Morgunblaðið - 07.02.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
19
Nýr aðalræðismaður Rússa í Gautaborg skipaður:
Rekinn frá Bretlandi
fyrir njósnir árið 1971
SOVÉTMENN hafa skipað nýjan
aðalræðismann í Gautaborg í Sví-
þjóð. Sá heitir Viktor Karjagin.
Skipan hans í embættið þætti
e.t.v. ekki svo miklum tíðindum
sæta ef ekki kæmi til sú stað-
reynd, að Karjagin þessum var
ásamt rúmlega 100 sovéskum
sendiráðsstarfsmönnum vísað
frá Bretlandi árið 1971 fyrir
njósnir. Svenska Dagbladet
skýrði frá þessu um helgina.
Að sögn sænska blaðsins
Kvállposten er Karjagin hátt-
settur innan sovésku leyniþjón-
ustunnar, KGB.
Ekki er lengra síðan en í des-
ember 1982, að vararæðismanni
Victor Karjagin, aðalræðismaður
Rússa í Gautaborg
Sovétríkjanna í Gautaborg var
vísað úr landi samhliða her-
málafulltrúa Sovétmanna í
Stokkhólmi. Báðum var gefið að
sök að hafa stundað iðnaðar-
njósnir.
Útþensla sovésku ræðis-
mannsskrifstofunnar í Gauta-
borg hefur verið umtalsverð á
undanförnum árum. Alls starfa
þar um 20 manns.
Þess má geta í lokin, að
Gautaborg var ein þeirra borga,
þar sem upp komst um smygl
háþróaðs bandarísks tölvubún-
aðar fyrr í vetur. Tölvubúnaði
þessum var ætlað að fara til Sov-
étríkjanna.
Skipt um nýru í
Jury Andropov?
JURI ANDROPOV, aðalritari sov-
éska kommúnistaflokksins og for-
seti landsins, er að ná sér eftir að
sett voru í hann ný nýru, eftir því
sem vestur-þýskur sérfræðingur
um málefni Kreml segir. „Andro-
pov er á góðum batavegi og vinnur
meira en tvo daga viku hverja,“
sagði sérfræðingurinn, Eberhardt
Schneider, og bar fyrir sig orð
ónafngreinds tíðindamanns sem
er hátt settur embættismaður í
Sovétríkjunum.
Andropov hefur ekki sést
opinberlega síðan í ágúst á síð-
asta ári og hafa miklar vanga-
veltur verið um hvar hann kunni
að vera niður kominn og hvernig
heilsu hans sé háttað. Vitað var
fyrir að hann væri nýrnaveikur.
Schneider hafði eftir tíðinda-
manni sínum, að svo hress væri
Andropov orðinn, að hann myndi
að öllum líkindum koma fram
fyrir 4. mars næstkomandi, og
flytja ræðu. „En ekkert verður
þó fullyrt um þetta, því maður
veit aldrei hvaða stefnu veikindi
af þessu tagi geta tekið," sagði
Schneider.
Sem fyrr segir vildi Schneider
ekki geta nafns tíðindamanns-
ins, en hann segir hann hafa
marg oft á síðustu árum lekið til
sín fréttum af ráðamönnum í
Kreml og til þessa hafi ekkert af
því ekki átt við rök að styðjast.
Schneider gat þess einnig, að það
væri óumdeilanlegt, að þrátt
fyrir langvarandi veikindi sín
væri Andropov enn sá sem réði í
Sovétríkjunum. „Hann markar
stefnuna og eftir henni er farið.
Þó að Sovétleiðtogar missi heils-
una eins og fyrir kemur þýðir
það ekki endilega að þeir missi
völdin að auki," sagði Schneider.
Heræfingar í
Tékkóslóvakíu
Prag, 6. febrúar. AP.
SOVÉTMENN OG tvær Varsjár-
bandalagsþjóðir aðrar hafa staðið
fyrir umfangsmiklum heræfíng-
um í óbyggðum í Tékkóslóvakíu.
Alls eiga æfíngarnar að standa yf-
ir í fímm daga, en þær hófust á
sunnudaginn. I fréttatilkynningu
frá ríkisfréttastofu Tékkóslóv-
akíu var þess getið að tilgangur
æfínganna væri að kanna hversu
góð samvinna bandalagsríkjanna
væri ef að þeim væri sótt úr
vestri.
