Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 1
48 SIÐUR STOFNAÐ 1913 115. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Skærur Sýrlendinga og írana í Beekadal Beirút, Sídon og Damaskus, 21. maí. AP. SÝRLENSKUM hermönnum og írönskum byltingarvördum laust saman nærri Balbeek í Bekaadal um helgina og stóð skothríðin í rúma hálfa klukkustund. Ekki er vitaö hvað olli átökunum, en fremur hefur verið friðsamt með hersveit- unum til þessa. Einn sýrlenskur hermaður lét lífið, en þrír byltingarverðir særöust, tveir þeirra lífshættulega að því að talið er. Ýmislegt þykir benda til þess að, ísraelsmenn hafi í hyggju að draga, herlið sitt í suðurhluta Líbanon enn sunnar. Andstæðingar Israela, á þessum slóðum segja þá vilja ala á ófriði vegna þess að þeim mislíki hin nýja þjóðstjórn, sem hefur- Sýrlendinga að bakhjarli. Antoine, Lahd, yfirmaður „suður-líbanska hersins", sem Haddad major stýrði á sínum tíma er á förum til ísraels þar sem hann mun ræða við ráða- menn um ný svæði í Suður-Líbanon sem her hans á að.hafa eftirlit með. Þar á meðal er hafnarborgin Sídon þar sem miklar róstur hafa verið að undanförnu. Assad Sýrlandsforseti sagði í viðtali við breska dagblaðið Observer, að Sýrlendingar væru hlynntir því að ísraelar fengju við- unandi tryggingu gegn hernaði Palestínuskæruliða á norðurlanda- mærum sínum, svo fremi sem líbönsk stjórnvöld byðu fram þá tryggingu án íhlutunar annarra. „Við viljum ísraela sem fyrst á brott frá Líbanon og það blasir við að það verður ekki fyrr en þeir hafa fengið umbeðna tryggingu. Við verðum að ganga svo frá að ísrael- ar hafi enga ástæðu til að fara,“ sagði Assad. Ró og friður ríkti í Beirút og þótti óbreyttum borgurum það til- breyting af betra taginu. Ástæðan var talin vera sú, að tveir svarnir fjandmenn slíðruðu sverðin og settust á rökstóla. Voru það Valid Jumblatt drúsaleiðtogi og Fadi Frem, leiðtogi hinna kristnu „líb- önsku hersveita". „Við áttum gagn- legar viðræður," sagði Frem eftir fundinn. Jumblatt tók í sama streng og hélt til fundar við Khaddam utanríkisráðherra Sýr- lands. ísraelar létu til sín taka er þeir gerðu loftárásir á búðir shita nærri Janta í Bekaadal, í austurhluta Líbanon. Var það tíunda loftárás ísraela á Líbanon á þessu ári. Einnig var ráðist á ísraelskan her- flokk í Sídon, handsprengju varpað og hleypt af hríðskotabyssum. Einn ísraelskur hermaður særðist og einn líbanskur borgari féll. Simamynd AP. Saudi-arabísla olíuflutningaskipið Al Ahood í Ijósum logum eftir loftárás írana skammt frá Kharg-eyju. Ætla að skipuleggja siglingaleið Túnis, Manama, Kaíró, Nikósíu ok ltaghdad, 21. maí. Al*. SAUDI-ARABAR og fimm bandaríki hafa nú í athugun að mynda nýja siglingaleið í Persaflóa fyrir olíu- flutninga- og birgðaskip, þar sem viðkomandi lönd gætu tryggt skipum þá vernd sem nauðsynleg er í kjöl- farið á árásum írana á skip frá Saudi-Arabíu og Kuwait. Faisal, utanríkisráð- herra Saudi-Arabíu, sagði í dag, að ríki við Persaflóa „yrðu senn að grípa til aðgerða“ til þess að tryggja eðlilegar siglingar á þess- um stríðshrjáðu slóðum. Á sama tíma sagði utanríkisráðherra Kuwait, að ekkert væri við því að segja að Bandarikin eða önnur vesturveldi sendu herskip og/eða flugvélar til að vernda skip sem sigldu með olíu á þessum slóðum. í því sambandi má geta þess að Ronald Reagan hefur í bréfi til ráðamanna í Saudi Arabíu falast eftir aðstöðu þar fyrir bandarísk- ar herþotur. Ali Khameini, forseti írans Ólafur Jóhannesson látinn ÓLAFUR Jóhanncsson, alþingis- maöur og fyrrverandi forsætis- ráðherra, andaðist aðfaranótt sunnudagsins 20. maí. Hann fór fyrir tæpum mánuði af Alþingi til sjúkrahúsdvalar. Hann var siötíu og eins árs að aldri. Með Olafi Jóhannessyni er genginn einn þeirra stjórnmálamanna sem mest hefur kveðið að á undanförnum 15 árum. Þá var Olafur einnig í fremstu röð íslenskra stjórnlaga- fræðinga. Ólafur Jóhannesson fæddist 1. mars 1913 í