Morgunblaðið - 07.02.1984, Síða 21

Morgunblaðið - 07.02.1984, Síða 21
JÓHANN INGIAÐSTOÐAR SCHOBEL SIMON SCHOBEL landsliösþjálfari Vestur-Þjóöverja í handknattleik hefur fengið þrjá þjálfara í Bundesligunni til aö aöstoða sig viö þjálfun landsliðsins. Jóhann Ingi Gunnarsson er einn þeirra. Þeir munu sjá um sérþjálfun landsliösmanna á vissum landsvæöum í Þýskalandi. Þeir þrír þjálfarar sem hér um ræöir eru, auk Jóhanns, ekki ófrægari menn en Rúmeninn Ivanescu, þjálfari Essen, sem sér um þjálfun í miö-Þýskalandi, Berdstrásser, hjá Grosswaldstadt, sem sér um þjálfunina í Suöur-Þýskalandi. Jóhann Ingi mun sjá um sérþjálfun landsliösmanna frá noröurhluta landsins. Þess má geta aö Þjóöverjar munu leika 26 landsleiki fram aö áramótum. SH. • íslenska landsliöiö í alpagreinum. Frá vinstri eru Hafsteinn Sigurðsson, þjálfari, Guömundur Jó- hannsson, Árni Þór Árnason, Daníel Hilmarsson og Nanna Leifsdóttir. Myndin var tekin áöur en liðið hélt utan — en eftir keppni var endanlegt Ólympíuliö valiö. Þá datt Daníel úr hópnum. Fulltrúar íslands á Ólympíuleikunum: Komnir til Sarajevo ÍSLENSKU keppendurnir á Ólympíuleikunum í Sarajevo komu til borgarinnar í gær. Þeir hafa feröast um Evrópu aö und- anförnu — æft og keppt á nokkrum mótum og staðið sig eftir atvikum vel. Fyrsta keppnin sem íslend- ingar taka þátt í á leikunum er á dagskrá á föstudag; þá keppa Einar Ólafsson og Gottlieb Kon- ráösson í 30 km. göngu. Á mánu- dag veröa þeir félagar síöan aftur á feröinni í 15 km. göngunni. Sama dag tekur Nanna Leifs- dóttir þátt í stórsvigi. Fyrri feröin fer þá fram en daginn eftir, þriðjudag, veröur seinni feröin. Miövikudaginn 15. keppa Árni Þór og Guðmundur í stórsvigi; þá er fyrri feröin á dagskrá og dag- inn eftir veröur síöari feröin. Föstudaginn 17. keppir Nanna í svigi. Síðasta keppnisdag Ólympíuleikanna, sunnudaginn 19. febrúar er svig karla á dagskrá. Ólympíuleikarnir veröa settir viö hátíölega athöfn á Kosévo- leikvanginum i Sarajevo á morg- un kl. 14.30 aö staöartíma. B Vestur-þýsku blöðin: Atli ætti að semja um visst kflómetragjald Frá Jóhanni Inga Gunnaraayni fréttaritara Mbl. í V-Þýakalandi. VESTUR-ÞÝSK blöð hrósa Atla Eövaldssyni mikið fyrir leik hans gegn Bayern MUnchen á föstu- daginn. Atli var valinn leikmaöur helgarinnar og er að sjálfsögöu í liði vikunnar. Hann fær mjög víöa einn í einkunn í dagblöðunum og hið virta blað Kicker gefur honum einn, telur leik hans hafa veriö sérlega góöan. I blöðum má sjá aö undraast er yfir hinni miklu yfirferö Atla í leikj- unum. Hann hleypur og hleypur endalaust. „Hann hlýtur aö vera meö hestalungu," segja blööin. Og þau bæta góöum punkti viö: „Næst þegar Atli semur, á hann aö semja um visst kílómetragjald vegna þess hve hann hleypur mikið í leikjum. Þá yröi hann meö langbesta samninginn í Bundes- ligunni.“ Það er mjög langt síöan Bayern hefur fengiö aðra eins útreiö og liöiö fékk gegn Fortuna Dússel- dorf. Bayern haföi ekki tapaö meö þriggja marka mun síöan 15. maí 1982 — þá 0:3 gegn Borussia Mönchengladbach. Karl Heinz Rummenigge sagði eftir leik liöanna aö Dússeldorf heföi aldrei átt jafn gott liö. „Meö sama áframhaldi veröa þeir meö í baráttunni um meistaratitilinn,“ sagöi Karl. Lattek þjálfari Bayern sagöi: „Þetta var veröskuldaður sigur Dússeldorf. Viö vorum í kennslustund í knattspyrnu." Kr. 490.638 fyrir 12 rétta í 22. leikviku Getrauna kom fram einn seöill með 12 réttum og er vinningur fyrir rööina kr. 365.370.00 og meö 11 rétta reyndust vera 5 raðir og vinningur fyrir hverja röð kr. 31.317.00. Nokkrir starfsfélagar á Neskaupstað eiga seöilinn meö 12 réttum og er heildarvinningur fyrir hann kr. 490.638.00, þar sem hann er einnig meö 11 rétta í 4 rööum. Eftir stendur þá einn seöill meö 11 réttum í einni röö og er sá seðill frá Hafnarfirði. Utsýn með hópferðir á leiki í Stuttgart FERDASKRIFSTOFAN Utsýn hef- ur ákveöiö aö efna til hópferöar á tvo leiki í vestur-þýsku 1. deild- inni í knattspyrnu. Fyrri leikurinn sem fariö verður aö sjá er á milli Fortuna DUsseldorf og Stuttgart á heimavelli Stuttgart 13. apríl. Síöari leikurinn er þegar vestur- þýsku meistararnir Hamborg leika gegn Stuttgart, 26. maí. Gæti þaö oröiö úrslitaleikurinn í deildarkeppninni í ár. I báöum tilvikum veröur flogið til Luxemborgar og ekiö þaöan til Stuttgart. Um takamarkaöan sætafjölda veröur aö ræöa í báöar ferðirnar. Þarna er um einstakt tækifæri aö ræöa til þess aö sjá stórleiki i knattspyrnu og um lelö íslensku snillingana Ásgeir og Atla sem gera þaö svo gott um þessar mundir í knattspyrnunni í Vestur- Þýskalandi. ATLI LEIKMAÐUR HELGARINNAR í ÞÝSKALAN0I: Morgunblaöiö/ Horst Muller • Atla Eövaldssyni og fólögum í Fortuna Dússeldorf hefur gengið einstaklega vel aó undanförnu eins og kunnugt er. Síöasta skrautfjöðrin í hatt þeirra var stórsigur á Bayern MUnchen á föstudagskvöldið eins og við sögðum frá á iaugardag. Atli átti stórleik gegn Bayern — skoraöi eitt mark og lagði upp tvö. Hér gengur hann glaöur af leikvelli eftir sigurleik — aö vísu ekki gegn Bayern — en ekki leynir sér að gaman er þegar vel gengur. Sjá nánar um þýsku knattspyrnuna/23.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.