir gjalda Það gerist stundum að bílar eru hannaðir í miklu tímahraki, þar sem allt kapp er lagt á að koma framleiðslunni á markað. Þegar þessi háttur er hafður á, eru það kaupendurnir sem gjalda fyrir mistökin. í bílskúrnum þeirra er þá illa hannaður bíll, sem ein- göngu veldur ama og leiðindum. Hönnun og prófanir Starfsmenn VOLVO gáfu sér næg- an tíma við hönnun og prófanir á 360 gerðinni. Þeir hafa alltaf haft þennan háttinn á við undir- búning framleiðslu nýrrar gerðar. í sjö ára undirbúningsvinnu hefur nægur tími gefist til að sannreyna hugmyndir, gera mistök og leið- rétta þau. Umfram allt, þá hefur rúmur tími verið til prófana, endurbóta og fleiri prófana. VOLVO gefur sér tíma Vönduð vinnubrögð og þolin- mæði í sjö ár hafa skilað frábær- um árangri. VOLVO 360 hefur uppfyllt allar ströngustu kröfur. Hann er rúmgóður fjölskyldubíll, kraftmikill og lipur í akstri, örugg- ur og traustur: Sannur VOLVO! VOLVO 360 - Enn eitt skref nær fullkomnun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.