Morgunblaðið - 07.02.1984, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
37
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja í friðarskaut.
(Sb. 1886 - V. Briem.)
F.h. starfsfólks O.N. Olsen,
Kolbrún Sverrisdóttir.
Árið 1934 hófst merkt tímabil í
atvinnusögu íslendinga. Ungur
Norðmaður, Símon Olsen, hafði
árið 1927 komið með norskum bát
til ísafjarðar og verið hér vélstjóri
hjá fiskibátum um nokkurra ára
skeið. Örlögin réðu því að hér hitti
hann sinn lífsförunaut, Magnús-
ínu Richter, og giftu þau sig árið
1931.
Hinn ungi Norðmaður hafði
stundað rækjuveiðar í Noregi og
eftir að hann hafði kynnst stað-
háttum hér var hann sannfærður
um að hér fyndist rækja. Hann
fékk leigðan bát og reyndi fyrst
fyrir sér í Jökulfjörðum, fann
rækju, en ekki mikið magn. Ekki
höfðu heimamenn mikla trú á
þessu brölti og fannst hann smá-
skrítinn þessi Norðmaður, sem
ætlaði að fara að veiða marflær.
En Símon Olsen var ekki á því að
gefast upp. Hann reyndi nú fyrir
sér í Djúpinu og leist best á
Hestfjörð. Árangurinn varð mjög
góður miðað við aðstæður, svo
góður að bæjaryfirvöld settu á
stofn rækjuverksmiðju og fleiri
bátar bættust í hópinn. Fyrsti
kapítulinn í sögu rækjuveiða og
rækjuvinnslu á lslandi var hafinn.
í dag kveðjum við nú með sökn-
uði son þessa brautryðjanda, góð-
an dreng, sem fallinn er frá langt
um aldur fram.
Ole N. Olsen markaði djúp spor
í atvinnusögu ísfirðinga, engu síð-
ur en faðir á árum áður. Eftir að
hafa verið með föður sínum á
rækjuveiðum fór hann kornungur
til Noregs að kynna sér niðursuðu
og síðar til Frakklands og Þýska-
lands í sama tilgangi. Eftir að
hann kom heim gerðist hann verk-
stjóri í rækjuverksmiðjunni Pólar
hf. uns hann stofnsetti sitt eigið
fyrirtæki, Niðursuðuverksmiðju
O.N. Olsen. Árið eftir réðst hann í
að láta reisa 1. hæðina í núverandi
verksmiðjuhúsi, sem nú telur 3
hæðir ásamt myndarlegri nýbygg-
ingu.
Óli var duglegur, stórhuga og
vakandi fyrir öllum nýjungum,
sem horfðu til framfara í rekstrin-
um. Hann sá fljótlega að með vax-
andi rækjuveiði átti handpillun
litla framtíð fyrir sér og keypti
því ameríska rækjupillunarvél frá
Christian Bjelland í Noregi.
Með tilkomu vélarinnar varð
bylting í atvinnurekstrinum og
varð hann því fljótlega stærsti og
umsvifamesti rækjuframleiðandi
bæjarins.
Kynni okkar Óla hófust ekki að
ráði fyrr en árið 1974 en þá var ég,
við breytingu á rekstrarfyrir-
komulagi, ráðinn framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins. Óli varð þá
stjórnarformaður og með okkur
tókst fljótlega góð samvinna.
Fjölmargra samverustunda
okkar er mér ljúft að minnast, yfir
kaffibolla heima hjá honum og
mömmu hans, á stjórnarfundum
þar sem málin voru reifuð og
stefnan mörkuð eða á ótal rabb-
fundum, sem við áttum á skrif-
stofu minni, þar sem við ræddum
saman í bróðerni ýmis málefni
fyrirtækisins. Mér þótti oft gott
að leita til óla um ráðleggingar
um ýmis málefni, sem voru að
brjótast í mér og stóð þá ekki á
góðum ráðum sem byggð voru á
hans miklu reynslu sem fyrrver-
andi stjórnanda fyrirtækisins.
Oftar en ekki átti hann líka til að
koma til mín ótilkvaddur og gefa
mér vinsamlegar ábendingar um
ýmis atriði, sem honum þótti mið-
ur fara í fyrirtækinu í það og það
skiptið. Ekki vorum við þó alltaf
sammála, en við tókum tillit hvor
til annars og ágreiningsmálin þá
alltaf leyst í bróðerni með hag
fyrirtækisins að leiðarljósi.
Árið 1959 stofnaði Oli heimili
með Finnu Bottelet og eignuðust
þau tvær dætur, Kristbjörgu og
Selmu. Þau slitu samvistir árið
1%2 og fluttist hún til Reykjavík-
ur með dætrum sínum. Samband
Óla við dæturnar var alltaf mjög
gott og náið og dvöldu þær oft hjá
pabba sínum og ömmu á ísafirði.
Ekki er hér meiningin að rekja
æviferil Ole N. Olsen í þessari
stuttu minningargrein, en þó verð
ég að geta hér tveggja hörmulegra
áfalla sem hann og fjölskylda
hans urðu fyrir. 25. september
1961 fórust faðir hans og yngri
bróðir í rækjuróðri með vélbátn-
um Karmoy. Þá var Óli 26 ára
gamall og hefur þetta verið mjög
sár og erfið reynsla fyrir hann,
móður hans og systkini. Hinn 4.
maí 1973 veiktist yngsti bróðir
hans skyndilega og lést aðeins 28
ára gamall. Þessi mikli og sári
ástvinamissir hefur haft þungbær
.og djúpstæð áhrif á Óla, en hann
var dulur persónuleiki og flíkaði
ekki tilfinningum sínum, bar frek-
ar harm sinn í hljóði.
