Morgunblaðið - 29.12.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983
7
Nýtt — Nýtt
Angórupeysurnar eru komnar.
Glugginn,
Laugavegi 40.
SÍNE
SÍNE-félagar, muniö jólafundinn sem haldinn veröur
í Félagsstofnun stúdenta viö Hringbraut föstudaginn
30. desember kl. 14.00, og jólaballið sem veröur á
sama stað kl. 21.00.
Nánar auglýst á morgun.
Happdrætti
styrktarfélags
vangefinna 1983
Vinningsnúmer:
1. vinningur: Mazda-bifreiö 1984 nr. 12447,
2. vinningur: Bifreiö aö eigin vali aö upphæö kr.
220.000 nr. 93482,
3. vinningur: Bifreið aö eigin vali aö upphæö kr.
160.000 nr. 31007,
4—10. vinningur: Húsbúnaður aö eigin vali. Hver
upphæö kr. 60.000 nr. 12377, 23322, 32409, 28339,
50846, 63195, 65215.
Verið
velkomin
ópavogsbúáf
athugið!
Við bjóðum aila almenna hársnyrtTngu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
tástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opið fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
• H i
Isaac Bashevis Singer:
99
Nútímamaðurinn
mesta villidýrið“
Marxisminn og SlS-hugsjónin
Þjóöviljinn hendir því á loft í gær sem Morgunblaðið haföi aö
segja í tilefni af þeim orðum sem Isaac B. Singer lét falla um
nútímann, þjáninguna og fjölmiðla. Og Tíminn hendir því á
loft í gær að Morgunblaðið hafi kallað SÍS auðhring og lagt
Stakstein í götu þeirra sem vilja skipta við Miklagarð sem sé
sambærilegt viö þá steina sem borgaryfirvöld lögðu í heim-
ildarlausu SÍS-götuna til og frá Miklagarði. Nánar er um
þessi mál ritað í Staksteinum í dag.
Þjáningar
Þjóðviljans
Þjóðviljinn hefur þjáðst
töluvert vegna viðtals við
Isaac Basheivis Singer,
nóbelsskáldið, sem birtist
hér f Morgunblaðinu
skömmu fyrir jól og snerist
um fjölmiðla, þjáningar og
ónæmi nútímamannsins
fyrir hörmungum. Morgun-
blaðið fjallaði um viðtalið
við Singer í forystugrein á
Imrláksmessu og hefur sá
leiðari orðið til þess að
kvelja Þjóðviljann enn
frekar ef marka má rit-
stjórnargrein hans í gær.
1 sjálfu sér er það rann-
sóknarefni hvers vegna
Þjóðviljinn er svona upp-
næmur vegna viðtalsins við
Singer og réttmætra
ábendinga hans um þá
áráttu fjölmiðla að telja líf
sitt komið undir þjáningum
annarra. Þjóðviljinn er eins
og kunnugt er skrifaður í
þeim anda að fyrir rúmum
100 árum hafi Karl Marx
komið fram með þjóðfé-
lagskenningu sem útrými
allri þjáningu sé henni
fylgt Tilraunir til að fram-
kvæma þessa kenningu
hafa náð lengst í Sovétríkj-
ununt og fylgiríkjum
þeirra. Vegna hörmung-
anna sem kenningunni
hafa fylgt ríkir sálarangist
hjá mörgum sem á hana
trúa í auðvaldsríkjunum.
Þeir láta þó ekki af trúnni
og telja það málstaðnum
enn fyrir bestu að benda á
þjáningar annarra og þá
einkum í auðvaldsheimin-
um eða fyrir tiistilli auð-
valdsrikjanna í þeirri von
að hið þjáningarlausa þjóð-
félagskerfi Karls Marx
þyki betri kostur.
Þjóðviljinn er helsti mál-
svari marxismans hér á
landi og kappsfyllstur í lýs-
ingum á þjáningunum sem
auðvaldið leiðir yfir lönd
og þjóðir. í skrifum Þjóð-
viljans vegna leiðara Morg-
unblaðsins í tilefni af um-
mælum Singers nær þján-
ingarfull reiðin hámarki
þegar kemur að þeim skoð-
unum fjölmiðla og sérfræð-
inga í Bandaríkjunum,
meðal annarra eins af rit-
stjórum New York Times,
að eindregin og markviss
andstaða margra fjölmiðla
við ríkisstjórn Ronalds
Reagan kunni aö hafa
dregið úr tiltrú almennings
til fjölmiðlanna en hún hef-
ur minnkað úr 39% í 13,7%
á stuttum tíma. Snýr Þjóð-
viljinn út úr forystugrein
Morgunblaðsins með
barnalegum hætti og segir
að tilvísanir þess í banda-
ríska fjölmiöla um þetta
efni séu „skammir" í garð
bandarískra fjölmiðla
„fyrir að þeir skuli ekki
vera nógu auðsveipir stjórn
sinni."(!)
