Morgunblaðið - 07.02.1984, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
41
fclk í
fréttum
Rasmine Olsen, elsti borgari í Danmörku. Á hverjum degi fær hún sér
eitt glas af kirsuberjavíni og segir, að þaö geri sér gott.
Jafnaldra Jennýjar
aldursforseti í Danmörku
+ Elsti íslendingurinn, Jenný Guðmundsdóttir, sem varð 105 ára í
janúar sl., á sér stöllu og jafnöldru í Danmörku, sem einnig er aldurs-
forseti þar í landi. Heitir hún Rasmine Olsen og veröur 105 ára 20.
febrúar nk.
Rasmine er fædd á Fjóni árið 1879 og fyrir níu árum héldu þau
hjónin upp á gullbrúðkaup sitt. Þá var Rasmine að verða 97 ára en
maður hennar var 13 árum yngri eða 84 ára. Skömmu síðar lést
hann.
„Þá varð ég að fara á elliheimili og mér líkaði það nú ekki vel í
fyrstu, það var svo mikið af gömlu fólki þar,“ segir Rasmine, sem
alltaf hefur verið aldursforsetinn á heimilinu. „Nú er ég þó þakklát
fyrir það, hér er gott að vera.“
í Danmörku eru nú 205 manneskjur komnar yfir tírætt.
Steve Kanaly
og
Susan Howard,
sem leika hjónin Ray og
Donnu Krebbs í Dallas, segj-
ast nú vera búin að fá nóg af
Ewing-fjölskyldunni eftir
rúmlega sex ára kynni. Eru
þau nú í þann veginn að
hrinda af stað sínum eigin
sjónvarpsþætti.
„Við nennum ekki lengur að
vera hálfgert uppfyllingarefni
fyrir hina „raunverulegu“ að-
alleikara, Ewingana," segja
þau Steve og Susan.
Alan Alda
mun áfram eiga fyrir salti í
grautinn þótt MASH-
þættirnir séu nú liðin tíð.
Nú er hann farinn að aug-
lýsa fyrir Atari-tölvufyr-
irtækið og kemur fram í
baðslopp og með hund í
bandi. Fyrir þessa vinnu
sína fær hann 120 milljónir
ísl. kr. á ári næstu fimm
árin.
Peter Falk
sem margir minnast sem
leynilögreglumannsins Col-
umbo, ætlar nú eftir sex ára
hlé að taka upp þráðinn
aftur þar sem frá var horf-
ið. NBC-sjónvarpsstöðin
bandaríska hyggst gera
með honum tvo þætti til að
byrja með og ef þeim verð-
ur vel tekið munu fleiri
fylgja í kjölfarið.
Fötin
hennar
Oliviu
slógu
í gegn
+ Olivia Bass heitir ung hárgreiðslu-
kona í London, sem nýlega var boðið
að vera við vígslu nýs næturklúbbs í
borginni. Olivia þáði að sjálfsögðu
boðið með þökkum og til að vera viss
um að hún mætti ekki á vígsluna í
sömu fötunum og einhver önnur
ákvað hún að sníða sér klæðin sjálf.
Þegar í veisluna kom sló Olivia í gegn
í orðsins fyllstu merkingu og átti
kvöldið, a.m.k. í augum karlmann-
anna, sem fengu aldrei nóg af að
virða fyrir sér nýja dressið hennar.
Sýj OVAKO
RAFSUÐUVIR
FYRIR MIG
— MAG SUÐU
0,6 mm, 5 kg rúllur.
0,6 mm, 15 kg rúllur.
0,8 mm, 15 kg rúllur.
1,0 mm, 15 kg rúllur.
1,2 mm, 15 kg rúllur.
1,6 mm, 15 kg rúllur.
Mjög hagstætt verð.
Sölustaðir:
Einkaumboð:
GUÐNI
GASOL GBJ JÓNSSON&CO.
Bolholti 6 Reykjavik Skipagötu 13 Akureyri Rolholtí 6 Revkiavík
Siml 84377 Simi 96-22171 ö neyivjavm.