Síðustu árin gekk Óli ekki heill
til skógar, en þótt ljóst væri að
kraftar hans og mótstaða væru að
þrotum komin, bjóst enginn við
því að endalokin væru svo skammt
undan. Hann. fékk hægt andlát
laugardaginn 28. janúar sl. Löngu
og erfiðu stríði var lokið, stríði við
fjandmann, sem lagt hefur marg-
an góðan drenginn að velli og þótt
ein og ein orrusta vinnist kannski,
sleppur enginn ósár úr þeim hild-
arleik.
Við komum hér á kveðjustund
að kistu þinni bróðir
að hafa við þig hinzta fund
og horfa á gengnar slóðir.
Og ógn oss vekja örlög hörð,
en ennþá koma í hópinn skörð,
og barn sitt faðmi byrgir jörð,
vor bleika, trygga móðir.
En minning þin er mjúk og hlý
og um oss standa nærri.
Með hverju vori hún vex á ný
og verður ávallt kærri.
Ef lífsins gáta á lausnir til,
þær ljóma bak við dauðans þil.
Og því er gröfin þeim í vil,
sem þráðu útsýn stærri.
(M. Ásg.)
Elsku Magga mín, Inga Rut,
Selma og Kristbjörg, þið sjáið nú
á eftir ástkærum syni, bróður og
föður. Við Inga vottum ykkur og
öðrum ættingjum okkar dýpstu
samúð og biðjum góðan Guð að
styrkja ykkur í sárum harmi.
Að leiðarlokum kveð ég góðan
vin og samstarfsmann með virð-
ingu og þökk. Blessuð sé minning
Ole N. Olsen.
Theodór Norðkvist
Minning:
Brynjólfur Helgi
Þorsteinsson
Fæddur 22. mars 1900
Dáinn 30. janúar 1984
Rétt í þann mund er vinur minn,
Brynjólfur Helgi, var að hverfa úr
þessum heimi, vorum við nokkrir
vinir hans að minnast Halaveð-
ursins í þorralok ársins 1925. Þá
stóð Brynjólfur Helgi í stríðu sem
kyndari á togaranum Ara, þegar
allir eldar voru kulnaðir og skipið
maraði á hliðinni í hálfu kafi. Fáir
eygðu þá nokkra lífsvon. Á Brynj-
ólfi mátti ekki merkja nokkurn
bilbug frekar en endranær í ólgu-
sjóum lífsins — samkvæmt frá-
sögninni.
Brynjólfur Helgi var fæddur 22.
mars árið 1900 í Garðhúsum í
Höfnum. Foreldrar hans voru
Þorsteinn útvegsbóndi Árnason í
Kirkjuvogi og kona hans, Gíslína
Gísladóttir.
Allt frá fermingaraldri reri
Brynjólfur í útvegi föður síns og
sautján ára var hann þegar hann
réðst á útilegubáta á sumrin. Árið
1922 fluttist hann til Reykjavíkur
og síðan átti hann heima hér í
staðnum, um sextíu ára skeið.
Hann var skráður á togarann
Ara árið 1923, fyrst sem háseti,
síðar gerðist hann kyndari. í janú-
armánuði árið 1926 var hann ráð-
inn á þetta sama skip sem annar
vélstjóri og stóð þar uns skipið var
selt til Patreksfjarðar nokkrum
árum síðar. Fyrir réttum fjórum
áratugum fékk hann réttindi sem
vélstjóri og sigldi sem slíkur á
ýmsum skipum fram til ársins
1941. Þá hóf hann að vinna að
vélaviðgerðum í Vélsmiðjunni
Hamri og vann hann því fyrirtæki
gott og dyggilegt starf. Hann lét
þar af störfum rúmum þremur
áratugum síðar, seint á sólmánuði
árið 1972.
Brynjólfur Helgi var kvæntur
móðursystur undirritaðs, Ólafíu
Árnadóttur, og var þeirra sambúð
með eindæmum alúðleg og náin.
Ólafía dó 16. september síðastlið-
inn og er það ekki ósatt að síðan
hafi Brynjólfur, ljúflingur minn,
ekki litið glaðan dag. Hann lést að
morgni 30. janúar svo sannarlega
saddur lífdaga. Fylgja honum góð-
ar óskir og þakklæti þeirra er best
vissu hve ljúfur vinur hann var
þeim er mest þurftu á hlýju og
alúð að halda. Gleymist seint, hve
eindæma ósporlatur hann var í
þágu þeirra sem ekki töldust
fylgja okkur hinum í geðheilsu og
góðri eftirbreytni.
Guð blessi minningu Brynjólfs
Helga.
Brynjólfur verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag þriðjudag
kl. 15.30.
Hjálmar Ólafsson
BV
Hand-
lyfti-
vognar
Eigum ávalltfyrirliggjandi
hina velþekktu BV-handlyfti-
vagna með 2500 og 1500
kílóa lyftigetu.
Útvegum einnig allt sem
viðkemur flutningstækni.
m ÉjgÍjÍP^
•l—
LÁGMÚU5, 105 REYKJA V/K
S/MI: 91- 85222
PÓSTHÓLF: 887, 121REYKJA VÍK
Vegg- og loftklæðning
í glæsilegu úrvali
úr eik, aski, beiki, gullálmi, furu,
antikeik, mahogany, palesander og
10 tegundir til viöbótar.
Verö frá aöeins kr. 75 pr m\
BJÖRNINN HF
Skulatuni 4 - Simi 25150 - Reykjavik