Þjóðviljinn þolir ekki að
sjá þessa skýringu á
minnkandi fjölmiðlatrausti
í Bandaríkjunum á prenti,
enda sér blaðið sína sæng
uppreidda ef hið sama á
við hér á landi, að neikvæð
skrif lon og don leiði til
þess að almenningur missi
áhuga á fjölmiðlum — ætti
þetta þó ekki að koma
þeim Þjóðviljamönnum á
óvart miðað við reynslu
þeirra sjálfra hingað til.
Til vamar SÍS
Forystugrein í nýjasta
hefti Samvinnunnar er
svar við Staksteinum frá
því fyrir nokkrum vikum
sem ritaðir voru í tilefni af
því að SÍS opnaði stórversl-
unina Miklagarð í Reykja-
vik. Svo mikið liggur við að
þessi forystugrein úr tíma-
riti SÍS er endurprentuð í
heild í Tímanum, daglegu
málgagni SÍS, f gær. 1 for-
ystugrein Samvinnunnar er
rembst við að tolja
mönnum trú um að SÍS sé
annars konar hringur en
auðhringur enda „samtök
almennings í landinu".
Tíminn birtir inngang að
svari Samvinnunnar við
Staksteinum og þar segir
meðal annars: „Gamli
söngurinn um að sam-
vinnufélögin séu auðhring-
ur og einokunarstefna er
kyrjaður á ný og er nú (eft-
ir að Mikligarður kom til
sögunnar innsk. Stak-
steina) falskari en nokkru
sinni fyrr. fhaldsmeirhlut-
inn (í borgarstjórn Reykja-
víkur innsk. Staksteina)
hefur bókstafiega lagt
stein í götu þessa glæsilega
fyrirtækis til að gera við-
skiptavinum erfiðara fyrir
að komast að því og frá, en
það er sama hvað íhaldið
og Mogginn rembast við,
neytendur kunna vel að
meta þá góðu og hag-
kvæmu þjónustu sem
Mikligaröur býður upp
á...“
Það er sérkennilegt að
sjá það í þessum málgögn-
um SÍS hvernig peninga-
sjónarmiðum, hugsjónam-
álum og fiokkspólitískum
derringi er hrært saman.
Málflutningur af þessu tagi
skýrir vel hvers vegna SIS
tclur að ástæöulaust hafi
verið fyrir borgaryfirvöld í
Reykjavík að amast við því
að lagöur var sérstakur
SÍS-vegur til og frá Mikla-
garði. SÍS þarf auövitað
ekki að fara eftir sömu
skipulagsreglum og aðrir
enda „samtök almennings
í landinu".
SfS stundar um þessar
mikla herferð í ríkisfjöl-
miðlunum í því skyni að
breyta ásýnd sinni. Hver
eru meginstef þessara aug-
lýsinga? f fyrsta lagi eiga
menn að treysta SÍS fyrir
peningunum sínum. í öðru
lagi eiga menn að treysta
SIS fyrir framfærslu sinni.
í þriðja lagi eiga menn að
fá ofbirtu í augun af hinu
gyllta merki SÍS sem glóir
I eins og gullkálfurinn.
Leigjendasamtökin:
Rangt að húsaleiga hafi hækkað
samkvæmt vísitölu Hagstofu 1. okt. sl.
VEGNA frétta sem birst hafa í fjöl-
miðlum varðandi 4% hækkun húsa-
leigu 1. janúar nk. vilja Leigjenda-
samtökin taka fram eftirfarandi:
1. Það er rangt að húsaleiga hafi
hækkað samkvæmt vísitölu Hag-
stofu fslands þann 1. okt. sl. Síð-
asta leyfða hækkun var þann 1.
júlí 1983.
2. Leigjendasamtökin mótmæla
þeirri túlkun Hagstofu íslands að
vísitala sú sem Hagstofan reiknar
skuli koma til framkvæmda. Hér
er aðeins um að ræða heimild til
hækkunar, þ.e. 1. janúar 1984 má
húsaleiga samkvæmt þessari vísi-
tölu meira en um 4%.
3. Leigjendasamtökin vilja leggja
áherslu á það, að þau telja að þessi
vísitala skuli gilda fyrir alla leigu-
samninga þar sem ekki er sér-
staklega samið um hækkanir.
Fréltatilkynning
ÚRVALIÐ ALDREI FJÖLBREYTTARA
OPIÐ í KVÖLD TIL KL. 20
1 2 ÁNANAUSTUM. SÍMAR 28855.