Morgunblaðið - 08.04.1984, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984
Symr
og
elskhugar
— sjálfsævisaga höfundar
Skáldsagan Synir og elskhugar, sem íslenskir sjónvarps-
áhorfendur fá nú að sjá í leikbúningi í stað Dallasþátt-
anna á skerminum á miðvikudagskvöldum, er talin meðal
merkustu bókmenntaverka Breta í byrjun 20. aldar og hafa
margar bækur verið skrifaðar um söguna og höfundinn,
D.H. Lawrence. Þetta er í raun lítt dulbúin og margræð
æfisaga þessa merka rithöfundar frá því hann fæðist og
fram að 25 ára aldri, þegar hann er farinn að heiman og
væntanlega að losna undan áhrifum og ást á móður
sinni, sem dó úr krabbameini á mjög svipaðan hátt og
Gertrude Morel í sögunni. Hún hafði þá rétt náð því að
fá fyrstu skáldsögu sonarins, „Hvíti páfuglinn“, í
hendurnar.
Árið 1910 var afdrifaríkt í lífi
Lawrence. Hann byrjaði á sögunni
Synir og elskhugar í október, sleit
trúlofun sinni við Jessie Chamers í
nóvember, móðir hans dó 10. des-
ember og hann tók aftur til við
söguna, sem hann nefndi í fyrstu
einfaldlega Paul Morel, í ársbyrj-
un 1912. Bókin kom svo út endur-
skrifuð 1913. Þetta voru mikil
tímamót í lífi D.H. Lawrence.
Veikindi þvinguðu hann til að
hætta kennslu í janúar 1912. Hann
kom oft heim til Nottingham. Það
tók hann langan tíma að slíta
böndin við heimkynnin, sem eru
undirstaðan í Synir og elskhugar.
Þótt móðir hans væri dáin hélt
hann allt til 1912 persónulegu
sambandi við Jessie Chambers,
sem er Miriam í bókinni. Aðrar
vinkonur átti hann þar og í Lond-
on, sem renna saman í persónuna
Klöru Dawes, Það var því ekki fyrr
en 1912 að losnaði um böndin. Það
ár hitti hann Friedu, þýska konu
sem gift var enskum prófessor í
Nottingham. Hann tók saman við
hana og hélt til útlanda, þar sem
þau dvöldu lengst af æfi hans. Því
er bókin skrifuð og endurskrifuð
undir áhrifum þessara þriggja
kvenna, móður hans, unnustunnar
og ástkonunnar. Lawrence lauk
bókinni erlendis með hjálp Friedu
og gekk frá henni til útgáfu 1913.
Skáldsagan Synir og elskhugar er
enn mikið lesin og telst til klass-
ískra bókmennta 20. aldar. Og eng-
inn stúderar enskar bókmenntir
án þess að þekkja hana og greina.
Sjónvarpsþættirnir sjö
Kvikmyndir hafa verið gerðar úr
þessari eins og raunar fleiri
skáldsögum þessa höfundar. Ein
kvikmyndanna, The Lost Girl, var
sýnd hér ekki alls fyrir löngu. Og
sjónvarpsþættir hafa verið gerðir
eftir smásögum hans. En sjö þátta
sjónvarpsgerðin, sem um þessar
mundir er sýnd á íslandi, er fyrsta
meiri háttar kvikmyndin eftir sög-
unni Synir og elskhugar. Vel hefur
verið til vandað, eins og Breta er
háttur, og leikaraval ekki af verri
endanum. Eileen Atkins leikur
hina áhrifaríku móður, Gertrude
Morel, og Tom Bell föðurinn, Walt-
er Morel, en sjálfan Paul Morel
uppkominn leikur Karl Johnson.
Fyrstu ástina hans Miriam leikur
Leonie Milling og seinni ástkonuna
Klöru leikur Lynn Darth, en báðar
eru raunverulegar persónur úr lífi
höfundar. Það var Trevor Griff-
iths, sem er einn af þekktustu leik-
ritahöfundum Breta, sem vann
n
Samband hans
við móðurina
hindraði líka að
hann gœti mynd-
að eðlilegt ástar-
samband fyrr en
að henni
látinni
sjónvarpshandritið upp úr skáld-
sögunni.
Uppgjör við umhverfi
og uppruna
í Sonum og elskhugum er D.H.
Lawrence að gera upp við uppruna
sinn og umhverfi og þau djúp-
stæðu áhrif sem það hafði á hann.
Fyrri hlutinn lýsir umhverfi því
sem Paul Morel elst upp í, þar sem
Breski rithöfundurinn
D.H. Lawrence,
sem skrifaði söguna
Synir og elskhugar.
Myndin er máluð árið 1920.
faðir hans, móðir og systkini skipa
mikilvægan sess, en drengurinn er
aðeins hluti af sögunni. En síðari
helmingurinn snýst um hann fyrst
og fremst og umhverfið og fjöl-
skyldan í bakgrunni. Móðir hans
kemur þó fyrir í hverjum kafla.
