Morgunblaðið - 07.02.1984, Side 15

Morgunblaðið - 07.02.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984 15 GETA EKKI ALLIR FUNDIÐ EITTHVAÐ SEM ER AHUGAVERT Áhugasviö fólks eru mjög mismunandi en fjölbreytni tímarita Frjáls framtaks er svo mikil að hver og einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Sérritin hafa að geyma margþátta upplýsingar sem hafa ekki aðeins að geyma fróðleik um líðandi stund heldur er gripið til þeirra aftur og aftur. Með þvi að kaupa þau og lesa fylgist fólk með á sínu sviði. BILLINN - bílablaö Við birtum ekki mynd af forsíðu bilablaðsins BÍLLINN þar sem blaöið hefur enn ekki komið út. Það er gefið út i samvinnu við FÍB og kemur í kjölfar ÖKU-ÞÓRS sem gefinn var út um árabil. Ekki er aðeins um nafn- breytingu að ræða heldur verið fjölbreytni blaðsins aukin og reynt að tryggja að allt bílaáhugafólk fái þar lestrar- og fræðsluefni og fréttir við sitt hæfi. Kemur út sex sinnum á ári. SJÁVARFRÉTTIR Alhliða sérrit um sjávarútvegsmál og fiskvinnslu. Kemur út sex sinnum á ári. Flytur alhliða frétta- skýringar, ýmis konar fræðsluefni og upplýsingar um tækninýjungar í sjávarútvegi. Fréttir bæði inn- lendar og erlendar. Kynnir viðhorf fólksins sem starfar við þessa atvinnugrein. IÐNAÐARBLAÐIÐ Sérrit er flytur efni sem er áhugavert ekki aðeins fyrir iðnrekendur, iðnaðarmenn og iðnverkafólk heldur einnig alla er áhuga hafa á að fylgjast með atvinnugreininni. Fjallað er um málefni íslensks iðnaðar á breiðum vettvangi, kynntar erlendar sem innlendar tækninýjungar og fréttir af málefn- um iðnaðarins. Kemur út sex sinnum á ári. FRJÁLS VERSLUN Eitt elsta islenska sérritið en samt siungt og fylg- ist náið með þvi sem er að gerast í íslensku við- skiptalifi og flytur einnig erlendar sem innlendar fréttir og upplýsingar um viðskipti og stjórnun. Blað sem tekið hefur stakkaskiptum og er ómiss- andi öllum þeim sem vel vilja fylgjast með á sviði viðskipta og verslunar. Kemur út átta sinnum á ári. ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Málgagn íþróttasambands íslands. Lifandi blaö sem flytur skemmtilegar greinar og viðtöl viö iþróttafólk og iþróttaforystumenn, fréttir úr íþróttastarfinu og skyggnist bak við tjöldin á ann- an hátt en gert er i hinum „hefðbundnu" iþrótta- fréttum. Blað sem er í takt við mikinn og vaxandi íþróttaáhuga ungra sem eldri. Kemur út sex sinn- um áári. ABC Barnablaðið sem gefið er út í samvinnu við skáta- hreyfinguna. I blaðinu er að finna skemmtiefni og fræðsluefni við hæfi ungra lesenda en þeir eldri geta einnig haft ómælda ánægju af blaðinu. Þroskandi leikirog verðlaunaþrautir, sögur, viðtöl og myndasögur. Blað sem ekkert heimili þar sem börn eru ætti að vera án. Kemur út sex sinnum á ári. NÝTT LÍF - tískublaö Tímarit sem aftur hefur náð forystu á íslenskum timaritamarkaði og er mest selda islenska tíma- ritið. Liflegt blað sem flytur i senn afþreyingarefni og fræðsluefni. Blaðið er einkar vandaö, litprent- að að hluta og hvert blað er í raun og veru lítil bók sem vert er að lesa og geyma. Kemur út sex sinn- um áári. FRJÁLST FRAMTAK hf. Útgáfa tímarita og bóka, auglýsingagerð og ráðgjöf. Ármúla 18-105 Reykjavík - ísland - Sími 82300

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.