Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 35

Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 Fl ugeldam úsík Hiin dels Sígildar skífur Konráö S. Konráösson Philip Jones Brass Ensamble. Stjórnandi: Elgar Howarth. DECCA SXDL 7564. Tvímælalaust má telja þá tónlist Hándels, sem kennd er við flugelda til merkustu verka barokktímans. Smíð verksins og flutningur þess var á sínum tíma þáttur í hátíðahöldum enskra vegna hagstæðra friðarsamn- inga í Aachen haustið áður. Var þar bundinn endi á austurríska erfðastríðið, sem reyndist ensk- um jafn tilgangslaust og öll önn- ur stríð, auk þess sem þar var kveikja að þeim átökum, sem leiddu til þess að enskir glötuðu um síðir nýlendum sínum í Am- eríku norðanverðri, þar sem nú eru Bandaríki N-Ameríku aust- anverð en það er önnur saga. Hátíð skyldi halda og hámark hennar verða flugeldasýning meistarans Servandini og manna hans, en til fyllingar skyldi Hándel semja tónlist. Kvað konungur hans, Georg II, svo á um, að þar skyldu fremst lúðrar blásnir og bumbur barð- ar. Ekki segir sagan Hándel hafa tekið því með þögninni að strengjahljóðfærunum skyldi svo ýtt til hliðar, en allt um það. Að loknu 101 fallbyssuskoti, og þó flugeldasýningin mis- heppnaðist, samhljómuðu 9 trompetar, 9 horn, 24 óbó, 12 fagott og 3 trumbur, auk fjölda strengja í vornóttinni 27. apríl 1749. Þó að tónlistin væri dýrð- leg og tónleikarnir hápunktur hátíðahaldanna var Hándel samt ekki ánægður. Nokkru síð- ar boðaði hann til útitónleika til velgjörðar einu af sjúkrahúsum Lundúna, þar sem endurflutt skyldi Flugeldatónlistin. Þar hafði hann fækkað blásturs- hljóðfærum verulega, en í stað þeirra aukið hlut strengjanna. Þannig hafði hann fært verk sitt nær höfuðformi barokktímans: „concerto grosso" (samanber Brandenburgarkonserta JS Bach). Það er einmitt í þessari síðari útgáfu sem tónlistin er þekkt í dag. Oftast er hin kon- unglega Flugeldatónlist þannig flutt af strengjasveit, en við auk- ið nokkrum trompet-, horn- og óbóleikurum. Svo er þó ekki í þeirri útgáfu sem hér um ræðir með hornaflokki Philip Jones. Þar er Flugeldatónlistin um- skrifuð fyrir 3 trompeta, 3 horn, kornett, 3 búsúnur auk tenór- og bassatúbu og páka. Strengja- hljóðfærum er þannig sleppt. í flutningi hornaflokks Philip Jones, undir stjórn Elgar How- arth hljómar hin Konunglega Flugeldatónlist snjallt og e.t.v. nær uppruna sínum en áður er að venjast. Einkum nýtur hljóð- færaskipun þessi sér vel í kafl- anum sem kenndur er við fögn- uðinn — La Réjouissance, sem og í forleiknum, en nokkru síður í rólegri og ómþýðari köflum verksins, s.s. La Paix. Fleiri verk Hándels eru á þess- ari ágætu skífu en Flugeldatón- listin. Á hinni hlið hennar er samtíningur tónlistar, sem feng- in er úr ýmsum stærri verka hans og hlýtur að teljast misfall- in til umskriftar fyrir horna- flokk. Best hljóma „Koma drottningarinnar af Saba“ úr HANDEL Fnvw'irt'k.s >1ii>k •tviM.'rwvrkstmuúk VVator Mush' •W'.issomiuíúk-Saitc FJtiar Him'.irth l’IIIIJPJONES BR ASS ENSEMBLE l’MII.IPJONES KI.ASERENSEMBLE óratóríuminu Salómon, sem Hándel samdi 6 árum síðar en Messías, og kaflar úr Lagartón- listinni (Water music), sem stjórnandinn hefir sjálfur út- sett. Menúett úr nú lítt þekktri óperu Hándels, „Berenice", hljómar skýrt og fallega, sem verður ekki sagt um kaflann úr „Járnsmiðnum