Morgunblaðið - 29.12.1983, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983
Ljóðabók Valgerðar Þóru
Ljóðabók eftir Valgerði Þóru
kom út á Þorláksmessu. Það er
fjórða bók höfundar og eru ljóðin
skilgreind prósaljóð á bókarkápu.
Ljóðabók Valgerðar Þóru heitir
Sekt og er prentuð í prentsmiðju
Árna Valdemarssonar. Myndir
fylgja ljóðunum og eru þær eftir
Gunnfríði Svölu og Jón Ingva.
í bókinni eru 11 ljóð. Hefst hún
á tileinkun höfundar, sem er „32
Davíðs — maskíl". Ljóðin nefnast
Sekt, Afvegur, Pabbi, Móðirin, Ör-
vænting, Bágt, Veggir, Maður,
Vinur, Klaki, Eftir.
Sex bombur
og skothólkur
saman í pakka.
Þrumur
sem segja sex.
FLUGELDAMARKAÐIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
Vinir Andropovs
í ædstu forystuna
BREYTINGARNAR á stjórnmálaráði sovézka kommúnistaflokksins virð-
ast í fljótu bragði hafa treyst stöðu Yuri Andropovs þrátt fyrir veikindi
hans og fjarveru síðan í ágúst að dómi stjórnmálafréttaritara. En það
breytir því ekki að margt þykir benda til þess að hann sé aðeins bráða-
birgðaleiðtogi, sem reyni að búa í haginn fyrir aðra valdamenn, sem taka
munu viö af honum. Á það er lögð megináherzla að slfkar breytingar valdi
ekki umróti.
Aþað er bent að keppinautar
Andropovs virðast ekki hafa
notað fjarveru hans sér til fram-
dráttar. Mikilvægar stjórnmála-
yfirlýsingar hafa verið birtar í
hans nafni og helzti keppinautur
hans, Konstantín U. Chernenko
(72 ára), virðist ekki hafa treyst
stöðu sína. Honum hefur þegar
verið hafnað einu sinni og
Andropov virðist ekki þurfa að
óttast hann og enginn nýr maður
hefur komið fram úr röðum
stuðningsmanna hans.
Aðalbreytingarnar voru þær
að Mikhail S. Solomentsev (70
ára) og Vitaly I. Vorotnikov (57
ára) voru skipaðir fullgildir full-
trúar í stjórnmálaráðinu. Þeir
eru taldir andvígir Chernenko og
klíku stuðningsmanna hans, sem
áttu Leonid I. Brezhnev frama
sinn að þakka og reyna að ná
aftur fyrri aðstöðu.
Solomontsev var skipaður for-
stöðumaður eftirlitsnefndar
flokksins á síðasta fundi mið-
stjórnarinnar í júní í stað
stjórnmálaráðsfuiltrúans Arvid
Y. Pelshe, sem lézt 84 ára að
aldri. Hins vegar var Soloment-
sev ekki gerður að fullgildum
fulltrúa í stjórnmálaráðinu fyrr
en á miðstjórnarfundinum á
dögunum. Hann notaði tækifær-
ið til að flytja skýrslu um
hneyksli í kjarnorkuveri er
leiddi til þess að ráðherra, sem
hafði verið skjólstæðingur
Brezhnevs, var settur af.
Vorotnikov var staðgengill
Solomentsevs þegar hann var
forsætisráðherra rússneska sov-
étlýðveldisins. Hann var skipað-
ur sendiherra á Kúbu 1979 og
talið var að með því hefði vald-
aklíka Brezhnevs viljað niður-
lægja hann. Þess vegna eru Solo-
mentsev og Vorotnikov taldir
fjandsamlegir Chernenko-klík-
unni og stuðningsmenn Andro-
povs.
Aðrar helztu breytingarnar
voru þær að yfirmaður KGB,
Viktor N. Chebrikov (60 ára), var
skipaður aukafulltrúi í stjórn-
málaráðinu og Yegor K. Ligach-
ev (63 ára) var skipaður í fram-
kvæmdanefndina.
Auk Solomentsevs og Vorotni-
kovs er Andropov talinn njóta
stuðnings fjögurra annarra
stjórnmálafulltrúa: Geidar A.
Alievs, gamals starfsmanns
KGB (60 ára), Dimitri F. Ust-
inovs, landvarnaráðherra (75
ára), Mikhail S. Gorbachevs,
landbúnaðarsérfræðings (52
ára), og Grigori V. Romanovs,
fyrrverandi flokksleiðtoga í Len-
íngrad (60 ára).
Eftirtaldir menn virðast í
minnihluta og munu draga taum
Chernenko: Nikolai A. Tikhonov
forsætisráðherra (78 ára), Vikt-
or V. Grishin, leiðtogi flokksins í
Moskvu (69 ára), Dinmuhamed
A. Kunaev, leiðtogi flokksins í
Kazakstan (71 árs) og Andrei A.
Gromyko utanríkisráðherra (74
ára).
óvíst er um afstöðu eins full-
trúans, Vladimir V. Shcher-
bitsky (65 ára), leiðtoga flokks-
ins í Úkraínu, sem er harðlínu-
maður í hugsjónafræði og var
nátengdur Brezhnev.
