Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 26

Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 færi til þess að vinna mikið í leir og síðan ég kom að því að vinna í leir fyrir mína sýningu þurfti ég eiginlega ekkert að hita mig upp. Að loknu starfi með Ragnari bauðst mér aðstaða hjá Glit á gestaverkstæði fyrirtækisins í Listasmiðjunni, og því tækifæri var ekki hægt að sleppa. Skilyrðið var að halda sýningu og ég hefði aldri farið út í slíkt að sinni ef þetta stórkostlega boð hefði ekki komið til, ég hefði ekki iagt út í það og svo var það mér mikill styrkur að fá stuðning Brunabóta- félags Íslands, sem tryggði mér starfslaun í þrjá mánuði. Það hef- ur verið skemmtilegt hvernig Orri, framkvæmdastjóri Glits, og annað starfsfólk hafa hvatt mig. Satt best að segja veit ég ekki hvenær ég fékk áhugann fyrir höggmyndalist, en fyrsta skúlp- túrinn bjó ég til í I. bekk í mennta- skóla, pínulítinn skúlptúr úr vaxi, puttastærð, par í faðmlögum. Lík- lega flokkast það undir 15 ára rómantík. f forskólanum í MH máttum við velja annir, grafík eða mótun. Ég greip það fegins hendi svo segja má að áhuginn á höggmyndalist- inni hafi vaxið upp hægt og ró- lega, en samt var það ekki fyrr en alveg nýlega að ég varð 100% viss um hvað ég vil og ég vil fást við mótunina. Ég hef einnig mjög gaman af að teikna, en það er eitthvað sérstakt við mótunina. AÐFARA VEL MEÐUFIÐ Rœtt við Ragnhildi Stefánsdóttur myndhöggvara GREIN: ÁRNI JOHNSEN. MYNDIR: ÁRNI JOHNSEN Oí; RAGNAR AXELSSON. Hún teiknar og mótar, teiknar og mótar og þannig vex hún af vinnu sinni út úr teikningunni yfir í sjálfstærta höggmynd, því höggmynd er eitt og teikning annart eins og hún segir. Ragn- hildur myndhöggvari er árærtin í starfi sínu, kvik og dugleg og eins og einfari á fjöllum leitar hún átta í sköpun sinni, ung kona sem veit hvart hún vill starfa art í listsköpuninni. í haust sem leirt þegar ég leit inn til hennar á leikverkstærti Glits, var hún að hefjast handa, skapa fyrir höggmyndasýningu. Nú stendur höggmynd virt höggmynd, mikiö verk art baki. essar högg- myndir eru hug- leiðingar um líf- ið og dauðann, hvernig maður- inn lifir lífinu og hvað verður um hann þegar til- veru þessa lífs lýkur, hugleiðingar um frelsið, hvort maðurinn verði nokkurn tíma frjáls í lífinu, hvort hann verði ekki ávailt að setja sér einhver takmörk til þess að öðlast frelsið, hefta sjálfan sig til þess að geta öðlast það frelsi sem hægt er að ná í lífinu og ætti ekki að ná lengra en að rétti næsta manns eða hvort frelsið komi ef til vill samfara dauðanum, segir Ragn- hildur Stefánsdóttir, mynd- höggvari, þar sem hún benti á lið- lega 20 höggmyndir sem hún hefur unnið á undanförnum mánuðum á gestaverkstæði Glits, en þar vinn- ur Ragnhildur að sýningu sem hún hyggst halda á Kjarvalsstöðum í apríl. „En það eru örugglega miklar mótsagnir í þessu hjá mér, til dæmis hvort líf er eftir dauðann, eða hvort allt er búið að loknu jarðlífinu, en sjálf reyni ég að ríma við líf eftir dauðann. Þessi verk eru mínar vangaveltur, en ekki eftir neinum kenningum. Þetta er einnig spurning um það hvort sálin fylgi efninu eða losni frá því. Mér finnst stundum eins og það hljóti að vera þannig þegar líkaminn deyr, að þá sameinist hann jörðinni og ef sálin fylgir efninu þá fer sálin út í allt með Fallvölt veröld, jörðin er undir, en ofan á dansa menn eða bein. Formið getur einnig virkað sem skógur, angarnir leita upp í Ijósið en formið er bjrjun á lærlegg. Þannig má túlka höggmyndina sem frumskóg eða borg og allt miðast við það að halda jafnvægi á jörðunni þar sem það má svo litlu muna að hlutirnir fari ekki úrskeiðis. efninu og auðvitað getum við endalaust haldið áfram að velta vöngum um það hvar lífið heldur áfram." Jú, ég er Reykvíkingur, varð stúdent úr Menntaskólanum í Hamrahlíð 1977, en var þá byrjuð í Myndlista- og handíðaskólanum, en þar útskrifaðist ég fjórum ár- um síðar úr myndhöggvaradeild- inni og var síðan eitt aukaár í viðbót, en ég var í hópi fyrstu nemendanna í deildinni. Þá var ég eitt sumar í Bandaríkjunum við nám í myndhöggvaralist og það er ef til vill rétt að geta þess að ég stundaði einnig nám í skúlptúr í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Að loknu þessu úthaldi hóf ég síðan vinnu hjá Ragnari Kjart- anssyni sem aðstoðarmaður hans og fyrstu fjórir mánuðirnir fóru í vinnu við beljuna stóru og síðan vann ég í níu mánuði sem aðstoð- armaður Ragnars fyrir sýningu hans. Þesi vinna með Ragnari var geysilega góður skóli og um það er allt gott að segja. Ég fékk tæki- Mér finnst skemmtilegt að vinna í leir, en það eru svo ótal mörg efni sem koma til greina að fást við. í Bandaríkjunum vann ég við alls konar gerfiefni, það var óhugnan- legt að finna þau, en útkoman var skemmtileg. Ég held að maður hljóti að vinna sig best í einhverju ákveðnu efni, en ég veit ekki hvort ég er búin að finna það efni sem hentar mér best. Það er mjög þægilegt að vinna í leir og leirinn gefur mikla möguleika. Svo er leirinn einnig hættulaus, náttúru-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.