Stóra-Holti í Fljót- um. Foreldrar hans voru Jó- hannes Friðbjarnarson bóndi þar og kennari og Kristrún Jónsdóttir kona hans. Ólafur brautskráðist frá Menntaskólan- um á Akureyri vorið 1935 og lauk lögfræðiprófi í Háskóla ís- lands vorið 1939. Eftir að hafa stundað málflutning, starfað fyrir Samband íslenskra sam- vinnufélaga og stundað fram- haldsnám í Stokkhólmi og Kaup- mannahöfn var hann skipaður prófessor í lagadeild Háskóla ís- lands í febrúar 1947 og kenndi þar þangað til hann varð forsæt- isráðherra 1971. Starfsferill ólafs Jóhannes- sonar var víðtækur. Samhliða lagakennslu og margvislegum trúnaðarstörfum öðrum ritaði hann fræðibækur um stjórnskip- un íslands og stjórnarfarsrétt sem enn eru lagðar til grundvall- ar við kennslu í Háskólanum. Hann var á árinu 1979 gerður að heiðursdoktor við háskólann í Manitoba í Kanada. Hann skipaði sér ungur í flokk framsóknarmanna og valdist þar fljótt til trúnaðarstarfa. Hann sat í miðstjórn flokksins frá 1946, var varaformaður hans 1960 til 1968 og formaður 1968 til 1979. Tók setu á Alþingi 1957 sem varaþingmaður i Skaga- fjarðarsýslu, var kjörinn þing- maður sýslunnar 1959 og síðan Norðurlandskjördæmis vestra þar til hann bauð sig fram í Reykjavík 1979, við endurkjör 1983, varð hann eini kjörni þing- maður Framsóknarflokksins á höfuðborgarsvæðinu. Þegar Ólafur Jóhannesson tók við formennsku í Framsóknar- flokknum 1968 hafði flokkurinn verið i stjórnarandstöðu við- reisnarárin, eða síðan 1959. Að loknum kosningum sumarið 1971 tókst Ólafi hins vegar að mynda vinstri stjórn og var forsætis- ráðherra til 1974. í rikisstjórn Geirs Hallgrímssonar, 1974 til 1978, var ðlafur viðskiptaráð- herra, dóms- og kirkjumálaráð- herra. Ólafur myndaði annað ráðuneyti sitt haustið 1978 og sat það í rúmt ár, en í febrúar 1980 tók hann við embætti utan- ríkisráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen. Á ráðherraárum sínum var Ólafur Jóhannesson vinsæll meðal þjóðarinnar án tillits til þess hvernig menn skipuðust í stjórnmálaflokka. Með hógværð en festu stóð hann af sér svipti- bylji. Sem utanríkisráðherra sté hann hiklaust skref er efla ör- yggi þjóðarinnar og treysta sjálfstæði hennar. Hinn 21. júní 1941 gekk Ólafur Jóhannesson að eiga Dóru Guð- bjartsdóttur sem lifir mann sinn. Morgunblaðið vottar frú Dóru, dætrum þeirra hjóna og öðrum ástvinum samúð. sagði á hinn bóginn að Bandaríkin og önnur fylgilönd þeirra rétt réðu því hvort þau sendu herskip eða flugvélar til Persaflóa. Hann sagði: „Bandaríkjamenn ættu að hugsa sinn gang vel og vara sig. Ef þeir skipta sér af þessari deilu munu íranir sjá til þess að þeir fái mun fastari kinnhest en í Líbanon forðum." Siglingar olíuflutningaskipa um Persaflóa eru þegar í lágmarki, sérstaklega eftir árásir Irana á tvö saudi-arabísk olíuskip og eitt frá Kuwait á alþjóðlegum haf- svæðum síðustu dagana. óttast olíuframleiðendur verulega um sinn hag, ekki síst þar sem yfirlýs- ingar stríðsaðila hafa magnast af heift með hverjum deginum sem líður. Barist var víða á vígstöðv- unum í írak og var talsvert mannfall á báða bóga. George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, sagði fyrir skömmu, að útlit væri fyrir að útilokað væri að leysa Iran/írak-striðið eftir diplómat- ískum leiðum. ii Duarte í Washington: „Herinn mun hlýða skip- unum mínum W ashington. 21. niaí. Al'. JOSE Napoleon Duarte, verðandi forseti E1 Salvador, ræddi við Ronald Reagan forseta Bandaríkj- anna í dag, og lauk þar með við- ræðum og 4 daga ferð um Mið- Ameríku og Washington. Duarte sagði bæði við Reagan og frétta- menn, að hann væri þess fullviss að stjórnarherinn í E1 Salvador væri þess reiðubúinn að hlýða skipunum og taka þannig þátt í uppbyggingu lýðræðis í landinu. Hann sagði einnig að skorin yrði upp herör gegn hinum alræmdu dauðasveitum hægri manna og starfsemi þeirra upprætt. Sjá nánar á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.