Morgunblaðið - 29.12.1983, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983
11
Þátttakendur á endurfundinum.
10 ára afmæli 5-daga
áætlunarinnar
- eftir Jón Hjörleif
Jónsson,
bindindisfulltrúa
Endurfundur í tilefni 10 ára af-
mælis 5-daga áætlunarinnar var
haldinn sunnudaginn 18. desem-
ber. Fámennara var en ég gerði
mér vonir um, trúlega óheppilegur
tími. Mættir voru 15, 9 frá árinu
1983, 3 frá 1980, og 3 frá 1973.
Þessir þrír voru frá fyrsta nám-
skeiðinu, þ.e. 10 ára, og höfðu ekk-
ert reykt. Við óskum þeim til ham-
ingju með 10 ára bindindið.
I þessum hópi höfðu 10 ekkert
reykt, 5 reykt smávegis. Auk þess-
ara sátu þrír læknar fundinn og
einn læknir, starfandi úti á landi,
staddur hér í borg, leit inn áður en
fundurinn hófst og kynnti sér
5-daga áætlunina. Þetta sýnir vel
heilsteyptan áhuga læknanna á
reykingavandamálinu. Sigurður
Björnsson, læknir, flutti ávarp.
Fólkið sagði frá reynslu sinni,
spurði læknana, sem veittu örlát-
lega af ’þekkingu sinni. Erling B.
Snorrason, formaður stjórnar ís-
lenska Bindindisfélagsins og Sam-
taka aðventista á íslandi, ávarp-
aði fundinn. Sýnd voru ýmis gögn
og fræðsluefni, sem 5-daga áætl-
unin notar.
Undirritaður rakti sögu 5-daga
áætlunarinnar í stórum dráttum
og þakkaði öllum, sem hafa stutt
5-daga áætlunina þessi 10 ár, svo
og þeim, sem hafa sótt námskeið-
in. Sérstakiega þakkaði hann
stjórn íslenska Bindindisfélags-
ins, 25—30 læknum sem hafa að-
stoðað við námskeiðin, Krabba-
meinsfélagi Reykjavíkur sérlega,
Krabbameinsfélögunum öllum,
Reykingavörnum, skólastjórum,
sem hafa opnað skóla sína alls
staðar, þar sem 5-daga áætlunin
hefur verið í framkvæmd.
Endanlega þakkaði hann hús-
bændum Norræna hússins þar
sem 5-daga áætlunin hóf göngu
sína hér á landi og Háskóla Is-
lands, sem hefur öllum stofnunum
oftar hýst 5-daga áætlunina.
Allt hefur þetta fólk og þessar
stofnanir látið ofangreinda þjón-
ustu í té ókeypis. Það eru stór-
framlög í reykingavörnum þjóðar-
innar. Að lokum þakkaði hann
ánægjulegt 10 ára samstarf.
Fundarmenn ákváðu að vinna
að stofnun samtaka með þeim, er
hafa sótt 5-daga áætlunina. Til-
gangurinn með slíkum samtökum
Jón Hjörleifur Jónsson
er að efla sóknina gegn tóbakinu
og öðrum eiturefnum. Seinna
verður boðað til slíks fundar. Að
loknum fundi var veitt hressing,
aldinsafi, tropicana, sem Smöriíki
hf. gaf og kex sem Kexverksmiðj-
an Frón gaf.
Mjög góð samstilling var með
fundarfólki, sem fagnaði því að
vera laust við reykingar.
Jón Hjörleifur Jónsson er bindind-
isfulltrúi hjá Sjöunda dags aðrent-
istum.
Nýársdagskvöld
Léttreykt laxamús með „raifort" spínatkremi
Hreindýraseyði með ostastöngum
Kampavínssorbet
Aliönd með appelsínuhjúp
Kaffi og konfektkökur
Óskum landsmönnum
gleðilegs nýs árs
og þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Gamlársdagur
lokað.
Nýársdagur
opnað kl. 18.00.
iiiiii iiiiiiiiSii
Opið til kl. 8 í kvöld
til kl. 8 á föstudag
og til kl. 12 laugardag
Svína-
hamborgarhryggir
Svínakótelettur
Svínalundir
Lamba-
hamborgarhryggir
Lambasviö hreinsuö
Ali grágæsir
Nautaschnitzel
Nautagullasch
Nautalundir
Nautafillet
Beinlausir fuglar
Roast Beef
Hakkafillet
Hamborgarar
Nautahakk
Nautahakk, 10 kg
Folaldaschnitzel
Folaldagullasch
Folaldalundir
Folaldafillet
Roast Beef
2 I MS Skafís
1 I MS súkkul.bitaís
255,00 364,70
247,00 335,00
355,00 427,oo
128,00 224,00
63,90 82,70
325,00 375,00
364,00 465,oo
296,00 358,oo
427,00 500,00
427,00 500,00
360,00 465,00
360,00 465,00
230,00 315,00
12,00 26,00
168,50 231,00
138,00 267,00
230,00 268,00
210,00 245,00
255,00 305,00
255,00 305,oo
230,00 268,00
107,00 131,00
60,00 71,75
Verið velkomin