Morgunblaðið - 22.05.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984
2*-
Falið fé
áfram
öruggt
í Sviss
Bern, 21. maí, frá <)nnu Bjarnadóttur,
fréttaritara Mhl.
Svisslendingar vilja ekki láta hrófla
við svissneskum bankareglum. Tillaga
sósíaldemókrata og annarra haráttu-
hópa um að auka eftirlit með bönkum
og minnka leyndina sem hvílir yfir
innistæðum og eigendum þeirra var
felld með miklum meirihluta í þjóðar-
atkvæðagreiðslu á sunnudag. Aðeins
42% þátttaka var í kosningunum en
73% þátttakenda voru á móti tillög-
unni. Tvísýnna var um niðurstöðu
kosninga um sölu lands í Sviss til út-
lendinga. Þjóðernisflokkurinn lagði til
að það yrði bannað. Tillagan var felld
með 51 % atkvæða gegn 49%.
Niðurstaðan um sölu landsins kom
nokkuð á óvart. Ekki var talið að
hún fengi svona mikið fylgi. Þjóð-
ernisflokkurinn er svarinn óvinur
útlendinga í Sviss og hefur aðeins 2
fulltrúa á þingi. Fylgið sem tillagan
fékk sýnir að Svisslendingum, aðal-
lega í þýskumælandi hlutanum þó,
er mjög umhugað um að takmarka
eignir og áhrif útlendinga í landinu.
Rudolf Friedrich, dómsmálaráð-
herra, var feginn úrslitunum en
sagði að endurskoða þyrfti reglur
um eignarétt og reglum um erfðarétt
einstaklinga erlendis yrði þegar
breytt á næsta ári.
Stuðningsmenn bankatillögunnar
voru slegnir yfir úrslitunum. Þeir
kenndu dýrri og öflugri herferð
bankanna gegn henni um niðurstöð-
una. Barátta sósíaldemókrata hófst
fyrir sjö árum og hefur þegar haft
nokkur áhrif á bankareglur og opnað
banka aðeins.
Falið fé er þó enn öruggt í sviss-
neskum bönkum. Stór hluti þess er
talinn koma frá þriðja heiminum og
þykir stuðningsmönnum tillögunnar
miður að Sviss sé „bankaparadís"
manna á borð við Mobuto forseta í
Zaire.
Sir John Betjeman.
Sir John
Betjeman
skáld látinn
ENSKA lárviðarskáldið Sir John
Betjeman lést sl. laugardag, á 78.
aldursári. Sir John var eitt kunn-
asta og ástsælasta Ijóðskáld Breta.
Hann fæddist 28. ágúst 1906.
Eftir Sir John liggja mörg
skáldverk og hann hlaut margar
viðurkenningar fyrir verk sín.
Sir John hlaut þann heiður árið
1972 að verða útnefndur lárvið-
arskáld.
Sir John Betjeman kom hingað
til lands í ársbyrjun 1970 og las
hér m.a. úr verkum sínum og
hitti íslenzka skáldbræður sína
að máli.
Arkitektar — Innanhússarkitektar — Hönnuðir — Ákvörðunartakar hjá
bæjar- og sveitarfélögum TAKIÐ EFTIR:
KYNNING Á RJÁFURKERFINU frá Rönning haldin í húsakynnum okkar 24. maí n.k.
kl. 14.00. Eftir kynningu verður farið og skoðað uppsett RJÁFURKERFI. /
Góðfúslega tilkynnið þátttöku í síma 84000. /
í RJÁFURKERFINU má m.a. staðsetja lagnir fyrir rafmagnsdreifingu, loftræstingu, neyðarljós, síma-
og samskiptakerfi. Þaraðauki uppfyllir kerfið kröfur um hljóðdeyfingu og breytilega staðsetningu
ljósabúnaðar innan kerfisins.
RJÁFURKERFIÐ er auðvelt í uppsetningu
RJÁFURKERFIÐ er ódýrara en venjuleg loft.
RJÁFURKERFI má breyta á auðveldan máta.
RJÁFURKERFIÐ er hagkvæm lausn.
Ummæli Kolbeins Kristinssonar, frkvst. hjá Brauð hf.:
„Ég hef samanburð á tveimur loftum sem sett voru upp nýlega, — þ.e.
hefðbundnu og RJÁFURKERFI, og það er engin spurning að RJÁFURKERFIÐ er
hagkvæmara. “
RÖNNING^,,^
Jtf RÖNNING Sundabors
sími 84000
fyrir lýsingu og raflagnir — „Allt í einu lofti"
sannkallað kerfisloft frá JÁRNKONST
KJÁFU
KERFIÐ
FRÁ
RÖNNING
Nýtt á íslandi!
Við stígum
skreffid tii fulls
og bjóðum nýja og ennþá fullkomnari
framleiðsluábyrgð
i kjölfar frábærrar reynslu af tvöfaldri llmingu
einangrunarglers hefur Glerborg nú ákveðið að
taka ísetningu með ( framleiðsluábyrgðina. f
þeim undantekningartilfellum sem samsetning-
argalli kemur fram gerum við því meira en að
útvega nýtt gler. Við ökum því beint á staðinn,
setjum rúðuna í og fjarlægjum þá gömlu - við-
skiptavininum algerlega að kostnaðarlausu.
Og hjá okkur þarf enginn að hafa áhyggjur
þótt hann glati reikningum eða kvittunum eftir
öll þessi ár - ábyrgðin er eftir sem áður f fullu
gildi því tölvan okkar man allt um einangrunar-
glerið mörg ár aftur í tfmann.
Oft reynist ísetning mun dýrari en rúðan sjálf.
Hér er því loks komin örugg og fullkomin fram-
leiðsluábyrgð sem undirstrikar -ótvíræða yfir-
burði tvöfaldrar límingar einangrunarlgers.
SAMSETfHNGARUM
Tvöfalda límingin margfaldar öryggið,
endinguna og ábyrgðina
Kynntu þér nýju ábyrgöarskilmálana okkar
GLERBORG HF.
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRDI - SÍMI53333