Synir og elskhugar er skáldsaga,
sem fylgir barnæsku og unglings-
árum Lawrence sjálfs mjög náið.
Fjölskylda David Herbert Law-
rence bjó í stóru þorpi nálægt
Nottingham, Eastwood, þar sem
hann fæddist 1885, einn af yngri
systkinunum. Lydia móðir hans
var stolt kona, allvel menntuð og
siðfáguð. Hún kom því að vissu
leyti úr samfélagi sem stóð nokkru
ofar í þjóðfélagsstiganum en sam-
félag námumanna sem hún kom
inn í við giftingu. Hún var ekki
hamingjusöm í hjónabandinu og
þegar ólgandi fjör og kraftur
eiginmannsins hafa ekki lengur
aðdráttarafl fyrir hana, þá virðist
henni hafa fundist lífið lítils virði
og alls ófuilnægjandi.
Faðir David H. Lawrence var að
öllum líkindum ekki alveg eins
grófur og Morel í Synir og elskhug-
ar. Seinna á æfinni áttaði rithöf-
undurinn sig á því að hann hefði
e.t.v. verið ósanngjarn í dómum
sínum um föður sinn í skáldsög-
unni. Enda var ein af grundvall-
arskoðunum hans alla æfi að betri
væri hlýja og líf en kuldi og dauði
og faðir hans var vissulega líflegur
og aðlaðandi maður, sem virðist
hafa verið hrókur alls fagnaðar yf-
ir bjórglasi og á dansgólfinu. Samt
sem áður er enginn vafi á því að
Lydia Lawrence hafði orðið fyrir
vonbrigðum með mann sir.n og há-
vaðasöm rifrildi þeirra skutu
börnunum skelk í bringu. D.H.
varð fyrir miklum áhrifum frá
móður sinni. Hún ýtti undir and-
lega og listræna hæfileika hans og
hjálpaði honum til að komast í
gagnfræðaskólann í Nottingham,
þar sem hann var við nám til 16
ára aldurs. Það ár kynntist hann
unglingsstúlku að nafni Jessie
Chambers, sem greinilega er und-
irstaðan að Miriam. Jessie bjó með
foreldrum sínum og bræðrum á
bóndabæ, lá í rómantískum skáld-
sögum, var mjög trúuð og stofnaði
til upphafins, andlegs ástarsam-
bands við David H. Lawrence, sem
sennilega hefur ekki leitt til þess
líkamlega ástarsambands sem
tíertrude Eileen Atkins
í hlutverki móðurinnar
Gertrud Morel
ásamt syni sínum
sem leikinn er af Ian Kirby.
verður milli Pauls og Miriams í
skáldsögunni. Miriam bíður lægri
hlut fyrir móður hans í togstreit-
unni um „sál“ Pauls og missir
hann til Klöru, sem hefur fremur
kynferðislegt aðdráttarafl og
ógnar því ekki á sama hátt sam-
bandinu við móðurina.
Eftir að skólanámi lauk vann
Lawrence stuttan tíma í skurð-
læknatækjaverksmiðju Hayworths
og ákvað svo að verða kennari. Frá
1902 til 1906 var hann í kennara-
þjálfun og síðan í 2 ár, eða til 1908,
í kennaraháskólanum í Notting-
ham, þar sem hann aflaði sér
fullra kennsluréttinda. Á kennslu-
árunum hélt hann áfram að stunda
áhugamál sín, teikningu, tónlist,
sem móðir hans hafði hvatt hann
mjög til, grasafræði og frönsku, en
áhugi hans á blómum og stolt móð-
ur hans yfir garðinum sínum kem-
ur vel fram í Sonum og elskhugum.
Og þar lesa Paul og Miriam líka
saman franskar bókmenntir.
1908 fékk Lawrence kennslustarf
í London og fór því í fyrsta sinn að
heiman. Svo mikil og langvinn
tengsl drengsins við móður sína,
heimilið og samfélag námumanna
í Eastwood hafði fdrifarík áhrif á
þroskaferil rithöfundarins. Þótt
hann héldi áfram að skrifa skáld-
sögur um alls konar fólk og marg-
víslega staði, svo sem Ástralíu og
Mexíkó, þá voru bestu verk hans og
áhrifaríkustu án efa þau sem ræt-
ur áttu og baksvið í miðhéruðum
Englands. Og skáldsagan ber hæst
þar sem hún Iiggur næst eigin
reynslu höfundarins. Bókin endar
þar sem Paul ákveður að halda að
heiman og gefið í skyn að loksins
séu uppvaxtarárin á enda. Upp frá
því tók lífshlaup hans á sig aðra
mynd. í staðinn fyrir þá mynd sem
hann gefur í Sonum og elskhugum
kemur samband hans við Friedu
og sjálfvalin útlegð frá Bretlandi
og hann er upp frá því rithöfundur
í fullu starfi. Æfi hans markast
líka upp frá því af heilsuleysi og
stundum fátækt.