Morgunblaðið - 07.02.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
15
GETA EKKI ALLIR FUNDIÐ
EITTHVAÐ SEM ER AHUGAVERT
Áhugasviö fólks eru mjög mismunandi en fjölbreytni tímarita Frjáls
framtaks er svo mikil að hver og einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Sérritin hafa að geyma margþátta upplýsingar sem hafa ekki
aðeins að geyma fróðleik um líðandi stund heldur er gripið til þeirra aftur
og aftur. Með þvi að kaupa þau og lesa fylgist fólk með á sínu sviði.
BILLINN - bílablaö
Við birtum ekki mynd af forsíðu bilablaðsins BÍLLINN þar sem blaöið hefur enn ekki komið út. Það er gefið
út i samvinnu við FÍB og kemur í kjölfar ÖKU-ÞÓRS sem gefinn var út um árabil. Ekki er aðeins um nafn-
breytingu að ræða heldur verið fjölbreytni blaðsins aukin og reynt að tryggja að allt bílaáhugafólk fái þar
lestrar- og fræðsluefni og fréttir við sitt hæfi. Kemur út sex sinnum á ári.
SJÁVARFRÉTTIR
Alhliða sérrit um sjávarútvegsmál og fiskvinnslu.
Kemur út sex sinnum á ári. Flytur alhliða frétta-
skýringar, ýmis konar fræðsluefni og upplýsingar
um tækninýjungar í sjávarútvegi. Fréttir bæði inn-
lendar og erlendar. Kynnir viðhorf fólksins sem
starfar við þessa atvinnugrein.
IÐNAÐARBLAÐIÐ
Sérrit er flytur efni sem er áhugavert ekki aðeins
fyrir iðnrekendur, iðnaðarmenn og iðnverkafólk
heldur einnig alla er áhuga hafa á að fylgjast með
atvinnugreininni. Fjallað er um málefni íslensks
iðnaðar á breiðum vettvangi, kynntar erlendar
sem innlendar tækninýjungar og fréttir af málefn-
um iðnaðarins. Kemur út sex sinnum á ári.
FRJÁLS VERSLUN
Eitt elsta islenska sérritið en samt siungt og fylg-
ist náið með þvi sem er að gerast í íslensku við-
skiptalifi og flytur einnig erlendar sem innlendar
fréttir og upplýsingar um viðskipti og stjórnun.
Blað sem tekið hefur stakkaskiptum og er ómiss-
andi öllum þeim sem vel vilja fylgjast með á sviði
viðskipta og verslunar. Kemur út átta sinnum á
ári.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Málgagn íþróttasambands íslands. Lifandi blaö
sem flytur skemmtilegar greinar og viðtöl viö
iþróttafólk og iþróttaforystumenn, fréttir úr
íþróttastarfinu og skyggnist bak við tjöldin á ann-
an hátt en gert er i hinum „hefðbundnu" iþrótta-
fréttum. Blað sem er í takt við mikinn og vaxandi
íþróttaáhuga ungra sem eldri. Kemur út sex sinn-
um áári.
ABC
Barnablaðið sem gefið er út í samvinnu við skáta-
hreyfinguna. I blaðinu er að finna skemmtiefni og
fræðsluefni við hæfi ungra lesenda en þeir eldri
geta einnig haft ómælda ánægju af blaðinu.
Þroskandi leikirog verðlaunaþrautir, sögur, viðtöl
og myndasögur. Blað sem ekkert heimili þar sem
börn eru ætti að vera án. Kemur út sex sinnum á
ári.
NÝTT LÍF - tískublaö
Tímarit sem aftur hefur náð forystu á íslenskum
timaritamarkaði og er mest selda islenska tíma-
ritið. Liflegt blað sem flytur i senn afþreyingarefni
og fræðsluefni. Blaðið er einkar vandaö, litprent-
að að hluta og hvert blað er í raun og veru lítil bók
sem vert er að lesa og geyma. Kemur út sex sinn-
um áári.
FRJÁLST FRAMTAK hf.
Útgáfa tímarita og bóka, auglýsingagerð og ráðgjöf.
Ármúla 18-105 Reykjavík - ísland - Sími 82300