Eftir valdatöku Andropovs í
nóvember í fyrra var aðeins einn
maður, stuðningsmaður hans
Geidar A. Aliev, skipaður í
stjórnmálaráðið, en skipun hans
virðist hafa verið samþykkt áður
en Brezhnev lézt. Þótt fulltrúum
í stjórnmálaráðinu fækkaði úr
14 í 11 vegna dauðsfalla og af-
sagna frá því í janúar 1981 var
enginn nýr fulltrúi skipaður á
miðstjórnarfundinum í júní í
sumar. Eina mikilvæga breyt-
ingin var skipun stjórnmála-
ráðsfulitrúans Romanovs, stuðn-
ingsmanns Andropovs, í fram-
kvæmdanefnd miðstjórnarinnar.
Eftir síðustu breytingar eru full-
trúarnir í stjórnmálaráðinu 13.
Þar sem enginn nýr fulltrúi
var skipaður í stjórnmálaráðið í
sumar gátu sér margir þess til
að Andropov hefði ekki enn get-
að treyst sig í sessi. Erfitt er að
segja um hvort breytingarnar nú
eru ótvíræð vísbending um auk-
inn stuðning við Andropov, en
ljóst virðist að nýju blóði hefur
verið hleypt í stjórnmálaráðið
með skipun manna, sem aðhyll-
ast svipaðar skoðanir og hann.
Sumir fréttaritarar hafa sagt
að veikindi og fjarvera Andro-
povs þurfi ekki að þýða að búast
megi við að nýir leiðtogar taki
bráðlega við völdunum og að
ekkert bendi til þess að „hallar-
bylting" sé í uppsiglingu.
Aðrir telja að Andropov eigi
að vera nokkurs konar bráða-
birgðaleiðtogi. Bent er á að mik-
ilvægasta breytingin á fyrsta
valdaári Andropovs hafi verið sú
að komið hafi til skjalanna
nokkurs konar „innri forysta",
sem segi ríkisstjórninni fyrir
verkum og fari með stjórn efna-
hagsmálanna.
Þessi ínnri forysta er skipuð
Romanov, Aliev, Nikolai Ryzh-
kov, Vladimir Dolgikh og Gorba-
chev. Meðalaldur þessara manna
er 58 ár. Þeir eru af næstu kyn-
slóð á eftir kynslóð Brezhnevs og
Andropovs í sovézkum stjórn-
málum, þeirri kynslóð valda-
manna sem tekur við af þeim.
Þessir menn reyna nú að
treysta stöðu sína og ýmist hefur
verið talið að staða Gorbachovs
Mikhail Solomentsev:
andvígur Chernenko.
eða Romanovs væri bezt. En
munurinn á þeim og þeim og Al-
iev virðist ekki mikill.
Gorbachov og Romanov eru
báðir Rússar, eiga báðir sæti í
stjórnmálaráðinu og eru báðir
miðstjórnarritarar. Þeir eru
báðir hæfir menn og hafa báðir
haft mikla reynslu í stjórn land-
búnaðar- og iðnaðarmála.
Aliev er fyrrverandi yfirmað-
ur KGB og flokksleiðtogi í Az-
erbaijan. Hann er fyrsti vara-
forsætisráðherra og kemur
fremur til greina sem eftirmað-
ur Tikhonovs forsætisráðherra
en Andropovs.
Herinn stendur með Andropov
og KGB, sem hann stjórnaði, og
hefur aukið pólitísk áhrif sín
síðan hann tók við. Kosningar í
flokksdeildum hafa verið notað-
ar til að fjarlægja stuðnings-
menn Brezhnevs og búa í haginn
fyrir breytingar í miðstjórninni.
Talið var fyrir nokkru að skipt
hefði verið um allt að 30—40%
flokksritara á landsbyggðinni.
Andropov hafði Gorbachov og
Romanov sér við hlið þegar hann
hélt ræðu um „æsku og komm-
únisma" á fundum með gömlum
flokksmönnum í sumar. Hann
vill greinilega að þeir sem taka
við af honum haldi áfram þeirri
baráttu, sem hann hefur háð
gegn spillingu og fyrir aukinni
velsæld.
Auk þess virðist Andropov
vona að honum gefist enn nokk-
ur tími til að berjast gegn þeirri
stöðnun og vanhæfni, sem hann
kvað höfuðóvininn þegar hann
kom til valda. Með breytingun-
um á dögunum hafa aukizt áhrif
þeirra valdamanna, sem hafa
samúð með þessari baráttu
Andropovs eftir margra ára
stöðnunarskeið Brezhnevs.
Hins vegar má segja að gallar
kerfisins séu „innbyggðir" og
ógerningur sé að laga þá og þá
skiptir litlu máli hvort Andro-
pov er fjarverandi eða ekki eða
hverjir taka við. Fjarvera hans
er orðin löng og hún getur orðið
ennþá lengri, ef hann er þá á lífi.
En Kremlverjar eru greinilega
tregir til að skipta um leiðtoga á
þessari stundu, bæði vegna þess
að engir ótvíræðir, nýir leiðtogar
hafa komið fram og vegna þess
að afleiðingin getur orðið ný og
hatrömm valdabarátta.
Yuri Andropov kjörinn forseti (talið frá vinstri og fremstu röð): Ustinov,
Tikhonov, Grishin, Kunayev, Shcherbitsky, Andropov, Ponomarev, Aliy-
ev.