samhljómandi“ (The Harmonious Blacksmith), enda þótt tækni túbuleikarans sé aðdáunarverð. Upptaka þessa.ra verka var 1981, en skífan ekki gefin út fyrr en á afliðnu ári. Hvað hljóðritun snertir er hljómurinn mjúkur og áferðarfallegur, en hljómmyndin því miður fjarlæg og nokkuð óskýr. Virðist sem hornaflokkur- inn standi í hnapp og fjarri áheyrandanum og er betri upp- tökum að venjast hjá tækni- mönnum DECCA. Hljóðritunin er „digital". Pressun skífunnar er ekki af hæsta gæðaflokki og í mínu eintaki spillir lágvært snarkið hljóðum köflum óþarf- lega. Ekki skal þó ágöllum ofgert á annars áhugaverðri og eigulegri hljómplötu. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar | nauöungaruppboö Nauðungaruppboð Annað og síðasta sem auglýst var í 126., 128. og 130. tbl. Lögbirtingablaösins 1983, á jörð- inni Miklaholti, Hraunhreppi, Mýrasýslu, þinglýstri eign Gunnars Fjeldsted, fer fram að kröfu Jóhannesar Jóhannessen hdl., Kristjáns Eiríkssonar hrl. og Einars Viðars hrl., á eigninni sjálfri, föstudaginn 13. apríl nk. kl. 14.00. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu húsnæöi öskast íbúðaskipti — Kaupmannahöfn íbúð eða einbýlishús í Kaupmannahöfn óskast í skiptum fyrir 140 fm sérhæð í Hafn- arfirði. Tímabil frá sumri 1984 til eins árs. Nánari upplýsingar í síma 52909. Húsnæði óskast Stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að taka á leigu ca. 200 fm húsnæði undir bif- reiðaverkstæði í austurhluta borgarinnar. Einnig kemur austurhliti Kópavogs til greina. Uppl. sendist augl.deild Mbl. merkt: „Hús- næði — 960“. Vantar til leigu 50—100 fm lagerhúsnæði í Reykjavík eða nágrenni á 1. hæð eða götuhæð. Bílskúrs- hurð nauðsynleg. Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaðs- ins merkt: „D — 1860“. Iðnaðarhúsnæði óskast til leigu um 200 fm til matvælafram- leiðslu á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Tilboð sendist Mbl. fyrir 15. þ.m. merkt: „lön- aðarhúsnæði — 229“. Miðbærinn Óskum eftir 40 til 100 fm húsnæði fyrir kaffi- hús í miðborginni. Vinsamlegast leggið inn tilboð á augl.deild Mbl. fyrir 14. apríl nk. merkt: „K — 226“. húsnæöi i boöi Einbýlishús til leigu Til leigu er nýtt einbýlishús í Reykjavík. Til- boö er greini fjölskyldustærð, fyrirfram- greiðslu og hugsanlega leigufjárhæö, sendist Mbl. merkt: „Seláshverfi — 1165“. Þórshöfn Til sölu er íbúöarhús aö Langanesvegi 8, Þórshöfn. Húsiö er kjallari og hæð, ca. 135 fm, stórt óinnréttað geymsluris. Nánari uppl. í síma 96-81168 eða 81132, Skrifstofuhúsnæði til leigu í Hafnarstræti, 270 fm á 3. hæð (lyfta). Fyrir skrifstofu eða aðra þjónustu. Uppl. í síma 18060 eða 84352. Verslunarpláss — Laugavegur Til leigu glæsilegt verslunarhúsnæði í nýju húsi á besta stað við Laugaveg. Möguleikar á ýmsum stærðum frá 40 m2. Tilbúið til afhend- ingar ca. september 1984. Lysthafendur leggi inn nafn og símanúmer til afgreiðslu Morgunblaðsins merkt: „Verslun — Laugavegur“. kennsla Enska í Englandi í Concorde International málaskólanum. Námskeið fyrir 10—25 ára júlí—ág. Verð frá £226 fyrir 2 vikur. (Gisting, fæði, nám og skemmtanir.) Almenn námskeiö allt árið frá £75 á viku. Uppl. í s. 36016. Frá skóla ísaks Jónssonar Innritað verður í 5 og 6 ára deildir, 9.—13. apríl, milli kl. 12 og 15 í síma 32590. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.