Lítillega var greint frá æf-
ingunum í tékkneska sjónvarp-
inu og þar mælti þulur á þá leið
að með æfingunum væri verið
að skerpa bardagalistina og
væri ekki vanþörf á þar sem
Vesturlönd væru greinilega í
vígahug sem sæist best á niður-
setningu þeirra á hundruðum
meðaldrægra kjarnorkueld-
flauga í Vestur-Evrópu.
Veður
víöa um heim
Akureyri +8 snjór
Amsterdam 7 rigning
Aþena 13skýjað
Barcelona 14léttskýjað
Bankok 34heiðskírt
Beirút 19skýjaö
Berlín S rigning
Brtissel 8 rigning
Buenos Aires 22heiðskírt
Chicago -5 heíðskírt
Dublín 8 rigning
Feneyjar 5 heiðskírt
Frankturt 10rigning
Genl 12 heiðskirt
Helsinki 2 skýjað
Jerusalem 19 skýjað
Jóhannesarborg 26 heiðskírt
Kairó 21sandstormur
Kaupmannahöfn 6skýjað
Las Palmas 20 léttskýjað
Lissabon 15 heiðskírt
London 10 skýjað
Los Angeles 24 heíðskírt
Majorka 15 skýjað
Malaga 16 mistur
Mexíkóborg 19skýjað
Miami 24 skýjað
Montreal 2skýjað
Moskva +11 heiðskírt
New York 4 skýjað
Nýja Delhi 20 heiðskirt
Osló 4 heiöskírt
París 10 skýjað
Peking 0 heiðskírt
Perth 26 heiðskírt
Reykjavík +4 skýjað
Ríó de Janeiró 41 heiðskírt
Róm 16 skýjaö
San Francisco 17 heiðskírt
Seaul -Sheiðskirt
Stokkhólmur 2 skýjað
Sydney 27 skýjaö
Tókýó 2 skýjað
Vancouver 11 skýjað
Vínarborg 6 skýjað
Þórshöfn Iskýjað
Artamonov og kona hans á leið út í Aeroflot-flugvélina, sem flutti þau frá
Noregi.
Afleiðingar Treholt-njósnamálsins:
Fyrstu Rússarnir
eru farnir heim
Ósló, 6. febrúar. Krá Jan Erik Lauré, frélUriUra Mbl.
TVEIR sovésku sendiráðsstarfs-
mannanna, sem vísað var frá Noregi
í kjölfar Treholt-njósnamálsins, yfír-
gáfu Noreg á laugardag. Var þeim
fylgt um borð í flugvélina af her-
skara norskra öryggislögreglu-
manna, blaðamanna og Ijósmynd-
ara.
Það voru þeir Jurij Anisimov,
fyrsti sendiráðsritari, og Anatolij
Artamonov, starfsmaður við
sendiráðið, sem fóru fyrstir, að
sjálfsögðu með vél frá Aeroflot.
Úpphaflega stóð til að vélin lenti á
Fornebu-flugvelli, en sökum hálku
á flugbrautunum lenti vélin í
Gardermoen.
Sovésku sendiráðsmennirnir
létu sér fátt um finnast um hinn
mikla skara blaðamanna og Ijós-
myndara, en gátu eðlilega ekki
komið í veg fyrir að þeir væru
myndaðir í bak og fyrir.
„Ég er hvorki starfsmaður KGB
né GRU, leyniþjónustu sovéska
hersins," sagði Anisimov. Hann
hafði annars mestan áhuga á að
ræða um íþróttir. Báðir sögðu
sendiráðsstarfsmennirnir, að
brottvísunin hefði komið sér í
opna skjöldu. „Við höfðum ekkert
af okkur brotið," sögðu þeir báðir.
Mannskæður
hótelbruni
Sodom, ísrael, S. febrúar. AP.
EKRI HÆÐIRNAR á hóteli einu miklu
í sumarleyfísparadís viö Dauðahafíð
stóðu í Ijósum logum á sunnudaginn og
herþyrlur og kranabílar björguöu
frækilega fjölda hótelgesta sem leitað
hafði skjóls á þaki byggingarinnar og
undankomuleiðir voru engar. Tveir
létu lífíð, hótelstarfsmaður og slökkvi-
liðsmaður, og sjö slösuðust.
Hótelið er skammt norður af hinni
fornu borg Sodom, sem í eina tið var
samnefnari siðspillingar af versta
tagi. Varla mun verða gestkvæmt í
gistihúsinu á næstunni, þvi megnið
af því sem ekki brann, skemmdist
mjög af reyk og vatni.
Utsalan
er í fullum
gangi